Morgunblaðið - 16.02.1962, Blaðsíða 10
10
r
MORGVISBTHBIÐ
Fðstudagur 18. febr. 1962
jntMtotöfr
CTtgefandi: H.f. Arvakur. Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (áfem.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: úðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 55.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 3.00 eintakið.
HEIMDALLUR 35 ÁRA
í dag, 16. febrúar, er Heim-®'
dallur, félag ungra Sjálf-
stæðismanna, 35 ára, og
minnast Heimdellingar þessa
merkisafmælis með kvöld-
samkomu í Sjálfstæðishúsinu
annað kvöld.
Heimdallur er og hefur
um langt skeið verið lang-
sterkasta stjórnmálafélag
æskulýðsins í landinu. Innan
hans vébanda hafa margir
hinna nýtustu þjóðfélags-
þegna og stjórnmálaforingja
öðlazt sinn pólitíska þroska
og búið sig undir að gegna
með sæmd þeim þýðingar-
miklu verkefnum sem þeim
hafa verið falin.
Meginhlutverk Heimdallar
hefur frá fyrstu tíð verið að
ræða nýjar hugmyndir og
glæða sjálfstæðisstefnuna
þrótti og aðlaga hana breytt-
um viðhorfum hverju sinni.
Þar hefur stundum verið
hart deilt, þó að ætíð hafi
þar ríkt skilningur á mis-
munandi viðhorfum og vilji
til að samræma sjónarmiðin
og komast að sameiginleg-
um niðurstöðum. Skoðanir
hinna imgu njanna í Heim-
dalli hafa verið fluttarþeim,
sem eldri eru í flokknum, og
hefur það ætíð verið gæfa
Sjálfstæðisflokksins, að þar
hafa ávallt verið í forystu
menn, sem tóku fagnandi til-
lögum æskunnar og hrundu
þeim í framkvæmd, jafn-
framt því sem ungum mönn-
um hefur ætíð verið skapað
olnbogarými við framboð
flokksins og í áhrifastöðum
hans. /
Æskulýðurinn hefur séð,
að innan Heimdallar gat
hann barizt fyrir velferð
þjóðar sinnar og hugsjóna-
málum sínum. Og hann hef-
ur líka séð, að máttur Heim-
dallar og samtaka ungra
Sjálfstæðismanna yfirleitt
nægði til að koma ungum og
djörfum hugmyndum 1
framkvæmd. Þess vegna hef-
ur unga fólkið flykkzt í
Heimdall og gert hann að
langsterkasta pólitíska afli
æskulýðsins hérlendis.
Morgunblaðið flytur Heim
dalli og Heimdellingum ám-
aðaróskir á þessu merkisaf-
mæli og þakkar félaginu
styrk þann, sem það hefur
veitt blaðinu með vökulu
starfi og frjóum hugmynd-
um, sem fyrst hafa birzt á
síðum Morgunblaðsins.
SPURNINGIN TIL
KOMMÚNISTA
Tlfl'orgunblaðið hefur nokkr-
um sinnum beint þeirri
spurningu til kommúnista,
hvort þeir teldu, að Krúsjeff
og fylgismenn hans í Kreml
væru sakleysið sjálft og
hefðu engan þátt átt í glæpa
verkum þeim, sem kennd
eru við Stalinstímabilið. Við
þessari spurningu hefur ekk
ert svar fengizt og er hún
því ítrekuð, þótt hver og
einn geti raunar svarað
henni fyrir sig á þennan aug-
ljósa hátt:
Þeir, sem nú ráða ríkjum
í Kreml, voru allir meðal
nánustu samverkamanna
Stalins og framkvæmdu skip
anir hans. Sjálfir lögðu þeir
raunar á ráðin um ýmislegt
það, sem þeir saka nú þann
dauða um. Menn hafa spurt:
Hvað gerði Krúsjeff á með-
an Stalin framdi glæpina?
Þeirri spumingu er auð-
svarað. Krúsjeff starfaðimeð
Stalín og gerði það, semhon-
um var sagt. Annars væri
hann ekki ofan moldar, því
að Stalin stytti sérhvern þann
um höfuðið, sem ekki sýndi
fulla hlýðni og hollustu.
Meginefni málsins er það,
sem kommúnistar komast1
ekki framhjá, að það er skipu
lagið sjálft, sem býður
glæpaverkunum heim. Sumir
hinna einfaldari eru að telja
sér trú um, að hægt sé að
losa um tengslin milli hins
ráðandi flokks og stjórnar-
valdanna í einræðisríki og
þannig muni kommúnisminn
verða það, sem Marx ætlaði
honum. Þessar skoðanir eru
hins vegar fráleitar af tveim
ástæðum.
