Morgunblaðið - 02.02.1962, Side 3
Föstudagur 2. febr. 1962
MORGUNBLAÐ1Ð
3
Þeir mæla
HJÁ embætti borgarlæknís-
ins í Reykjavík fer fram
margskonar eftirlit með heil-
brigðisháttum í bænum. —
Starfa við þetta eftirlit sex
menn: Árni Waag lýtur eft-
ir kjötverzlunum, mjólkur-
búðum og brauðgerðarhúsum;
Eggert Ásgeirsson fylgist
með kjötvinnslu og matvæla-
framleiðslu; Hróbjartur Lút-
hersson sér um fiskverzlanir
og svonefndar sjoppur, Sig-
ríður Erlendsdóttir hefur eft-
irlit með snyrtistofum, veit-
ingastofum og kaffihúsum og
Xheódór Magnússon sér um
eftirlit með leiguhúsnæði.
Síðast en ekki sízt er Sör-
en Sörensen, sem fylgist með
heilbrigðisháttum og hrein-
læti í verksmiðjum og á
vinnustöðum. — Blaðamaður
Mbl. hitti Sören að máli á
dögunum og ræddi við hann
um starfið og gang mála,
þegar til hans kasta kæmi.
— ÉG FER á staðina eftir
þörfum, sagði Sören, — og
Sören Sörensen. Hann er
eftirlitsmaður borgarinnar
með heilbrigðisháttum á
vinnustöðum.
athuga þar umgengni, hrein-
læti og hreinlætisaðstöðu. Ef
ekki er t.d. kaffistofa þar
eða viðunandi aðstaða til
þess að þvo sér,' þá reyni ég
að fá slíkt lagfært. Ég hef
síðan nánar gætur á, að bætt
sé úr því, sem ég hef gert
athugasemdir við.
— En ef forráðamenn
vinnustaða skella skolleyr-
um við fyrirmælum þínum?
— í>á gef ég viðkomandi
stuttan frest til þess að bæta
úr því, sem aflaga fer. Ef
ekki er skipast við, innan
frestsins, þá legg ég málið
fyrir borgarlækni og hann
tekur ákvörðun um, hvort
ástæða sé til þess að leggja
málið fyrir heilbrigðisnefnd
borgarinnar. Nefndin getur
síðan samþykkt að loka
vinnustaðnum með atbeina
lögreglustjóra.
— Hvernig fáið þið upp-
lýsingar um vafasama heil-
brigðishætti?
Við athugum vitaskuld alla
staði reglulega og suma
staði oft, ef ástæða er til.
Svo fáum við stundum kær-
ur og þá er brugðið skjótt
við. Það eru kvartanir um
allt milli himins og jarðar,
slæma umgengni, slæma af-
greiðslu, hávaða, vont loft á
vinnustað og þar fram eftir
götunum.
Ef kvartað er undan háv-
Með þessum mæli er hægt að mæla hávaðan. Ljósm.: Sv. Þ
hávaöa og eiturgufur
aða frá vinnustað, þá höfum
við þar til gerð tæki til þess
að mæla hávaðann og ákveða,
hvort ástæða sé til þess að
knýja vinnuveitandann til
þess að gera ráðstafanir þar
að lútandi. Á sumum vinnu-
stöðvum eru einnig oft notuð
ýmis efni, sem spilla and-
rúmsloftinu, þar eða annars-
staðar. Við höfum tæki til
þess að mæla slíkar gufur.
ÞEGAR Sören var spurður,
hvernig vinnuveitendur brygð
ust við komu hans, sagði
hann, að skilningur þeirra og
starfsmanna væri undantekn-
ingarlítið góður. Þeir skilja
nauðsyn slíks eftirlits, vita
að það er báðum aðilum til
góðs.
— Hafa kvartanir, sem ykk
ur berast, við rök að styðj-
ast?
— Langoftast er ástæða
fyrir slíkum kvörtunum, og
við tökum slíkum ábending-
um með þökkum. Það auð-
veldar okkur eftirlitið og
leiðir aðeins til góðs að fólk
sé vakandi fyrir þessum
hlutum. Það kemur fyrir, að
sumum finnst þetta óþarfa
rex í mér, þegar ég kem og
vil fá að kanna málið, en
það heyrir til undantekninga.
Ég man eftir nokkrum dæm-
um þess, að menn hafa verið
óhressir og brugðizt fremur
ílla við komu minni, en það
hefur allt saman farið vel
að lokum.
