Morgunblaðið - 01.03.1962, Page 24
Fréttasímar Mbl
— eftir lokun —
Erleudar fréttir: 2-24-85
Innlendar fréttir: 2-24-84
Sjávarútvegurinn
1961
Sjá bls. 13
Blaðinu hefur borizt þessi mynd frá Alþjóðabank anum og hefur bankinn sent hana dagblöðum
um heim allan. Með myndinni fylgdi eftirfarandi texti: „Sjóðandi vatn gýs hátt í loft upp úr ný-
boraðri borholu í Reykjavíkurborg á íslandi. Nú mun þetta vatn verða beizlað og leitt í hitaveitu-
kerfi borgarinnar, sem notað er til húsahitunar og iðnaðar. Alþjóðabankinn lánaði 14. þessa mán-
aðar til þessarar einstæðu hitaveitu upphæð, sem jafngildir 2 milljón dollara. Myndina tók
Pétur Thomsen."
Verkfall boðað
á togaraflotanum
SAMEIGINLEG nefnd sjómanna
félaga um kaup og kjör undir-
manna á togurunum tilkynnti
Félagi íslenzkra botnvörpuskipa-
eigenda í fyrradag vinnustöðvun
frá og með 10 marz hafi samn-
ingar ekki náðist fyrir þann tíma.
Samningaumleitanir hafa stað-
ið yfir milli þessara aðila síðan
á s.l. hausti, en sáttasemjari fékk
málið til meðferðar um síðustu
áramót.
Jón Sigurðsson, formaður Sjó-
mannasambandsins, sagði blað-
inu í gær, að fresturinn hafi ver
ið hafður þetta langur í þeirri
von að samningar náist án þess
að til vinnustöðvunar komi.
Þau sjómannafélög, sem standa
að samninganefndinni, eru: Sjó-
mannafélag Reykjavíkur, Sjó-
mannafélag Hafnarfjarðar,
Verkalýðsfélag Akraness, Verka-
lýðsfélag Patreksfjarðar, Sjó-
mannafélag ísafjarðar, Sjó-
mannafélag Akureyrar, Þróttur
á Siglufirði og Matsveinafélag
SSÍ.
Samningar undirmanna á tug-
urum hafa verið óbreyttir um
tveggja ára skeið.
Góður afla-
dagur í Eyjum
Vestmannaeyjum, 28. febr.
f GÆR komu um 725—750 tonn
á land hér í Eyjum, og er það
bezti afladagur á þessari vertíð.
Beittu allir loðnu i gær. Af þess-
um afla kömu 140 tonn í ísfé-
lagið, Fiskiðjan fékk 150, Hrað-
frystistöðin 150 og Vinnslustöðin,
185. Hæstu bátarnir voru með
um 20 tonn.
Unnið var í öllum frystihúsum
fram á nótt. Varaliðinu var boð-
ið út“ eins og Vestmannaeyingar
segja. Þar er átt við iðnaðarmenn
og annað fólk, sem aðstoða í
frystihúsunum á kvöldin.
í dag eru um 80 bátar á sjó.
Þrír eru með net, fjórir á síld,
63 á línu og tíu á færum. Bátarn-
ir voru að koma að um sex-leytið
í dag, og virðist aflinn vera
minni í dag en í gær. Þá var afla-
hæsti báturimi með 11 tonn, en
afli eykst oft, þegar líður á dag-
inn. — Enginn netaafli hefur
fengizt enn. — Af síldinni er það
að frétta. að Ófeigur fékk 100
tunnur, Jón Trausti 170 og Hring
ver 140. Síldaraflinn fór í togar-
ann Ask til útflutnings, en hann
mun hafa fengið á annað hundr-
að tonn af síld. — Hér eru nú
þrír togarar að bíða eftir síld,
Askur, Neptúnus og Freyr, sem
komu hingað í morgun. — Björn
Togarasölur
TOGARINN Geir seidi í Grims-
by^á þriðjudag 140 lestir fyrir
7.475 sterlingspund.
Bv. Marz seldi í Hull á þriðju
dag 113 lestir fyrir 6.625 sterl-
ingspund.
Á veðrið hlut að
gufumekkinum í Öskjú
Engin ákvörðun um þotukaup
En málið stóðugt í athugun
AÐ UNDANFÖRNU hefur mikið
verið rætt um það manna á með-
al, að Flugfélag íslands væri al-
varlega að hugsa um þotukaup.
Mbl. sneri sér í gær til blaðafull-
trúa félagsins, Sveins Sæmunds-
sonar og innti hann eftir gangi
málsins.
— Það er ekki rétt, að ákvörð-
un hafi verið tekin í málinu,
sagði Sveinn, því í mörg horn er
að líta. Hins vegar fylgjast for-
ráðamenn Flugfélagsins mjög vel
með allri þróun í þessum efnum
Sumarblíða
á Eskifirði
ESKIFIRÐI, 28. febr. — Hrað-
frystihúsið hér hefur tekið á
móti 560 lestum af fiski frá
áramótum frá þeim fjórum bát-
um, sem róa héðan. „Seley“ er
efst í röð aflaskipanna með 170
lestir, Vattarnes með 138 lestir,
Hólmanes með 134 lestir og Guð
rún Þorkeisdóttir með 116 lest-
ir. — Á sama tíma í fyrra var
afli þessara báta um 1.000 lest-
ir. — Hér hefur verið sumar-
blíða undanfarið. — G. W.
og þess er skemmst að minnast,
að Caravelle-þota var látin koma
hér við í sumar til þess að Flug-
félagsmönnum gæfist kostur
á að sjá hana í flugtaki og lend-
ingu hér heima.
