Morgunblaðið - 02.02.1962, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 02.02.1962, Blaðsíða 14
MORCTJNTtLAÐlÐ Föstudagur 2. febr. 1962 Fædd 12. nóv. 1890. D. 26. maí 1961. ÞAÐ er seinna en til var ætl- ast að minnast að nokkru mætr- ar og merkrar siglfirzkrar hús- freyju, sem lézt hér í bæ á síð- astliðnu vori. Ég á þar við frú Ingibjörgu Jónsdóttur, sem andaðist 26. maí á heimili sonar síns, Hin- riks, en þar dvaldist hún síð- ustu stundirnar, og naut þar að- hlynningar og hjúkrunar tengda dóttur sinnar, frú Margrétar Jónsdóttur. Frú Ingibjörg var fædd á Ak- ureyri 12. nóv. 1890, og því rösklega 70 ára að aldri. Foreldrar hennar voru hjón- in Jón Jónsson, verzlunarmað- ur, og Jóhanna Gísladóttir, bú- Miifning sett á Akureyri. Var Jón sonur Jóns Sigurðssonar, bónda að Hálfdánarstöðum í Norðurárdal í Skagafirði (nú eyðibýli) og konu hans, Þóru Tómasdóttur frá Einhamri. Hafa ættmenn þessara hjóna dreifzt um Eyja- fjarðar- og Skagafjarðarsýslur. Amma Þóru frá Einhamri, Guð- rún að nafni, var dóttir Jóns Þorlákssonar, Höskuldssonar, bónda að Hólum í Hjaltadal. Systkini Jóns Þorlákssonar voru meðal annarra: Pétur, afi séra Friðriks Friðrikssonar, í KFUM, Þorbjörg, amma Stefáns skóla- meistara, og séra Sigurður í Vig ur og Þorbjargar húsfreyju á Veðramóti í Gönguskörðum, móður Haraldar leikara og þeirra mörgu systkina, og Sigríður, amma séra Sigurbjörns Á. Gísla sonar og svonefndra Ytri-Vall- holtsbræðra í Skagafirði Börn Jóns og Þóru, auk Jóns yngra, voru meðal annarra: Kristín, móðir Steindórs J. Steindórssonar, kennara við Menntaskólann á Akureyri, og Guðrún, amm? Sigrúnar, konu ísaks Jónssonar, skólastjóra i Reykjavík. Eins og hér hefur verið tæpt lítið eitt á, er frú Ingibjörg komin af traustum bændaætt- um í föðurætt, og er margt þetta frændalið búið ágætum, fjölhæfum gáfum, listhneigt og frábært dugnaðar- og mann- dómsfólk. Jóhanna, móðir frú Ingibjarg- ar, var dóttir hjónanna Gísla Þorlákssonar og Marju Ólafs- dóttur. Var Gísli greindur mað- ur og gegn, hestamaður og ferðamaður ágætur. Hann var um langt skeið ráðsmaður hjá sr. Jóni Hallssyni, prófasti að Glaumbæ í Skagafirði. Marja, kona Gísla, var dóttir Óxafs bónda að Ósi við Höfða- vatn, Hallssonar Ásgrímssonar bónda í Geldingaholti í Skaga- firði. Voru þeir albræður Ólaf- ur og sr. Jón Hallsson, prófast- ur, Ásgrímur, bóndi á< Mann- skaðahóli í Skagafirði, Guðvarð ur og Jóhann. Hann fór til Ameríku. Voru sumir þessara bræðra kynsælir mjög, og afkomendur þeirra fjölmargir. Sonarsynir sr. Jóns eru þeir Jón Stefánsson, listmálari, lík- lega elztur afkomenda Halls bónda í Holti, og Jón Sigurðs- son, fyrrv. alþm. á Reynístað. Dótturböm sr. Jóns eru Jón, fyrrv. bóndi á Þingeyrum, og hin mörgu systkini hans. Dótt- urdótturbörn eru þau systkin, frú Kristín, kona Ólafs Þor- steinssonar læknis, Reykjavík, og Einar B. Guðmundsson hæstaréttarlögrnaður o. fl. o. fl. Sonarbörn Asgríms bónda á Mannskaðahóli voru þau Jó- hanna, húsfreyja í Asi .1 Hegra- nesi, Ásgrímur, skipstjóri á Sauðárkróki, og Hallur, for- maður í Hofsósi, en hann er faðir Eyþórs, forstjóra hér í bæ og systkina hans. Fleiri eru af- komenaur Ásgríms, þó ekki séu þeir taldir hér. Sonarsonur Guðvarðar er hinn mikli völundur Sauðkrækl- inga, Jón Nikodemusson. Af Ólafi eru komnir meðal annarra Gunnar alþm: Jóhanns- son, Gísli Sigurðsson, bókavörð- ur Bókasafns Siglufjarðar, og svo er dótturdótturdóttir Ólafs frú Ingibjörg. Frú Ingibjörg er því í móður- ætt einnig komin af traustu og velbyggðu bændafólki, eins og fleiri góðir íslendingar, og er í þessari ætt