Morgunblaðið - 30.01.1962, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 30.01.1962, Qupperneq 8
8 MORGVNBLAÐIÐ Þriðjudagur 30. jan. 1962 Síðasta sendingin kom i gær EINS og kunnugt er eyðilagð- ist mikið af ýmsum varningi í geymslu Loftleiða í eldsvoð- anum á Reykjavíkurflugvelli í gær. Var félagið nýbúið að endurnýja birgðir sínar af' varningi, em seldur er toll- ;frjáls um borð í flugvélum, aðallega tóbak, sælgæti og á- fengispelar. Kom síðasta send- ingin af varningi þessum laust fyrir hádegi í gær, en nokkrum klukkustundum sið- ar var ,,lagerinn“ rjúkandi brunarúst. — Stórbruni Framhald af bls. 1. Isins, en þannig hagaði til að gafl ar braggar.na þriggja námu við vesturhlið þess. í skýlinu voru margar flugvélar, þar á meðai sjúkraflugvél Björns Pálssonar. Skrifstofa Björns er áföst flug- skýlinu. Var hann þar staddur ásamt tveimur mönnum Og vissu þeir ekki fyrri til en mikill reykj armökkur breiddist út úr skýl- inu. Héldu þeir í fyrstu að kvikn- að væri . flugskýlinu, og var rokið til að bjarga út flugvélun- um. Dreif að sjálfboðaliða og náð- ust allar flugvélarnar út á fimm eyðilagðisí, en trukknum stóra tókst að ná út, þá mikið brennd- um. Ennfremux tókst starfsmönn um Loftleiða, sem flykktust á staðinn af skrifstofum við Reykja nesbraut, að bjarga húsgögnum, Ráðizt var að eldinum ofan af þaki flugskýlisins, Og að fram- anverðu. En allt kom.fyrir ekki, og má heita ab allt hafi brunnið, sem brunnið gat. Braggarnir voru þiljaðir með trétexi, og auk þess var þar mikið geymt af eldfim- um efnum. Gamla flugturninn og hús slökkviliðsins tókst að verja, en hinsvegar urðu nokkrar skemmd- jr á sjálfu flugskýlinu. Um sexleytið hafði tekizt að slökkva eldinn, en þegar þetta var ritað klukkan sex í gær- kvöldi var slökkvistarfi enn ó- lokið. Leyndust enn glæður í ýmsu dóti í bragganum. Þá kom og á daginn að tals- vert af áfengisflöskum, sem geymdar voru í einum bragg- anum, voru heilar og voru tollverðír á stjái í brunarúst- unum. Kluttu þeir alls þrjá senidiferðabílfarma af koníaki og dýrum veigum niður í tollbúð í gærkvöldi. • Mikil verðmæti í húsakynnum Loftleiða voru mikil verðmæti, allar birgðir þeirra, bæði varahluta Og mat- vælabirgðir. Á síðustu stundu tókst að bjarga flugvélarhreyfli út úr eldinum, en kaupverð hans er hálf milljón króna. Þremur flugvélahjólbörðum var og bjarg að svo og tveimur smátækjum. Ekki voru fleiri hreyflar þar í geymslu, en mjög mikið af alls kyns tækjum í flugvélarnar, milljónaverðmæti, sagði Halldór Sigurbjörnsson, yfirflugvirki Loftleiða, sem kom á vettvang. Reykjarmökkinn leggur upp af bröggunum á Reykjavík- urflugvelli í gær. Verkstæð- isbragginn, þar sem eldurinn kom upp, er í miðið. (Ljósm. Sv. Þormóðsson). en það voru margir dropar, sagðl hann og hristi höfuðið dapur í bragði. Loftleiðamenn, sem unnu að björgunarstaríinu sögðu, að vín- birgðirnar hefðu verið 2—3 tonn. Þessar mikilsverðu upplýsingar flugu eins og eldur í sinu meðal Flugvélarnar fuku Trukkur flugmálastjórnar, sem dreginn var logandi út af verk- stæðinu í gær. Bíllinn má heita ónýtur. (Ljósm. Sv. Þormóðss.) mínútum eða svo. Var þá allt orðið fullt af reyk í flugskýl- inu. Ennfremur var allt laus- legt