Morgunblaðið - 01.03.1962, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 01.03.1962, Blaðsíða 1
24 síður (Jtvarpsuanræðurnar um sjónvarpið í gærkvóldi Afstaða Framsóknar vggð á misskilningi Kommúnistar hreyfðu ekki málinu þegar þeir voru í stjórn Kekkonen foirseti ávarpar finnska þingið við setningu þess sl. mánudag og var þá meðfylgjandi mynd tekin. — Vinstra megin við forsetann er Kauno Kleemola, hirtn nýkjömi for- seti þingsins. í útvarpsumræðum um sjónvarpið í gærkvöldi kom í ljós að þingmenn eru yfir- leitt sammála um að koma þurfi upp íslenzku sjónvarpi, þótt nokkuð skiptar skoðan- ir séu um þetta innan allra stjórnmálaflokka eins og kunnugt er. íslenzka stöðin yrði væntanlega 5000 wött Þing Serkja fól stjórninni að semja við Frakka Túnis, 28. febr. (AP) 1» I N GI alsírskra byltingar- manna, CNRA, sem haldið var í Tripoli, er nú lokið og fól það útlagastjórninni að halda áfram samningum við Frakka með fullu omboði til að leiða sjö ára styrjöldina í Alsír til lykta. — Er litið á þessa afgreiðslu þingsins á vopnahlésmálinu sem nokk- urskonar samþykkt á tilboði Frakka. Hefur útlagastjórnin nú umboð til að undirrita friðarsamninga án þess að þurfa áður að leita álits þingsins. — Samkvæmt frétt- um frá Túnis er talið að framhaldsviðræðurnar við Frakka fari fram fyrir opn- um tjöldum en ekki með Ieynd eins og hingað til. Tilkynning CNRA-þingsins um umboð stjórnarinnar ber það með sér að ekki sé lengur neitt því til fyrirstöðu að friður kom- ist á í Alsír á næstunni. Ef svo hefði verið er fullvíst að þingið hefði óskað eftir að væntanleg- Rannsókn lokið á flugi Poivers Washington, 28. febr. (NTB) LOKIÐ er í Bandaríkjunum rann sókn í máli bandaríska flug- mannsins Francis Gary Powers, sem skotinn var niður í U-2- þotu sinni yfir Sovétríkjunum hinn 1. maí 1960. Samkvæmt opinberum upplysingum verður gefin út tilkynning um niður- stöður rannsóknarinnar á föstu- dag. — John McCone, yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar, hefur nú málsskýrsluna með höndum og gefur utanríkis- og varnarmálanefndum beggja deilda Bandaríkjaþings skýrslu ó fimmtudag og föstudag. Verið getur að einhver nefndin óski eftir persónulegri skýrslu frá flugmanninum sjálfum. Fari svo getur Powers rætt við frétta- menn um helgina, annars á iaug ardag. Sprenging í vélinni Pierre Salinger, blaðafulltrúi Kennedys forseta, neitaði í dag að láta nokkuð uppi um árang- ur rannsóknarinnar. En dagblað ið New York Times sagði í dag að Powers hafi gert allt, sem hann gat, til að eyðileggja flug- vél sína áður en hann yfirgaf hana. Segir blaðið að sprenging Frambald á bls. 23. ir samningar hlytu staðfesting- ar þess áður en þeir væru und- irritaðir. A LAUGARDACÍ? Yazid upplýsingamálaráðherra útlagastjórnarinnar var að því spurður í dag hvenær fram- haldsviðræðurnar við Frakka hæfust og varðist hann allra frétta. En í óstaðfestum fréttum er sagt að viðræðunefnd Serkja muni fara til Frakklands á laug ardag. Yazid hélt fund með fréttamönnurii og las þar upp yfirlýsingu útlagastjórnarinnar um ákvörðun CNRA. — Sagði hann að eðlilegt væri að ætla að væntanlegar viðræður við Frakka leiddu til varanlegs frið ar í Alsír. En ekki viidi hann ræða um það hvað enn stæði í vegi fyrir undirritun friðarsamn inga. — Allir ráðherrar útlagastjórn- arinnar verða komnir til Túnis frá Tripoli á fimmtudag og er þá búizt við að stjórnin komi saman til fundar til að ræða framhaldsviðræður við Frakka. Sagði Yazid á blaðamannafundi sínum í dag að hann héldi ann- an fund á morgun. FÖGNUÐUR í PARÍS í NTB-frétt frá París er sagt að fregninni um ákvörðun Frh. á bls. 23. en stöð varnarliðsins á Kefla víkurflugvelli er aðeins 50 wött. Andstaða framsóknar- manna við stækkun sjón- varpsstöðvar varnarliðsins, byggist á misskilningi því að lítil eða engin breyting verð ur á sjónvarpssviðinu frá því, sem utanríkisráðherra þeirra heimilaði 1955. í vinstri stjórninni hreyfðu kommúnistar því aldrei að afturkalla ætti sjónvarps- leyfi varnarliðsins. Úlfaþyt- ur þessara manna á sjö ára afmæli sjónvarpsins, sem þeir sjálfir hafa árum sam- an borið ábyrgð á, byggist því augljóslegá á tilraun til þess að finna árásarefni á Viðreisnarstjórnina. Hvað sem afstöðu manna til sjónvarpsins líður er „til- laga kommúnista pólitískt herbragð, sem hlýtur að fá afgreiðslu í samræmi við það“, eins og Magnús Jóns- son komst að orði. Alfreð Gíslason (K) fyrsti flutningsmaður tillögunnar tók fyrstur til máls. Kvað hann 25 ár liðin síðan sjónvarpið bom til sögunnar. Hvergi væri reynslan lengri en í Bandaríkjunum og Framh. á blis. 8 RÓM, 28. febr. — (NTB) — Alls létu 8.632 manns lífið f umferðarslysum á Ítalíu á ár- inu 1961 og rúmlega 221.000 slösuðust. Er þetta um 5% aukning frá árinu áður. Meðfylgjandi mynd var tekin, í gær, þegar John Glenn of- ursti ávarpaði Bandaríkja- þing og skýrði frá ferð sinni. I dag ræddi hann við geimvís- indanefnd þingsins ásamt þeim geimförunum Alan Shep ard og Virgil Grissom, Ro- bert Gilhuth framkvæmda- stjóra Mercury-áætlunarinnar og James E. Webb, formanni bandarísku geimvísindastofn- unariiiiuai. Eftir þann fund skýrði Webb fréttamönnum frá því að stofnunin — NASA — myndi ráða 2.300 verk- fræðinga og vísindamenn til þess að vinna að áætluninnj um að senda mannað geimfar til tunglsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.