Morgunblaðið - 18.01.1962, Page 5
Flmmtudagur 18. jan. 1962
MORGinSBL AÐ IÐ
5
!
MENN 06
= malefn/=
JÓN PÁLSSON, dýralíeknir,
lét af störfum um áramótin,
vegna aldurstakm arks embœtt
ismanna. Hafði harm þá gegnt
dýral æk nisembætti í tæp 44
ár. Fyrst í Austfiirðingafjórð-
ungi með aðsetur á Reyðar-
firði í 16 ár og síðan 28 ár á
Suðurlandi með aðsetur á Sel
fossL
Bændur
ArnessýsBu
heiðra
Jón Pálsson,
dýralækni
Á gamlársfcvöld fcorniu nofckr
ir baendur úr Árnessýslu sam-
an á heimili Jóns Fálssomar á
SelfO'Ssi. Erindið var að þakka
honum rneira en aldarfjórð-
ungsstarf í þágu bænda í sýsl
unni.
Steinþór Gestsson bóndi á
Hæli í Gnúpverjahreppi flutti
ræðu og afhenti Jóni að gjöf
fagran skrifborðsstól, gerðan
af Ríklharði Jónssoyni, mynd-
höggvara. Stóllinn er hin
mesta völundarsmíð oig auk
annars útskurðar er letrað á
framhlið hans: „Jón Pálsson,
dýralæknir“. og „Ljúfast starf
er líkn 1 þraut“. Á bakhlið
stólsins er letrað: „Frá bænd-
um í Ámessýslu 1961“.
Jón Fálsson þakkaði gjöf-
ina og þann vináttuvott, sem
| Karlmannsarmbandsúr
teg. Vitalis, með stálkeðju
tapaðist e. h. 17. þ. m. —
Finnandi hringi vinsaml.
í síma 12102.
Jón Pálsson, dýralæknrr í stólnum, sem bændur í Árnessýslu
færðu honum að gjöf.
sér hefði verið sýndur. Var
gestum boðið til kaffidrykkju
og fluttu þeir Hjalti Gestsson
ráðunautur á Selfossi og
Bjami Bjarnason, fyrrv. skóla
stjóri á Laugarvatni ræður
undir borðum. Var þetta hinn
bezti fagnaður, en honum var
slitið fyrr en ella, þar sem
hátíð fór í hönd.
— Fréttaritari.
Söfsiin
Úr Skagfirzkum þjóðsögum og
sögnum:
Ógn er dimmt í baðstofunni
prestsins.
Maður nokkur kom á prestsset
ur og var boðið upp á loft. Hitt-
ist þá svo á, er hann fer upp, að
kona prestsins eir fyrir í stigan-
um og lendir hann með höfuðið
undir pilsum hennar, en hélt þá,
að hann væri kominn upp á loft-
ið. Kallar hann þá upp og segir:
„Hér sé guð, hér sé guð. Ógn er
dimmt í baðstofu prestins".
Sonarmissir.
Karl einn missti son sinn 1
sjóinn með skipi, sem fórst. Er
hann frétti það, varð honum að
orði: „Enginn þótti mér skaði
að missa drenginn hjá því, að
^hann fór í spánýrri skinnbrókinni
og með nýjan þverpoka fullan af
ólum“.
tistasafn íslands verður lokaS um
óákveðinn tíma.
Asgrimssafn, BergstaSastrætl 74 er
opið þriðjud.. fimmtud. og sunnudaga
frá kl. 1.30—4 e.h.
ÞjóSminjasafniS er opiS sunnud.,
þriðjud., fimmtud. og laugard. kl.
1,30—4 e. h.
Listasafn Einars Jónssonar er lok-
©ð um óákveðinn tíma.
Minjasafn Reykjavikurbæjar, Skúla
túni 2. opið dag'ega frá kl. 2—4 e.h.
nema mánudaga.
Ameríska Bókasafnið, Laugavegi 13
er opið 9—12 og 13—21. mánudaga, mið
vikudaga og föstudaga, 9—12 og 13—18
þriðjudaga og fimmtudaga
Bókasafn Kópavogs: — Utlán þriðju
daga og fimmtudaga 1 báðum skólun-
um.
Tæknibókasafn IMSf, Iðnskólanum:
Opið alla virka daga kl. 13 til 19. —
Laugardaga kL 13—15.
TekiÖ á móti
titkynningum
í Dagbók
frá kl. 10-12 t.h.
Annar sonarmissir.
Karl einn var hræddur um,
að hann myndi missa son sinn,
sem var veikur og bar sig illa.
Sagðist hann næstum heldur
vilja missa vænsta sauðinn sinn
en drenginn.
Kom þá nokkur silungur.
Einu sinni voru menn við sil-
ungsveiði, og gengu tveir þeirra
fyrir marbakkann og d-rukknuðu.
