Morgunblaðið - 18.01.1962, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 18.01.1962, Blaðsíða 24
Fréttasímar Mbl. — eftir lokun — Erlendar íréttir: 2-24-85 Innlendar iréttir: 2-24-84 Landbúnaður 1961 Sjá bls. 13. 14. tbl. — Fimmtudagur 18. janúar 1962 Öryggiskerfið gaf ekki frá sér hljdð- merki Sjóprófum lokið vegna urbræðslu vélar Sigurðar. Ágreiningur um nokkur málsatriði Síðdegis í gær lauk sjóprófum vegna úrbræðslu vélanna í b.v. Sigurði, en sjópróf hafa staðið undanfarna tvo daga, og staðið samtals í um 714 klst. Yfirheyrð voru sex vitni og er ágreiningur uppi um nokkur atriði málsins og tókst ekki að eyða honum við jamprófanir vitna síðdegis í gær. Það var laust eftir áramótin, ttð tveir menn á vegum Vélsmiðj unnar Héðins hf. hófu vinnu um borð í togaranum Sigurði. Áttu þeir að lagfæra f rostspru ngin dæluhús og gera við annað at- hugavert í vélum togarans. Lið- lega hálft ár er Iiðið, sem kunn- ugt er, frá því að togaranum var lagt við Grandagarðsbryggju. Ástæðan til þess, að nú var haf- izt handa um að standsetja vélar skipsins var meðfram sú, að von var á Færeyinguim til að skoða Skipið, með leigu eða jaifnvel kaup fyrir augum. Er skemimst frá því að segja að eftir að nauðsynlegar við- gerðir höfðu farið fraim á dael- uim og fleiru, vair árla sl. fimmtu- dagsmorgun kælivatni hleypt inn á aðalvél skipsins til þess að hita hana upp, en slíkt er jafn- an gert þegar vélin hefur staðið óíhreyfð eitthvað að ráði. Er á- greiningur um það í málimu hvort upphitun þessi haifi aðeins veirið gerð til þess að lekaprófa vélina eða með gangsetningu þeirra Héð insmanna fyrir augum. En hvað sem því líður, var gangsetning ekki reynd þann dag, enda töldu starfsmenn Héðins að vélin væri ekki orðin nógu jafnheit og ek'ki þótti ástæða til þess að vinna fram eftir kvöldi. Morguninn eftir var enn hleypt vatni á vélina til upphitunar o.g klukkan rúmlega 3 um daginn Framhald á bls. 23. Nægilegt bóluefni Ljósmyndari Mbl., Ól. K. M. tók þessa mynd í vélarrúmi bv. Sigurðar í gær, er menn voru að vinnu við vélar skipsins, sem bræddu úr sér sJ. laugardag. Verið er að losa um legur með stórum lykli. ; t GÆRKVÖLDI átti blaðið tal við Benedikt Tómasson ;skólayfirlækni, fulltrúa land- læknis, sem gegnir störfum hans meðan hann dvelst er lendis. Hann kvað heilbrigðisstjóm ina hafa gert þær ráðstafan- ir, að allir sem frá Bretlandi' koma skyldu bólusettir, ef þeir hafa ekki gild bólusetn- ingarvottorð og auk þess þeir, sem koma frá sýktum svæðiun. Taldi l.ann að þeg-’ ar hefði verið gert allt, sem skynsamlegt geti talizt til 7varnar því að bóla komi hér upp. — í gær var bóluefni hér þrotum, en var væntanlegt frá Danmörku í gærkvöldi. Taldi Benedikt ekki ástæðu til að óttast að skortur yrði. á því og eðlileg bólusetning gæti haldið áfram. Slys við Bændahöllina í GÆRDAG varð það slys i Bændahöllinni á Melunu.m að maður, sem þar var að vinna, fell niður eina aæð, Marðist maðurinn nokkuð, en var talinn óbrotinn. Slysið vildi þannig til að mað- urinn, sem var að vinna á fyrstu hæð, þurfti að ná í „batting", sem var á annarri hæð, á grind, sem er milli járnklæðningar utan húss og hússins sjálfs. Steig hann, á annan ,batting“, en hann brotnaði og féll maðurinn niður á fyrstu hæð. Var maðurinn