Morgunblaðið - 23.02.1962, Page 20

Morgunblaðið - 23.02.1962, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FSstudagur 23. febrðar 1962 Barbara James: 34 Fögur og feig sýna þeim svona mikinn áhuga. Jæja, það varð nú þetta ónæði hjá okkur á sunnudaginn, þegar þau voru hérna svó að mig lang- aði til að tala betur við þau, sagði ég, en með litlum sann- fæísíngarkrafti. Þú virðist vera eitthvað hrifin af Lísu, er það ekki Já, mér finnst hún ágæt. Það þykir mér vænt um að heyra. Ég hef aldrei verið eins áhyggjulaus um Tony eins og nú. Ég var fegin, að hún rökræddi ekki þetta mál frekar. Ég vonaði innilega hennar vegna, að Tony hefði ekki myrt Crystal. Það vaeri líka ótrúlegt, ef hann hefði vitað, að hún var dauðvona, en kannske hefði hann bara ekki trúað því. Ég vonaði, að hann fseri ekki að koma móður sinni út úr jafnvægi með því að fara að segja henni frá samtali okkar. Loksins sofnaði ég þetta kvöld, en svefninn var rólegur og hvíld- arvana vegna martraðar og vöku stunda. Símahringingin var þátt- ur í þessari martröð. Hún kom skerandi í myrkrinu, mitt gegn um martröðina og virtist helzt hluti af herini fyrst, en svo fann ég, að hún var það eina raun- verulega í þessum draumkennda heimi. Ég seildist til og kveikti. Síminn var rétt við hliðina á mér á borðinu; hann var ekki annað en dauður hlutur, en samt var hann eitthvað illkvitnislega lif- andi nú. Ég var hrædd við að snerta hann, en hann hélt áfram að hringja. Loksins tók ég hann og hjartað í mér hamaðist, rétt eins og ég ætlaði að kafna. Halló, sagði ég. Fyrst heyrðist ekki nema smeilur, en ég gat heyrt þungan andardrátt. Halló, hver er þar? spurði ég með erfiðismunum. Frú Day! Þetta kom í hvLsling- um en áherzla á hverri samstöfu. Já, hver er þetta? Rosaleen, þú ert orðin of for- vitin. Hver er þetta? Það er hættulegt að vita of mikið. Hæ.ttu þessum fyrirspurn- um þínum. Ég skal kæra þetta fyrir lög- reglunni.... Það er eins gott að vita alls ekki sannleikann. Ef þú kemst að honum, ertu í hættu stödd. Þetta er ekki annað en hrekkja þvaður, æpti ég. Hættu við þetta, eða þú munt sjá eftir öllu saman. Ég veit hver þú ert, laug ég í örvæntingu minni. Það held ég ekki. Mundu, að þú getur orðið í hættu stödd. Góða nótt, Rosaleen. Ég heyrði annan smell og svo var síminn dauður. Ég skalf þeg- ar ég lagði hann á. Fyrst datt mér í hug að reyna að rekja (hringinguna, enda þótt hún kæmj vitanlega frá einhverjum almenri ingssíma en ég sá. að það var vonlaust verk. Eftir nokkurra mínútna bið, gat ég náð í syfjaða stöðvar- stúlku. Þetta var sjálfvirk hring- ing, sagði hún, en kom bara gegn um stöðina hérna. Hún hefði get- að komið úr hvaða símaskáp sem var á öllu Lundúnasvæðinu. Röddin hafði verið óþekkjanleg. Hvíslið var algjörlega ópersónu- legt og raddlaust og hver sam- stafa borin fram sér og með á- herzlu. Þetta hefði getað verið hver sem var, og þá ekki sizt einhver leikarinn, sem væri van- ur að breyta rödd sinni. Það hefði getað verið Tony eða Dom- inic eða jafnvel — Rory eða Leó. Hvíslið hefði vel getað dulið þann litla