tekið úr skýlinu, benzíntunn- ih", hjólbarðar, bílar, lyftarar og allskyns tæki. Um þetta leyti hafði slökkvi- lið flugvallarins ráðist að eldin- um og nokkru síðar kom slökkvi lið Reykjavíkur. Voru þá bragg- arnir alelda og ekki hægt að kom ast inn í þá. Snjóplógurinn, sem fyrr var getiö náðist ekki út og teppum og ýmsum áhöldum úr matsal og eidhúsi. • Ekkert vatn ! Það háði slökkvistarfinu mjög að erfitt var að fá vatn til að spiauta á bálið. Urðu slökkviliðs- menn að leggja slöngur eftir endi löngum flugvellinum og út á Njarðargötu U1 þess að komast að brunaliana. Voru lagðar á milli 40 og 50 15 metra langar slöngur. ;ÞEGAR eldurinn kom upp á flugvellinum í gær var mikill fjöldi smáflugvéla dreginn í ofboði út úr flugskýlinu, sem stendur við gamla flugturn- inn. Síðan beindist öll athygl- in að slökkvistarfinu — og veittu menn því ekki athygli; í ákafanum, að hríð skall á og vindurinn óx snögglega. íMargar litlar flugvélar fóru þá af stað, ein var næstum fokin á bíl — og var þá hafizt handa um að reyna að smala flugvélunum saman á ný,1 sagði einn áhorfenda, sem tók virkan þátt í björgunarstarf- inu. Her eru tveir menn að forða litilli einkaflugvél á öruggan stað. inu við hliðina á sjálfum eldinum. Fjöldi fiugvéla var í flugskýl- (Ljósm. Sveinn Þormóðsson) Það logaði glatt í koníakinu í birgðageymslu Loftleiða. Eld- tungurnar standa út um dyr geymslunnar. (Ljósm. Sv. Þorm.) „Þarna fcru allir okkar vara- hlutir", sagði hann. „Það er að- eins smáræði sem við höfum bjargað". Og þarna brann eldhús Loft- leiða, þar sem framleiddur er allur matur í flugvélarnar á flug- leiðum frá íslandi. Það gerir stórt strik í reiknmginn hjá Loftleið- um að missa eldhúsið — og mat- salinn, sem var áfastur, því nú verður félagið að leita til Kefla- víkur — a. m. k. meðan • verið er að koma upp nýju eldhúsi og matsal. Matarbirgðir brunnu, 600—700 þúsund að verðmæti, sagði Ólafur Erlendsson, stöðvar- stjóri. Enihverju smáræði tókst að bjarga, en það verðmætasta, áfengið og sígaretturnar, ilm- vötnin og sælgætið, sem selt er í flugvélunum, fór allt — og var félagið nýbúið að fá nýjar birgð- • Miklar áfengisbirgðir Elías bryti, sem líka stóð í björgunarstarfinu, sagðist ekki geta áætlað með vissu hve mik- íls virði áfengið hefði verið — mannfjöldans, sem drifið hafðl út á flugvöll fyrir forvitni sak- ir, og eftir hálftíma voru áfeng- ísbirgðirnar í eldinum komnar upp í 8—10 tonn. Tollverðir voru mættir til þess að hindra að menn nældu sér í fleyg í allri ringulreiðinni. En ekki var mikil hætta á því. Eld- urinn var svo magnaður, að eng- inn vogaði sér nær húsinu. En af og til heyrðust hvellir inni í eldinum og áhorfendur voru sann færðir um að þarna væru vín- flöskurnar að springa. Einhverju tókst að bjarga af húsgögnum úr matsalnum og unnu nærstaddir ötullega með Loftleiðamónnum — og voru Flugfélagsmenn þar fjölmennir. • Ratsjáin flutt Þegar sýnt var að eldurinn yrði ekki kæfður þegar í stað fóru flugumferðarstjórarnir í turnin- um og starfsfólk veðurstofunnar, sem enn er til húsa á annarri hæð gamla turnsins, að hugsa til hreyfings. Margir sjálfboða- Framnald á bls. 17. ) #

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.