Morgunblaðið - 23.02.1962, Síða 14

Morgunblaðið - 23.02.1962, Síða 14
r 14 MORCUNfíT 4 mr> Fðstudagur 23. febrúar 1962 Sjötíu og fimm ára Ingiríður Arnadðttir Holti Þistilfirði „Eg man þá tíð í minni hún æ mér er“. LAXÁRDALUR í Þistilfirði er tmaðsheimur bernsku minnar og æsku. Þar norður við yzta haf still- ir móðir náttúra strengi hörpu sinnar með þeim hætti að ekki fymist, né heldur þær fjöl- skrúðugu myndir, sem þar birt- ast í blæbrigðaríku samspili ljóss og skugga. Sviðið er dalurinn frá hafi til heiða. Hljómkviðan sjálf: Norðan- stórhríðin, sem hamast í al- gleymingi veðurofsans. „Vor- vindar glaðir“ og laufvindar þíðir, sunnan af heiðum, sem varmir og ljúfir struku um vanga. Vorleysingarnar undur- samlegu, allur sá kraftur, allt það frjómagn, sem geislar vor- sólar leystu úr læðingi til þess að vordýrð og gróandi næðu völdum og veittu mönnunum blessun sína. I sálum barna dalsins varir eilíflega endur- ómur og endurskin þeirra til- þrifa. Það var snemma vors fyrir um það bil fimmtíu árum, að lítill drengur leit dalinn þennan fyrsta sinn. Af austurbrún blcisti við honum dalurinn utan frá sjó, inn til heíða og beint á móti, í vestanverðum dalnum, stór og reisulegur bær, nær því í miðju, stóru túni, umgirtu miklum túngarði. Drengurinn hélt áfram ferð sinni heim að bænum — á fund húsbænda sinna. Þar með var ég, er þessar línur rita, þangað kominn, þar sem bernska mín og æska liðu sem „indælt vor“. Heilladísir höfðu fylgt mér þangað, til þess fólks, sem í öllum greinum reyndist mér sem beztu for- eldrar, til félags við börn og ungt fólk, sem voru mér sem góð systkini. Allt þel og allur þokki þessa fólks var hefðbundið lögmálum ríkrar réttlætiskenndar og strangasta heiðarleik, samofið umburðarlyndi og samúð. í Laxárdal bjuggu þá fjórir bræður, Ólafur, Magnús, Krist- ján og Þorsteinn Þórarinssynir Benjamínssonar og konu hans Vilborgar Sigurðardóttur. Til beggja handa stóðu að þeim bræðrum sterkir ættstofnar, einkenndir miklum kostum. Allir voru þeir bræður mikil- hæfir menn, hver á sinn hátt. Þeim var það öllum sameigin- legt að vera búnir ágætum gáfum, enginn þeirra mátti vamm sitt vita í nokkrum hlut. Þeir voru skapríkir og ákafa- menn til athafna. Þoldu illa ó- rétt og auðvirðilegt athæfi, en vildu heldur ekki vísvitandi ganga á rétt annarra. — Enga menn hef ég þekkt, sem frem- ur verðskulda þann dóm, að þeir væru vaskir menn og drengir góðir. Tvíbýli var 1 Laxárdal, tvö heimili í sama bænum. Heimilis fólkið var oftast milli tuttugu og þrjátíu manns. Annað heimilið var heimili þeirra Guðmundu Þorláksdótt- ur og Ólafs Þórarinssonar. í heimili þeirra voru fjögur upp- komin börn Guðmundu og fyrri manns hennar, Stefáns Þórar- inssonar, og fimm börn hennar og Ólafs, þá öll á barnsaldri. Var þetta glæsilegt fólk, góðum kostum búið. Hitt heimilið var heimili hús- bænda minna, Ingiríðar Árna- dóttur og Kristjáns Þórarinsson- ar. í heimili þeirra var Vilborg, móðir þeirra bræðra, gáfuð kona og mikill persónuleiki. Þorsteinn Þórarinsson var og í heimili Kristjáns bróður sins og að nokkru í félagsbúi við hann. Magnús Þórarinsson vann á bú- um bræðra sinna til skiptis. Mikil umsvif voru á þessum árum í Laxárdal, bæði utan húss og innan. Stór bú, víðaáttumikið land jarðarinnar, erfitt til allra nytja, heimtaði atorku og harð- fylgi til allra bústarfa utan bæjar. Margt heimilisfólk, erfið þjón- ustubrögð þeirra tíma, matseld við þær aðstæður, er þá voru, matargerð öll, t.d. að vinna mat úr sauðamjólkinni, þar sem margar ær voru í kvíum mat- arsendingar tvisvar-þrisvar á dag til engjafólks o. fl. því um líkt fékk húsfreyjunum ærið að starfa og hugsa um. Er sjálfsagt erfitt fyrir fólk, sem býr við nútíma þægindi að skilja, hvernig þessu varð öllu komið í kring, ekki aðeins