Á ýmsum vinnustöðvum
höfum við nána og góða
samvinnu við trúnaðarmenn
verkalýðsfélaganna og það
samstarf hefur auðveldað
mér starfið, sagði Sören að
að lokum.
— Og hvernig finnst þér
heilbrigðishættir hér á blað-
inu? spurði blaðamaðurinn, *
um leið og Sören gekk á
braut.
— Þeir eru ágætir, sagði
hann, um leið og hann sneri
sér við í dyrunum, — en í
þínum sporum myndi ég
ekki slá úr pípunni á gólfið.
J. R.
piwBÍ
HEIIHILI EVRIil
8ÆIMGLRKONIJR
verði stofnað í Kópavogi
! Á BÆJARSTJÓRNARFUNDI í
Kópavogi 19. jan. sl. bar Sveinn
S. Einarsson bæjarifulltrúi (Sjálf-
stæðisflioikksinis) fram tillögu um
að bærinn greiddi fyrir stofnun
heimilis fyrir sængurkonur, og
að skipuð yrði yfirsetuikona fyrir
bæjarfélagið, svo sem skylt er
að lögum, en kommúnistar hafa
árum saman þrjóskazt við að
gera.
Flutninigsmaður lagði áberzlu á
að þessi tillaga fengi afgreiðsiu
það fljótt, að hægt væri að tafca
imn á fjárhagsáætlun fyrir 1962
útgjöld, sem af benni kynnu að
leiða. Talsverðar umræðiur urðu
um þetta mál á bæjarstjórmar-
fundimum, og var tillögunni ein-
róma vísað til bæjarráðs. Þstta
mál var til umræðu á fjölmenn-
um aðalfundi Sjálfstæðiskvenna-
félagsins Eddu í Kópavogi s.l.
þriðjudag, og var þar gerð svo-
felld ályktun:
„Aðalfundur Sjálfstæðiskvenna
félagsins Eddu, Kópavogi, hald-
inn í Sjálfstæðishúsinu, Borgar-
holtsbraut 6, þriðjudaginn 30.
jamúar 1962, harmar að rekstur
heimilis fyrir sængurkonur í
Kópavogi skudi hafa fallið niður,
þar eð það bætti úr mjög brýnni
þörf og hafði áunnið sér miklar
vinsældir meðal húsmæðra í
Kópavogi.
Sborar fundurinn á bæjarstjórm
Kópavogs og bæjarstjóra að
greiða fyrir því, að þessi starf-
semi vterði tekin upp atftur hið
allra fyrsta, og ennfremur að
skipuð verði ljósmlóðir fyrir
Kópavog svo sem skylt er að lög-
um. Fundurinn skorar á allar
konur í Kópavogi, hvar í flokki
sem þær standa, að styðja þetta
mál af alefli.“
Mótmæla staðhæf-
ingu Zorins
New York 1. febrúar.
SENDINEFND Kongóstjórnar
hjá Sameinuðu þjóðunum neitaði
því harðlega í dag, að Sovét-
stjórnin hefði samráð við hana
um að kalla Öryggisráðið saman
til fundar Kongómálsins.
Fastafulltrúi Rússa hjá SÞ,
Valerian Zorin, hélt því fram á
fundi Öryggisráðsins á þriðju-
daginn, að sovézka sendinefndin
hefði beðið kongósku nefndina
að koma ráðagerðinni á fram-
færi við Kongóstjórn og leita
álits hennar. Þá skömmu áður
höfðu borizt mótmæli Adoula,
forsætisráðherra miðstjórnarinn-
ar í Kongó, sem taldi umræður
í Öryggisráðinu sízt mundu bæta
fyrir þróun mála í Kongó eins
og nú væri háttað.
Karlakór Reykja-
víkur í útvarpi
erlendis
UND ANFARIÐ hafa borizt
fréttir af útvarpi á söng Karla-
kórs Reykjavíkur í Ameríku og
Englandi. Snemma í janúar var
útvarpað söng kórsins á vegum
BBC í London og endurvarpað
til Kanada. A aðfangadag voru
leikin tvö jólalög um vestur-
hluta Kanada og aftur á jóla-
dagskvöld, tvisvar sinnum, sam-
kvæmt óskum hlustenda.
