Morgunblaðið - 23.02.1962, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 23.02.1962, Blaðsíða 2
2 MORGUNBT AÐ1Ð Föstudagur 23. febrúar 1X)62 Islandi sýnd góövild og sómi GYLFI Þ. Gíslason menntamála- ráðherra er nýkominm heim frá Danmörku en þar var hann við opnun íslenzku listsýningarinn- ar í Louisiana-listasafninu. í fréttaauka útvarpsinis í gær sagði ráðherrann frá sýningunni og fer frásögn hans hér á eftir. Síðastlidinn föstudag var opn- uð sýning á íslenzkum listaverk- um í Louisiana-listasafninu, sem er skammt fyrir utan Kaup- mannahöfn, en það er yngsta listasafn Ðana og jafnframt það, sem nú mun mest sótt. Safnið er í einkaeign og eigandi þess er Knud W. Jensen. Hann kom hing- að til Íslands s.L haust ásamt próf. Meulengracht, sem er for- maður Dansk Islandsk Samfund í Kaupmannahöfn, og var erindi þeirra að athuga möguleika á að efna til slíkrar sýningar. Bæði íslenzka og danska ríkið veittu nofckurt fé til styrfctar sýning- unni. Knud W. Jensen ákvað sjálfur meginreglurnar varðandi val listaverkanna, en valið sjálft önn uðust þau dr. Selma Jónsdóttir, Gunnlaugur Scheving og Svavar Guðnason. Svavar fór jafnframt til Danmerkur og aðstoðaði við að koma listaverkunum fyrir. Dansk-Islandsk Samfund bauð mér síðan til Hafnar í því skyni, að ég talaði við opnun sýning- arinnar. Ég held að óhætt sé að full- yrða, að aldrei fyrr hafi verið efnt til jafnglæsilegrar sýningar á íslenzkri myndilist erlendis. Enda hafa blaðadómar verið mjög lofsamlegir og mjög mikið verið um sýninguna skrifað í dönskum blöðum. Salarkynni Louisiana-safnsins eru afar skemmtileg og listaverkunum er mjög vel fyrir komið. Auk nú- tima verkanna eru sýndir ýmsir gamlir íslenzkir munir úr þjóð- minjasöfnun íslendinga og Dana: tréskurður, silfursmíði og vefn- aður og gefur það sýningunni sérstakan blæ í stærsta salnum eru málverk Kjarvals og hans eins. í næst stærsta salnum mynd ir Jóns Stefánssonar. Málverk Asgríms Jónssonar og Gunnlaugs Schevings eru í þremur minni söl um, en fimmti málarinn, sem flestar myndir eru sýndar eftir, er Svavar Guðnason. Myndir þessara málara vekja mesta at- hygli á sýningunni og eru list- dómarar allir sammála um að telja þá mikla málara. Höggmyndunum er dreift um 6ýningarsalina. Blöðin ræða eink um um verk þeirra Ásmundar Sveinssonar, Sigurjóns Ólafsson- ar og Ólafar Pálsdóttur, og fá þau einnig góða dóma. Sýnd eru veggteppi eftir Júlíönu Sveins- dóttur. 99 Þeir kenndu sér sjálfir64 1 samnefndri grein eftir Jó- hann Hjálmarsson sem birtist í blaðinu í gær, urðu þessar prent villur. I fjórða dálki neðarlega á að standa: (Það sem fallið hefur niður er feitletrað). „Það eina sem Janis gat sagt var: „Ég vona að þú búir aldrei til slíka mynd.