Morgunblaðið - 03.01.1962, Page 9
Miðvikudagur 3- jan. 1962
MORGUNBLAÐIÐ
9
ífW
ÁRIÐ 1962 byrjaði heldur
ófriðlega hjá Portúgölum
— með blóðugri bylting-
artilraun, sem kæfð var
skömmu eftir fæðingu —
en þó ekki fyrr en hún
hafði kostað nokkra menn
lífið og margir lágu eftir
særðir.
Stjórn Portúgals tilkynnir,
að allt sé með kyrrum kjörum
í landinu, en lausafregnir
herma, að mikil ólga sé meðal
íbúanna og miklar varúðarráð
stafanir hafi verið gerðar víðs-
vegar í iandinu. Útifundi, sem
boðað naíði verið til í gær, var
aflýst, þav sem óttazt var, að
til tíðinda drægi ef of margir
hópuðust saman.
Samkvæmt fregnum stjórn-
armnar gerðu byltinguna 40
til 50 menn, undir forystu
tveggja liðsforingja — en aðal
leiðtogmn og hvatamaður bylt
ingarinnar er sagður Mario de
Azvedo Gomez, — sá, sem var
leiðtogi stjórnarandstöðunnar
í kosningabaráttunni í haust.
Er þess skemmzt að minnast,
að stjórnarandstæðingar drógu
framboð sín til baka, fimm
dögum iyrir kosningar, þar
sem þeir fengu enga tryggingu
fyrir því, að talning atkvæða
yrði hlutiaus og réttmæt.
Byltingartilraun í Portúgal
Portúgalska stjórnin segir,
að byltingarmenn hafi farið á
nýársnótt í bifreiðum frá Lissa
bon til herbúða í Beja, sem er
um 180 km suður af Lissabon.
Þeir hafi verið vopnaðir vél-
byssum og skammbyssum og
náð skála liðsforingja á sitt
vald um stundarsakir. Tveim
iiðsforingjum tókst að komast
undan og gera viðvart her-
mönnum, er þegar þurstu á
vettvang. Sló í bardaga, er
stóð nokkrar klukkustundir og
lauk með algerum ósigri bylt-
ingarmanna. Höfðu þá nokkr-
ir menn fallið og særzt.
★
Meðal þeirar, sem létust,
var að&toðarhermálaráðherra
Portúgals, Jaime Filipe de
Fonesca. Hann hraðaði sér til
herbúðanna, er hann frétti af
viðburðum þar, en sem hann
gekk í móti byltingarmönn-
um og krafðist þess, að þeir
gæfut upp þegar í stað, hæfði
hann skot úr byssu eins þeirra
ag lézt hann í sjúkrahúsi
skömmu síðar. Sagt er, að
Gomez hafi einnig særzt hættu
lega og verið handtekinn, en
engar aðrar fregnir hafa bor-
izt af honum. í tilkynningu
stjórnarinnar segir, að all-
margir byltingarmanna hafi
gefizt upp en aðrir verið hand-
teknir á flótta. Siðdegis í gær
vöru fimm menn handteknir,
er þeir áttu aðeins 50 km. ó-
farna að landamærum Spánar.
Þeirra á meðal var Manuel
Serra, fyrrum forystumaður
kaþólsku æskulýðssamtak-
anna, en Serra var í fyrra
dæmdur „in absentia" fyrir
þátttöku í uppreisn gegn
stjórninni fyrir liðlega tveim
árum. Hinir fimm handteknu
voru fluttir til Lissabon.
Hið öpinibera málgagn stjórn
arinnar „Diario de Manha,
sagði í morgun, að 28 upp-
reisnarmenn hefðu verið
handteknir og væru flestir
þeirra verkamenn eða iðnað-
armenn, ættaðir frá bænum
Almada, sem er ekki langt frá
höfuðborginni, segir blaðið að
íbúar Aimada hafi lengi verið
mjög róttækir.
