Morgunblaðið - 28.12.1961, Síða 6

Morgunblaðið - 28.12.1961, Síða 6
6 MORGVTS BLÁÐIÐ Fimmtudagur 28. des. 1961 Fréttabréf ur Rauðasandshzeppi: Hagstætt ár Hagstætt ár, landbúnaður: Arið 1961 er senn á enda. í>að verður að teljast hér í hreppi Ihagstætt ár frá _ náttúrunnar Ihendi. Hún var gjöful við okkur á gras og garðávexti og gaf okk- ur hagstætt tíðarfar til að nýta (hvorttveggja. Afurðir af sauðfé voru góðar, menn keppa að því að £á sem flest tvílembt, og verður nokkuð ágengt, en best held ég gefist þó í þeim efnum að ala tvílemlbings gimrarnar, og hafa tvílembings- ihrúta, því fé er hér allsstaðar vel alið, og sumstaðar kappalið, sem íhefur sitt að segja. Sama er að segja um kýrpen- ing, menn keppa að því að eiga sem afurðamesta gripi, enda er nú seld mjólk að staðaldri frá 15 býlum, hefur mjólkursalan ýtt mjög undir það, að eiga afurða- góðar kýr. _ , Þrír ráðunautar í búnaðarmál- um, héldu hér sameiginlegan fræðslufund á vegum búnaðar- félagsins Örlygur, og voru þeir ráðunautar sinn á hvoru sviði, og veittu mikla fræðslu. Þeir voru: Björn Bjarnason, Árni Pétursson og Jón Magnússon, Ihéraðsráðunautur okkar. Var fundur þeirra mjög vel sóttur af bændum, og fóru báðir aðilar ánægðir af þeim fundi. Byggingar: Lítið hefur verið byggt, því dýrt er að byggja, bóndinn á Hvalskeri, Þórir Stefánsson, byggði fjárhús yfir 120 fjár, með tilbeyrandi hlöðurými fyrir vot- hey og þurrhey, húsin eru úr steinsteypu, vönduð og vel frá gengin, annað hefur ekki verið byggt, nema smávegis lagfæring ar og viðhald sem ekki er hægt að komast hjá. Hestum og fólki fækkar. Það er leiðinlegt, en satt er það eigi að síður, að hestum fækkar hér óðum, og eru nú að- eins eftir 10 hestar í öllum hreppnum, svo ört hefir þeim fækkað, að þó við förum ekki nema til ársins 1955, þá voru þó til 36 hestar. Kúm og kindum hefur þó fjölgað verulega á þessu tímabili, þó hestum og fólki fækki, maður vonar þó að fólk- inu fjölgi aftur, en ég tel von- Mtið með hestana. Flestir þeir hestar sem til eru, eru sama og ekkert notaðir. Þrír eru á Vistheimilinu Breiðavík, drengjunum til gamans, þeim þykir gaman að koma á hestbak, og er oft biðröð við þá. Tveir eru þó verulega notaðir, en það eru hestar póstsins, Kristins Ólafsson ar í Hænuivík, en hann hefur um 16 ár verið póstur á leiðinni Ör- lygghöfn um útvíkur, að Látrum, en ekki ennþá skipt yfir á bíl- ana, svo við fáum að sjá þá við- kunnalegu sjón, að sjá mann ríða í hlað. Allt frá upphafi póstferða á íslandi hafa póstur og hestur háð sameiginlega baráttu, stundum upp á líf og dauða. Væri því vel viðeigandi að póststjórnin léti reisa veglegt minnismerki um ! póstinn og pósthestinn, á viðeig- andi stað, síðar gæti svo komið I við hlið þess, minnismerki um , póstinn og bílinn, sem tók við af | hestinurn. Vond veður. 