Morgunblaðið - 23.02.1962, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 23.02.1962, Blaðsíða 13
Föstudagur 23. febrúar 1962 MORGVNBLAÐ1Ð 13 0 0 0 0-0 0 0000000» Rætt við Iðjufólk: Dugmikil stjórn og framfaratímabil Ekki pólitísk verkföll V E G N A kosninganna, sem verða í Iðju um helgina, fór blaðamaður Mbl. að hitta iðn- verkafólk í gær og spyrja það um álit þess á verkum frá- farandi stjórnar. Fyrstan hittum við Guð- mund Guðna Guðmundsson í Víði. — Hvað geturðu sagt okk- ur um það, hvernig núverandi stjórn Iðju hefur haldið á kaupgjaldsmálum ykkar iðn- verkafólks? — Ég verð að taka það strax fram, að ég er 100% sammála Guðjóni og stjórn hans að Júlíus Guðmundsson. hugsa eingöngu um hagsmuni iðnverkafólks en ekki einihver allt önnur mál. Ég er í stuttu máli sagt ágætlega ánægður með það, sem stjórnin hefur gert, en auðvitað verður bar- áttunni haldið áfram. Ef ég má nefna dæmi, þá vil ég minnast á byggingasjóðinn. Þar var stórmanniega af stað farið. Sjóðurinn veitir fólkinu kost á að eignast eigin íbúð og gefur því um leið trú og álit á sjálfu sér. Með bygginga sjóðnum hefur stjórn Iðju unnið afrek. Ekki pólitísk verkföll —■ En finnst þér sama, hvemig unnið er að hagsmuna baráttunni ? —-■ Nei. Ég tel ekki, að stjórn kommúnista hafi unnið að kjaramálum okkar, þótt hún hafi lagt út í verkfall með þau að yfirkini. Mín skoðun er sú, að ekki eigi að leggja út í verkföll, nema einhverjir möguleikar séu á þvi, að fólk- ið fái eitthvað út úr þeim. Samningaleiðin er margfalt tryggari, hvernig sem á er litið. Verkalýðsfélög eru hags munasarntök, eða eiga að vera það, en ekki pólitísk. Þegar kommúnistar fóru út í verk- föll í sumar, voru ákaflega litlir möguleikar á því, að al- menningur fengi nokkuð út úr þeim, enda sýndi árangurinn það, að þeir, sem samninga- leiðina fóru, eins og Iðja, fengu hagstæðari kjör. Þarna spilltu annarleg, pólitísk sjón- armið kjarabaráttu launastétt- anna. — Hérna má minna á eitt atriði í sambandi við sum- arverkföll: Þau lenda lang- harðast á æskufólki, sem stundar skólanám á vetrum og á kannske afkomu sína og skólavist næsta vetur undir sumartekjum sínum. Vegna æskunnar og frá þjóðhagslegu sjónarmiði er það ákaflega mikilvægt að losna við sumar- Stúlkurnar í Nýju skógerðinni vildu litið við blaðamenn tala, en kaupið væri gott, enda samkvæmt Iðjutaxta, þó að það mætti auðvitað vera hærra . . . (Ljósm. Mbl. Sv. Þorm.). verkföll, að maður tali nú ekki um, þegar lagt er út í þau af pólitískum ástæðum. — Þá verður líka að taka tillit til hvers einstaks atvinnurekstr- ar. Ef hann þölir ekki kaup- hækkun, þá hlýtur sá atvinnu- vegur að dragast saman og fólkinu, sem af honum hlýtur lífsviðurværi sitt að fækka. Hagsmunir launþega og vinnu veitenda fara saman öðrum þræði. Auðvitað geta myndazt andstæður peirra á milli, en báðum er hagkvæmast, að deilumál leysist þannig, að hvorugur bíði tjón. Hefðum við verið undir stjórn Björns Bjarnasonar og annarra kommúnista (á ábyrgð fram- sóknaratkvæða), hefðum við lent í verkfalli eins og Dags- brún, og