Ekki er ljóst, hvað fyrir
uppreisnarmönnum h e f u r
raunverulega vakað — hafi
þeir aðeins verið 40—50, eins
og stjómin segir. Gizkað er á,
að þeir hafi vonazt til að ná
herbúðunum á sitt vald átaka-
laust og talið, að hermenn
myndu lítt aðhafast án til-
stuðlan liðforingjanna. Síðan
hafi þeir talið að skoðana-
bræður þeirra í öðrum lands-
hlutum myndu láta til skarar
skríða. Sú von, sé hún rétt
ályktuð, virðist með öllu hafa
brugðizt, og bendir allt til
þess, að Salazar hafi enn öll
tögl og hagldir. Hann héfur
nú setið á stóli forsætisráð-
herra alit að því einvaldur,
um 28 ára skeið.
Aðstoðarhermálaráðherrann
da Fonesca var grafinn með
viðhöfn í gær og hylltu lík-
fylgdina þúsundir manna, en
allir helztu ráðamenn fylgdu
hinum látna.
— ★ —
í ritstjómargrein kaþólska
dag'blaðsins „A Voz“ segir 1
dag, að þeir séu margir meðal
þjóðarinnar sem teljast megi
meðsekir um atburðina við
Beja á nýársdag". Allir vita“,
segir blaðið, ,.að óvinir þjóð-
arinnar og stjómarinnar hafa
komið mönnum sínum í mikil-
vægar stöður. Til dæmis eru
margir kennarar bæði í barna
og írarn h a ldss kól um, sem berj
ast fyrir annarlegum sjónax-
miðum. sem andstæð eru
stjóminni“ og stjórnarblaðið
„Diario da Manha“ segir aug-
ljóst, hversu alvarlegt aga-
brot byltingartilraunin sé,
þegar þess sé gætt. að um
þessar mundir sé jarðvegur-
inn í Góa og Angóla votur af
portúgölsku blóði. Því hljóti
sérhvert byltingarævintýri,
sem anað er út í eins og sakir
standa — með bliðsjón af
ástandinu í alþjóðamálum —
að vera árás á alla hina portú-
gölsku þjóð.
Sveinn Ólafsson
vélstjóri — minning
SVEINN var fæddur að Kleifum
í Súðavíkurhreppi 10. 9. 1890,
sonur önnu Torfadóttur og Ólafs
Jenssonar hreppstjóra og útvegs-
bónda í Hattardal. Sveinn ólst
upp hjá föður sínum í Hattardal
og síðar á Hattardalstungu er
faðir hans flutti þangað.
Ég hef fundið hjá mér skyldu
til að minnast þessa kæra móður
bróður míns með nokkrum fátæk-
legum orðum og vona ég að þeir
S':m standa honum næstir taki
viljann fyrir verkið.
Fyrstu kynni mín af Sveini
frænda vom einn fagran sólskins
dag í Hattardal. Það var logn
og blíða og sumarsól, og sólin
gyllti dal og hól og Álftafjörður
og Hattardalsskógur voru klædd-
ir sínu fegursta sumarskarti.
Fjöldi fólks hafði safnazt inn
í skóginn eins og þess var vani
á summm. í þeim hóp var Sveinn
frændi. Hann kom auðvitað fyrst
í eldhúsið til mömmu, því þau
voru ein af þeim góðu systkin-
um sem aldrei gekk hnífur á
milli. Ég á því margar góðar end
urminningar frá þeirra samfund
um sem eru mér ógleymanlegar,
svo var farið í skóginn og skemmt
sér við dans og leiki.
Sveinn frændi var alltaf hrók-
ur alls fagnaðar, hvar sem hann
var og auðvitað eins þennan dag
og er mér enn í fersku minni þær
gamansögur sem hann sagði okk-
ur skrákunum þá.
Síðan hat'a leiðir okkar Sveins
legið mikið saman þó nokkuxt
hlé hafi orðið á því stundum, því
Sveinn var lengst af ævinni á
íjónum vélstjóri á ýmsum skip-
um og þótti alltaf góður og traust
ur í starfi, en síðustu árin vann
hann í Vélsmiðjunni Hamri. Saga
Sveins frænda er ekki saga
manns sem safnað hefur auði hér
é jörð, en hún er önnur og betri
því hún er saga manns sem alltaf
var viðbúinn til að gera allt sem
hann gat fyrir náungann. Og lika
einnig saga manns sem alltaf var
léttur í lund og gat alltaf komið
öllum í gott skap og hlýjað um
hjartarætur með sinni alkunnu
kímnigáfu. Þó svo að á hinn veg
inn væri hann alvörunnar maður
og vel trúaður eins og hann átti
kyn til.
