Morgunblaðið - 18.01.1962, Síða 6

Morgunblaðið - 18.01.1962, Síða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 18. jan. 1962 . ..>wwwnw,w!»nwiiyff"y>-mwirwwa•■WlWTwwimm. p.afyw»<■ ÍÍÍÍSS??ÍÍ VaUars(ratt) M- 1 200 Heykja^ifc i despmt>i*r 5961 ÍAusturvelli breytt Á FUNDI borgarráðs á þriðju dag var samþykkt skipulags- tillaga frá garðyrkjustjóra, Hafliða Jónssyni, um framtíð- arskipulag Austurvallar. Ráðgert er að hefjast þegar handa um breytingar, sem þetta skipulag hefur í för með sér. Aðalbreytingarnar eru þær, að völlurinn verður all- ur hækkaður upp, svo að hann verður nokkru hærri en göt- urnar i kring, og gangstígar taka nokkrum breytingum, eins Og sjá má á meðfylgj- andi mynd. Við Vallarstræti kemur upphækkað beð, og í því verður runnagróður og blóm. Þar fyrir innan verður bekkjastæði og rúmgóð, hellu lögð stétt. Inngangur inn á völlinn verð ur gerður rýmri á öllum horn um, og gert er ráð fyrir gang- stétt meðfram Thorvaldsens stræti. Kringum styttu Jóns Sigurðssonar kemur nú rúm- betra svæði en áður var, og útskot fyrir bekki, sem að mestu er skýlt með trjáa- Og runnagróðri. Blómabeð verða ekki fram með öllum stígum, eins Og áður var, held ur á íærri stöðum, en beðin verða breiðari. Samkvæmt viðtali við garð- yrkjustjóra taldi hann, að unnt myndi að framkvæmt brey tingar þessar fyrir vorið, þannig að Austurvöllur myndi kominn i hinn nýja búning 17. júní. Þessi uppdrá.ttur sýnir fram.tíðarskipulag Austurvallar. 1. = Stytta Jóns Sigurðssonar. 2 = Blómabeð. 3. = Runnagróður. 4. = Tré. 5. = Grasfletir. Punktalínurnar A — A og B — B jafnhliða Krikjustræti og Pgsthússtræti sýna, hvar sniðið yrði utan af Austurveili skv. skipulags- teikningum Bredsdorffs arkitekts. Gæftir tregar á Húsavík Útgerð þar með meira móti í vetur Kirfjjustraeti AUSTURVÖaUR Lárus Jóhannesson heið- ursfélagi Lógmanna- félagsins HÚSAVlK, 12. jan. — Frá ára- mótum má segja að veðrið hafi verið heldur óstöðugt hér um slóðir, þótt ekki hafi gert hér vonzkuveður. Hefur samt lítið sem ekkert gefið á sjó. Útgerð héðan er með meira móti í vetur og eru gerðir út 9 þilfarsbátar og nokkrar trill- ur. Eftir því, sem á líður fjölg- ar trillunum. Félap; ísL bifreiða- eigenda stofnar umboð á Akureyri Sl. sunnudag hélt Félag Ssl. bif- reiðaeigenda útbreiðslutfund á Akureyri, en þar er verið að stofna umboð FIB. Verður Jó- hann Kristinsson, Þórshamri im- boðsmaður. Af þessu tilefni fóru norður Arinibjöm Kotbeinsson, læknir, formaður FIB, Magnús H. Aðeins einn af stóru bátun- um er heima, Hagbarður, en þrír gerðir út frá Sandgerði, Pétur Jónsson, Smári og Stefán Þór. Héðinn er á síldveiðum fyrir Suðurlandi. Afli hefur verið hér sæmileg- ur þá daga, sem gefið hefur á sjó. Á haustvertíð var afli nokk uð góður, en gæftir þá, eins og nú, mjög erfiðar. Leiðin til Akureyrar er talin varasöm vegna snjóflóðahættu í Dalsmynni, og er vafamál að áætlunarbíllinn fari til Akur- eyrar á morgun. — Snjóskriða féll á veginn hjá Litlu Tjörn- um í Ljósavatnsskarði nú í vik- unni, og er ókunnugum bezt að hafa gát á ferðum sínum á þess- um slóðum. Hin árlega bamaskemmtun kvenfélagsins verður í dag og á morgun, og er þangað boðið öllum börnum á aldrinum tveggja ára til fermingar. Hef- ur svo verið um áratugi. — Fréttaritari. AÐALFUNDUR Lögmannafélags íslands var haldinn 20. des s.l. Formaður félagsins var endur- kjörinn Ágúst Fjeldsted hrl. og með honum í stjórn Egill Sigur- geirsson hrl. og Jón N: Sigurðs- son hrl. Gísli Einarsson og Þorvaldur Lúðvíksson, sem setið höfðu 1 stjórn sem fulltrúar héraðsdóms- lögmanna, en höfðu öðlast rétt- indi hæstaréttarlögmanna á ár- inu, gengu úr stjórninni. í stað þeirra voru kjörnir Guð- jón Steingrímsson og Kristján Eiríksson, héraðsdómslögmenn. Stjórnin er þvi þannig skipuð nú: Ágúst Fjeldsted hrl. formað- ur, Egill Sigurgeirsson hrl. vara- formaður, Jón N. Sigurðsson, hrl. gjaldkeri, Guðjón Stein- grímsson hrl. ritari, og Kristján Eiríksson hdl., meðstjórnandi. Varastjórn: Gísli Einarsson, hrl., Þorvaldur Lúðvíksson, hrl. og