Morgunblaðið - 28.12.1961, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 28.12.1961, Blaðsíða 16
16 MORGIJTSBLAÐIÐ Fimmtudagur 28. desL 1961 r Margaret Summerton HÚSID VIÐ SJÚINN Skáldsaga 29 ■J Ég leit kring uim mig í dimma, tþægindalausa herberginu og það fór hrollur uni mig. En ef nú lög- reglan hefur þig grunaðan um dauða Dannys og er alls ekki viss um. að þú sért dáinn.... Æ, í guðs bænum..! En svo stillti hann reiði sína. Betlarar geta ekki verið heimtufrekir, Charlótte. Þetta hlaut að verða áhaettuspil hjá okkur. Og hingað til höfum við verið fjandans ó- heppnir. Hann hallaði höfðinu aftur á stólbakið, eins og hann væri alveg uppgefinn. Þú varst nú heldur ekki nein góð frétt sjálf, eða hvað finnst þér? Ég telst alls ekki með. sagði ég. Mig-langar ekkert í reiturnar hennar Edvinu. Hann hafði litið upp og lampa ljésið skein framan í hajin. en ég gat ekki þolað þennan tor- tryggna svip, sem á honum var og flýtti mér að segja: Þú slepp- ur aldrei frá þessu. Víst gerum við það, Charlotte, vertu viss, sagði hann með ákafa. Nú lokksins erum við famir að sjá fyrir endann á þessu. Á laug- ardagskvöldið slepp ég úr þessari rottuholu. Héðan? Hvernig þá það? Sama hvernig. Það, sem ég þarf að gera, er að komast til Wellmouth og það er alltsaman skipulagt út í æsar. Það er ekkert tunglsljós og á sunnudagsnótt klukkan 1 á háflóðinu. bíður Sam Webster eftir mér á bátnum sínum, og samstundis siglum við áleiðis til Cherbourg. Þar á ég að hitta Souvisant, sem rekur smygl við Norður-Afríku og Baleareyjarnar. Hann hefur lofað að taka mig um borð og setja mig svo í land, hvar sem ég viU. Hann brosti eins og drengur, sem er að tala um fyrirbugaðan skógartúr. Ég er búinn að ná mér í vegabréf — Ivor sá um það, og kostaði eitt fjandans fár! Frá sunnudagsnóttinni kemur er ég Blubble light perur kr. 16.— JOLA T RESSE RIUR JÓLATRÉSSERÍURNAR sem fást hjá okkur eru með 17 ljósum. Það hefir komið í ljós að vegna mis- jafnrar spennu sem venjulega er um jólin endast 17 ljósa-seríur margfalt lengur eri venjulegar 16 Ijósa. Mislitar seríuperur kr. 5. Tfekla Austurstræti 14 Sími 11687 Röskur sendisveinn óskast nú þegar, hálfan eða allan daginn HEKLA H.F. Hverfisgötu 103 — Sími 11275 Erik Appelberg blaðamaður, fæddur í Stokkhólmi. Mér finnst þetta dálítið skýja- borgakennt finnst þér það ekki sjálfum? sagði ég og hristi höfuð ið vandræðalega. Nei, það er fullöruggt. Eftir viku er þetta alltsaman að baki. Ég hafði gert ráð fyrir að verða sloppinn löngu fyrr, en svo mis- tókst allt, hvað eftir annað. Fyrst ætlaði Ivor adrei að geta fundið mann til að falsa vegabréfið, svo varð vélarbilun hjá Souvisant næst varð ég veikur svo að ég hefði ekki getað gengið hérna niður í fjöruna auk heldur þess- ar átta mílur til Wellmourth. Átta mílur! Og með lögregluna á höttunum! Ég hitti nú einn manninn þennan, sem þú varst að nefna, Adkins, í morgun. Hann er að reyna að ná tali af Edvinu. Já. það er mér vel kunnugt um. svaraði Esmond með óþolin- mæði. En Lísa sér um það og svo frú West. Veit frú West líka, að þú ert hér í felum? Já, að vissu leyti, en Ivor sér algjörlega um hana. Hann útveg- aði henni nú fyrst og fremst þessa atvinnu hennar — ég held hún sé eitthvað lítillega skyld honum. Og hún fær góða þóknun fjTÍr að halda sér saman. Hahn leit