Morgunblaðið - 13.03.1962, Side 15
Þriðjudagur 13. marz 1962
MORGVNBLAÐ1Ð
15
IR-ingar byggja
skíðaskála í
sjálfboðavinnu
SÍÐASTLIÐINN laugardag
var tekinn í notkun nýr og
glæsilegur Skíðaskáli í Hamra
gili við Kolviðarhól. Félagar
í íþróttafélagi Reykjavíkur
hafa reist þennan skála og
vinnan við hann hefir að lang-
mestu leyti verið sjólfboða-
starf félagsmanna
Fjöldi félaga og gesta sátu
kaffiboð félagsins á laugar-
daginn og fór þar fram hin
skemmtilegasta vígsluathöfn.
Albert Guðmundsson fyrr-
um formaður Í.R. stýrði hóf-
inu. í upphafi minntist hann
fyrsta formanns Í.R., Andrés
J. Bertelsens, sem er nýlát-
inn. Bað hann menn standa
upp í virðingarskyni við hinn
látna.
Þá þakkaði Albert hinum
mörgu er lagt höfðu fram
vinnu við hið nýja og glæsi-
lega hús. Ennfremur las hann
kveðjur frá menntamálaráð-
herra, borgarstjóranum í
Reykjavík og fleirum og þakk
aði góðar gjafir er skálanum
höfðu borizt.
Þá tók til máls Sigurjón
Þórðarson og fórust honum
m. a. orð á þessa leið:
„Árið 1955 var byrjað að
grafa fyrir grunni þessa húss,
það gerðu sjálfboðaliðar sem
sumir hafa unnið að bygging-
unni síðan aðrir af þeim, sem
byrjuðu hafa haft öðrum störf
um að sinna þegar lengra leið
á skálabygginguna, en nýjir
félagar hafa tekið við. Það er
fyrst og fremst dugnaði og
ósérhlífni félaganna að þakka
að þetta hús er risið af grunni.
Ég veit ekki hvort rétt er
að nefna eitt nafn frekar en
annað. Ég vil þó þakka nokkr
um sérstaklega, ég nefni fyrst
an Hörð Björnsson byggingar-
fræðing gamalkunnan skíða-
kappa, en hann hefir teiknað
þennan skála og hefir vel tek-
izt og hann hefir fylgzt með
byggingu hans. Hann hefir
léiðbeint lagtækum mönnum
um framkvæmd smíðinnar.
Oft hefir það leiðbeiningar-
starf verið illa upp tekið, þótt
óþarfa aðfinnslur; þessu mætti
sleppa, þetta mætti vera öðru
vísi, en Hörður hefir alla tíð
staðið fastur fyrir, haft það
fram sem betur skyldi. Að
öllum öðrum ólöstuðum hefir
Hörður unnið sitt starf af sér-
stakri prýði og ódrepandi á-
huga.
Skíðadeildin hefir fleirum
að þakka. Ég leyfi mér að
nefna fyri*verandi formann fé-
lagsins Albert Guðmundsson,
en undir hans forystu var fyr-
ir alvöru hafst handa. Hans
þáttur 1 byggingunni verður
lengi í minnum hafður.
Felix Þorsteinsson bygging-
armeistari reisti grind og
klæddi hana sumarið 1958.
Sigurjón Þórðarson, formaður
ÍR, flytur ræðu sína.
Hann og hans menn hafa síð-
an unnið síðustu vikur mikið
starf og gott.
Karli Guðmundssyni í Slippn
um verðum við að þakka sér-
staka hjálpsemi. Það er sér-
stök ánægja að eiga viðskipti
við slíkan öðling sem Karl er.
Kjartan og Ingimar Ingi-
Skíðaskáli ÍR í Hamragili.
marssynir hafa stutt okkur í
hvívetna, flutt fyrir okkur
efni og fól-k á öllum tímum.
Við þökkum þeim sérstaklega.
Gunnar Guðmundsson lagði
þann myndarlega veg, sem
hingað er ekinn, mikið mann-
virki, sem væntanlega verður
fullgerður næsta sumar.
Þetta íþróttamannvirki kost
ar í dag kr. 1.379.614,00, sem
sundurliðast þannig: Efni o. fl.
766.969,00, keypt vinna 60.186,
00 og svo sjálfboðavinna
552.459,00.
Það sem er sérstaklega at-
hyglisvert við þessa byggingu,
er það, að keypt vinna er að-
eins um 4% af heildar bygg-
ingarkostnaði. Ég hugsa að
slíkt sé eindæmi um byggingu
íþróttamannvirkis nú á seinni
órum.
Þetta hús má því segja að sé
fyrst og fremst hyggt af ÍR-
ingum. Þeir hafa lagt á sig um
20.000 vinnustundir, í sam-
bandi við þetta hús. Það vill
svo til að þetta er fyrsta hús,
sem ÍR reisir og þessvegna er
valinn 55 ára afmælisdagur
félagsins til að opna það til
afnota, þótt enn sé nokkuð ó-
gert.
Á þessum ófullgerða vegg
sem þið sjáið verður í fram-
tíðinni hlaðinn arinn. Eftir er
að mála húsið utan og ganga
frá skíðageymslu.
