Morgunblaðið - 30.01.1962, Side 6

Morgunblaðið - 30.01.1962, Side 6
6 M U Kt; U /V B L AÐ I Ð Þriðjudagur 30. jan. 1962 Eldingum laust niður í loftnet Hrœvareldar loguðu í Mýrdal VÍK, Mýrdal, 26. jan. — Aðfara- nótt föstudags gekk á með hvöss um éljum að vestri með miklum Ijósagangi hér í Mýrdal. í Vík varð veðursins lítt vart, þótt MAMhMti Skemmdri síld ekið i sjdinn AKRANESI, 26. jan. — Talið er að um einnar milljónar kr. tjón sé að ræða í síldar og Fiskimjölsverksmiðju Akra- ness. 10 þúsund tunnur þarf að keyra í sjóir.n af sild, sem orðin er gömul og óvinnandi. Bræðsluafköstin eru 800 tunn ur á sólarhring á skemmdri síld, en ef síldin er ný eru afköst verksmiðjunnar 1700 til 2000 tunnur á sólarhring. [Það er undantekningarlaust mestur hagnaður fyrir þjóðar- búið að hráefnið sé nýtt og óskemmt. — Oddur. Róðrar að hefjast Stokkseyri, 26. jan. HÉR er suðvestan rok og brim og hefur ekki verið róið í þrjá daga. Einn bátur hefur þegar hafið veiðar og fengið 4 til 6 tonn í róðri, en þrír bátar munu byrja á næstunni. Einn bátanna, v. b. Fróði 36 tonna, er nýkeyptur hingað frá Ólafsvík. Þá er verið að ljúka við að endurreisa fiskimjölsverksmiðj- una, sem brann í sumar, og tók hún til starfa fyrir nokkrum dögum. Auk þess sem hún mun vinna fiskúrgang frá hraðfrysti- húsunum á Stokkseyri og á Eyr- arbakka hefur hún verið leigð hlutafélagmu Þörungi og mun hún því framleiða þangmjöl og fiskimjöl jöfnum höndum. Þá er einnig verið að ljúka við að reisa stóra skemmu, sem mjölið verður geymt í. Annað kvöld verður haldið hér veglegt þorrablót í samkvæm ishúsinu cg verður þar margt til skemmtunar. — Ásgeir. Miklar dgæftir Ólafsfirði, 26. jan. HÉR hafa verið miklar ógæftir í janúar, en þó hefur gefið þessa viku og hefur afli verið upp í sex tonn. Er það tregara en í fyrra um þetta leyti og gæftir miklu lakari. — Héðan eru gerð- ir út fjórir stórir bátar, frá 60 og upp í 150 tonn og sex minni þil- farsbátar, en auk þess nokkrar trillur. Hér eru allar samgöngur teppt- ar á landi og fara allir flutning- ar fram á hestum, sleðum eða beltisdráttarvélum. — Jakob. I Ijósagangur væri allmikill, en á I Ioranstöðinni á Reynisfjalli varS i hins vegar versta veður í éljun- um. Um klukkan 5:30 um morgun- inn sló eldingu niður í loftnet stuttbylgjustöðvarinnar á Hraun hól. Rofnaði þá allt samband á þráðlausa símanum. Gert var við þessa bilun strax um morguninn. Um klukkan 11 f.h. gerði aftur snarpt él, og sló aftur niður eld- ingu í sama loftnet og sambandið rofnaði á ný. Þegar veður lægði um hádegið, var strax gert við stöðina. — Svona éljagangur með þrumuveðri er ekki nýtt fyrir- bæri á Reynisfjalli, því að slík veður koma oft að vetrarlagi. Engar skemmdir urðu á sjálfri loranstöðinni. K\ iknaði lyftuvél AKUREYRI, 26. jan. — Klukkan 15:20 í dag var slökkviliðið á Akureyri kvatt að sements- geymslu KEA við Hvannavelli, en þar hafði kviknað í lyftivél. Er slökkviliðið kom á vettvang var eldur í vél lyftivélarinnar, benzíntank og hjólbörðum. Fljót lega tókst að ráða niðurlögum eldsins, en vélin er mikið skemmd. Ekki urðu skemmdir á nærliggjandi mannvirkjum. — St. E. Sig. Fangahús í Ólafsvík ÓLAFSVÍK, 