13. nóvemiber gekk hér yfir óvenju mikið slagviðri, svo úr- koma komst upp í 100 mm. á hálfum sólarhring, á Lamibavatni og í Kvígindisdal, stórkostlegar skemmdir urðu á vegum í óveðri þessu, þó sérstaklega á vegin- um frá Hvalskeri og á Rauða- sand, tók þar veginn af á köflum, steypt ræsi og hvað eina, vegur- inn niður Bjarngötudal, niður á sandinn, var þó verst farinn, því varla var um veg að tala eft- ir flóðið. Margar skriður féllu á tún á Rauðasandi, og ollu miklu tjóni, tóku af vatnsból, fylltu þurrkunarskurði, og eyðilögðu tún. Langt var komið að lag- færa veginn á Rauðasand svo akfær væri, þegar norðan storm urinn skall yfir, en hann fór hér harkalega um, eins og víðar á landinu. Það var mjög hart veð- ur, en þó koma þau verri, en það var mikil snjókoma, og menn voru yfirleitt veðrinu vanbúnir, eftir hin miklu þíðviðri, og loft- vog stóð ekki illa, veðurspá held ur ekki afleit, eða í samræmi við loftvogina, fé var þvj uppi um öll fjöll, og hingað og þangað, en ekki var viðlit, að líta að fé á fjöllum uppi meðan veðrið gekk yfir. Ekki er enn fyllilega vitað hvað farizt hefir af kindum, því allt til þessa eru kindur að finn- ast, og fé ekki allsstaðar komið á hús, en vitað er um nokkrar kindur sem hafa farizt, þar á meðal úr bjarginu, en í slíkum veðrum standur hann fram af brúninni með slíkri hörku, að ekki er stætt, fé hrekur því fram af, sumt lendir í kvöppum í brúninni, en sumt fer í fjöru, Þeæi fiiffsæla mynd var tekin viff höfnina á Þorláksmessu. — Ljósmyndari Mbl.: Ól. K. M. og þarf þá ekki um að binda. Nokkrar kindur fundust á einum stað niðri í brúninni, og voru fenntar, sást að fleiri höfðu far- ið þar niður en hrapað. Eitt sinn man ég eftir að gerði þriggja daga norðan bil, í vik- unni fyrir hvítasunnu. Þá mirst- um við margar kindur framaf. Er við fórum til eggja undir bjarg nokkru seinna, fundum við á einum stað átta í hrúgiu. Eftir þann byl sá ég kind frá mér um 160 metra niðri í bjargi. Mamma hennar hafði stundum gengið þar niðri, og nú ætlaði dóttirin að leika það eftir, en var þá umkringd snjósköflum á alla vegu og hvergi að sjá grasstrá, þún hafði fengið sér afdrep undir nefi sem slútti framyfir sig. Þar hafði hún borið í bylnum, en lamfoið króknað. Það var leiðin- legt að geta ekki komið henni til hjálpar, en hún lifði og varð gömul kind, en fór aldrei niður í bjarg eftir þetta. Félagslíf er með' svipuðum hætti og verið hefir, síðan við fengum félagsheimili. Fjórar skemmtanir eru fastir ársliðir á skemmtanaskránni: Jólatrés- skemmtun fyrir börn, þorrablót fyrir fullorðna, 17. júní fyrir hvern sem er, og töðugjöld fyrir börh og fullorðna. Að vetrinum haifa svo Leikfélagið og ung- mennafélagið spilakvöld, eftir því sem tíðarfar leyfir, og svona eina eða tvær leiksýningar. Á sumrin eru böll af og til, og svo ef við fáum heimsókn leikflokka. Á s.l. sumri kom til okkar leik- flokkur Þjóðleikhússins í fyrsta sinn, og var vel tekið. Inn á milli þessa kemur svo ef einhver á stórafmæli, sem eru hin skemmtilegustu samkvæmi, þótt oft sé þröng á þingi, því þau fara fram í heimahúsum. Sigríð- ur Erlendsdóttir frá Látrum varð sextug á s.l. vetri, og oddviti okkar Snæbjörn Thoroddsen í Kvíindisdal, varð sjötugur nú fyrir skömrnu. Ein af gjöfum er hann fékk, vakti nokkra at- foygli meðal okkar, en það var vindlakassi, útskorinn með dýra- myndum og gamla bænum i Kvíindisdal, mjög vel gerður, það sem athyglina vakti sérstak- lega var, að hann var skorinn eftir konu, húsfrú Sigríði Guð- bjartsdóttur frá Lambavatni, nú húsfrú á Láganúpi í Kollsvík, vitað var um hagleik hennar áð- ur en ekki að hún fengizt við slíka meistarasmið. Annan vindlakassa