Morgunblaðið - 19.12.1961, Side 24
5
DAGAR
TIL JÓLA
5
DAGAR
TIL JÓLA
288. tbl. — Þriðjudagur 19. desember 1961
^HIÐ nýja og glæsilega skipx
Ijjíökla hf., Drangajökull, hafn))
pði sig hér á sunnudags-(?
V.kvöldið. Það er smiðað í Hol9)
ölandi og er um 2000 brúttó-jo
(íjlestir að stærð. Mynd þessa*
'Jtók ljómyndari blaðsins, Ól.j!
Jf K. M., af skipinu þar semj
jVþað lá fánum prýtt við'
SpÆgisgarð í gær.
Kominn heim af
þinp;i SÞ
SIGURÐUR Bjamason, ritstjóri
Morgunblaðsins. var meðal far-
þega frá New York með Loft-
leiðaflugvélinni Snorri Sturlu-
son sl. sunnudagsmorgun. Hefur
hann setið allsherjarþing Sam-
einuðu þjóðanna í New York sem
einn af fulltrúum íslands.
Góð færð nyrðra
AKUREYRI 18. des. — Allir
vegir út frá Akureyri eru nú
mjög vel færir flestum bifreið-
'Um. Daglegar ferðir eru milli Ak-
ureyrar Og Reykjavíkur og má
igeta þess að áætlunarbifreið
Norðurleiðar var komin hingað
um kl. 20 í gærkvoldi. Daglegar
ferðir eru einnig til Húsavikur
og er bifreiðin þangað fljót í för-
um.
Þessa dagana er skólafólkið,
sem heima á víðsvegar um land,
óðum að hverfa úr bænum í jóla-'
leyfi. Fer það ýmist með biíreið-
um, skipum eða flugvélum. Mjög
mikið er að gera hjá öll.um af-
greiðslum bæði við bifreiðar,
flugvélar og skip.
Kcsning í Norr imdnráð o.fl.
freð Gíslason, bæjarstjóri, Ólaf-
ur Björnsson ,skipstjóri og Jón
G. Pálsson, en endurskoðendur
iþeir Guðmundur Guðmundsson
framkvstj. og Valtýr Guðjóns-
Á FUNDI sameinaðs þings í gær
fór fram koening þriggja yfir-
skoðunarmanna ríkisreikning-
anna 1061 og voru þeir Jón
Pálmason, Björn Jóhannesson og
Jörundur Brynjólfsson sjálfkjörn
ir.
Þá urðu þeir Gísli Jónsson,
Magnús Jónsson, Sigurður Ingi-
mundarson, Ásgeir Bjarnason og
Einar Olgeirsson sjálfkjörnir í
Norðurlandaráð og til vara Matt-
hias Á. Matthiesen, Ólafur
Björnsson, Birgir Finnsson, Ól-
afur Jóhannesson og Hannibal
Valdimarsson.-
í stjórn síldarverksmiðja rik-
isins urðu sjálfkjömir Sveinn
Benediktsson, Sigurður Ágústs-
son, Jóhann Möller, Eysteinn
Jónsson og Þóroddur Guðmunds-
son, en til vara Jónas G. Rafnar,
Eyþór Hallsson, Sveinn Þór-
steinsson, Jón Kjartansson og
Tryggvi Helgason, allir til
þriggja ára.
Þá urðu sjálfkjörnir í sáldar-
útvegsnefnd Jón L. Þórðarson,
Erlendur Þorsteinsson og Jón
Skaftason, en til vara Guðfinn-
ur Einarsson, Birgir Finnsson og
Eysteinn Jónsson, allir til þriggja
ára.
í stjóm landshafnar í Keflavík
urkaupstað og Njarðvíkurhreppi
voru kosnir til fjögurra ára Al-
Óskemmdur eftir
4ra metra fall
AKRANESI 18. des. — í gær-
kvöldi var fólksbifreiðinni S-475
ekið út af veginum skammt utan
við brúna hjá Litlu-Fellsöxl í
Skilmannahreppi. Bilaði stýri
bifreiðarinnar og flaug hún út af
4. a metra hárri vegbrúninni og
hafnaði ú jafnsléttu á hjólunum.
Reyndist hún ekki hafa skemmzt
við fallið. Engan í bílnum sak-
aði. en þar voru þrír ungir menn.
Bíliinn var austan af BakkafirðL
son.
í verðlaunanefnd Gjafar Jóns
Sigurðssonar voru sjálfkjörnir
Þórður Eyjólfsson, Matthías
Þórðarson og Magnús Már Lárus-
son.
Þess má að lokum geta, til
merkis um hve samgöngur eru
nú góðar bér á Norðurlandi, að
í gær kom hingað bifreið austan
af Hólsfjöllum og gekk ferð
hennar vel. — St. E. Sig.