á mig gremjulega. í>ú skalt alveg hætta að hafa á- hyggjur af þessu, Charlotte, Allt er útreiknað upp á sekúndu. — Hvað snertir þessar átta mílur til Wellmouth þá er því líka borgið. Ég þekki ströndina hérna eins og vasann minn. Á sunnu- dagsmorgun verð ég kominn til Frakklands En nú á dögum vinnur lögregl an í sambandi við lögreglu ann- arra landa. Og þú ert að draga upp fyrir þér æsimyndir af mér, þegar ég verð færður hingað aftur í járn- um? Kannske verður það líka, en ég hef nú samt góða mögu- leika að sleppa. Hann hallaði sér að mér og Ijósið, sem skein fram an í hann, gerði anditið einkenni lega sakleysislegt. Og möguleik- inn sá er lika allt, sem ég fer fram á. Meðan hann sagði þessi síðustu orð. hafði ég verið að horfa á hurðina. Ég sa að hún mjakaðist frá dyrastöfunum. Ég var rokin á fætur áður en hún opnaðist al- veg og sú hreyfing min gerði Es mond hræddan. Hann stökk á fætur bölvandi. En þetta var bara Mark. Og feginsópið, sem var komið fram á varir mínar, hjaðnaði áður en það kæmist lengra. En það var enginn blíðusvipur á andlitinu á Mark, heldur var á því slíkur kulda- og grimmdar svipur, að ég hljóp ósjálfrátt til. eins og til að vernda Esmond. Mark! Röddin í Esmond var sambland af ofsareiði og hræðslu. Hann kom með mér. flýtti ég mér að segja. Esmond leit til hlið ar. Og hann hefur verið hér allan tímann, einhversstaðar í felum? Á hleri, býst ég við! Hvaða skrípaleik eruð þið tvö að leika? Mark kom beint inn. Ég kom með henni, enda þótt ég reyndi að fá hana ofan af því. Þú getur verið alveg rólegur. Esmond — þetta samtal ykkar var ekki vott- fast. Ég er of langur til þess að geta almennilega hlustað gegn um skráargöt Ætli það? Þú hafðir annars allt af þá sérgáfu að stinga nefinu í þaðj sem þér kom ekki við. Og hamingjan skal vita. að þetta kemur þér ekki við Nei svo skilst mér Ef ég sjálf- ur hefði fengið að ráða, hefði ég heldur ekki stigið hér fæti. Ég fór með Charlotte af því að hún heimtaði að fara hingað. og ég taldi ráðlegra, að einhver væri með henni. Esmond öskraði: Hver fjand- ann sjáifan áttu við? Röddin í Mark var kuldaleg og ósvífin: Ekki annað en það, að mér fannst einíhver þyrfti að vera innan heyrnarmáls. | Nú, það var þá eins og ég hélt 1 — þú hefur legið á hleri. Ég hef ekkert heyrt. Röddin í Mark var nú eöliíeg. En eftir að hafa hangið í þessari ísköldu kompu í heilan klukkutíma, finnst mér samtalið orðið nógu langt. Þá er þér ekki nema guðvel- komið að snauta burt og láta okkur í friði. Mark gekk eitf skre-f áfram, og birtan féll á magra. skarpa and- litið. En enginn svipur kom í Ijós nema viðbjóður. Af manni í þínum krmgumstæðum að vera, Amerískar Remíngton roll - a - matic rakvélar 3 kamba Tækifærisverð Kr. 1675 Júhla Austurstræti 14 Sími 11687 X Xr Xr GEISLI GEIMFARI X- >f- <— Nú man ég það. Eg sá þennan Roger Fox meðan ég var í fangelsi á Plútó. Hann var samt ekki fangi. .... Hann er Geisli geimfari, höf- uðsmaður í öryggiseftirliti jarðar! — Pétur, hvað eigum við nú að gera? — Ertu að verða hræddur, Gar? finnst mér þú óþarflega hroka- fullur. Ég æpti. Hættið þið þessu! Verið þið ekki að rífast svona! Mark yppti öxlum. Já, það er heldur þýðingarlítið, finnst mér Hka. Hann leit á úrið sitt. Killukk an er næstum tíu, Charlotte, og það er farið að hvessa. Ég s'ting upp