“ Myndin sem átti hug Hirshfields allan o. s. frv. Þegar talað er um að Hirsh- field hafi notað kamb við gerð ljósmyndarinnar, á að standa: Ljónsmyndarinnar. Leiðrétting I greininni um Gunnlaug B. Melsted í blaðinu í gær misrit- aðist kraftmifcill í stað skapmik ill. Þá átti undirskriftin að vera Þ. Ö. í stað Þ. E. Þessi sýning hefir vakið mikla athygli á íslenzkri list og íslandi í Danmörku. Um síðustu helgi komu utn 2000 manns að skoða sýninguna og er það talið mjög mifcil að- sókn. í sambandi við sýninguna hafa fallið mörg hlýleg orð í garð íslands og íslendinga. Það hefir verið sérstaklega ánægjulegt að finna það, í sambandi við undir- búning þessarar sýningar Og hana sjálfa, hvernig dönsfc stjórn arvöld, blöð og fjölmargir ein- staklingar hafa gert sér far um að sýna íslandi bæði góðvild og sóma. Prófessor Meulengbracht og Knud W. Jensen eiga mifclar þakfcir skilið fyrir verk sitt og hafa gert vináttutengslum ís- lendinga og Dana mikið gagn. Sigursæl barátta lýðræðissinna mun halda áfram í Iðiu ÞAÐ SEM vakið hefur sérstaka athygli í sambandi við kosning- arnar, sem fram fara í Iðju um næstu helgi, eru þær persónulegu árásir, sem kommúnistamálgagn- íð hefur gert á Guðjón Sverri Sigurðsson, form. Iðju. Er greini- legt, að kommúnisfcar óttast mjög vinsældir Guðjóns í Iðju og vifca, að formannsefni þeirra, Björn Bjarnason er einn þeirra manna, sem hafa hagað sér einna verst í íslenzkri verkalýðshreyfingu. Sýnir það raunar fyrirlitningu kommúnista og fylgifiska þeirra á iðnverkafólki, að þeir skuli leyfa sér að bjóða þennan mann fram sem formannsefni í Iðju. Þegar þessi maður hrökklaðist frá í Iðju hafði félagið verri kaup óg kjarasamninga en öll önnur verkalýðsfélög á landinu. Allt félagsstarf var í molum og Iðju- félagar fengu engan stuðning í einu né neinu af félagsstjórninni þótt hún hafi verið boðin og bú- in að ganga erinda Kommúnista- flokksins. Aúk þessa bafði Björn notað sjóði félagsins líkast þvi, sem þeir væru hans eigin eign, sem frægt er orðið að endemum. Kommúnistar halda ef til vill að Iðjufólk *é búið að gleyma þessu; þeir geti með persónuleg- um svívirðingum unnið Guðjóni Sverri eitthvert ógagn og leitt athygli fólks frá „félagssjóða“- Birni. En það er mesti misskiln- ingur. Guðjóni og félögum hans í stjórn Iðju hefur tekizt að hefja félagið úr þeirri niðurlægingu, sem Björn hafði komið því í og istaflokknum okkur? Þær kjara- bætur og félagslegt öryggi. Kommúnistar segja, að þær kjarabætur hafi verið færðar Iðju á „silfurdiski" og ekkert hafi þurft fyrir þeim að hafa. Og því spyr Iðjufólk ? Hvaða kjarabætur færði Björn Bjarna- son og félagar hans í kommún- istaflokknum okkur? Þær kjara- bætur voru hvorki bornar .fram á'■ silfúrdlski né á' annan ' hátt. : . ■'i............... / NA /5 hnútor $V 50 hnútor X Snjókoma f OSi0SHt 7 Skúrir K Þrumur W/,'%, Kutíaski! Hitoikit H.Hmí Þær voru engar. Aftur á móti 'hafði Björn og félagar tíma til þess að halda veizlur fyrir kín- verska sendinefnd, er hér var stödd á kostnað Iðju, og festa fé félagsins í áróðursmiðstöð 'kommúnista við Tjarnargötu. f kosningum þeim, sem fram fara um næstu helgi í Iðju, stend- ur baráttan um það, hvort hin dauða hönd Björns á aftur að taka við stjórnartaumunum í Iðju og gera samtökin að verk- færi í höndum kommúnistaflokks ins með veizluhöldum fyrir kommúnistískar sendinefndir og algeru áhugaleysi um hag iðn- verkafólks eða hvort áfram á að ■halda sigursæl