Morgunblaðið - 01.03.1962, Qupperneq 10
10
MORCI MHT. ifílÐ
Fimmtudagur 1. marz 1962
Stalinsskriðling-
urinn Ulbrícht
IMokkur atriði ur framabraut ein-
ræðisherrans í Austur-Þýzkaiandi
WALTHER Ulbricht stjórnar
í dag meira en 16 milljónum
Þjóðverja. Hann er engin
merkispersóna, en að baki
honum stendur vald Sovét-
ríkjanna og hann er hlýðn-
asti þjónn þeirra. Hér verð-
ur sagt lítillega frá því,
hvemig þessum Stalinista
tókst með grimmd og bak-
tjaldamakki að framast frá
því að vera þýðingarlaus
flokksstarfsmaður í Saxlandi,
unz hann var orðinn ein-
ræðisherra í Austur-Þýzka-
landi.
Af hinum hlýðnum þjónum
Stalins, sem réðu í löndum Aust-
ur-Evrópu eftir stríðið, eru að-
eins þrír ennþá við völd: Enver
Hoxa í Albaníu, G*heorgiu-Dej í
Rúmeníu og Walter Ulbricht í
Austur-Þýzkalandi. Þessir menn
höfðu gengið upp í flokkshásætið
eftir stiga, sem bakinn var líkum
and-stalinistískra félaga þeirra.
Og þeir dýrkuðu Stalin sem guð
eftir rómverskri fyrirmynd. Oft
hafa þeir nefnt hann læriföður
sinn og kváðust vera hinir sönnu
synir hans og létu þjóðir sínar
dýrka sig á sama hátt og Stalin
var dýrkaður. Nú eru þessir
menn að reyna að breiða yfir for
tíð sína og þykjast vera fórnar-
lömb stalinismans og kasta stein-
um á líkkistu „föður síns“.
Sjaldan hefur það komið fyrir
í sögunni, að pólitískur „faðir“
hafi eignazt jafn vanþakkláta og
ótrúa syni.
Enginn þeirra hefur gert sér
jafn mikið ómak til að reyna að
skriða úr sínum stalinistíska úlfs
feldi eins og Walter Ulbricht.
Ekkert gerði þennan mann
hæfan til foringja.
Walter Ulbrioht var smáborg-
axi í Saxlandi áðuir en hann gekk
í þýzka kommúnistaflokkinn.
Frami hans þar varð enginn og
hann öfundaði hetjurnar og
flokksforingjanna. sem höfðu
hafizt til mikilla valda á skömm-
um tíma. Árið 1922, þegar hann
var búinn að vera meðlimur í
10 ár, var hann ennþá óþekktur
og lítilsvirtur floksstarfsmaður í
Saxlandi.
Það hefði hann líka orðið fram
vegis undir eðlilegum kringum-
stæðum. Ekkert gerði þennan
mann hæfan sem föringja. Hann
var ekki glæsilegur ræðumaður,
ekki mikil persóna og alls ekki
neinn fífldjarfur götubardaga-
maður. Ulbricht er frekar rauð-
ut Eichmann: innilokaður, met-
orðagjarn, samvizkulaus og hlýð-
inn. Enginn foringi heldur fylgi-
nautur.
í byrjun 3. tugar aldarinar var
engin eftirspurn eftir slíkum
mönnum í foringjaröðum þýzka
kommúnistaflokksins. Það breytt
ist 1924 þegar náinn vinur Stal-
ins kom til Berlínar, Dmitriso
Manuylsky. Þessi Ukraínumaður
hafði það sérstaka verkefni að
finna mann í þýzka kommún-
istaflokknum, sem þá var áhrifa-
mesti meðlimur Komintern, sem
gæti orðið hlýðið verkfæri hins
komandi einræðisherra. Manu-
ylsky virtist hin metorðagjami
Ulbricht prýðilegur maður og
sendi hann með sérstökum með-
mælum til Moskvu.