Þegar bróðir annars þeirra frétti
það, sagði hann: „Kom þá nokk-
ur silungurinn“.
Ég sný aftur
Tveir menn mættust á förnu.m
vegi. Segir þá annar: „Þú drepur
þig nú í vötnunum“. „Ég sný þá
aftur“, sagði hinn.
Máske í myrkri.
Maður kom til læknis og
kvaðst hafa sár á tungunni. —
Læknirinn sagði, að ldklega hefði
hann bitið sig í tunguna. „Já“
sagði hann, „másike í myrkri“.
Emk hraðkvæðr
hilmi at mæra,
en glapmáll
of glöggvinga,
opinspjallr
of jöfurs dáðum,
en þagmælskr
of þjóðlygi,
skaupi gnægðr
skrökberöndum,
emk vilkvæðr
ef vini mína.
Sótt hefk mjög
mildinga sjöt
með grunlaust
grepps of æði.
Erum auðskæf
ómunlokri
magar Þóris
mærðar efni,
vinar míns,
þvít valið liggja
tvenn ok þrenn
á tungu mér.
Vask árvakr
bark orð saman
með málþjóns
morginverkum.
Hlóðk loftköst,
þanns lengi stendr
óbrotgjarn
í bragar túni.
Egill Skallagrímsson
(Úr Arinbjamarkviðu).
+ Gengið +
Kaup Sala
1 Sterlingspund 121,07 121,37
1 BandaríkjaUoliar - 42,95 43,06
1 KanadaUoilar 41,18 41,29
100 Danskar krónur .... 624,60 626,20
100 Sænskar krónur .... 829,85 832,00
100 Norskar kr 602,87 604,41
100 Gyllini . 1.189,74 1.92,80
100 Vestur-þýzk mörk 1.075,17 1.077,93
100 Finnsk mörk 13,37 13,40
100 Franskir frank 876,40 878,64
100 Belgískir frankar 86,28 86,50
100 Svissneskir frank. 994.91 997 46
100 Tékkneskar kr. 596.40 598.00
100 Austurr. sch. 166,46 166,88
1000 Lfrur 69.20 69,38
100 Pesetar — — 71,60 71,80
ATHCGIC
að borið saman að útbreiðslu
er langtum ódýrara að auglýsa
í Morgunblaðinu, en öðrum
blöðum. —
Iðnaðarhúsnœði
Vantar 100—150 ferm húsnæði fyrir léttan iðnað sem
fyrst. Tiiboð merict: „Tæki — 7789“ sendist afgr.
Mbl. fyru már.udag 22 janúar.
Tvo vana beitingamenn
og matsvein
vantar á bát frá Sandgerði í vetur.
Uppl. í síma 50641 eftir kl. 8 á kvöldin.
r ,0
Oska eftir að kaupa
4 herb. íbúð í Reykjavík. Þeir sem áhuga hafa á
sölu geri svo vel og ieggi nöfn sín og síma til Mbl.
merkt: „7791“.
Aðsfoðarbókari
Stórt fyrirtælci vantar aðstoðarbókara, karl eða konu,
sem hefur kynni af vélabókhaldi. Góð vinnuskilyrði.
Laugardagsfn á sumrin. Umsóknir merktar: „Miðbær
— 7710“ sendist Mbl. fyrir hádegi á mánudaginn.
Skrifstofuvélar — Saumavélar
Gerum við rirvélar, reiknivélar, fjölritara, búðar-
kassa, saumavélai o. fl.
Fljót og góð afgreiðsla. — Sótt og sent.
BALIVUR JÓNSSON S.F.
Baronsstíg 3 — Sími 18994.
Skrifstofuvinna
Óskum eftir að ráða mann til starfa við birgðabók-
hald félagsins á Reykjavíkurflugvelli.
Umsókmr, er tilgremi aldur, menntun og fyrri
störf, ásatnt meðmæium, ef fyrir hendi eru, skulu
sendar til félagsins, merktar: „Innkaupadeild“,
eigi síðar en 20. þ.m.
Snmhnnd veitinga- og
gistihúsneigendn
Að gefnu tilefni skal vakin athygli á því að sam-
band veitinga- og gistihúsaeigenda hefur flutt skrif-
stofu sína i Tryggvagötu 8 III. hæð.
Ný íbúð til sölu
Til sölu er ný, fullgerð 3ja herbergía íbúð á jarð-
hæð í 3ja íbúða húsi við Goðheima. Tvöfalt verk-
smiðjugler. Allur frágangur mjög vandaður. Hægt
að flytja strax inn. Útborgun á næstu mánuðum
kr. 200.000,00.
ÁRNI STEFÁNSSON, hrl.
Málflutningur — Fasteignasala
Suðurgötu 4 — Símar: 14314 og 34231.