Morgunblaðið - 10.12.1961, Side 24
24
MORGVNBLAÐIÐ
Sunnudagur 10. des. 1961
\
HtS
MÁLARAMS
ENDURMINNINGAR
JÓNS ENGILBERTS
Jón Engilberts rekur hér megindrættina í lífsvef sínum. Það er eftirminnileg
saga af lífi í listum. Dregnar eru upp skarpar myndir af samferðamönnum
og koma þar við sögu fjölmargir þjóðkunnir fslendingar, svo sem: Ásgrímur
Jónsson, Muggur, Finnbogi Rútur Val^emarsson, Sigurjón Ólafsson, Árni
Kristjánssón, Einar Markan, Snorri H|artarson, Þorvaldur Skúlason, Sveinn
Þórarinsson, Eggert Stefánsson, Svavar Guðnason, Ragnar í Smára, Kjarval
og Kristmann Guðmundsson, — svo nokkrir séu nefndir. Andi frásagnar-
innar er stálsleginn á listamannavísu, framsetningin hispurslaus og hrein-
skilin. Fjöldi ljósmynda frá ýmsum æviskeiðum listamannsins prýða bókina.
* /
Einn af þekktari rithöfundum yngri kynslóðarinnar Jóhannes Helgi, hefur
skrásett sögu listamannsins.
Enníremur ny
unglingabök um
ALBERT SCIiWEITZER
RITSTJÖRN OG ÞÝÐINGU ANNAST FREYSTEINN GUNNARSSON
Albert Scbweitzer er eirrn merkasti samtíðarmaður okk-
ar. Saga hans er einhver viðburðaríkasta ævisaga, sem
gerzt hefur. Hálfþrítugur að aldri hefur hann náð hæstu
lærdómsgráðum í heimspeki og guðfræði. Auk þess kemst
hann í flokk mestu orgelsnillinga. En þrítugur að aldri
tekur hann að nema læknisfræði til þess að gerast sjálf-
boðaiiði í Mið-Afríku Þar hefur hann lengstum dvalizt
síðan árið 1913 og varið kröftum sínum til þess að hjálpa
blökkumönnum í nauðum þeirra. — Saga Alberts
Schweitzers meðal þeirra er stróbrotið og fagurt ævin-
týri.
ÆVINTÝRIÐ UM ALBERT SCHWEITZER er ævisaga
þessa frábæra mannvinar, rituð fyrir unglinga á ahlrin-
um 12—16 ára. I bókinni eru margar myndir.
SETBERG