í Moskvu kynntist hann bak-
tjaldamakkinu og valdabarátt-
rUnni þennan kalda vetur, þegar
barizt var um eftirmann Lenins,
sem þá lá fyrir dauðanum. Stal-
in leizt prýðisvel á þennan
'hlýðna og metorðagjarna Þjóð-
verja og ákvað. að hann skyldi
verða ásamt Pieck, sem var gam-
all rússaiþræll, aðalstjórnandi
rússnesku kommúnistaflokksins
í framtíðinni.
„Félagi Sella“.
Á tveim ráðstefnum í Moskvu
í marz 1925 og í febrúar 1926,
þvingaði Stalin sellukerfi sínu á
þýzka kommúnistaflokkinn.
Þetta kerfi hafði Stalin notað til
að grafa undan andstæðingum
sínum og búa til skrifstofubákn
og rikisflokk úr hinum rússneska
kommúnistaflokki. Hann gerði
Ulbricht að framkvæmdastjóra
þessa kerfis í Þýzkalandi. og fé-
lagar hans gáfu honum auknefn-
ið „félagi sella“.
Sellukerfið er tilvalið fyrir
pólitíska skriðlinga og þöngul-
hausa. Miðstjórnin ræður öllu og
býr til deildarstjóra og sellufor-
stjóra eftir eigin þóknun. Sellu-
flokkurinn er þægilegur flokkur,
það er hægt að stjórna honum
eins og her.
Þessi umbylting þeirra Stalins
og Ulbricht varð ekkert sérlega
heilsusamleg fyrir þýzka komm-
únistaflokkinn. Frá 1922—1928
féll meðlimatalan úr 380 þúsund-
um í 130 þúsund. Um þetta leyti
gat þýzki kommúnistaflokurinn
ekki lengur haldið flokksþing á
sinn gamla hátt. Á hinum fimm
árum, frá 1918—1924, voru haid-
in níu flokksþing, en á niu ár-
um, frá 1924—1933, ekki nema
þrjú. Ef tir stofnskrá þýzka komm
únistaflokksins átti að halda a.
m.k. eitt flokkaþing á ári. í lok
ársins 1932 voru í Þýzkalandi
6000 hverfissellur og 2210 verk-
smiðjusellur, sem allar gengu
kringum Moskvu-sólina. Þýzku
kommúnistarnir höfðu reynt að
sleppa við þetta kerfi en ekkert
gekk og eftirlætisbarn Stalins,
Ulbricht, var óvinsæll maður.
Fyrst 1930. þegar Stalin var bú-
inn að ná fullu valdi á þýzka
kommúnistaflokknum, var Ul-
bricht kominn í innsta hringinn.
Hann hafði verið kosinn á þing
1928 og samþingsmenn hans
héldu ekki neitt upp á hann.
Hann lifði aðeins á náð Stalins.
Klara Zetkin, sem sat lengi við
hlið Ulbrichts í þinginu, sagði um
hann: „Ég vona að gæfan varð-
Tekið eftir
grein eftir
H.J. Kolberg
i Die Welf
veiti þýzka kommúnistaflokkinn
og komi í veg fyrir aðþessi maður
skolist nokkurn tíma upp í æðstu
stöðu. Mér fellur þessi maður
ekki. Lítið þið í augu hans og
þið munuð sjá, hversu innilokað-
ur og óheill hann er“ Eftir næstu
kosningar heimtaði Zetkin að
þurfa ekki lengur að sitja við hlið
Ulbrichts.
Hinn smámunasami, hefni-
gjarni og lítilsvirti félagi Ul-
bricht húkti á þessum árum í
skrifstofu sinni í flokkshúsinu og
hélt bækur. Þá datt engum í hug
að háðslegt orð um „félaga sellu“
gæti seinna kostað þá höfuðið.
Uppgangnr Ulbrichts.
Uppgangur Ulbrichts byrjaði
eiginlega með falli þýzka komm.
