Morgunblaðið - 28.12.1961, Qupperneq 20
Fréttasímar Mbl.
— eftir lokun —
Innlendar fréttir: 2-24-84
Erlendar fréttir: 2-24-85
JOLIN
Sjá bls. 11.
294. tbl. — Fimmtudagur 28. desember 1961
Eldur
í búti
á Faxaflóa
Mannbjörg
SEINT í gærkvöldi var Hafn
arf jarðarbáturinn Sæfari GK
224 logandi 8 sjómílur norð-
austur af Garðskaga eða á
miðjum innflóanum. Var bú-
ið að bjarga öllum skipverj-
um yfir í bátinn Ester, en tog
arinn Sig. Bjarnason var á
leiðinni á staðinn um mið-
nætti, til að freista að taka
bátinn í tog. Eins var varð-
skipið Albert á leið þangað,
en var lengra í burtu, átti
eftir 2—3 tíma siglingu á
staðinn.
Sæfari er eikarbátur, 32
lestir að stærð, byggður
1907. Skipstjóri á honum er
Sigurður Sigurjónsson, einn
af eigendunum. Báturinn
var á upsaveiðum.
Frost tók af
rafmagnið
i tvo tima
f GÆRMORGUN var raf-
magnslaust um tíma í sum-
um hverfum bæjarins. Jakob
iGuðjónsen, rafmagrnsstjóri,
skýrði blaðinu frá því, að um
morguninn hefði krap farið
að myndast við írafossstöð-
ina, enda hafði verið 14 stiga
Ifrost þar austur frá og vind-
ur, svo lónið náði ekki að
frjósa. Jókst krapið svo ört
að um 10 leytið tepptist vatn
ið um írafosstöðina og hin-,
ar stöðvarnar þoldu það ekki
og fór rafmagnið. Ekki stóð
þetta þó Iengi, því brátt
Iygndi og fór lónið að leggja,
svo rafmagnið var komið í
samt lag um hádegi.
Frá fundi Læknafélags Reykjavíkur í gærkveldi. — Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.
Öll læknisþjdnusta undir sama
tryggingakerfi
Frá læknafurtdi i gærkvoldi
1 GÆRKVÖLDI hélt Læknafé-
lag Reykjavikur fund í Háskól-
anum. Fyrir fundinum lá fyrir-
spurn frá Sjúkrasamlagi Reykja
víkur um það hvort Læknafé-
lagið gæti fallizt á að gerðir
yrðu samningar eingöngu um
Skíðakennsla
SKÍÐARÁÐ Reykjavfkur gengst
fyrir skiðaikennslu við Skiðaskál-
ann í Hveradökina fram á nýjórs-
dag. Kennarar verða Stefán
Kristjánssön og Steinþór Jakobs-
son. Ferðir verða frá BSR
daglega kl. 9 f.ih., kl. 1 e. h. og
kl. 6 e. h.
heimilislæknishjálpina, en ekki
læknishjálp sérfræðinga.
Blaðið náði tali af Arinbirni
Kolbeinssyni, formanni félags-
ins, eftir fundinn. Sagði hann,
að þessari tillögu hefði verið
hafnað á fundinum og sett það
skilyrði til samninga að ekki
yrði samið við heimilislækna
nema sjúklingum yrði tryggt að
þeir fengju vissan hluta af sér-
J fræðiþjónustunni endurgreidd-
an. Töldu læknarnir að bæði
heimilislæknisþjónustan og sér-
fræðiþjónustan ætti að vera
undir sama tryggingakerfi.
Þó kom fmm á fundinum ný
hugmynd um fyrirkomulag
greiðslna til sérfræðinga. Sagði
Hvert óhappið rak annað
Arinbjörn, að það væri tæknl-
legt atriði er varðar sjúkrasam-
lagið, en kæmi ekki við sjúkl-
ingana.
Þó heimilaði fundurinn stjórn
og samninganefnd lækna að
gang^frá þessum málum, ef við-
unandi lausn fæst, en bráða-
'birgðalögin falla úr gildi um ára-
mót. Sagði Arinbjörn að haft yrði
samband við Sjúkrasamlagið
strax í gærkvöldi og búast mætti
við að hægt yrði að hafa fund
með fulltrúium þess í dag.
Sigurður Helgason
frkvstj. Loftleiða
1 New York
ÁKVEÐIÐ hefur verið, að Sig-
urður Helgason, forstjóri ORKU
h.f., verði framkvæmdastjóri
Loftleiða í New York frá næstu
áramótum að telja. Sigurður er
varaformaður Loftleiða.