útlenzkuhreim, sem var á mæli Leós. Ég leit á úrið mitt — klukkan var tuttugu mínútur yfir tvö. Það var dauðaþögn í öllu húsinu. Börnin og Vandy sem ekki ótt- uðust neitt, sváfu hinumegin á hæðinni. En Ida og Albert voru skammt frá. Allt kring um mig var trútt og tryggt fólk, sem hefði verið reiðubúið að vernda mig. Þessi asnalega símahringing hafði aldirei átt sér stað — hun var ekki annað en ljótur draumur. Hendurnar á mér voru rakar af svita. Ég' var skelfd. Rory hefði átt að vera heima, hugsaði ég. Ég hefði ekki átt að þurfa að stríða við þetta ein. Og samt gat nú meira að segja Rory hafa.... Ég hafði Ijósið logandi alla nóttina. Síðan hringt var í sím- ann var eins og einhver iskyggi- leg dularvera væri á ferli í hús- inu. Ég varð fegin þegar ég gat — heilli eilífð seinna — dregið frá giuggum og séð grámugguleg- an haustmOrguninn. Stóru trén voru í þoku en þau voru mér samt huggun. Ekkert var eins slæmt við dagsbirtuna. Ég beið með eftirværitingu þangað til hitt fólkið var komið á fætur. Enn var ekker,t í morgunblöðunum. Mér þótti það einkennilegt, að lögreglan skyldi liggja á þeirri vitneskju, sem hún hafði. Gat Leó hugsanlega haft á réttu að standa? Skyldum við sleppa við að það yrði gert opinskátt, að hún hefði dáið í okkar íbúð? Ég reyndi að hrinda öllu þessu frá mér og tók að hamast við hús- verk og umsjón með börnunum. Svo hringdi síminn, tuttugu mínútum fyrir ellefu. Frú Day? Þetta var glaðleg stúlkurödd. Já. Þetta er ráðningarstofa leikara. Ég hef ofurlitlar upplýsingar handa yður um Tinu Hall. Hún 'hætti leikstörfum fyrir nokkru og er nú sögð eiga heima í Shef- field. En því miður veit ég ekki heimilisfang hennar þar. Þakka yður fyrir ómakið. Því miður hafið þér líklega ekki neitt gagn af því. Ég hefði átt að hringja af en sagði; Andartak. En gætuð þér sagt mér, hver gaf yður þessar upp- lýsingar? Það var stúlka, sem heitir Daphne Blount. Einhver hérna í skrifstofunni mundi, að hún hefði einhverntíma leigt með Tinu Hall og hún er enn í bókum hjá okkur, svo að við vitum ‘hvar hún byr. Og siðan hringd- um við til hennar. Ég þyrfti að tala við riana. Gætuð þér gefið mér símanúm- erið hennar? Alveg sjálfsagt. Ég beið með- an hún leitaði að því. Það er Clyst Green 2862, og hún á heima í Prince’s Avenue Ciyst Green, Surrey. Ég skrifaði þetta niður. Daphne Blount. Ég leitaði vand lega í leikskránni góðu. Þar var nafnið ekki. Þó að ég hringdi til hennar, gæti hún liklega ekki sagt mér neitt. Hversvegna ekki fara að ráðum þess, sem hringdi um nóttina og hætta að leita sannleikans. Þótt einkennilegt sé þá þá ætlaði ég að halda áfram þó ekki væri nema til að sýna, að ég léti ekki hræða mig fyrir orð þess. sem væri svo huglaus að nota þessa nafnleysingja-að- ferð. Ég ákvað því að hringja til Daphne. Ég hafði óneitanlega orðið hrædd við hringinguna, enda er ég engin hetja, en hins vagar get *g verið dálítið þrá, ef því er að skipta. Ég var svo heppin, að Daphne Blount kom sjálf í símann. Ég skýrði henni frá því, að skrifstof- an hefði vísað mér á hana. Mig langaði til að