Þá hafa kórnum einnig bor-
izt þær fréttir frá hljómplötu-
útgáfufyrirtækinu Monitor í
New York, að platan, sem það
gaf út með söng kórsins, hafi
selzt mjög vel og verið leikin
víða í útvarpsstöðvum í Banda-
ríkjunum.
Karlakór Reykjavíkur hefur
nú í undirbúningi útgáfu á ann-
arri hljómplötu á vegum sama
fyrirtækis með þjóðlögum frá
N orðurlöndum.
STAKSTEIMAR
Horfðu reíður um oad
Steindór Steindórsson, mennta
skólakennari á Akureyri, ritar
ekki alls fyrir löngu grein í tíma
ritið „Heima er bezt“ undir fyrir
sögninni: „Horfðu reiður um öxl“
Ræðir hann þar fyrst og fremst
vandamál æskunnar og þá spurn
ingu, hvort reið
in sé æskilegasta
leiðin til þess að
bæta úr því, sem
miður fer í heim
Inum, og skír-
skotar þá eink-
um til reiði æsk
unnar, sem rík-
ið skal erfa, og
„fær það hiut-
verk að gera Steindór St.
þjóðfélagið full-
komnara og betra en feðrunt
þeirra og mæðrum tókst“.
Greinarhöfundur ræðir um 19.
öldina og þá bjartsýni og fram-
sækni, sem hún skóp börnum sín
um. Síðan kemst hann að orði á
þessa leið:
„En tvær heimsstyrjaldir hafa
geisað á þessari öld. 1 sultarloga
þeirra hafa brunnið mörg þau
dýrustu verðmæti, sem 19. öldin
gaf dóttur sinni í arf • t stað von
ar og bjartsýni hafa skapazt ótti
og bölsýni. Og æskan þjáist af
þessum ófögnuði, og gefur vissu
lega þeim eldri sökina. Hin ytri
kjör, sem æskan býr við, eru svo
góð að hana vantar sárafátt á
efnislega visu. En þegar svo er
komið verða gæðin sjálf lítils
virði í augum þeirra, sem þeirra
njóta. Þeir koma ekki auga á
neitt mark, sem keppa beri að,
og þegar svo er fyllist lífið tóm-
leika, en til þess að fylla tómið
grípur æskumaðurinn til ýmissa
ráða, oft miður heppilegra. Og
upp úr öllu saman sprettur svo
reiðin. Reiði, sem raunar veit
ekki af hverju hún er sprottin og
enn síður, hvað hún vill fá. Við
brigðin verða einungis vonzka
og upphrópanir. Við bætist einn
ig, að upp hefur risið flokkur
manna, sem hefur að markmiði
að fella núverandi þjóðskipulag
í rústir.“
Skortir æskuna
hugsjónir?
Steindór Steindórsson lýkur
hinni athyglisverðu grein sinni
með þessum orðum:
„Ekki má skilja orð mín svo,
að sök eldri kynslóðarinnar sé
enginn. Markmið hennar var í
upphafi að skapa niðjum sinum
betri efnaleg kjör en hún átii
sjálf við að búa. Þess vegna fór
henni líkt og foreldrum, sem ala
höm sín upp í eftirlæti. Þau fá
börnunum í hendur gnótt girni
Iegra hluta, en gleyma að gefa
þeim hlutdeild í baráttunni, sem
það kostar að afla þeirra. Og í
kapphlaupinu um efnalega vel-
gengni hafa mörg hinna andlegu
verðmæta, sem gefa lífinu lit,
tapazt. Og skyldi ekki eitt mesta
vandamálið í lífi æskunnar \era
það, að hana skortir viðfangsefni,
hugsjónir, sem benda eitthvað út
fyrir hið daglega líf, og skyldi
ekki sök eldri kynslóðarinnar
vera einkum sú, að hafa gleymt
'að gefa æskunnt þetta vega-
nesti?“
Kjarabætur
án verkfalla
Tíminn fullyrðir í gær í forystu
grein sinni, að kommúnistar í
Dagsbrún og stjórn Alþýðusam-
bunds íslands vilji nú fyrst og
fremst stefna að kjarabótum
verkalýðsins án verkfalla. Það
væri vissulega ánægjulegt ef svo
væri. Hingað tii hafa kommúnist-
ar haft meiri áhuga fyrir pólitísk-
um verkföllum en raunveruleg
um kjarabótum launþegum til
handa.
Steindór St.