Morgunblaðið - 02.02.1962, Blaðsíða 17
Föstudagur 2. febr. 1962
MORGV1SBLAÐ1Ð
17
Sigurjón Ölafsson
frá Skaröshlíö
Sendisveinn
Röskur piltur óskast til sendiferða
fyrir hádegi.
G. Þorsteinsson & Johnson h.f.
Griótagötu 7 — Sími 24250.
LAUGARDAGINN 5. jan. 1962
fór útför Sigurðar Ólafssonar frá
Skarðshlíð undir Eyjafjöllum
fram að Eyvindarhólakirkju að
viðstöddu miklu fjölmenni, en
hann andaðist á aðfangadags-
Ikvöld jóla, eftir uppskurð í
sjúkrahúsi í Reykjavík.
Mig langar til að minnast þess
æskufélaga og sveitunga með fá-
einum línum en finn þó vel van-
mátt minn til að gera þeirri
minningu þau skil sem vert væri
— Sigurður var fæddur í Hóla-
íkoti hér í sveit 5. nóv. 1894. For-
eldrar hans voru sæmdarhjónin
Anna Skæringsdóttir frá Skarðs-
hlíð og Ólafur Jónsson frá
Lambafelli, sem lengst af bjuggu
í Skarðshlíð og voru við þann bæ
íkennd. Þar ólst Sigurður upp
ásamt systkinum sínum sem öll
eru sæmdar- Og drengskaparfólk
eins og þau eiga kyn til.
Þegar Sigurður er genginn rifj
ast upp hjá mér margar hugljúf-
ar æskuminningar frá þeim ár-
um er við Skarðshlíðar og Drangs
hlíðar börn vorum að alast upp
í nágrenm, en eins og kunnugir
þekkja til liggja tún þessara
jarða saman, og samskipti því má
segja dagleg — Og nú þegar veg-
ir skiljast, bregða fyrir hugskots-
sjónir mínar margar kærar svip-
rnyndir frá stjörnubjörtum tungls
skinskvöldum, er við nágranna-
börnin komum saman til leikja,
glöð og áhyggjulaus með óráðna
framtíð. Þá þegar kom það fram
að Sigurður heitinn var heill í
leik, vildi aldrei hafa rangt við.
Enda hefur allt líf hans, hugsun-
arháttur og athöfn mótast af
sannri drenglund. Orðum hans
og loforðum, var ekki síður að
treysta, en skriflegu handsali
annara manna. I þessu nábýli
við Sigurð var ég í hartnær 30
ár og tel mig því hafa þekkt
manninn gjöria. — Hann var
fyllilega meðal maður á hæð
grannvaxinn og beinvaxinn, og
vel á sig kominn, dökkur á hár,
en bjartur yfirlitum, framkom-
an örugg og prúð. — Sigurður
var skapfestu og alvörumaður,
glaðvær *g skemmtilegur, en
stillti gleði jafnan í hóf, en átti
hægt með að taka upp léttara
hjal meðai góðra vina, en fas
hans allt mótaðist af grandvar-
leik og hófsemi, alvöru manns-
ins sem engum vildi rangt gera,
og lét hvern njóta sannmælis og
hafði ætíð það sem sannara reynd
ist. Hugmaður var hann mikill,
Og þoldi iiia undanslátt í starfi,
og átti það til að segja þeim er
það henti brota og umbúðalaust
meiningu sína. Að eðlisfari var
Sigurður ör í lund, en sjálfur
hafði harm tamið skap sitt svo
vel, að þess gætti lítið í daglegri
limgengni.
í æsku kynntist hann fátækt-
inni, því framan af búskap for-
eldra hans, var fátæktin ríkjandi
ineðan þorra fólks hér undir Fjöll
um og ef til vill hefur sá skóli
íkennt honum að fara gætilega
með fjármuni, og stíga aldrei
skrefið lengra en efnin leyfðu.
Hins vegar mat hann mikils við-
leitni manna við að verða efna-
lega sjálfstæðir, og grunar mig
að hann hafi oftar en einu sinni,
hlaupið undir bagga með þeim er
fé vantaði til framkvæmda, enn-
fremur mun hann hafa hjálpað
ungum mönnum sem skorti fé
til menntunar. Amlóðaskap, og
ikæruleysi átaldi hann hart, og
hélt því eindregið fram að Guð
hjálpaði beim sem vit og vilja
hefðu til að hjálpa sér sjálfir.
Eftir að foreldrar hans létu af
búskap, rak Skæringur bróðir
hans áfram bú í Skarðshlíð (þá
búinn að kaupa jörðina, en for-
eldrar þeirra höfðu verið leigu-
Jiðar). Dvaldist Sigurður alla tíð
1 Skarðshlíð meðan bróðir háns
bjó þar, Og hafði fénað sem hann
vann fyrir. Var sambúð þeirra
bræðra mjög góð, og samvinna
með ágætum, svo samofinn var
vilji þeirra til þess að gera bú-
skapinn í Skarðshlíð snyrtilegan
og arðbæran, að ekki var í raun
og veru hægt að gera upp á milli
hvor væri ábúandinn, enda
hvíldu heimilisstörfin engu síður
á Sigurði, þar sem Skæringur fór
jafnan á vetrum til sjósóknar í
Vestmannaeyjum, en Sigurður
ásamt yngri systrunum tók að
sér umsjón heimilisins.