Húsgögn eru hér af skorn-
um skamti, en þeir menn sem
stofnuðu Skíðadeild ír voru
framsýnir menn og'eins og til
að tengja þeirra frábæru fram
sýni og daginn í dag, þá hafa
á furðulegan hátt varveizt
hluti af þeim húsgögnum, sem
prýddu stofur Kolviðarhóls
fyrir næstum 25 árum. Ég
vona að skíðafólk, sem setzt
í þessa stóla, sem hér eru,
minnist þeirra sem hófu skíða
íþróttina til vegs og virð-
ingar.
Hið opinbera, ríki og bær,
hafa veitt þessu íþróttamann-
virki styrki sem hér segir:
Úr iþróttasjóði ríkisins hafa
verið greiddar 12 þúsund kr.
6.000 hvort ár 1960 og 1961.
Frá íþróttabandalagi Reykja-
víkur höfum við fengið í styrk
42 þús. kr. Auk þess höfum
við að láni frá þeim 70.000.
Við þökkum að sjálfsögðu
þennan stuðning, þótt við hefð
um þegið að hann hefði verið
meiri, en þessir sjóðir hafa
víst í mörg horn að líta. Hann
kom sér vel, því auraráð hafa
verið mjög af skornum
skammti allt frá því að bygg-
ingin var hafin.
Eins og þið góðir gestir sjá-
ið, þá er skálinn byggður úr
timbri. Hann er ca. 250 ferm.
& IVz gólfi.
Þegar inn er komið er hér
niðri fyrst anddyri, síðan þessi
salur, eldhús, tvö herbergi, þar
sem pláss getur verið fyrir
12 gesti, ef á þarf að halda.
Hér eru einnig snyrtiklefar
kvenna og karla og skíða-
geymsla, en hún er ekki full-
gerð. Uppi er svo svefnloft,
þar sem 30 manns geta sofið
á svampdýnum. Þar er einnig
nokkurs konar baðstofa með
svefnplássi fyrir 18 manns.
Skálinn er hitaður með olíu-
kyntri miðstöð. Rennandi vatn
er í snyrtiklefa og eldhús.
Eldað er við gas. Diesel raf-
stöð er til ljósa og lýsingar
hér í nærliggjandi brekkur en
rafvirkjar deildarinnar en
þeir eru margir, hafa sett upp
flóðlýsingu á brekkurnar hér
í gilinu, svo hægt verður að.
stunda skíði að kvöldi til sem
um hádag væri.“
Að lokinni ræðu formanns
talaði ÞórirLárusson formað-
ur Skíðadeildar ÍR, en hann
tók við skálanum til varð-
veizlu fyrir hönd deildarinnar.
Benedikt G. Waage forseti
Í.S.Í. flutti heillaóskir íþrótta-
sambands íslands og færði
Ljósm. Mbl.: vig.
skálanum fallegan veggfána
að gjöf. Einnig sæmdi hann
þá Albert Guðmundsson og
Sigurjón Þórðarson þjónustu-
merki sambandsins fyrir vel
unnin strf. Að lokum bað
hann menn hylla Í.R með
húrrahrópi.
Næst tók til máls Einar B.
Pálsson formaður Skíðasam-
bands íslands og flutti kveðj-
ur þess.
Þorsteinn Einarsson íþrótta-
fulltrúi flutti kveðju íþrótta-
nefndar ríkisins og gat þess
að íþróttasjóður mundi greiða
laun Harðar Björnssonar fyr-
ir tæknilega vinnu við skál-
ann, en Hörður hefir gefið
vinnu sína félaginu og rennur
greiðsla því beint til félags-
ins.
Ásgeir L. Jónsson, sem var
einn af forsvarsmönnum Kol-
viðarhólskaupanna 1938 tók
næstur til máls og minntist
gamalla daga.
Ellen Sighvatsson formaður
Skíðaráðs Reykjavíkur færði
gjafir frá skíðaréðinu, íþrótta
félagi kvenna og Sportveri.
Þá fluttu eftirtaldir menn
kveðjur hver frá sínu félagi
og færðu skálanum jafnframt
gjafir. sem bæði voru þarfir
gripir, vel gerðir og fallegir.
Lárus Jónsson frá Skíða-
félagi Rvíkur, Einar Björns-
son frá Val, Gunnar Péturs-
son frá Víking, Georg Lúð-
víksson frá K.R., Þórsteinn
Bjarnason frá Ármanni.
Að síðustu þakkaði Sigur-
jón Þórðarson allar hinar
góðu gjafir og hlýhug þann er
þeim fylgdi. Benti hann mönn
um á glæsilegan hreindýrs-
haus, sem hangir á einum
vegg skálasalarins, sem Ein-
ar Eyfells hafði gefið.
Að lokinni þessari athöfn
héldu velflestir þeir er vígsl-
una sátu á skíði út í hið fagra
veður og glæsilega skíðaland,
sem er í nágrenni skálans.
Landsmálafélagið VÚRÐUR
heldur almennan félagsfund í Sjáffstæðishúsinu í kvöld kl. 20,30
Fundarefni:
Nýju skatta- og útsvarsfrumvörpin
Frummælandi:
GUNNAR THORODDSEN, fjármálaráðherra.
Allt Sjálfstæðisfóik velkomið á fundinn meðan húsrúm leyfir
Stjórnin