— Er Caravelle þá líklegust?
— Það væri óvarlegt að gefa
eitt eða annað til kynna á þessu
stigi málsins. Caravelle hefur
fengið góða reynzlu, ,en í Bret-
landi eru nú t.d. tvær þotugerð-
ir í smíðum, De Havilland Tri-
dent og „One Eleven“ hjá British
Aircraft Corporation. Báðar
verða með Rolls Royce-Spey
turbofan hreyfla. Sú síðarnefnda
er smíðuð fyrir svipaðar flug-
leiðir og Viscount og er arftaki
hans, segja framleiðendur. Svo
mikið er víst, að þrjú flugfélög
hafa þegar pantað samtals 27
þotur þessarar gerðar. Þær flytja
60—70 farþega og fljúga með 870
Keflavík
í KVÖI.D kl. 9 verður spilað
kjör-bingó i Aðalveri. Glæsilegir
vinningar. Ókeypis aðgangur. —
Sjálfstæðisfélögin í Keflavík.
km. hraða á klst, en það sam-
svarar 1 klst og 35 mín á flug-
leiðinni Reykjavík Glasgow.
Nú eru liðin fimm ár síðan
Flugfélagið fékk Viscount-skrúfu
þoturnar og það er deginum Ijós-
ara, að félagið verður að taká
þotur i notkun á flugleiðum sín-
um áður en mörg ár líða, ef fé-
lagið ætlar sér að halda sam-
keppnisaðstöðunni erlendis.
UM kl. 18 í gær sáu vegfarend-
ur, sem leið úttu um Skúla-
götu, að danska saltskipið Mar-
garethe Robert var tekið að
reka að landi. Það hafði legið
fyrir akkerum á ytri höfninni,
en rak nú að landi austan meg-
in við Klöpp, í krikanum milii
Klappar og gömlu Kveldúlfs-
bryggjunnar. Þótti sumum skip-
ið vera komið fullnærri landi,
þegar véiin var að lokum sett í
gang og siglt út á höfn. Sagði
éinn áhorfandi blaðamanni Mbl.,
að skipsmenn myndu ekki hafa
gert sér rekann almennilega
í GÆR flugu dr. Sigurður Þór-
arinsson, jarðfræðingur, og dr.
Guðmundur Sigvaldason, yfir
Öskju í flugvél Flugmálastjórn-
arinnar, til að athuga gufumekki
þá sem Björn Björn Pálsson sá
á gosstöðvunum í fyrradag.
Kvaðst Sigurður hafa séð þar
miklu meiri gufu en hann hefur
séð síðan gosið hætti, en telur
að þetta óvenjulega kyrrstæða
veður sem nú er yfir hálendinu,
eigi verulegan þátt í því.
En þeir félagar flugu yfir í
gær, var þar gufumökkur, sem
lú eins og klessa yfir gosstöðv-
unum að því er Sigurður sagði.
íjósan, fyrr en einn þeirra
þurfti að fleygja bjórdollu út
um kýrauga og sá þá, hvemig
komið var. Ekki verður þessi
saga seld dýrara verði en hún
var keypt. Hafnsögumenn komu
á vettvang á báti, en munu
ekki hafa þurft að veita neina
aðstoð. Sögðu þeir, að hér hefði
ekki verið um neina hættu að
ræðja, og algengt að skip ræki
eitthvað til á höfninni, þótt þau
lægju fyrir akkerum. Á þessum
stað er líka allmikið aðdýpi,
enda lögðust togarar við Kveld-
úlfsbryggjuna hér áður fyrr.
Saltskipið rak nærri
Skúlagötufjörunni
Einnig var kúfur yfir Víti. Eink*
um fannst Sigurði það áberandi,
að mesta gufan virtist vera úr
hraunbrúninni SV-megin við
gígana, en þar er einmitt nýj-
asta hraunið og ekki óeðlilegt að
mestur jarðhitinn sé enn. Þar
lagðist gufan eins og greitt hár
yfir jaðarinn. Taldi Sigurður að
gufan sem af þessu legði, kæm-
ist ekki í burtu og grúfði þar
yfir, en ekki sé um verulegan
nýjan jarðhita að ræða. Strók-
urinn, sem hæst ber, er úr hlíð-
inni, þar sem hver hefur verið.
Sigurður telur að þá hafi veirið
nokkuð dintóttur, stundum meiri
og stundum minni. Aftur á móti
er það nokkuð kynlegt, að eng-
in gufa skuli þá liggja yfir hraun
inu norðan við gömlu gígana, en
þar er greinilega snjór. Sigurð-
ur sagði að Guðmundur Sigvalda
son, sem væri hverasérfræðing-
ur, teldi þessa gufu mjög þurra
og það styddi einnig þá skoðun
að veðrið ætti hér hlut að máli.
ilslenzkur læknir
dósent við há-
skólann í Lundi
FYRIR nokkru var dr. med.
Stefán Haraldsson að loknum
próffyrirlestrum gerður dós-
ent í Orthopedi við háskólann
í Lundi í Svíþjóð.