Samningsumræóur
við sjómenn að hefjast
hjá Hitaveitunni
HITAVEITUVATN var af skorn-
um skammti í Reykjavík í gær.
Auk þess sem kalt var, komu
ýmis óhöpp fyrir, sem gerðu það
að verkum að á tímabili fékk
bærinn enga viðbót við það vatn
sem kemur frá Reykjum. Stóðu
vonir til að úr þessu rættist og
meira aukavatn yrði í dag.
Helgi Sigurðsson, hitaveitu-
stjóri, skýrði blaðinu frá gangi
þessara mála í gær. Sagði hann
að vel hefði gengið yfir jólin,
þangað til kólfiaði á annan jóla-
dag. Átti þá að bæta við vara-
stöðinni, en kom í ljós að báðir
katlarnir voru bilaðir. Vitað var
að sá gamli var bilaður, en nýi
ket'illinn reyndist það líka. Varð
það til þess að aðeins _yar 3. m.
vatnshæð í stað 7 í geymunum
í gærmorgun. Ofan á þetta bætt
ist að rafmagnið fór um 10
leytið. Misstist við það heita
vatnið frá öllum holunum í
Reykjavík og dælurnar stöðvuð-
ust allar nema á Reykjum og
Reykjahlíð, en þar eru varastöðv
ar. Kl. 12.45 var því vatnið í
geymunum á Öskjuhlíðinni búið.
Um leið og rafmagnið frá Sög-
inu kom aftur fékk Hitaveitan
straum fyrir holurnar og dælu-
stöðina. Bilunin í katlinum í topp
stöðinni reyndist vera inni í eld-
holinu og þurfti því að tæma
hann og kæla áður en hægt var
að gera við, en um 5 leytið í
gær var það búið Og aftur byrjað
að kynda ketilinn upp og því von
á Elliðaárstöðinni til viðbótar
áður en langt um liði. Sagði hita-
veitustjóri að eftir nóttina ætti
að vera meira í geymunum á
öskjuhlíðinni en I gær, ef fólk
léti þá ekki renna úr hófi.
MÖRG sjómannfélög hafa sagt
upp samningum frá áramótum og
hefur Alþýðusamibandið sent út-
gerðarmönnum kröfur sjómanna
fyrir þeirra hönd. Verður fyrsti
fundur samninganefndanna í dag,
að því er Kristján Ragnarsson,
fulltrúi hjá LÍÚ, tjáði blaðinu í
gær.
Þau félög, sem hér um ræðir
eru: sjómannafélögin á ísafirði,
Þingeyri og Flateyri, af félögun
um á Vestfjörðum, öll félögin á
Snæfellsnesi, á Akranesi og alls
staðar á Suðvesturlandi til Vest-
mannaeyja. Sjómannafélagið á
Hornafirði hefur ekki sagt upp
samningum og yfirleitt ekki félög
in á Austfjörðuim. Á Akureyri
hafa sjómenn sagt upp samning-
um-
Kröfur sjómanna eru sem hér
segir í stórum dráttum. Þeir
gera kröfu um 38 af hundraði af
afla báta 30—50 lestir. Hin al-
menna krafa um aukin hluta-
skipti sjómanna er að þau hækki
úr 29 Vi í 34 af hundraði. Á drag-
nóta- og humarveiðum eru gerðar
kröfur um hækkun hlutaskipta
úr 37 í 40 af hundraði og á tog
veiðum bá'ta úr 31,5 í 36 af hundr
aði. Kauptryggingin verði hækk-
uð úr kr. 5365 í 6300 kr. og út-
gerðarmenn greiði 1% í styrktar
sjóð sjómannafélaganna. Ýmsar
fleiri breytingaT og kröfur eru
gerðar.
Harður
árekstur
KLUKKAN hálf ellefu aðl
kvöldi annars jóladags varðl
harður árekstur á HafnartfjarðJ
Íarvegi skammt sunnan Digra-J
nesvegar. Renaultbifreið, Ö- j
683 kom norðan Hafnarfjarðar,
veginn en vörubifbreiðin G-
296 á móti. í þeim svifum er;
bifreiðarnar mættust missti
ökumaður Renaultbiifreiðar-
innar vald á farartæki sínu,
vegna hólku, og snarsnerist
bifreiðin í veg fyrir vöruhif-,
reiðina- Slys urðu ekki á mönn
um en Renaultbifreiðin er stór j
skemmd. 1