fluttur á slysavarðstofuna og að rannsókn þar lokinni heim til sín. Hann heitir Bjarni Vilhjálmsson, Sörlaskjóli 1*3. Góð síldveiði Vestmannaeyjum, 17. jan. TALVERÐ síldveiði var hér rétt austan við Eyjarnar í dag. Fengu bátar þar 200—700 tunnur, mest Gjafar með 900 tunnur. Sæmi- legt veður var en bátarnir veiddu i landvari v:ð Bjarnarey. Héðan voru 32 línubátar á sjó í dag og væntanlega verða þeir um 40 talsins á morgun. Heiðra Stravinsky Washington, 17. jan. (AP) BANDARÍKJAMENN 1 hafa heiðrað sérstaklega tónskáldið Igor Stravinsky fyrir hinn stóra skerf hans til tónlistarmenntar og auðgunar tónlistararfs al- heimsins. í opinberri móttöku sem bandaríska utanríkis- ráðuneytið efndi til í gær, afhenti Dean Rusk, utanríkisráð- herra, tón- , heiðurspening, ,ueð eftirfar- skáldinu andi áletrun: — Til Igor Stravinsky — á 80. aldurs- ári — sem hefur með tónlist sinni auðgað þjóð vora og heiminn allan. Igor Stravinsky er fæddur Rússi — en árið 1946 gerð- ist hann bandarískur borg- ari. í ræðu sinni sagði utan- ríkisráðherrann meðal ann- ars, að Bandaríkjamenn væru hreyknir af því, að hann skyldi hafa sezt að í Bandaríkjunum, en þeir gerðu sér jafnframt ljóst, að þeir gætu ekki fremur en nokkur önnur þjóð eignað sér hann — hann væri eign engrar þjóðar. Tónskáldið og kona hans verða heiðursgestir í veizlu forsetahjónanna í Hvíta hús- inu á morgun. Gular illhærur versti gallinn á íslenzku ullinni IVIerkar kynbótatitraunlr gerðar á Hólahúlnu Ein aí orsökunum til brottfarar nemenda í TILEFNI frétta um hrott- hlaup skólasveina úr Hóla- skóla sneri hlaðið sér í gær til Stefáns Aðalsteinssonar, búf járfræðings, starfsmanns Atvinnudeildar Háskólans, sem staddur var á Hólum er atburðir þessir áttu sér stað. Var hann þar til að skipu- leggja tilraunir með tilliti til ullargæða og litar á ull og gærum. í sambandi við þess- ar tilraunir er nauðsynlegt að valin séu saman hrútar og ær með ákveðnum ein- kennum og þurfti að vinna það verk nú um og fyrir fengitímann. Fyrr höfðu far- ið fram rannsóknir á ullar- gæðum ánna og gærum slát- urlamba undan þeim. í fréttum var skýrt frá því að einmitt þessi tilraunastarfsemi hefði verið ein af orsökunum til brotthlaups nemendanna, þar sem Unglingur óskast til að bera blaðið til kaupenda í ettirtal- ið hverfi: Fjólugötu Hafð samiband við afgreiðsl una, sími 2-24-80. þeir töldu sér ekki skylt að vinna þau verk sem nauðsynleg eru til þess að hægt sé að framkvæma þessa tilraun, en nemendur töldu að ríkið ættx að standa straum af öllum kostnaði við tilraunirn- ar, bæði vinnu Og önnur útgjöld, Valið saman ær og hrútar 1 Verkið var fyrst og fremst f því fólgið að fara með fjármanni á beitarhúsin á Hagakoti, ca. 4 km. framan við Hólastað, og hjálpa þar til að handsama blæsm ur og reka þær heim í fjárhúsin á staðnum, en þar eru hrútarnir og þar er ánum haldið. Hrútur er hafður með á beitarhúsin til þess að leita uppi blæsmurnar, en bundið er fyrir hann svo ærnar fái örugglega ekki við honum. Höfðu gott af náminu ^ Nemendurnir töldu sig hvorki purfa að læra að reka blæsmur milli húsa né að halda ám og því væri ekki hægt að skuld- binda þá til að taka þetta sem hluta af verknámi. Framhald á bls. 23.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.