Sveinn var kvæntur Salóme Jó-
hannsdóttur frá Aðalvík og lifir
hún mann sinn. Var heimili
þeirra alltaf ástúðlegt og allir
þeir sem þau heimsóttu fóru það-
an glaðir og léttir í lund.
Ég sem þessar linur rita þekki
Salome það vel að fráfall manns
hennar er henni þungbært, en ég
veit líka að eiginmaður hennar
og hennar góðu mannkostir hafa
búið hana undir þennan skilnað.
Þau Sveinn og Salóme eiga á
lífi 3 syni. Karl verzlunarmaður,
kvæntur Hrafnhildi Einarsdóttur.
Viggó pípulagningameistari
kvæntur Margréti Símonardóttur.
Borgar stúdent og sjónvarpsvirki,
búsettur í Vesturheimi. kvæntur
Esther Macallister.
Svo far þú í friði kæri móður-
bróðir. í fyrsta lagi vil ég þakka
þér hvað þú varst góður bróðir
hennar mömmu, og í öðru lagi vil
ég þakka þér alla þá góðvild og
þá hjartahlýju sem þú hefur sýnt
mér og minum, sem hefur alltaf
vefið eins og sólskinsdagurinn í
Hattardal, þegar fundum okkar
bar fyrst saman.
Ólafur Gunnlaugsson.
KVEÐJA PRÁ BRÓÐUR
Ungur fórstu út á sjó
Eins og flestir Vestfirðingar
af því fá þeir aldrei nóg
enga finna í beinum ró
eðlið ræktað,
sköpin þessi þvingar.
Þitt var aðal ævistarf
úti á hafsins köldu bárum
til þess kjark og þrekið þarf
það og aldrei frá þér hvarf
fyrr en mæddist þú á efri árum.
Margir áttu undir þér
afturkomu von að landi
þessa minnast mætti hér
margur langt til baka sér
vélamenn oft vondu forða grandi.
Marga dapra dimma nótt
dvaldir þú á köldum víði
meðan kúrðu á kodda rótt
krakkar heima, er allt var hljótt
svaf þá stundum óvært
svanninn blíði.
Leiddu þig oft landi að
ljúfar, konu fyrirbænir.
Skip þó sigli stað úr stað,
standi drottinn vörð um það,
ei það saka ægishyljir grænir.
Nú er liðin ævin öll
aflvél hjartans hætt að dæla
eftir leið um lífsins völl
lentir þú í drottins höll
jólakvöld, er hæst stóð
himins sæla.
Gúðm. Guðni.
Laghentir menn
óskast
Táésmiðjan ViíÐIR
Veirarlistinn 1962
Nýi pöntunarlistinn var sendur út á land í byrjun
desember. Þeir sem enn hafa ekki fengið hann, en
hafa hug á því, ættu að senda okkur strax nafn og
heimilisfang. Gerist urr leið ásknfendur að auka-
blöðunum og sendið rneð kr. 10.-----það borgar sig.
Með því að verzla við Hagkaup getið þér sparað
allt að 20% auk þeirra þæginda og þjónustu að fá
vöruna senda heim hvar sem þér búið út á lands-
byggðinni Skrifið strax — gerist áskrifendur.
Hagkaup
Miklatorgi
Reykjavík
Risíbúð til söiu
við Háagerði, sér hiti, svalir og tvöfalt gler. Hag-
kvæm lán áhvílandi. Útborgun lítil. Laus til íbúðar
strax.
RANNVEIG ÞORSTEINSDÓTTIR, HRL.,
Laurásvegi 2 ■— Sími 19960.
Skrifslofiisiulka
Iðnaðar- og verzlunarfyrirtæki óskar eftir duglegri
skrifstofustúlku nú þegar eða 1. febrúar. Eiginhand-
arumsóknir sendist afgreiðslu Morgunblaðsins fyrir
n.k. föstudagskvöld merkt: „Iðnaður og Verzlun —
7487“.
Ibíjð
2-3ja herb. íbúð óskast strax. Upplýsing-
ar gefnar á skrifstofu okkar, Skipholti 33
eða í síma 35320.
VIKJti