26. jan. — Afli hefur verið tregur og gæftir striðar, bæði er langt sótt og lítið, sem veiðist. — Fimm bátar hafa hafið hér dagróðra, en einn auk þess er útilegubátur, sem var kominn með um 12 tonn eftir tvær lagnir, mest af því var ruslfiskur, en þó voru 5 tonn af ýsu og þorski. — Hér er í smíðum nýtt fangahús og er búizt við, að það verði tekið til notkunar eftir um það bil mánaðartíma. — Þar verður einnig íbúð fyrir lögreglumann og skrifstofa fyrir sýslumanns- embættið, en sýslumaðurinn hef- ur verið á hrakhólum með hús- næði hér. — Þá er hér í smíðum slökkvistöð og er hún komin undir þak. — Hefur vinna við hana fallið *iður nú um skeið, en tekið verður til við hana á ný með vorinu. — Á vegum Reg- ins h.f. er hér enn fremur í smíð um fimm til sex hundruð fer- metra fiskvinnsluhús, en sem kunnugt er yfirtók Reginn og Kirkjusandur h.f. hraðfrystihús Dagsbrúnar haustið 1960. Þá tók hér nýlega til starfa mötuneyti í nýjum húsakynnum á vegum Hraðfrystihúss Ólafs- víkur h.f., en í mötuneytinu er einnig húsnæði fyrir um það bil 60 manns. — B. ÓI. HÁSJÁVAÐ var við Suður- land á fimmtud. og þar ofan á bættist að mikið brim gerði vegna SV-áttar í ytri höfn Reykjavíkur. Sjóarnir gengu æðislega á upphlaðinn kant- inn við Skúlagötuna og varð 1 það ágengt að neðan við Skúlaskála, þar sem áður var Kveldúlfsbryggja brotnaði úr upphleðslu götunnar og horfði til mikils skaða. Starfsmenn Reykjavíkurhafnar brugðu fljótt við og stórir bílar fluttu stórbjörg á vettvang og vörp- uðu framan við gatið er sjór- inn hafði brotið í upphleðsl- una. Eftir skamma stund var hættunni bægt frá en mynd- in sem Sveinn Þormóðsson tók sýnir skemmdirnar og l'björgunarstarfið. Gatið í varn arveggin náði allt upp að gangstéttarsteini Leiðinlegt og lélegt leikrit i Velvakanda hefur borizt bréf um sovézka leikritið leið- inlega, er flutt var í útvarps- dagskránni næstliðið laugar- dagskvöld. Segist bréfritari hafa verið að hugsa um að senda Velvakanda línur. til þess að brýna fyrir leikrita- valsnefnd útvarpsins að vanda betur til valsins, því að nóg er enn óleikið hér af heims- bókmenntum, svo að ekki ætti að þurfa að leita til fjórða flokks ómerkra leikrita. Ann- ars er svo sem ágætt, að fólk kynnist því. hvað bókmenntir geta komizt á lágt stig, þegar sósíal-realisminn er látinn stýra pennanum. Hefði því tæplega verið trúað um alda- mót, að rússneskum leik'bók- menntum ætti eftir að hraka jafn herfilega og raun ber vitni. Bréfritarinn. J. M., seg- ist hafa verið hættur við að skrifa Velvakanda um þetta, þar sem hann hefði ekki nennt því, en þegar hann las út- varpsgagnrýni í Þjóðviljan- um um leikritið gat hann ekki orða bundizt. Gagnrýn- andinn sé greinilega í mestu vandræðum, því að þótt hon- um finnist leikritið augljós- lega lélegt, verður hann samt að verja það til að vinna fyr- ir kaupi sínu. Persónurnar segir hann, að séu „bara venjulegt fólk, rétt eins og fyrir vestan tjald. en að visu með sósíalskt þjóðfélag í bak- sýn“. — Hingað til hefur ekki heyrzt um neitt þjóðfélag, sem væri annað en „sósí- alskt“ en maðurinn meinar serinilega „sósíalistiskt" eða „sósíaliskt" sem er allt ann- ar hlutur. En skrí-bentum