í fyrsta lagi afsalar ein-
ræðisherra sér yfirleitt aldrei
ofurvaldi sínu af frjálsum
vilja, því að hann gerir sér
grein fyrir því, að þá muni
pólitískir lífdagar hans stytt
ast. En í öðru lagi er það al-
veg öruggt, að um leið og
tvö öfl væru sterk í komm-
únistaríkjunum, arinars veg-
ar flokkurinn og hins vegar
ríkisstjórnin, mundi hið
kommúnistíska kerfi líða und
ir lok. Allt fer þá úr einræð-
isböndum og fólkið heimtir
sitt frelsi.
SPURNINGIN TIL
FRAMSÓKNAR
1V|orgunblaðið
■‘■’l beint til
hefur líka
Framsóknar:
manna spurningu sem ósvar-
að er. Hún er á þessa leið:
Væru Framsóknarmenn til-
búnir til þess að nema nú úr
gildi samkomulagið, sem gert
var við Breta í landhelgis-
Uhro Kekkonten
ÞINGKOSNINGARNAR í Finn-
landi, sem fram fóru um fyrsbu
helgi þessa mánaðar, voru eins Og
kunnugt er mikill sigur fyrir
Kekkonen forseta og Bændaflokk
hans. Flokkurinn hafði fyrir
kosningar 47 þingmenn en fékk
nú 55 kosna. Alls eru þingmenn
200. Samsteypuflokkur íhalds-
manna jók einnig talsvert fylgi
sitt Og bætti við sig þrem þing-
sætum. Mest varð tapið hjá Jafn
aðarmönnum, sem misstu níu
þingsæti. Kommúnistar misstu
þrjú þingsæti.
Þátbaka hefur aldrei verið
jafn mikil í finnskum kosning-
um og var kjörsókn 81%.
Borgaraflokkarnir, sem misstu
meirihluta á þingi við kosning-
arn£u- 1958, fá nú samtals 112
þingsæti gegn 88 þingsætum
kommúnista, jafnaðarmanna og
klofningsflokks jafnaðarmanna,
Simonitta.
Af borgaraflokkunum hafa
íhaldsmenn og Finnski flokkur-
inn bætt mest við sig og fengu
íhaldsmenn nú 50.000 atkvæðum
meira en við síðustu kosningar.
Sænski flokkurinn hefur áfram
14 þingsæti eins og áður, þótt
hann hafi tapað atkvæðum. At-
kvæðin skiptust sem hér segir
nulli flokkanna. í svigum er hilut
fallstalan frá kosningunum 1958:
Bændaflokkurinn 583.115 eða
26,3% (23.7).
Kommúnistar 492.820 eða
22,2% (23,6).
Jafriaðarmenn 436.803 eða
19,7% (23,5).
Sameiningarflökkur íhalds-
manna 353.155 eða 16,0% (15,0).
málinu, ef Bretar fengjust til
að styðja á alþjóðaráðstefnu
þá stefnu, sem við börðumst
fyrir, þ.e.a.s. að lögfesta 12
mílur sem fiskveiðilandhelgi?
Á því leikur naumast vafi,
að Bretar, Rússar og önnur
stórveldi mundu nú vilja
lögfesta 12 mílur sem há-
markslandhelgi, því að þau
berjast öll gegn því að land-
helgin megi vera stærri. Á
tveimur Genfarráðstjj^num
vorum við Islendingar til-
búnir til þess að fara þessa
leið, en með samkomulaginu
við Breta náðum við öllum
rétti okkar, án þess að slík
alþjóðaregla væri lögfest.
Þess vegna ætti það að vera
ljóst, að það væri íslending-
um ekki í hag að lögfesta
12 mílurnar nú.
Ástæðan til þess að Fram-
sóknarmenn hafa ekki treyst
sér til að svara spurningu
Morgunblaðsins hlýtur líka
að vera sú, að þeir gera sér
grein fyrir, að samkomulagið
við Breta er miklu hag-
kvæmara en lögbinding 12
mílnanna. Með því hafa þeir
í raun réttri dæmt dauð og
ómerk öll stóryrði sín um
landráð, nauðungarsamninga
og hvað það allt saman var
nú nefnt. Með þögn sinni
hafa þeir í raun réttri veitt
ríkisstjórninni þá fyllstu
traustsyfirlýsingu í þessu
máli, sem hugsazt getur.