Gangandi fólk verö-
ur fyrir bílum
TVÖ umferðarslys urðu um
helgina og tvö í gærkvöldi. í
öll skiptin varð gangandi
fólk fyrir bílum.
Um kl. 18.30 á sunnudags-
kvöldið ók bifreið á mann á
gatnamótum Bústaðavegar og
Réttarholtsvegar. Sá, er fyrir
bifreiðinni varð, var Eyjólfur
Ólafsson, Veghúsastíg 1, og var
hann á leið að biðstöð SVR,
sem þarna er skammt vestan
við gatnamótin.
Eyjólfur var fluttur í Slysa-
varðstofuna og síðan í Landa-
kotsspítala. Mun hann hafa
hlotlð talsverð höfuðmeiðsl.
Kl. 19.40 sama kvöld varð
fullorðinn maður fyrir bifreið á
Suðurlandsbraut skammt vestan
Langholtsvegar. Var það Hauk-
ur Antonsson, Suðurpól 4. —
Hlaut hann nokkur meiðsl, en
mun óbrotinn.
Um kl. 18.30 í gærkvöldi
Vernd hefur jölahátíð
einsfæðinga á aðfangadagskv'öld
Á AÐFANGADAG mun jóla-
nefnd samtakanna Verndar halda
jól í Góðtemplarahúsinu fyrir þá
einstaklinga, sem ekki geta veriö
með fjölskyldu sinni á þessari
hátíð. Er þetta í þriðja skiptið,
sem félagsskapurinn gengst fyrir
slíkri jólahátíð. en undanfarin ár
hafa þær gefizt mjög vel t. d.
sátu 50—60 einstaklingar jóla-
boðið í fyrra og þágu flestir
þeirra alfatnað.
Jólanefndin skýrði í gær frá
tilhögun og undirbúningi jóla-
boðsins, en í henni eru Sigríður
J. Magnússon, formaður, Lóa
Kristjánsdóttir. Unnur Sigurðar-
dottir og Rannveig Ingimundar-
dóttir Einnig var þar formaður
Verndar Þóra Einarsdóttir. En
1065 þúsund kr. hækkun til
númsmunnu og listumunnu
í BREYTINGARTILLÖGUM
fjárveitingarnefndar við fjárlaga
frumvarpið 1962, er m. a. lagt
ti'l, að styrkur til íslenzkra náms-
manna hæki um 775 þús. kr. og
nemi alls 8 millj. 53 þús. kr.,
sjúðs íslenzkra námsmanna.
Þá er og lagt til, að styrkir til
skálda, rithöfunda og listamanna
hækki um 290 þús. kr. og nem-
ur sá styrkur þá alls 1 millj.
þar af renna 456 þús. kr. til lána 550 þús. kr.
Sæþór kominn á flot
EFTIR hádegið síðastliðinn laug-
ardag hófst björgun á vélskip-
inu Sæþór, sem sigla varð upp
á land í óveðrinu 25. nóv. sl.
Fyrirtækið Björgun hf. frá
Reykjavík annaðist björgunina
og kom tækjum sínum til Ólafs-
fjarðar eftir illa ferð yfir Lág-
heiði.
Rann í höfnina
Á SUNNUDAGINN rann mann-
laus bifrieð í höfnina við gömlu
verbúðabryggjuna. Hafði bíl-
stjórinn yfirgefið hana stundar-
korn meðan hann hugðist opna
dyr þar sem aka átti bifreiðinni
inn. Bifreiðin var hlaðin fiski og
þeyttis,t hann út um allt en lág-
sjávað var er slysið varð.
Bíllinn, sem var gamall orðinn,
er talinn nærfellt ónýtur.
í fyrradag var skipinu snúið
og komið á spor og dregið 6
metra leið. en í gær var það
dregið 40—50 m og var þá búið
að ná því á flot. Notuð var stór
jarðýta og kranabíll við að ná
skipinu á flot, auk talía, dráttar-
víra og sliska.
Sæþór er talinn að mestu ó-
skemmdur, nema hvað hann lask
aðist ofan þilja er hann lenti á
hafnarvitanum í óveðrinu, áður
■en honum var siglt á land.
Sæsíminn
LOKIÐ er nú að fullu lagningu
hins nýja sæsíma milli Skotlands
og Vestmannaeyja og er gert ráð
fyrir að hann verði tekinn í not-
Ikun hinn 20. jan. næstkomandi.
síðan fyrst í nóvember hefur
verið safnað fatnaði, til að gefa
þeim sem á þurfa að halda og
einnig í jólaböggla, því allir sem
koma fá jólagjöf og einnig verða
að venju sendar jólagjafir til
allra fanga á Litla-Hrauni. Hafa
ýmis fyrirtæki gefið skyrtur,
sokka og nærföt og einstaklingar
notaðan fatnað og skó og hafa
þær Lóa og Unnur gert við
hverja flík og látið úhreinsa.
