Morgunblaðið - 02.02.1962, Side 24
Fréttasímar Mbl.
— eftir lokun —
Erletular fréttir: 2-24-85
Innlendar fréttir: 2-24-84
Sjávarútvegur
sjá bls. 15.
27. tbl. — Föstudagur 2. febrúar 1962
Eftirminnilegur
bæ|arstjórnarfundur
300 manns sóttu fund á Sauðárkróki
SAUÐÁRKRÓKI 1. febrúar. —
Miðvikudaginn 31. janúar var
baldinn fundur í bæjarstjórn
Sauðárkróks og þar tekin fyrir
kæra útaf reikningum bæjar-
sjóðs. Svo sem kunnugt er af
blaðaskrifum kærðu þeir Erlend-
ur Hansen og Skaft' Magnússon
(Fulltrúar Alþyðuflokks og
kommúnista) reikningana til
félagsmálaráðuneytisins • des-
ember sl. Á fundinum var kæran
tekin til meðferðar, en félags-
1
Met
i árekstra-
fjölda
220 árekstrax og
og 23 slys í janúai'
ALI.S hafa 220 árekstrar ver-
ið færðir í bækur rannsókn-f
arlögreglunmar í Reykjavík íJ
Janúar og er hér um að ræða
algjört árekstrarmet í þeim
mánuði Flestir hafa árekstrar
í janúar verið 170 áður. Mik-
il hálka, snjókoma og slæm
'veðurtíð er ástæðan til þessa'
mikla árekstrarfjölda. í mán
uðinum urðu slys í umferðinni'
23 talsins, þar af eitt banaslys,
er kona varð fyrir bíl á Hring
braut þann. 11. og lézt nokkr-
um dögum síðar. — Þess ber
að gæta að fleira fólk hefur
e. t. v. meiðst í árekstrum en
tölur þessar gefa til kynna,.
því oft er að fólk leitar beint
til slysavarðstofunnar og kem
ur ekki til rannsóknarlögregl-
unnar.
málaráðuneytið hafði óskað eftir
umsögn bæjarstjórnar.
Venjulegir fundarstaðir bæjar-
stjórnar er í bæjarþingsalnum,
en þar sem hér var um að ræða
mjög óvenjulegit mál, ákvað
meirihluti bæjarstjórnar að halda
fundinn að þessu sinni í félags-
heimilinu Bifröst, enda kom í
ijós að þess var full þörf, þar
sem um 300 bæjarbúar sóttu
fundinn.
Bæjarstjórinn, Rögnvaldur
Finnbogason, tók fyrstur til máls
og flutti glögga og yfirgripsmikla
ræðu. Kæran er í lO'liðum og
las bæjarstjóri hvern lið fyrir sig
og svaraði síðan mjög ítarlega.
Að rœðu hans lokinni tóku allir
bæjarfulltrúar til máls.
í>að vakti sérstaka athygli
fundarmanna að kærendurnir
voru ófáanlegir til að ræða kæru
atriði og annar þeirra, Erlendur
Hansen, lýsti því beinlínis yfir
að hann mundi engum fyrirspum
Framhald á bls. 23.
Algjör samstaða fram-
sóknar og kommúnista
— við kosningar í borgarstjórn
Á F U N DI borgarstjórnar
Reykjavíkur, sem haldinn
var í gær, fór fram kosning
nokkurra starfsmanna borg-
arstjórnar, borgarráðs og ým
issa stjórna og nefnda, en
kjörtímabil þessara aðila
rann út nú í lok janúar, þeg-
ar lauk hinu reglulega kjör-
tímabili borgarstjórnar.
Við kosningarnar kom í
ljós, að enn sem fyrr ríkir
full samstaða með borgarfull
trúum kommúnista og fram-
sóknar. Var borgarfulltrúi
framsóknar, Þórður Björns-
son, t.d. kjörinn í hafnar-
stjórn með stuðningi komm-
únista, en að launum ljáði
hann atkvæði sitt til að
koma einum borgarfulltrúa
kommúnista, Alfreð Gísla-
Hékk aftan í bíl
og slasaðist
Laust eftir hádegi í gær slasaðist
drengur á reiðhjóli á Skúlagötu
er hann var að hanga aftan í
vörubíl. Hélt drengurinn í
fremra horn á vörupallinum
vinstra megin, en skyndilega
rann hjólið til í snjónum og inn
undir bílinn Drengurinn kastað-
ist upp á gangstétt og telur að
auki að afturhjól bílsins hafi far-
ið yfir fætur sína. Hjólið fór
yfir reiðhjólið og eyðilagði það.
syni, í stjórn Lífeyrissjóðs
starfsmanna Reykjavíkur-
borgar.
Forseti borgarstjórnar til loka
kjörtímabilsins var kjörin frii
Auður Aiðuns, en fyrri vara-
forseti Guðmundur H. Guðmunds
son og annar varaforseti Gísli
Halldórsson; allt borgarfulltrúar
Sjálfstæðismanna. Skrifarar borg
arstjórnar voru kjörnir Einar
Thoroddsen (S) og Alfreð Gísla-
son (K).
í borgarráð voru kjörin Auð-
ur Auðuns. (S), Geir Hallgríms-
son (S), Björgvin Frederiksen
(S), Magnús Ástmarsson (A) og
Guðmundur Vigfússon (K). Vara
menn í borgarráði voru kjörmr
Guðmundur H. Guðmundsson (S)
Gísli Halldórsson (S), Einar
Thoroddsen (S), Magnús Jóhann
esson (S) og Guðmundur J. Guð-
mundsson ÍK).