únistaflokksins árið 1933. Stjórn
Hitlers þurfti ekki nema nokkra
mánuði til að eyðileggja hina
voldugu flokksvél. Flokksforing
inn, Thalmann, og eftirmaður
hans, Schehr. og meirihluti
flokksforingjanna, voru teknir
höndum mjög fljótlega. Eftir
nokkra mánuði var ekki hægt að
komast hjá að viðurkenna að
þýzki kommúnistaflokkurinn var
dauður. Aðeins lítill hluti flokks-
stjórnarinnar, svo og Stalins-
deildin í miðstjórninni með Pieck
og Ulibricht á broddinum höfðu
lifað af. Þeim hafði verið séð fyr-
ir peningum og fölskum vega-
Andlegir hermenn Ulbrichts ganga úr vistinni.
innar þreifst Ulbricht vel. Þarna
var enginn sem spurði. Hinn nýi
flokksstíll var „skipun frá
Moskvu" „ráð Komintern", „per-
sónulegt ráð frá Stalin" og eng-
inn dirfðist að gagnrýna.
Þarna byrjaði Ulbricht að
leggja grundvöll að stöðu sinni í
tilvonandi Sovét-Þýzkalandi.
Þarna byrjaði hann braut sína
sem fyrsti aðalritari þýzka eining
arflokksins. Hann var ekki vand-
ur að aðferðum sínum. Þær voru
í senn bæði einfaldar og grimmd
arlegar.
Dyraverðir Ulbrichls láta menn ekki
múður.
komast upp með neitt
bréfum og þeim hafði tekizt að
flýja. Þeir settust nú að í
Moskvu, Paris, Prag og Stokk-
hólmi. Reikninginn borguðu litlu
félagarnir í Þýzkalandi með
frelsi sínu og ekki allfáir með
lifinu.
Hinir flúnu þýzku kommúnist-
ar voru algjörlega á valdi
Kremls. Þeir höfðu enga pen-
inga, enga gilda pappíra og enga
fylgjendur Þeir höfðu ekki einu
sinni ríkisborgararétt, því Gör-
ing tók hann af þeim öllum.
Útlaganefnd þýzka kommún-
istaflokksins í París lifði alger-
lega á peningum og velvilja Stal-
ins og hann gat tekið hvort
tveggja af henni hvenær sem var.
Hún gegndi ekkí fögru hlutverki
á þessum tíma. Stalin skipaði
þeim að taka eftirlætisbarn sitt,
ULbricht. til ritara og aðeins fáir
mótmæltu. Willy Múnzenberg
var meðal þessara uppreisnar-
manna, svo og Hans Kippenberg-
er. Munzenberg stjórnaði áróð-
ursmiðstöð í París, Kippenberg-
er sat við stjórnvöl neðanjarðar-
hreyfingar kommúnista í Þýzka-
landi, sem ennþá voru leifar eft-
ir af. í hálfrökkri útlaganefndar-
Tvær aðferðir.
Hann notaði aðallega tvö af-
brigði. Væru hinir andstæðingar
hans í Þýzkalandi þá lét hann
útbúa dreifibréf þar sem var sagt
frá bústað, vinum þeirra og sam-
böndum og leyniheimilisföngum
þessa fólks nákvæmlega lýst.
Nokkur eintök þessara miða féllu
merkilega reglulega í hendur
Gestapo.
Hin aðferðin var notuð gegn
óþægilegum flóttamönnum. Ul-
bricht sendi þá í „leynierindum“
til Þýzkalands og lét um leið
komast orð til Gestapo, að hættu-
legir njósnarar væru á leiðinni,
svo þeir voru alltaf teknir fastir
við landamærin. Eini gallinn á
þessari aðferð var, að til hennar
þurfti samvinnu hinna dauða-
dæifidu og það kom fyrir að þeir
sáu í gegnum Ulbricht. Aðferðir
Uibridhts áttu sér harða mót-
stöðumenn, meðal þeirra Hans
Kippenberger, yfirstjórnanda
leynistarfsemi flokksins. Þó þessi
maður kippti sér ekki upp við
hvað sem var, bauð honum við
aðferðum Ulbrichts. „Enga sam-
vinnu við SS og Gestapo," heimt-
aði hann. „Sama hvað það kostar
og hverjar kringumstæðurnar
eru.“
Ulbricht brosti bara og sendi
Kippenberger til uppeldis til
Moskvu. Hann tók hins vegar
sjálfur að sér yfirstjórn leyniþjóxx
ustunnar.