ágætt fólk, gætt góð um gáfum og fjölhæfri list- hneigð. Frú Ingibjörg ólst upp á heimili foreldra sinna allt að tvítugs aldri ásamt systkinum sínum, en þau voru: Gunnlaug- ur Tryggvi, ei var um skeið ritstjóri Islendings, dáinn fyrir nokkrum árum, Helga, gift Skafta Stefánssyni, útgerðarm. hér í bæ, Alfreð, verkamaður á Akureyri, og hálfsystir Guðrún, húsfreyja fram í Eyjafirði. Á fyrsta tug þessarar aldar, þegar Norðmenn hófu hér síld- veiðar og síldarsöltun, færðist mikið fjör í atvinnu- og at- hafnalíf hér í bæ. Siglufjörður var á allra vörum. Þangað fór fólk víðsvegar að af landinu að koma í atvinnuleit. Meðal þeirra, sem leituðu til Siglu- fjarðar i þeim erindum, var Ingibjörg. Eitt heimili her í bæ var í þann tíð rómað iniög fyrir myndarskap og menningarbrag. Var það heimili heiðurshjón- anna frú Sigríðar Pálsdóttur og Hafliða Guðmundssonar, hrepp- stjóra. íslenzk gestrisni sat þar í öndvegi. Margan manninn, er- lendan og innlendan, ríkan og fátækan, bar þar að garði. Marg ir áttu erindi við húsbóndann, vegna embættis hans, en hann var einnig um skeið fulltrúi sýslumannsins í Eyjafjarðar- sýslu. Góð regla og stjómsemi á hinu híbýlaprúða og aðlaðandi heimili var í höndum húsfreyj- unnar og gestum veitt með rausn. Húsráðendur voru glað- værir og skemmtilegir og létu sér umhugað um að gestum liði sem bezt, og þegar börn þeirra komust upp, og tóku virkan þátt í heimilislífinu, áttu þar margir ógleymanlegar ánægju- stundir. Hafliðabörnin svo- nefndu, góð, glaðvær, kurteis, aðlaðandi og ágætir félagar. Á þetta heimili réðist Ingi- björg sem aðstoðarstúlka hús- freyju. Varð dvöl hennar á þessu heimili lengri, og sam- skipti við fjölskyldu þessa meiri en ungu stúlkuna óraði fyrir. Fullvíst er að hún, með því að ráða sig á þetta góða heimili, hafi stigið sitt gæfu- spor, forlög hennar strax ráðin og lífsbraut hennar ákveðin án hennar vitundar. Hinn 4. des. 1915 giftist hún Andrési, yngsta syni hrepp- stjórahjónanna. Reyndist sá ráðahagur með afbrigðum vel. Var hjónaband þeirra alla tíð ástúðlegt og öðrum til fyrir- myndar. Ungu hjónin stofnuðu skjótt sitt eigið heimili, og var mikil rausn, myndar- og menningar- bragur þar á öllu. Andrés hefur alltaf verið ástúðlegur, hugull og fyrirhyggjusamur heimilis- faðir. Húsfreyjan reynzt frábær húsmóðir og búið eiginmanni sínum og börnum aðlaðandi og yndislegt heimili. Börn þeirra hjóna eru: Haf- liði forstjóri, kvæntur, búsettur í Reykjavík; Jóhanna, gift, bú- sett í Hafnarfirði, og Hinrik, kvæntur, búsettur á Siglufirði. Öll eru börnin mannvænleg og ágætir þjóðfélagsþegnar eins og þau eiga kyn til. Frú Ingibjörg var tæplega meðalmaður á hæð, en einkar snotur í vexti. Hún var forkun- ar fögur ásýndum og bjó yfir geðþekkum kvenlegum yndis- þokka. Skapgerð hennar var frekar ör, en hrein, og virtist þar öllu stillt í hóf. Var hún að jafnaði jafnlynd og viðmótsþýð og oftast sveif blær góðmennsku og velvilja til alls og allra yfir svip hennar. Hún var allra kvenna greið- ugust og hugulsömust við þá, sem einhver bágindi steðjuðu að, og vildi allra vandræði leysa. Henni var það mikið ánægjuefni að geta borið birtu Þessi skemmtilega mynd er af örsetahjónum Bandaríkjanna, þar sem bau eru í fríi og aka um golfvöllinn í þar til gerðura vagni. Krökkunum þykir sýni- lega gaman að sitja í hjá þeim, eins og ísienzkum krökkum á traktor eða sláttuvél á túninu. og yl til þeirra, sem í skugg- anum sátu. Frú Ingibjörg var ákaflega bókhneigð og tók iðulega bók í hönd að afloknu dagsverki. Það var sérlega skemmtilegt að ræða við hana. Hún var fróð og hafði