Gunnar Jónsson, hdl. Félagið varð 50 ára 11. desem- ber s.l. og var þess minnzt með 'hófi að Hótel Borg, 9. des. s.l. Minni félagsins flutti Egill Sig- urgeirsson ,hrl., en ræður fluttu auk hans, Jóhann Hafstein, dóms málaráðherra, Gizur Bergsteins- son, hæstaréttardómari, Eilev Fougner, hæstaréttarlögmaður, formaður Den Norske Sageförer- forening, er færði félaginu _að gjöf fagran fundarhamar, Ár- mann Snævar, rektor Háskóla fslands formaður Lögfræðinga- félags fslands, er skýrði frá gjöf frá félaginu, og Lárus Jóhannes- son, hæstaréttardómari. Var í hófinu tilkynnt, að Lárus hefði verið kjörinn heiðursfélagi Lög- mannafélags íslands fyrir frá- bær störf í þágu félagsins, en Lárus var formaður félagsins í 13 ár samfleytt. Aðrir heiðurs- félagar hafa verið kjörnir Sveinn Björnsson, forseti íslands, er var í fyrstu stjórn félagsins ,og Lárus Fjeldsted hrl., sem er einn af stofnendum félagsins, og eini lög maðurinn, er starfað hefur óslit- ið að málflutningsstörfum s.L 50 ár. Kveðjur og gjafir bárust fé- laginu einnig frá lögmannafélög- um Finnlands, Danmerkur, Sví- þjóðar og Færeyja. HONG KONG, 17. jan. — Stú- dentar frá Hong Kong, sem eru við nám á yfirráðasvæði kom- múnista í Kína, fá leyfi til að halda nýjársdag hátíðlegan í heimaborg sinni. Nýjársdag í Kína ber upp á 5. febrúar. Valdimarsson, stórkaupmaður og Sveinn T. Sveinsson verkfræð- ingur. Flutti Arinbjörn erindi um félagsmál FIB og skýrði starf og stefnu samtakanna Og Sveimn T. Sveinsson flutti erindi um olíu- börna vegi. Fundarstjóri var Al- bert Sölvason, forstjóri. í lok fundarins voru sýndar tvær kvikmyndir. Er annað mynd um akstur í hálku, gerð af danska bifreiðaeigendafélaginu, en FIB hefur látið gera við hana íslenzkan texta. Útskýrir mynd þessi mjög vel þá erfiðleika seim mæta bílstjóirum á hálum vegum en slys af völdum hálku eru hér mjög tíð. Hefur myndin verið sýnd fyrir félagsmenn FIB einu sinni, en verður væntanlega sýnd bcráðlega fyrir almenning. Hin myndin var aimerísk Og fjallaði um umferðarmál í stór borg. • Óánægja með skipafréttatíma fyrir austan Sigurjón á Vópnafirði skrif- ar: „Mikil óánægja ríkir hér vegna þess að útvarpið hefur breytt skipafréttatíma sínum. Sérstaklega gildir það um fregnir af ferðum strandferða- skipa. Nú er af, sem áður var, þegar Rákisskip gaf út svo mikið af skipaáætlunum, að svo að segja hvert heimili gat fengið áæt.lun. Þess vegna verða menn að treysta á skipa- fréttir útvarpsins, en á þess- um nýja tíma, kl. 15, er flest allt starfandi fólk við vinnu fjarri útvarpi, og fer því á mis við fréttirnar. Væri því mjög æskilegt, ef útvarpið sæi sér fært að breyta þessum fréttatíma. þó ekki væri nema fyrir strandferðaskipin. Væru þá skipafréttir lesnar á venju- legum tnna í hádegisútvarpi“. • Álfabrenna Aftureldingar Gísli Ólafsson skrifar: „Ég get ekki látið hjá líða, að minnast á góða og ógleym- anlega skemmtun, er ég, börn- in mín og frændsystkin þeirra urðum aðnjótandi sl. sunnu- dagskvöld, en þá hélt „Ung- mennafélagið Aftrelding“ í Mosfellssveit hina árlegu álfa- brennu sína. Að mínu áliti var sérstaklega vel vandað til þess arar skemmtunar, sem stóð í eina og hálfa klukkustund. Alian tímann söng álafkóngur- inn, stór og glæsilegur, álfa- drottningin, nett og kvenleg, og blandsður kór. Álfarnir „marzeruðu“ um allt svæðið. Grýla og Leppalúði voru í ágætu gervi, svo og Skugga- Sveinn og Ketill skrækur, sem var mjög fyndinn. Þá var fjarska tignarleg sjón að sjá riddara koma þeysandi á eld- fjörugum folum langt utan úr myrkrinu og flengríða inn á brennusvæðið. Þá gerðu dýrin sitt til að auka á ánægjuna, hrútur, geit og naut. Einu von- brigði mín voru, hve fáir not- uðu sér þetta einstaka tæki- færi til að skemmta börnum sínum á ógleymanlegan hátt. Ég vil þakka Aftureldingu fyrir góða skemmtun“. Velvakandi hefur heyrt mjög vel látið af álfabrenn- unni, og ættu Reykvíkingar að fjölmenna þangað næsta ár, ef Afturelding heldur slíka skemmtun aftur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.