á, að við förum að koma okkur af stað. Hvert? Esmond kreppti hnef- ann og dró hann upp með síð- unni. Til lögregkmnar? Ég vil ráðleggja þér að revna það ekki. Mark. * *. Ég sagði: Æ, Esmond .... Mark væri álíka ólíklegur til þess og ég s jálf. Mark horfði á mig yfir gólfið, en sneri svo aftur að Esmond. Jæja, Mark, þá kemur að þér að svara. Er þetta rétt hjá Charlotte? Charlotte er þrevtt. Hún hefur átt við ýmislegt að stríða í da-g. Ég efast um, að hún geti tekið nokkra skynsamlega ákvörðun. Eins og ég sagði, ætla ég að fara með hana heim. Ætlarðu það? Röddin í Esmond var hörmuleg. Þá verð ég að segja. að þú vanmetur mig. Ég fór að reyna að sansa þá báða. en jafnvel í mínum eigini eyrum var röddin í mér ekki sannfærandi. Allt í einu tók Esmond fram í fyrir mér. Hættu þessu öskri, Charlotte. Ég þarf að hilusta...., Við heyrðum síðasta hóstann I bílhreyfU, áður en slökkt var á honum. Það er allt í lagi, sagði Es- mohd. Þetta er bara bHilinn henn ar Lísu. Ivor lofaði að koma héma við með hana í heimleið- inni. Hann hafði róazt svolítið með- an hann var að hlu.,ta, og nú ávarpaði hann Mark, aðeins með forvitni. Hversvegna þurftirðu að _ rekast hingað einmitt núna?, Ég er búinn að segja þér það. svaraði Mark og gat varla leynt óþolinmæði sinni. Það var Charlotte. sem fann upp á því. Var það nú hennar liugmynd einnar? Vænti ég! Sannast að segja hef ég verið að láta mér detta ýmislegt í hug um þig síð- ustu dagana. Þú hefur verið að annast sýningu á verkum Dann- ys og uppgötva, að dagbækurnar hans séu einhver meistaraverk, sem geyma verði framtíðinni! Esmond hló, Hættu við þetta allt saman, Mark. Ertu kannske hérna til að sýna hvað Guðsson- ur geti verið miklu ástrikari en sonarsonur? Eða ertu kannske að gera það sem betra er, sem sé að vera njósnari fyrir lögregluna og Adkins? Ég æpti upp: Skammastu þín. Hann vissi alls ekki, að þú varst hérna. Hann ætlaði aidrei að trúa mér! Nú. ekki það? Ilvað ertu búin að þekkja hann lengi? Tvo daga? Ég þekkti hann áður. gHÚtvarpið 8:00 12:00 13:00 15:00 18:00 18:20 19:00 20:00 21:45 22:00 22:10 22:50 23:20 Fimmtudagur 28. desember Morgunútvarp (Bæn — 8:05 Morg unleikfimi. — 8:15 Tónleikar —• 8:30 Fréttir — 8:35 Tónleikar — 9:10 Veðurfregnir — 9:20 Tónl.). Hádegisútvarp (Tónleikar — 12:25 Fréttir og tilkynningar). ,,Á frívaktinni“; sjómannaþáttup (Sigríður Hagalín). Síðdegisútvarp (Fréttir og tilk. — Tónleikar — 16:00 Veðurfr. —• Tónleikar — 17:00 Fréttir — Tón* leikar). Fyrir yngstu hlustendurna (Guð« rún Steingrímsdóttir). Veðurfregnir — 18:30 Lög ÚP kvikmyndum. Tilkynningar — 19:30 Fréttir. Erindi: Um sumarauka (Magnús Már Lárusson prófessor). Jólaópera útvarpsins: „Hans og Gréta“ eftir Engelbert Humperd Inck.. Flytjendur: Þuríður Páls^ dóttir, Sigurveig Hjaltested, Guð bjög t»orbjarnardóttir, Hulda Val týsdóttir, Eygló Viktorsdóttir, Guðmundur Jónsson, kvennakóp og Sinfóníuhljómsveit íslands. Hljómsveitarstjóri Jindrich Ro* han. Leiksfjóri: Baldvin Halldóra son. Þýðandi: Jakob Jóh. Smári. Saga jólatrésins (Jóhann Hanneai son prófessor flytur). Fréttir og veðurfregnir. > I>áttur frá Perkins blidraskólan« um í Boston: Frásögn Bryndísap Víglundsdóttur og söngur skóla« barna. Djassþáttur (Jón Múli Árnason). Dagskrárlok.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.