fékk Snæbjörn einn ig, skorinn af Sveini Ólafssyni skurðmeistara, sem einnig er frá Lambavatni, var vitanlega stór- vel gerður, svo sem allt er Sveinn leggur hönd að. í hófi þessu gaf Snæbjörn Thóroddsen og kona hans, frú Þórdís Thóroddsen, bók eina fagra og mikla til Rauðasands- hrepps, sem í á að skrásetja öll býli og búendur í Rauðasands- hreppi, allt frá 1906 að hreppur- inn var minnkaður í þá stærð sem hann nú hefir, og er ekki að efa, að bók þessi verður hið mesta heimildarrit um þessa sveit er fram líða stundir. Frh. á bls, 19. Nú er dýrðin úti öll út eru jólin liðin. Gengu upp sextán sa-uðaföll að seðja á fólki kviðinn. Nú er loksins orðið autt eldfoúsið á Stritlu Iíka blessað búrið snautt nema blóðmörslangi á hillu. Þessi pistill, sem við á nú eða réttara sagt í gær, þegar Velvaltandi settist að ritvél- inni eftir jólahaldið, er úr nýj- asta hefti af íslenzkri fyndni, sem út kom fyrir jólin. Sauðaföll- eru reyndar ekki lengur aðal jólamaturinn. Meiri nútímaútgáfa af efhi eru því vafalaust ummæli kon unnar, sem sagði: — Iss, bless ekki einu sinni krakkann. á nokkurn Það er nú einu sinni svo, að kræsingar og jól eru orðnir óaðskiljanlegir hlutir. Sumir vilja halda því fram að öll þessi veizluhöld skyggi á hinn raunverulega kjarna jólahaldsins. En mikið má vera ef kirkj psókn eykst ekki hlutfallslega meira á jólum en veizluhöldin, þrátt fyrir allt. Kirkjumar, sem aðra messu- daga ársins standa hálftómar, eru allar yfirfullar á jólum og komast færri að en vilja. T. d. voru svo margir kirkju gestir komnir í Dómkirkjuna hálftíma áður en messa hófst á aðfangadag, að þeir sem á eftir komu, sneru margir við. Ekki aðeins að bekkir væru allir setnir, heldur stóð hópur fólks á gangveginum. Og þannig mun þetta hafa verið í hverri kirkju. \! !^7/ • 9 . s o „ ’A 7460 rTs f)*' ©PIB COPtWIWWtK • Börnin verða að vera stillt En úr því ég minnist á kirkj-ur og jólsimessur, langar mig til að nefna eitt atriði, sem betur mætti fara. Fjöldi fólks kemur með lítil börn með sér til messu. Er ekkert við því að segja, ýmsir kom- ast sjálfsagt ekki án þess að taka börnin með, j-afnvel þó þau séu svo lítil að bau viti varla -hvar þau eru. En það skiptir ekki mál, mörg þau minnstu sofa bara svefni hinna réttlátu í foitanum og kyrrðinni. En þeir sem koma með börn í kirkju, verða að sjá um að þau trufli ekki mess una fyrir öðrum kirkjugest- um. Verði þau óróleg, hlýtur sá fem með þau er, að verða að fara fram fyrir. Þetta þykir sivo sjálfsagt, að furðulegt þykir vafalaust að m-innst skuli á það. En tilefnið er að í einni kir-kjunni sat á jóla- kvöldið móðir með lítið barn, sem leiddist einfover ósköp undir predikuninni og vældi á sífellu: — Mamm-a, við skul- um koma foeim. Ma-mma, mér leiðist o. s. frv.. Blandaðist þessi söngur saman við guðs- orðið alla predikunina út I gegn, og truflaði alla nema móðurina. Starfsmenn kirkj- unnar veigra sér við að h-afa afskipti af slíku og er það skiljanlegt, en fólkið s-jálft verður að hafa þá háttvisi að fara fram og reyna að tala um fyrir börnunum þar eða fara með þau, þegar á daginn kem ur að þau geta ekki setið þegjandi og nokkurn veginn stillt undir measunni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.