barátta lýð- ræðissinna undir forustu Guðj óns Sverris Sigurðssonar til bættra kjara, aukins félagslegs öryggis og jafnréttis við aðrar stéttir þjóðfélagsins. Þessum sannindum þurfa Iðjufélagar að átta sig á í kosningunum og gera sér grein fyrir því, að í kosningunum er barizt um lífshagsmuni þeirra lýðræði þjóðfélagsins, og batn- andi hag þjóðanheildar. Valið verður því auðvelt. Listi andstæð inga „félagssjóða“-Björns er B-listinn. Klukkan 9:47 á þriðjudags- morgun eftir bandarískum tíma var John Glenn ofursta iskotið á braut umhverfis' jörðu í geimskipinu „Friend1 ship 7“ frá Canaveralhöfða íj Florida. Þá var mynd þessi tekin í Grand Central járn- brautarstöðinni | New York. Þar hafði verið komið fyrir griðarstóru sjónvarpstjaldi og fylgdist mikill mannfjöldi með geimskotinu. Fjórir borgardóm- arar skipaðir NÝLEGA hafa fjórir borgardóm arar yerð skipaðir í Reyikjavík. Þeir ísleifur Árnason, Bjarni K. Bjarnason, Guðmundur Jónsson og Emil Ágúsfcsson. \ -® Christian Bönding, ritstjóri. SKILIN yfir Grænlandshafi voru á leiðinni norð-norðaust ur í gær, og átti að hvessa hér með rigningu síðdegis, en annars var góðviðri um allt land í gær, hægur vindur og frostleysa, en skýjað loft. — Háþrýstisvæðið yfir Norður- löndum var lítið eitt farið að gefa sig síðdegis í gær, en er þó svo áhrifamikið, að það mun enn um sinn beina lægð unum norður fyrir vestan land. Veðurspáin kl. 10 í gær- kvöldi: SV-land til Vestfjarða og miðin: Hvass sunnan í nótt, heldur hægari þegar líður á morgundaginn, rigning öðru hvoru. Norðurland til Austfjarða og miðin: Sunnan kaldi og síð- ar stinningskaldi, úrkomu- laust og hlýtt. SA-land og miðin: Sunnan átt, stinningskaldi og dálítil súld vestan til. Danskur blaba- mabur í heimsókn Hefur skrifað 400 greinar um island CHRISTIAN Böndiing, daruskur blaðamaður, sem er búsebtur í Kaupmannahöfn, er uim þessar mundir staddur hér í Rieyikjavík. Þetfca er í þriðja sinn, sem hann heimisæfcir ísland. Bönding er framkvæmdastjóri fréttastofunn ar „Nordisk Pre9sebureau“. Hef- ur hann 9kirfað 400 greinar um ísland og hafa þær birzt í blöð um víðsvegar um Norðurlönd. — Mbl. hefur undanfama mánuði birt erlendar yfirlibsgreinar og landabréf frá Nordisk Presse- bureau, ásamt mynduim, seim þessi danðka fréttastofa hefur sérstaklega látið gera með grein um sínum. Greinar þessar eru birtar í blöðum á Norðurlönd- um, sem samtals koma út í um einni milljón eintaka. _ Bönding hefur miíkinn áhugs á íslenzkum málefnum og bera greinar hans vott um víð> tæka þekkingu hans á ísXenzikuin: högum. Tilgangur hans með heimisófcr sinni til Reykjavíkur að þessu sinni, er að eiga samtöl vð ýmsa stjórnmálaleiðtoga og framá- menn í hinum ýmsu starfskrein um. Hann sagði Morgunbdaðinu í gær, að mjög vaxandi áihug: ríkti í Danmörku fyrir fréttuir og margiskonar upplýsinguim ua íslenzfc mál. Hendir það oft, eft- ir að hann hefur birt greinar sdn ar, að honum berast ósfcir um aí flytja erimdi og frásagnir frá ís- landi. Bönding dvelur hér i landi þar til í marz-byrjun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.