vita, hvort þér gætuð sagt mér eitthvað meira Því miður get ég það víst ekki. Og ef þér ætlið að bjóða Tinu atvinnu, þá þýðir það ekki neitt. Hún er algjörlega hætt allri leik- starfsemi, sagði hú-n einbeittlega. Það var nú ekki í sambandi við atvinnu, heldur dálítið ann- að. Ég er hrædd um, að ég geti ekkert hjálpað yður. En þér voruð vinkona hennar, er ekki svo? Jú, að vísu og við bjuggum saman, en nú hef ég ekki séð hana í næstum heilt ár. Og þér treystið yður ekki að ná sambandi við hana? Jæja, það er nú undir því komið, hvert erindið er. Það kynni að vera, en þó er ég ekki viss. En getið þér ekki gert mér betur grein fyrir yðar erindi, frú Day? Ég vildi gjarna hjálpa yður, en — þér skiljið, að ég verð að vita, til hvers ég er að gera það. Hún var alveg fullkomlega vin gjarnleg, en virtist hálf-óróleg. Ég heyrði alveg, að hún gat vel komið mér í samband við Tinu, en hinsvegar var henni ekki meir en svo um það Ég get ekki útskýrt það í síma. En gætum við hitzt? Borðað sam- an hádegisverð í borginni í dag, til dæmis? Nei því miður get ég ekki að staðið í dag. Ég er ein með ung- barn heima. En gæti ég þá skroppið og hitt yður? Þetta er sem sé mjög á- ríðandi. Það gætuð þér vel, og mér vséri ánægja að hitta yður, en ég er bara hrædd um, að ég geti ekki gefið yður neinar þær upp- lýsingar sem að gagni gætu kom- ið. Ég tek þá áhættu. Get ég kom- ið núna? Ég gæti sennilega verið komin til yðar á hádegi. Já — það ætti að vera allt í lagi. Ég gat heyrt, að henni var lítið um þetta gefið, en svo var forvitnin líka annars vegar. Daphne Blount var snotur kona, bláeygð og með spékoppa í kinnum og hæfilega holdug. Setustofan hennar var snyrtileg og hefði getað komið beint út úr myndablaði. Hún bauð mér sérrí, sem ég afþakkaði. Æ, þér verðið að fá eitt glas, til þess að gefa mér átyllu til að fá mér eitt, sagði hún. Jæja, þakka yður þá fyrir. Mér datt í hug, að einn þáttur í svona njósnastarfsemi væri að vera allta-f að drekka eitthvað með einhverjum. Meðan við drukk- um, fræddi hún mig á því, að hún væri búin að vera gift f rúmt ár og barnið væri tveggja mánaða gamalt. Hún hefði ekki ætlað sér að hætta í leikhúsinu, en nú liti ekki út fyrir, að hún gæti lengur stundað það starf, þar sem hún ætti nú fjölskyldu. Ég skyldi ekkert harma það, sagði ég. Hún sat í hvítum stól, sem var eins og undirskál í laginu. Það var annars gaman að hitta yður. Ég hef alltaf dáðzt svo að manninum yðar. En ég er bara hrædd um, að þér hafið ekkert upp úr þessu ferðalagi. Það er þá verst fyrir mig sjálfa, sagði ég brosandi. Þekktuð þér Tinu Hall vel? Já, sæmilega vel. En þér? Ég hef aldrei séð h an - -ða heyrt. SHUtvarpiÖ Föstudagur 23. febrúajp. 8.00 Morgunútvarp (Bæn. — 8.09 Morgunleikfimi. — Tónleikar 8.30 Fréttir. — 8.35 Tónleikar 9.10 Veðurfregnir. — 9.20 Tónl.) 12.00 Hádegisútvarp (Tónleikar. — • 12.25 Fréttir og tilkynningar), 13.15 Lesin dagskrá næstu viku. 13.25 „ViiL vinnuna": Tónleikar. T 15.00 Síðdegisútvarp (Fréttir, til'k. —» Tónl. - 16.00 Veðurfr. — Tónl, — 17.00 Fréttir^ — Endurt. tónl.« efni). 