að nafninu til heldur af miklum ágætum, allt á réttum tíma og hver hlutur á sínum stað. Húsfreyjurnar á bænum stóðu bændum sínum ekki að baki að neinu leyti, hvorki að gáfum, dugnaði né mannkostum. Þær stjórnuðu heimilunum sinum af skörungsskap, hávaðalaust og virðulega. Guðmunda Þorláks- dóttir er nú látin fyrir nokkr- um árum. Hún var mikil hús- freyja og ástrik móðir. Ólafur, maður hennar, lifir nú einn bræðra sinna. Mikið og gott samstarf var milli búanna í dalnum. Mér er því tamast að minnast fjöl- skyldnanna þar, frá þessum ár- um, sem einnar samstæðrar heildar. Þótt skiptar væru skoð- anir um einstök atriði í önn dagsins, var í öllu, sem máli skipti, einn hugur, einn vilji. Greinarkorn þetta er helgað húsmóður minni og fóstru, Ingiríði Árnadóttur, á sjötíu og fimm ára afmæli hennar. Það, sem sagt hefur verið hér að framan um sjálft umhverfið, sambýlisfólkið, samskipti þess og aðstæður allar, er baksvið lífs hennar. Hún er þar öllu svo samgróin, svo mikilvirkur þátttakandi áð saga þess er hennar saga. ★ Ingiríður Árnadóttir er fædd 23. febrúar 1887. — Foreldrar hennar voru hjónin Arnbjörg Jóhannesdóttir og Ámi Davíðs- son á Gimnarsstöðum í Þistil- firði. Ættir þeirra Gunnarsstaða- hjóna eru kunnar um Þingeyj- arsýslur og víðar um Norður- land. Það fólk er margt ágætu atgerfi búið, gáfað og dugmik- ið. Öll böm þeirra bera beztu einkenni ætta sinna. Er mér í bamsminni hve skemmtilegt og gott var að koma í Gunnars- staði á æskudögum þeirra. Ingiríður Árnadóttir og Krist- ján Þórarinsson giftust 6. júlí 1907. Kristján var þá um þrí- tugt, fæddur 14. maí 1877. Fyrstu búskaparár sín bjuggu þau í Laxárdal í sambýli við þá bræður Kristjáns, eins og fyrr er getið. Á árunum 1913— 1914 byggðu þau sér bæ austan Laxár, nokkuð upp í ásnum, gegnt bænum í Dal. Land undir nýja býlið var fengið úr Gunn- arsstaðalandi til viðbótar jarðar- hluta Kristjáns í Laxárdal. Býl- ið hlaut nafnið Holt. Er það nú kunnugt stórbýli. Býlin tvö í dalnum hafa blómgast og vaxið stórlega að ræktun og húsa- kosti. Fyrir löngu hefur ný tækni leyst gömlu búskapar- hættina af hólmi, sem svo víða annarsstaðar á landinu. Ingiríður og Kristján eignuð- ust ellefu börn. Arnbjörg, Þórar inn og Árni eru búandi heima í Holti með móður sinni. Vilborg, húsfreyja á Þórshöfn, kona Hauks Kjartanssonar, Bergþóra (dáin), Guðrún, húsfreyja á Ak- ureyri, kona Einars Kristjáns- sonar, rithöfundar frá Her- mundarfelli, Ásmundur, kenn- ari í Reykjavík, kvæntur Ás- dísi kennara Eysteinsdóttur, Herborg, kennari og húsfreyja í Reykjavík, kona Þóris Sigurðs- sonar kennara, Þórhalla, hús- freyja í Kópavogi, kona Harðar Björnssonar arkitekts, Guðbjörg, húsmæðrakennari og húsfreyja í Reykjavík, kona Eiríks Jóns« sonar kennara og Hólmfríður, húsfreyja á Akureyri, kona Sig- urðar Óla Brynjólfssonar kenn- ara þar. Allt er þetta vel gefið og glæsilegt fólk. Mann sinn missti Ingiríður 4. marz 1942. ★ Heimilið í Holti var í öllum greinum rammílenzkt menning- arheimili. Þar studdi allt að. Gáfur og mannkostir húsbænd- anna, Ingiríðar og Kristjáns,, Þorsteins Þórarinssonar og móð- ur þeirra bræðra, Vilborgar, ömmunnar á heimilinu. Um það voru þau öll samhuga og sam- hent. Öll umgengni, borðhald og störf innanbæjar hafði yfir sér látleysi og snyrtimannlegan rrrenningarblæ. Vinnan var í há- vegum höfð, vinnulag og af- köst. Um störfin var rætt, glaðst yfir góðum árangri, reynt að finna leiðir til að yfirstíga örðugleika. Reynt var að fá sem flestar tómstundir sameiginlega fyrir heimilisfólk- ið. Fór það að sjálfsögðu nokk- uð eftir árstíðum, hve margar þær urðu. Tómstúndir þessar voru helgaðar söng, sagnalestri, umræður um bækur, opin- ber mál, sem efst voru á baugi í þjóðlífinu, frásagnir og sam- töl. Þessar stundir á æskuheim- ili