hlotið jafnhörmulega útkomu og Dagsbrún. — Við hér í Víði hefðum til dæmis ekki tapað í beinum launa- tjóni minnu en a.m.k. 4—5000 krónum. — Hvað viltu svo segja að lokum ? — Ekki annað en það, að núverandi stjórn hefur sýnt mikla ábyrgðartilfinningu í málum okkar, fengið brýnar og mikilsverðar-hagsbætur án verkfalla, og því styð ég lista hennar af alhug og vona, að með launajöfnun milli kynj- anna. Það ber að meta að verð leikum. Ég er andvígur kaup- hækkun á kauphækkun ofan; það væri réttari leið að lækka eitthvað fyrst, svo að jafnvægi náist. Framleiðnin hlýtur að ráða. Mér finnst pólitík hafa spillt fyrir kjaralbaráttunni. Það er staðreynd, að þvi verr miðar í þeirri baráftu, sem meiri pólitík kemst í málið. Langar Björn í sjóðina? Þá áttum við tai við Júlíus Guðmundsson í Víði. — Hefur þú verið lengi í Iðju? — Já. nógu lengi til þess að þekkja muninn á Birm og Guðjóni. — Er það mikill munur ? — Ekki nema sá, að ég hef allt gott um Guðjón að segja, en ýmislegt annað um Björn. Stjórn Iðju á undanförnum ár- um hefur verið nákvæmlega eftir mánu höfði, en ég veit ekki til þess, að Björn aafi Guðmundur Guðni Guðmundsson. kommúnistar nái ekki að sundra okkur á kjördegi. Iðju- fólk veit, hvað þá tekur við. Ingimundur Bjarnason. Þá gengum við á fund Ingi- mundar Bjarnasonar, sem vinnur í Cudogler h.f. — Hvað hefur þú að segja um stjórn Iðju og kjaramál- in ? — Ég get ekki sagt mikið um það þar sem ég hef lítið fylgzt með í félagsmálum Iðju þann tíma, sem ég hef verið félagi þar. Mér finnst kjörin vera lág samanborin við verðlag, en hins vegar eru þau góð miðað við önnur verkalýðsfélög. Iðja hefur beitt sér fyrir sjálfsagðri hækkun á kvennakaupi og þar nokkru sinni rétt kjör okkar. nema síður sé. Nú fyrst eftir að lýðræðissinnar ráku ein- ræðisstjórn kommúnista frá völdum, koma kjarabætur til sögunnar. Annars vita allir gamlir Iðjufélagar þetta, og er óþarft að rekja þá sögu oftar. — Við munum það líka sumir hér í Víði, þegar Bjöm ætlaði að koma okkur úr atvinnunni. — Svo þú hefur ekki trú á Birni i framboð ? — Nei. Iðjumenn muna of vel óstjórn og ofstjórn fyrri ára, og þeir muna líka við- skilnað hans við sjóði félags- ins. — En af hverju er maðurinn þá að bjóða sig fram ? — Nú, framsóknarmönnum þykir hann skárri en hörm- ungin, sem kommúnistar buðu þeim upp á í fyrra. í öðru lagi er sagt, að lengi megi fífl- inu á foraðið etja, en þriðjá ástæðan held ég, að skipti mestu máli: Nú eru gildir sjóð Frh. á bls. 23. Jónssyni svarað Sigurði 1 TÍMANUM 17. des. s.l. birtist viðtal við Sigurð Jónsson, vísna- safnara fra Haukagili. Mér fannst bann þar ganga talsvert á snið við sannleikann, meðal annars þegar hann taldi sig ekki þekkja aðra vísnasafnara en sjálfan sig. Þar eð ég taldi mig eiga eins Btórt, eða stærra, vísnasafn en Sigurður, gerði ég við þetta nokkrar athugasemdir og birti þær í Morgunblaðinu. Þessum ethugasemdum mínum gerði Sig- urður nokkra tilraun til að svara í Morgunblaðinu 23 jan. Þetta Bvar Sigurðar staðfestir flest, eem ég hélt fram í minni athuga- semd. Fyrir mig varð ekki á betra kosið. En til þess að þeir, sem þessar línur lesa, haldi ekki eð ég fari hér með staðlausa stafi, leiði ég þá báða sem vitni, Sigurð í Tímanum og Sigurð í Morgunblaðinu. Blaðamaður Tímans spyr: „Hverjir eru aðrir mestu vísna- safnarar á landinu? Sigurður svarar: Ég veit það nú ekki. Það eru ýmsir að fást við þetta. En ég þekki ekki vinnubrögð annara safnara.