Auk þessa voru m. a. kjöm-
ir endurskoðendur borgarreikn-
inga, fulltrúar í byggingarnefnd,
heilbrigðisnefnd, hafnarstjórn,
framfærslunefnd, veitingaleyfis-
nefnd og útgerðarráð, tveir menn
í stjórn Samvinnusparisjóðsins,
einn maður í stjórn Fiskimanna-
sjóðs Kjalarne.sþings, og endur-
skoðendur íþróttavallarins,
Styrktarsjóðs sjómanna- og verka
mannafélaganna í Reykjavík,
Músíksjóði Guðjóns Sigurðssonar,
Samvinnusparisjóðsins Og Spari-
sjóðsins Pundsins. Voru yfirleitt
kjörnir sömu menn og áður höfðu
gegnt þessum störfum.
JMi0r§íiraM&!M&
Unglingar óskast til að bera
blaðið til kaupenda í eftir-
talið hverfi:
GRENIMEL.
Hafið samband við af-
greiðsluna, sími 2-24-80.
1
Villtur í sólarhring á Axarfjarðarheiöi
Tryggvi Helgason fann manninn og kom leitarmonnum á sporið
Akureyri í gærkvöldi.
RÉTT EFTIR kl. eitt í dag
var Tryggvi Helgason beðinn
að fara austur á Axarfjarðar-
heiði og svipast um eftir
manni sem Hafði lagt af stað
í gær austur yfir heiðina, en
hafði ekki komið fram á til-
settum tíma. Maður þessi
heitir Árni Gunnlaugsson frá
Skógum í Reykjahverfi. Kl.
13,15 fór Tryggvi héðan og
flaug austur yfir Axarfjarð-
arheiði. Lágskýjað var og all-
mikið hvassviðri og er að
heiðinni kom var rennings-
kóf og skyggni mjög lélegt.
Þar sem Tryggvi taldi að
maðurinn hefði að mestu
fylgt bílveginum ætlaði hann
sér að fljúga sem næst þeirri
stefnu, en er skammt inn á
heiðina kom, varð hann að
víkja allmikið til suðurs
vegna veðursins. Leitaði hann
þar nokkrar dalskorur en
Mj'n nr—'v*
»>rwi'
varð einskis var. Nokkru síð-
ar birti til norðursins og flaug
Tryggvi þá aftHr í átt að veg-
inum og eftir skamma leit
varð hann var við nr.ann all-
langt norðan vegarins, nokkru
austan við sæluhúsið á heið-
inni.
HIRTI EKKI CM
FLUGVÉIJNA
Stefna mannsins var ekki
eftir veginum, heldur allmik-
m.HW »T'»
ið til norðurs eða norðausturs
og því úrleiðis. í skyndi úibjó
Tryggvi orðsendingu, setti í
þar til gerða svarta poka,
flaug síðan í nokkurra metra
hæð yfir manninn og varpaði
pokunum niður. Ekkert hirti
maðurinn um pokana og ekki
virtist hann heldur líta upp
þó flugvélin flygi i nokkurra
metra hæð yfir höfði hans.
Sumir pokarnir þvældust jafn
Framh. á bls. 23
FRÉTTAMAÐUR Mbl. flaug
yfir öskju í gær í flugvél
Tryggva Helgasonar frá Akur-
eyri og tók þá mynd þessa.
Er hún af aðalgígnum NA af
Öskjuvatni og sýnir að lítils
háttar rýkur úr honum eins'
og raunar úr hrauninu kring-
um gígana. Öskjuvatn var að
langmestu leyti lagt, en á því
sjást tvær vakir nær því vest-
iast og einnig var að sjá ís-
laust á kafla með suðurland-
inu. Vítið var íslaust. — í gær
voru 7 vindstig af NA við
’öskju og 10 stiga frost. Snjór
huldi að mestu allt nýja
hraunið en þó var það að sjá
dökkleitara það sem sýnilega
, hafði runnið seinast.
' (Ljósm. Mbl.: vig)
Símtöl við útlönd
þrefaldast
Fjöldi símtala til útlanda hef-
ur a.m.k. þrefaldast eftir að nýi
sæsíminn var tekinn í notkun,
ef miðað er við meðaltalið á s.l.
ári, sagði Ólafur Kvaran Tit-
símastjóri í samtali við Mbl. í
gær.
Afgreidd eru nú um 90 samtöl
á dag, rmast til Englands og Dan-
merkur, og er búizt við að setja
verði upp eitt símaborð til við-
bótar þeim tveimur, sem fyrir
eru, þar eð notkum á nýja sím-
anum er meiri en ráð hafði ver-
ið fyrir gert.
Afgreiðsla simtala hetfur geng-
ið með ágætum, og sama er að
segja um skeyti ritsímans, sem
ganga nú mun hraðar en áður
vair.
Féll af hestbaki og
handleggsbrotn-
aði
BÚÐARDAL 1. febr. — Um há-
degisbilið í gær varð það slys að
Fjósum í Laxárdal að 13 ára
piltur, Magnús sonur Jóns Sigur-
jónssonar bónda þar, féll af hest
baki og handleggsbrotnaði. Slys-
ið varð með þeim hætti að hestur,
sem Magnús var á hrasaði og
féll, og kastaðist hann af baki
með þeim afleiðingum, sem áður
greinir. — Héraðslæknir gerði
þegar í stað að brotinu.