Sænski flokkurinn 131.135 eða
5,9% (6,7).
Klofningsflokkur jafnaðar-
manna 97,970 eða 4,3% (1,7).
Finnski flokkurinn 72.513 eða
3,2% (5,1).
Smábændaflokkurinn 48.771 eða
2,2% (0,0).
Aðrir 5.287 eða 0,2% (0,0).
Þingsætin 200 skiptast nú milli
flokkanna sem hér segir: Bænda-
flokkurinn 55 (48), kommúnistar
47 (50), Jafnaðarmenn 39 (48),
íhaldsmenn 32 (29), Sænski flokk
urinn 14 (14), klofningsflokkur
jafnaðarmanna 2 (3), Finnski
flokkurinn 10 (8) og Smábænda-
flokkurinn 1 (0).
Margir þekktir stjórnmála-
menn Finnlands hverfa nú af
þingi, að minnsta kosti í bili.
Þannig tapaði formaður komm-
únistaflokksins, Aimo Aaltonen,
BANDALAGI íslenzíkra sikáta hef
ur borizt bréf frá Alþjóðabanda-
lagi drengjaskáta (Boy Scouts
World Bureau), þar sem þeir
auglýsa keppni um samningu á
Alheimsskátasöng (World Scout
Song).
Skilyrði til þátttöku í keppn-
inni eru:
1. Hvert það land, sem er
mieðlimur í Alheimsbræðralaginu
má senda einn söng (ljóð og lag)
í keppnina.
2. Lagið á að vera „triuphal
allegro", sem einnig sé hægt að
spila „lento“ við sérstök tæki-
færi.
3. Textinn á að vísa til al-
heimsbræðralags skáta, skátaand
ans, hins daglega góðverks, úti-
lífs, þjónustunnar við aðra o.s.
frv.
Textinn á að vera einfaldur
og stuittar ljóðlínur, svo ið hvert
land geti auðveldlega þýtt þær
yfir á sitt eigið mál.
4. Viðlag á helzt að vera stutt
og, ef mögulegt, séu í því ein-
hver orð, sem hægt er að halda
óbreyttum í flestum tungumál-
um.
5. Tillögur um söng þurfa að
berast til Bandalags íslenzkra
sæti sínu og eins fór með rót«
tæka íhaldsmanninn Tore Junn-
ila og talsmann Sænska flokks-
ins, Torsten Nordström.
Kommúnistaleið'toginn Hertta
Kuusinen hafði fyrir kosningarn-
ar gefið það ótvírætt í skyn að
flokkur hennar óskaði eftir aðild
að væntanlegri ríkisstjórn, en
þingsætatapið getur haft þar tals
verð áhrif. Varðandi jafnaðar-
mannaflokkana tvo má ætla að
þingsætatap þeirra verði til þess
að samníngar hefjist um endur-
sameiningu þeirra.
Eftir kosningarnar lýsti Ahti
Karjalainen utanríkisráðherra
því yfir að bezta lausnin væri að
mynda samsteypustjórn miðflokk
anna finnsku. Þingið kemur sam-
an hinn 24. þ.m. og verður þá
sennilega endanlega gengið frá
stjórnarmyndun.
skáta fyrir 1. júlí 1962 oig þurfa
ao innihalda:
1. Segulbandsupptöku á Jaginu
og viðlaginu.
2. Vélritaðan texta á íslenzku
og ensku eða frönsiku.
3. Nótur lagsins, fyrir píianó.
Bæklingnr um s jó-
mennskunám o. fl.
ÚT er kominn á vegum Fiski-
félags Islands bæklingur, sem
ber nafnið „Nám til sjpmennsku
og mats og eftirlits með fisk-
vinnslu.“ Er riti þessu ætlað að
veita upplýsingar um mögu-
leika til náms fyrir þá, sem
leggja ætla stund á sjó'mennsku
og sérstök störf á skipum. Er þar
um að ræða fjórar greinar náms,
til skipstjórnar, til gæzlu á vél-
um, til matreiðslu og til gæzlu
loftskeytatækja. í ritinu er enn-
fremur skýrt frá námskeiðum
þeim, sem haldin eru á veg-
um sjávarútvegsmálaráðuneytis-
ins og ætluð eru þeim, sem leggja
fyrir sig fiskmat og eftirlit með
fiskframleiðslu. Bæklingurinn er
15 blaðsíður að stærð og prýddur
nokkrum myndum.
SamhepjtMtM uut
alheimssöntf skáta