Skepnuhirðir var hann slíkur
að af bar um aðbúnað og fóðrun,
enda var maðurinn einlægur
skepnuvinur, og hafði yndi af að
umgangast þær. Það var bæði
anægjulegt og lærdómsríkt að
koma í fjárhúsin til Sigurðar,
svo var umgengni og hagvirkni
auðsæ. — Þar sáust aldrei rusl
eða moðbyngir í garðaenda né
við húsveggr og fáa þekki ég sem
kunnu betur að fóðra búfé án
þess að bruðla eða láta neitt
fara til sprllis, en fóðra þó vel.
Og eru það þó hagnýt búvísindi,
sem vert er að gaumur sé gefinn.
— Enda blómgaðist bú þeirra
bræðra ár frá ári, og á seinni
árum mátti segja að Skarðshlíð-
arbúið væri með þeim beztu hér
í sveit og efnahagur stæði á
mjög traustum grunni.
Ég sem línur þessar rita hef
verið það lánsamur að eiga jafn-
an að nágrönnum gott fólk, en
ég halla á engan, þó ég segi að
betri nábýlismann en Sigurð heit
inn hef ég aldrei átt, (og gildir
hið sama um öll hans systkini).
Sigurður var svo frábær að til
einsdæma má telja, um alla greið
vikni, hugulsemi og góðvild,
enda var hann virtur fyrir þessa
eiginleika af öllum sem kynntust
honum. Eitt var það í fari Sig-
urðar, sem er mér minnisstætt
og vakti fljótt athygli mína, og
það var, að hvar sem hann fór,
hvort sem það var um slægju-
iönd eða alfaraveg, að yrði stein
vala í götu hans, hirti hann hana
upp og vék henni til hliðar, þetta
þótt mörgum finnist ef til vill
ekki mikilsvert, né í frásögur
færandi, sýnir þó þá sérstöku
reglusemi, sem einkenndist í fari
hans. Steinvalan sú, varð hvorki
til að brjóta skarð í sláttuljásegg
hans né arinara, og ekki heldur
til að verða fótaskefli þess er
síðar um götuna fór.
Sigurður var skapfestu og
alvörumaður, og flíkaði ekki til-
finningum sínum mikið við aðra,
en í brjósti hans sló viðkvæmt
og hlýtt hjarta. í landsmálum
var hann enginn huldumaður, og
hafði þar sínar ákveðnu skoðanir,
svo engum duldist hvar í flokki
hann stóð, en vinslit urðu aldrei
þó skoðanir féllu ekki í sama far
veg. Vil ég nú við andlát hans
þakka honum það og öll góð
kynni frá bernskudögum, sem
mér vitanlega hefur aldrei fallið
skuggi á.
Eftir að Skæringur bróðir hans
seldi bú og jörð flutti Sigurður
alfarinn að Hrútafelli til Helgu
systur sinnar og manns hennar
Eyjólfs Þorsteinssonar og átti
heimili sitt hjá þeim til dauða-
dags. Með þeim Sigurði og Helgu
höfðu alla tíð verið miklir kær-
leikar, og með henni mun honum
hafa verið ljúfast að dvelja. Fén-
að sinn átti hann áfram, og hafði
éyðibýlið Hrútafellskot til afnota,
og hirti þar fé og hross, sem
hann fann lífsuppfyllingu í að
annast og umgangast, — samfara
því að skapa sér aðstöðu til sjálf
stæðrar atvinnu, og vera ekki
öðrum háður. En nú hin síðari
ár fór heilsan að bresta, og varð
hann öðru hvoru að dvelja á
sjúkrahúsum sér til lækninga, en
alltaf var hugurinn heima í sveit
inni hans fögru, og hvergi mun
hann hafa fundið sjálfan sig
annars staðar en þar.
Nú er Sigurður Ólafsson horf-
inn sjónum okkar. Við Eyfell-
ingar fáum ekki oftar að þrýsta
hans hlýju vinarhendi, en í vit-
und okkar leikbræðra og sam-
íerðamanna geymist endurminn-
ingin um mann sem ekki mátti
vamm sitt vita. — Eftir stöndum
við um sinn og veltum fyrir
okkur spurningunni.
Hvers virði er auður, metorð
Og völd, ef það hugarþel sem
Sigurður heitinn átti í svo rík-
um mæli til manna og málleys-
ingja brestur.
Blessuð sé minning hans.
Gissur Gissurarsorv.
í LÍDÓ í KVÖLD KL. 8.30.
Frjálst val á milli sófasetts, ísskáps og frístandandi
strauvélar. Aðrir vinningar 12 m matarstell með
ávaxtasetti — 12 m kaffistell — 12 m kristal ávaxta-
sett — Gullúr — strauborð og straujárn — Lampar
og loftljós, ásamt öðrum góðum vinningum.
Framsóknarfélögin í Reykjavík.
ÖRUGGARI RÆSING
MEIRA AFL OG ALLT |
AÐ 10% eldsneytis-
sparnaður
Jafnan fyrirliggjandi
TVÍHERTIR AMERÍSKIR STÁLBOLTAR MEÐ FÍNU OG
GRÓFU GENGI. TVÍHERTIR SÆNSKIR OG ÞÝZKIR
STÁLBOLTAR MEÐ MILLIMETRA GENGI — RÆR —
HÁRÆR — SPENNISKÍí'UR — FLATSKÍFUR — BRETTA-
SKÍFUR.
Afgreiðum af lager jafnskjótt og pantanir berast.
Sendum gegn póstkröfu um land allt,
BIÐJIÐ U M VERÐLISTA
Umboðs- & heildverzlun
Brautarholti 20 — Reykjavík
Sími 1-51-59.
ÍSÓL HF.