“ En hjá þessum sama Sigurði kveður við annan tón í Morgunblaðinu. Þar segir hann: „Einar Þórðarson virðist hafa gleymt þvi að ég lét afrita vísna- safn hans honum að kostnaðar- lausu gegn því að ég fengi afrit af því, sem ég kostaði vélritun á.... E. Þ. virðist einnig hafa gleymt þvi. að um nokkurt árabil fékk hann að láni úr mínu safni vísnabækur til þess að afrita .... Þó voru vinnubrögð við þá afrit- un slík, að þar sem nauðsynleg- ar skýringar fylgdu vísunum, hirti E.Þ. ekki um þær til afrit- unar, en iét sér nægja vísurnar sjálfar." Hvernig líst ykkur á samræmið? Á hitt má svo líta, að í Morgunblaðinu er maðurinn eitthvað skrítinn líka, þótt hann sé þar talsvert skárri en í Tím- anum. í Morgunblaðinu blandar hann saman sönnu og lognu á lævísari hátt, en ég hélt að hann hefði greind til, t.d. þar sem hann segir: Ég lét vélrita vísnasafn hans.“ Þetta á að skiljast svo, að hér sé um allt vísnasafn mitt að ræða, þótt hann viti manna bezt, að svo er ekki. Þá segir hann að möppurnar, sem hann fékk hjá mér hafi verið 5, en ekki 8 eins og ég sagði. Þetta finnst mér skiljanlegt. Hann hef- ur sennilega orðið fyrir einihverri truflun þegar hann var aðeins búinn að telja á fingrum annar- ar handar. Þannig mun talan 5 tilorðin. Blaðamaður Tímans spyr: „Gerurðu ekki vísur sjálfur." Sigurður svarar: „Nei, það skul- um við ekki nefna Það liggur ekki fyrir mér.“ í Morgunblað- inu er Sigurður hreinskilnari. Þar segir hann: „Einar Þórðar- son gleymir að geta þess í sam- bandi við þær tvær vísur, sem hann birtir eftir mig, að hann orti sjálfur vísu og lét mig heyra í umrætt skifti og er hún þannig: Ýms mig beygja amaský á lífs vegi hörðum sorgum sleginn sit ég því sviftur megin gjörðum. Þessi vísa varð kveikjan að mínum vísum samhliða eggjun frá E. Þ. að ég gerði vísu, og sannast héi sem fyrr að sá veldur miklu sem upphafinu veldur." Við þetta er tvennt að athuga. Þótt svo væri að ég hefði beðið um vísu, var það í alla staði ósæmandi að yrkja um mig níð og klám. En sleppum því. Hitt er athyglisverðara. að Sigurður er ekki svo mikill hagyrðingur, að hann geti á augabragði hrist fram úr erminni tvær hringhendur, þar sem hvergi skeikar hugsun eða rími. Þetta veit ég af margra ára kynnum. Vísurnar voru því ortar áðui en hann kom i um- rædda kunningja heimsókn. Svo er það vísan hans Jóns Pálssonar, sem Sigurður segir að ég hafi kennt sér afbakaða. Því skrökvar hann. Þá vísu hefir hann fengið hjá einhverjum öðrum og annaðhvor afbakað hana. Öll þessi skrif hans eru því á eina bókina lærð. En ég mun eigi ræða frekar við hann um þetta mál. Einar Þórðarson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.