gaman af ættfræði. Hún tók fyrr á árum virkan þátt í ýmsum félagsskap kvenna. Var meðal stofnenda að líknar- félagi sem starfaði hér um skeið og síðar í kvenfélaginu Von. Nú er frú Ingibjörg öll. Mér finnst Siglufjörður fátækari. í bindindismálum stóð hún við hlið eiginmanns síns, og studdi hann bæði i þeim málum og öðrum, sem hann vann að. Margir þeir, sem hafa notið nærgætni hennar og hugulsemi sitja hnuggnir. Mestur harmur er kveðinn að eiginmanni, börnum og öðrum vandamönnum. Þarna hefur komið það skarð í fjölskyldu- hópinn, sem ekki verður fyllt, Það er undur eðlilegt að tóm- legt þyki, þegar húsfreyjan, sem sómdi sér vel í sæti sínu, er horfin sýnum. Og viðbrigðin eru mikil fyrir eiginmanninn, þegar sambandið, sem haldizt hefur farsællega í um hálfa öld, rofnar með stuttum fyrir- vara, en vonin segir: „Heilög höndin hnýtir aftur slitinu þráð“. Starfsdagur frú Ingibjargar var orðinn langur og starfs- kraftar þrotnir. Hún átti bágt með að sætta sig við að geta ekki sinn, sínum heimilisstörf- um, en um það var ekki til neins að fást, værð og friður færðist yfir og hin mikla hvíld kom á hentugum tíma. Við, sem eftir lifum, vanda* menn og vinir, eigum ljúfar og fagrar endurminningar um þessa góðu konu, þökkum með hlýhug fyrir samveruna og margar ánægjulegar stundir og biðjum henni blessunar á henn- ar nýju vegferð. Blessuð sé minning hennar. P. E. Þýzkir sendiherr- ar ræðast við Bonn, 29. jan. (NTB-Reuter) • Tilkynnt var í Vestur-Þýzka- landi í'dag að sendiherra Þýzka- lanids í Moskvu, Hans Kroll myndi taka þátt í sendiherra ráð stefnu sem haldin verður í Bonn eftir nokkrar vikur. Meðal ann- arra þáttiakenda verða sendi- herrar landsins í Washington, Uondon, París, Róm og hjá Atl- antshafsbandalaginu. Eiginmaður minn HEKMANN ÞÓRÐABSON kennari, andaðist 1. feorúar 1962. Ragnheiður Gísladóttir. Eiginmaður minn, faðir og tengd&faðir okkar VILMUNDUR VILHJÁLMSSON lézt í Landakotsspítala sunnudaginn 21. janúar s.l. Bálför hefur farið fram. Þökkum auðsýnda samúð. Ólafía Björnsdóttir börn og tengdabörn. Móðir okkar ELLEN EMILÍE (NÆSHEIM) JÓSEPSEK andaðist þ. 31. janúar 1S62. Jarðarförin verður aug- lýst síðar. Fyrir okkar hönd og annarra aðstandenda. Gerd Hlíðberg, Henry Jósepssen, Astrós Jónsdóttir, Ólafur Jónsson, Berit Lidquist, Emil Jónsson, Indrid Hlíðberg. Elsku sonur minn BRYNJAR GEIR AÐALSTEINSSON sem lézt 28. janúar, verður jarðsettur að Kotströnd laug- ardaginn 3. febrúar. Athöfnin hefst kl. 13,30 á heimili mínu Breiðumörk 9 Hveragerði. Bergrós Jónsdóttir. Utför konunnar minnar MARGRÉTAR S. GUNNLAUGSDÓTTUR fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 5. febrúar kl. 1,30 eftir hádegi. Ingvai Kristjánsson. Kveðjuathöfn um móður okkar JÓHÖNNU GUÐMUNDSDÓTTUR sem andaðist 25. jan. fer fram í Fossvogskirkju laugar- daginn 3. febr. kl. 10,30 árdegis. Athöfninni verður útvarpað. Jarðsett verður á Stokkseyri sama daga kl. 3- síðdegis. Börnin. Hugheilar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og jarðarför dóttur okkar og systur. SIGURLAUGAR SALÓMONSDÓTTUR Ketils'-töðum í Mýrdal. Kristín Gunnarsdóttir, Salómon Sæmundsson, og systkinin Hjartans þökk fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför STEINGRÍMS KRISTJÁNSSONAR Guð blessi ykkur. Guðrún Hansen, Borghild Stcingrímsdóttir, Einar íngvarsson og börn, Jakob Kristjánsson, Jón Knstjánsson. Þökkum innilega öllum þeim sem sýndu okkur vinar- hug og samúð við andlát og jarðarför KRISTJÁNS ÁRNASONAR skipstjóra frá Bíldudal Börn, tengdabörn og barnabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.