f Moskvu tók Pieck við Kipp-
enberger. Hann þurfti að gera
nokkra reikninga upp við hann.
Kippenberger hafði nefnilega ver
ið falið 1930 af Thalmann að kom
ast að mun um, hvað hefði skeð
nóttina 14.—15. janúar 1919 í
Edenhótelinu í Berlín. Á þessari
nóttu voru Pieck, Liebknecht og
Rosa Luxemburg í höndum líf-
varðarins, sem hafði dæmt
þau öll þrjú til dauða. Dóminum
yfir Liebknecht og Rosu Luxem-
burg var fullnægt en Pieck slapp
lifandi. Bindi var þegar komið
fyrir augu hans. þegar hann bað
um að fá að tala við foringja
könnunarsveita herdeiláarinnar.
Pieck fór einni sttrndu síðar.
ómeiddur út úr hótelinu. Áður
en rannsókn Kippenbergers var
lokið, komst Hitler til valda og
flokkurinn hafði um annað að
hugsa. En Pieck var áhyggjufull-
ur. Kippenberger dó af skoti i
bakið 1936. Leo Roth, aðstoðar-
maður hans, var drepinn um leið.
Þeir voru þeir fyrstu. 1934
hafði hin rauða „alþýðuihetja",
Max Hölz, verið helltur fullur af
rússneskum leynilögreglumönn-
um og drekkt í Volgu. Hölz hafði
sagt um Ulbricht, sem hafði látið
'hylla sig sem saxneska götubar-
dagahetju: „Maðurinn er hug-
leysingi og lygari. Ég hef elcki
séð hann í neinum götubardaga í
Saxlandi."
Willy Múnzenberg hafði einn-
ig verið mikill andstæðingur að-
ferða Ulbrichts og hafði það orð
ið til þess að Ulbricht hafði látið
Stalin, Dimitroff og Manuylsky
vita að þeir ættu ekkert sam-
eiginlegt. Haustið 1940 gróf veiði
hundur upp lík úr laufdyngju í
afskekktum skógi milli Lyon og
Valence. Maðurinn hafði ber-
sýnilega verið kyrktur. Erfitt var
að finna hver þetta væri, en
frönsku lögreglunni tókst það að
lokum. Þetta var hinn þekkti
þýzki kommúnisti Willy Múnzen-
berg.
Raunverulegur
foringi 1934.
Árið 1934 var Ulbricht í raun
og veru foringi þýzka kommún-
istaflokksins. Læðupokinn Pieck
hafði fyrir löngu séð hvaðan vind
urinn blés og reyndi ekki mjög
að keppa við Ulbricht. Hann tók
að sér hlutverk hins brosandi
landsföður og alþýðuvinar og það
lék hann til æviloka. En frægð
Ulbrichts var einungis á bak við
tjöldin. Hinir kosnu foringjar
þýzku kommúnistanna lifðu enn-
þá í Moskvu, París og Þýzka-
landi. Enginn vissi það betur en
Ulbrioht sjálfur að &amþykki
þeirra við völdum hans hafði ver
ið þvingað fram. Ekkert flokks-
þing haldið undir löglegum kring
umstæðum í Þýzkalandi hefði
kosið Ul'bricht sem foringja með-
an gömlu foringjamir voru enn-
þá lifandi.
Hættulegasti keppinautur hans
var Ernst Thálmann. Ernst Thál-
Frh. á bls. 18