kommúnista er einkar lagið að rugla hugtakamerkingum orða, svo að kannske ber ekki að álasa manninum fyrir að gera ekki nákvæman greinar- mun á orðum. sem líta svipað út á pappímum, en merkja sitt hvað. Nóg um það. En hvers konar þjóðfélag var á bak við vesalings leikpersón- urnar ? Jú, bam Taníu andast úr barnaveiki, eins og ekkert væri eðlilegra í þjóðfélagi kommúnismans á miðri tutt- ugustu öld. Kommissar, sem öllu ræður. neitar að sækja meðöl, síðar í leikritinu, þótt líf liggi við, því að hann hef- ur svo mikið að gera við ræðu höld ! Útvarpsgagnrýnandi Þjóðviljans dregur svo þessa gáfulegu ályktun: „í þessu leikriti er því líkast, sem þjóð félagið komi einstaklingnum til hjálpar, þótt með óbeinum hætti sé. í starfinu fyrir þjóð- félagið. flok-kinn, kommúnism ann finnur einstaklingurinn fótfestu í lífnu“. — Já, ætli þessi fótfesta sé ekki á nokkuð óbeinan hátt? Sennilega finnst gagnrýnandanum það líka, því að síðar segir h-ann við sjálfan sig: „Ef til vill er þetta blekking, en hver er sá. sem ekki lætur blekkjast, annað hvort til góðs eða ills?“ Sagt er. að hver sé sæll í sinni blekkingu, en það er ekki rétt. Þeim, sem blekkjast, er vorkunn, og nauðsynlegt að svipta blekkingahulunni frá augum þeirra, áður en þeir smita út frá sér. — J. M. • Bingó hefur forréttindi Bingóspil er nú mikið í tízku, enda skilst mér að i því geti hver sem er tekið þátt, fólk sigri ekki á kunn- áttu eða þekkingu á nokkrum hlut, (þurfi aðeins að vita mun á láréttu og lóð- réttu) heldur á einskærri heppni. En það eru ýmsar hlið ar á bingó-málinu. Eina þeirra tekur maður nokkur fyrir í bréfi til Vel- vakanda, þar sem rætt er út frá sjónarmiði veitingahús- anna. Hann segir að veitinea- húsin séu nú orðin svo mörg í bænum. að þau séu sár-alítið sótt fyrri hluta vikunnar, j-afnvel þó þau hafi rándýra skemmtikrafta — nema þau sem geti fengið einhver félög eða samtök til að efna til „bingós“. Virðist ekkert því til fyrirstöðu að þau megi hafa opið til kl. 1 og þá þyrp- ast þangað gestir. Hin veitinga húsin, sem ekki kjósi að hleypa þessum heldur hvim- leiða f-araldri inn, verði að loka á lögákveðnum tíma. og standa tóm. Þegar ákveðið v-ar að breyta lokunartíma á veit- ingastöðum hafi því verið tekið með fögnuði, jafnt af eigendum, starfsfólki og gest- um veitinga'húsanna. En jafnt þurfi yfir alla að veitingastaði að ganga, og leyfa þurfti öll- um að eiga kost á að h-afa opið til kl. 1 og til kl. 2 á laugar- dögum eða engum. Um leið ræðir bréfritarinn nauðsyn þess að veitingast-að- ir, sem fyrir hendi eru, reynist hlutverki sínu vaxnir, nú þeg ar ferðamannastraumur eykst. Allt starfsfólk veitingahús- anna þurfi að læra sitt starf, ekki aðeins þjónarnir og mat- reiðslumennirnir, eins og nú er. Auk þess krefjist góðir veitingastaðir og góð þjónusta við gesti mikillar fjárfestngar og mikls rekstrarfjár. þannig að ef veitingarekstrinum er í-þyngt með óhóflegum sköttt- um, kyrki það alla góða veit- ingastarfsemi. Ýmislegt fleira kom bréfritari inn á, t.d. að þörf sé orðin á að hafa einn veitingastað með matarveiting um opinn aila nóttina o. fL

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.