17.40 Framburðarkennsla í esperanto og spænsku. 18.00 ,,I>á riðu hetjur um héruð'*: Gu8 mundur M. I>orláksson segir frú Hallfreði van "æðaskáldi. 18.20 Veðurfregnir. — 18:30 Þingfréttlr — Tónleikar. 19.00 Tilkynningar. — 19.30 Fréttir. 20:00 Daglegt mál (Bjarni Einarsson cand. mag.). 20.05 Efst á baugi (Björgvin Guð- mundsson og Tómas Karlsson). 20.30 Frægir söngvarar; XV: Amelita Galli-Curci syngur. 21.00 Ljóðaþáttur: Erlingur Gíslason les kvæði eftir Gísla Brynjólfss. 21.10 Einleikur á orgel: Karel Pauk- ert leikur. a) Moto ostinato eftir Petr Eben b) Fantasía, fúga og tokkata eftir Bernhard Rövenstrunck. c) Postludium eftir Leos Janá- cek. 21.30Útvarpssagan: ..Seiður Satúrnue- ar“ eftir J.B. Priestley; XV. (Guðjón Guðjónsson). 22.00 Fréttir. og veðurfregnir. — 22.10 Passíusálmar (4). 22.00 Erindi: Hvert bendir þú til veg- ar? (Séra Sigurður Haukur Guðjónsson á Hálsi í Fnjóska- dal). 22.40 . síðkvöldi: Létt-klassísk tón- list. a) Hátíðarhljómsveitin 1 Róma- borg leikur tvo valsa eftir Jo- hann Strauss: „Suðrænar rósir'* óg „Keisaravalsinn." b) María Callas syngur franskar óperuaríu. c) Carl Taschke fiðluleikari og Fílharmoníusveitin í Leipzig leika ballettþátt op 100 eftir Beriot; Herbert Kegel stj. 23.25 Dagskrárlok. Laugardagur 24. febrúar. 8.00 Morgunútvarp (Bæn. — 8.03 Morgunleikfimi. — TónJeíikar — 8.30 Fréttir. — 8.35 Tónleikar — 9.10 Veðurfregnir. — 9.20 Tónl.) 12.00 Hádegisútvarp (Tónleikar. — 12.25 F~cttir og tilkynningar). 12.55 Óskalög sjúklinga (Bryndís Sig- urjónsdóttir). 14.30 Laugardagslögin. — (15.00 Frétt.) 15.20 Skákþáttur (Guðmundur Arn- laugsson). 16.00 Veðurfregnir. —» Bridgdþáttur (Stefán Guðjohnsen). 16.30 Danskennsla (Hreiðar Astvalds- son). 17.00 Fréttir. — I»etta vil ég heyra: t>órður Einarsson fulltrúi velur sér hljómplötur. 17.40 Vikan framundan: Kynning á dagskrárefni útvarpsins. 18.00 Útvarpssaga barnanna: „Nýja- heimilið", eftir Petru Flagestad Larssen; XII. (Benedikt Arn- kelsson). 18.20 Veðurfregnir. 18.30 Tómstundaþáttur barna og ung- linga (Jón Pálsson). 18.55 Söngvar í léttum tón. — 19.10 Tilkynningar. 19.30 Fréttir. 20.00 Tónleikar: a) Arnold van Mill bassasöngv- ari syngur óperuaríur eftir Mozart og Verdi. b) Tékkneska fíIharmoniusveit- in leikur slavneska dansa eft- ir Dvorák. Stjórnandi: Václav Talich. 20.30 Leikrit: „Á þakinu" eftir John Galsworthy, í þýðingu Árna Guðnasonar cand. mag. — Leik- stjóri: Helgi Skúlason. 22.00 Fréttir og veðurfregnir. — 22.10 Passíusálmur (6). 22.20 DansJög. — 24.00 Dagskárlok. — Hræðileg't! Ef þessu heldur á.fram, þá neyðumst við til þess að fara aftur heim. til pahba þíns og mömmu! X- X- X- GEISLI GEIMFARI X- X- X- •— Þegar aðstoðarmenn manns yð- dr koma, látið mig vita hjá geim- ^ skipafélagir.u, frú Preston. Við erum reiðubúnir að hefja tilraunir þegar! Aðstoðarmennirnir tveir, John Harvey og Vandal Grant, eru á leið er frá rannsóknarstöðinni til jarðar.. — Hvað heldur þú, John, Durabilium fullreynt til sölu? —■ Nei, Vandal, það er það ekki!!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.