Hanga nú þegar um 40 alklæðn-
aðir á karlmenn hjá þeim, hrein-
ir og heilir og nokkuð af kven-
fatnaði, en tiltölulega fáar konur
hafa undanfarin ár verið gestir
jólanefndar á aðfangadagskvöld.
Einnig hafa fyrirtæki undanfarin
jól gefið mat og gosdrykki til
jólakvöLdsins.
Hátíðlegt jólakvöld
Jólafagnaðurinn verður eins og
áður er sagt í Góðtemplarahús-
inu og verður sezt að borðum
kl. 6. Sr. Bragi Friðriksson flyt-
ur þar jólahugleiðingu, sungnir
verða sálmar og síðan verða
skemmtiatrlði. Seinna pm kvöld-
ið verður drukkið kaffi og allir
fá jólaböggla. Að venju verður
þeim sem ekki eiga neins staðar
heimili, séð fyrir gistingu yfir
jólin. Og kl. 3 verður byrjað að
úthluta fatnaði þeirra, sem
hans þarfnast.
Sögðu konurnar í jólanefnd-
inni að þær vild/u gjaman ná til
einstæðingsfólks, sem vildi taka
þátt í jólafagnaðinum, og mundu
þær láta sækja og flytja heim
gamalt fólk, sem vildi vera með.
Til að geta sótt fólk heim og
einnig til að fá hugmynd um hve
margt kemur, biðja þær þá sem
taka vilja þátt í þessari jóla-
skemmtun um að tilkynna það í
síma Verndar 24399 eða til for-
manns nefndarinnar í síma 12398.
Eru allir velkomnir, sem vilja
vera með.
hljóp krakki norður yfir Vest-
urgötuna við vegamót hennar
og Garðastrætis. í sama mund
kom bifreið neðan Vesturgöt-
una og varð krakkinn fyrir
henni og kastaðist í götuna, en
mun ekki hafa meiðzt mikið.
Laust eftir kl. 11 í gærkvöldi
varð ellefu ára drengur, Þor-
valdur Gunnlaugsson, Dunhaga
19, fyrir bíl á Fornhaga við
Hagaskóla. Hlaut hann allmikil
meiðsl, brotnaði m.a. á vinstra
fæti. —
Borgari
handtók
innbrots-
þjóf
AÐFARANÓTT mánudags;
évoru tveir innbrotsþjófar
;staðn ir að verki þar sem þeif
höfðu brotizt inn í sælgætis-#
tuminn að Laugavegi 28.1
jMaður nokkur, sem þarna áttif
ileið um, sá til þeirra, og hand'
ók annan þeirra á staðnum,
iNáði hann því næst í leigubíl,;
ók með þiltinn á lögreglustöð-I
na og afhenti hann lögregl-
unni, sem fann hinn piltinn^
(eftir tilvísun hins handtekna.
Piltar þessir eru báðir ungir^
ð árum, fæddir 1944, og hafa
|þeir ekki fyrr komizt undir
anna hendur. Annar þeirra'
fer úr Reykjavík, en hinn utanf
@af landi. ®
<sx^xS><ÍxsxíxSxSxSx«xSxS^xS><S;<s>^>^><Skí>«^xí
Kveikt á Óslóar-
trénu
A SUNNUDAGINN vorú Ijós
tendruð á Osloar-jólatrénu á
Austurvelli, en það er gjöf höfuð
borgar Norðmanna til Reykja-
víkur.
Sendifulltrúi Norðmanna,
Bjame Solheim, afhenti tréð með
ræðu. er hann flutti á íslenzku,
en Geir Hallgrímsson borgar-
stjóri veitti því viðtöku. Lúðra-
sveit og Dómkirkjukór léku og
stmgu við athöfnina. — Sex ára
dóttir Solheim kveikti á trénu.
Næturflug frá
Húsavík
HÚSAVÍK 18. des. — í fyrsta
skipti í sögu Húsavíkurfluigvallar
tók flugvél frá Flugfélagi ís-
lands sig hér á loft í myrkri I
gærkvöldi, en völlurinn er ekkl
raflýstur. Brautin. var merkt með
mörgum þar til gerðum olíuljós-
um, sem nýlega eru komin á
völlinn. Flugstjóri var Bragi
Nordahl og gekk allt að óskum.
Húsvíkingar gera sér vonir um
að völlurinn verði rafl.ýstur á
næsta ári. — Fréttaritari.
Aðflutningsgjöld á bí'-
um og bensíni óbreytt
VIÐ 3. umræðu fjárlaga í gær
lét Gunnar Thoroddsen fjár-
málaráðherra þess getið,
vegna fyrirspurnar frá. Karli
Guðjónssyni um, hvort í
hyggjn væri, að lækka inn-
flutningsgjöld á bifreiðum og
hækka innflutningsgjöld á
benzíni, að hvorugt hefði bor
ið á góma í ríkisstjómixmi.