mínu eru mér ógleymanlegar. Þær voru í senn mikill gleði- gjafi og hollur og góður skóli. Þeir bræður Kristján og Þor- steinn voru vitrir menn og göf- ugmenni. Þeir voru hugsjóna- menn fræðslu, félagsmála og framfara. Umhyggja þeirra fyr- ir velferð bama og æskumanna var óvenjuleg. En samt hefur mér alltaí fundizt hlutur Ingiríðar hús- freyju mestur í mótun þessa góða heimilis og minnkar það ekki hlut annarra. Hún stjórn- aði heimili sínu af mikilli snilli. Allir á heimilinu elskuðu hana og virtu. Hún var ekki orðmörg i stjórn sinni, en engum duldist, hvort henni líkaði betur eða verr. Henni var í blóð borin sú mennt að umgangast aðra þannig, að þeir fundu, hvað af þeim var ætlazt, bæði í störfum og framferði öllu. Hún er kona fremur smávax- in og fínlega byggð, en skör- ungur í geði og fasi öllu. Hún er sterkasti stjómari, sem ég hefi þekkt og um leið sá mild- asti og umburðarlyndasti. Móð- urumhyggja hennar, mildi henn ar og réttsýni, glaður hugur og óvenjulegt táp, brá yndisleik yf- ir erfiði og þrautir daganna og gerði lífið á heimili hennar ljúft og friðsælt. Leiðbeiningar hennar og á» minningar eftir jákvæðum leið- um viðurkenningar, gleymast ekki. Við þessi tímamót ævi henn- ar leita þakklátir hugar barna hennar heim, heim til kærra bemsku- og æskuminninga. —» Margs er að minnast, margt a3 þakka og mikils að sakna. Horf- in er af sviðinu maður hennar, mágur hennar, tengdamóðir og hugljúf dóttir. 1 dag getur Ingiríður í Holtl litið yfir langa og dáðríka starfs ævi. Lífið hefur veitt henni sín- ar dýrustu gjafir og hún veitt þeim viðtöku af miklum marui- dómi. Enn er sú mikla lífsgjöf, starf- ið, ekki fallið henni úr hönd- um. Heima í Holti er hún um- vafin ástúð og umhyggju bama sinna. Bærinn í Holti stendur hátt f hlíð með útsýni vestur yfir sveit ina,Þistilfjörð, til fjallanna við austurbrún Öxarfjarðarheiðar, Nú þegar sól gengur til vestur- áttar vil ég óska fóstru minni þess, að fegurð og friður kveld- sólar megi við henni ljóma, eina og fegurst getur verið, séð heim an frá Holti. Eg færi henni þakk ir mínar, bið henni blessunar guðs og votta henni sonarlega ást mína og aðdáun. Aðalsteinn Eiríksson. Mínar innilegustu þakkir færi ég öllum þeim, er glöddu mig með heimsoknum, gjöfúm og skeytum á 70 ára afmæli mínu 12. febrúar sl. — Guð blessi ykkur öll. Guðmundína Kristín Ingimundardóttir Elliheimili Akraness Öllum þeim, sem glöddu mig á sjötugsafmælinu með heimsóknum, kveðjum, skeytum og gjöfum eða á annan hátt sendi ég mínar beztu kveðjur og þakklæti. Eg óska ykkur allrai blessunar. Sigbjörn Sigurðsson frá Hjartarstöðum. FRAIMLEIÐEIMDIJR Þeu- sem við erum að færa út starfsemi okkar, vilj_ um við taka í umboðssölu innlendar matvörutegund- ir og hverskonar aðrar vörur, sem seldar eru í mat- vöruverzlunum. KATLA H.F. Simi 38080 Ljósaperur 12 — 24 — 32 — 110 Volta fyrir skip og báta skrúfaðar og stungnar útvegum vér frá verksmiðjum í Bretlandi og Frakklandi. — Pantanir, sem eiga að afgreiðast fyrir sumarið óskast sem fyrst. RAFTÆKJAVERZLUN ÍSLANDS H.F. Skólavörðustig 3 — Símar 17975—76 ^Taðir okkar ARNGRÍMUR ARNGRÍMSSOh. Landakoti, Bessastaðahreppi, lézt að Landakotsspítala 22. febrúar 1962. — Jarðarför- in auglýst síðar. Börn hins látna Konan min MARGRÉT ANDREA HALLDÓRSDÓTTIR andaðist i sjúkrahúsinu Sólheimum 21. þ.m. Magnús Bergmann Friðriksson Útför MARÍU MARKÚSDÓTTUR Köldukinn 10 sem lézt 17. þ.m. fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju, laug- ardaginn 24. febr. n.k. og hefst kl. 2 e.h. Markús Sveinsson systkini, börn og tengdabörn hinnar lútnu. Innilegt þakklæti til allra, sem sýndu okkur vinar- hug við andlát og jarðarför föður okkar, PÉTURS HJÁLMTÝSSONAR Börn hins látna V

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.