Morgunblaðið - 13.03.1962, Síða 19
, I^riðjudagur 13. marz 1962
MORGV1SBLÁÐ1Ð
1*
— Þjóðleikhúsið
í Fraimihald af bls. 6.
ur og hátíðlegur, þó að út af
toregði einstöku sinnum, enda
reynir hann að telja Higgins á
mannlegri framkomu við Elizu.
Persóna þessi er mjög sönn og
skemmtileg í ágætri túlikun
Róberts.
Mr. Doolittle, föður Elizu leki-
urÆvar R. Kvaran. Doolittle er
ein allraskemmtilegasta persóna
leiksins, greindur náungi og orð-
enjall á sínu cokney-máli, en
svallari at lífi og sál end'a inni-
lega sáttur við tilveruna ef hann
á noiklkra skildinga fyrir bjór-
Ikollu handa sér og vinum sínum.
I>ví finnst honum hann fyrst vera
kominn í hundana þegar honum á
óvæntan hátt tæmist arfur, sem
neyðir hann til að gerast fínn
xnillistéttarmaður. Hlutverk þetta
reynir mikið á leilkarann, hann
verður meðal annars að dansa og
syngja, er* Ævar leysir hvor-
tveggja prýðiiega af hendi eins
Og reyndar hlutverkið allt.
Guðbjörg Þorbjarnardóttir fer
með hlutverlr frú Pearce. ráðs-
konu próf. Higgins og Regina
Þórðardóttir leikur frú Higgins,
móður hans. Báðar fara þær á-
gætlega með hlutverk sín. Guð-
tojörg myndug en þó mild og
Regina hin fædda hefðarfrú með
(hjartað á réttum stað.
Og þá eru það cockneyarnir,
Harry Og James, vinir mr.
Doolittle og dryGdkjubræður hans,
sem betur eru fallnir til bjór-
drykkju en erfiðis, eins og vin-
ur þeirra. Þessa heiðursmenn
leika Árni Tryggvason Og Bessi
Bjamason mjög skemmtilega,
enda vöktu þeir mikinn hlátur
áhorfenda. — Unga manninn
Freddy, sem verður yfir sig ást-
fanginn af Elizu, leikur Erlingur
.Vigfússon. Fer hann vel með hlut
verk þetta, er gjörvulegur ung-
ur maður og söngur hans prýði-
Jegur.
Leikstjórinn, Sven Áge Larsen,
Ihefur unnið frábært verk með
Iþví að koma þessu mifcla leik-
toúsverki á svið hér með þeim
glæsibrag og því öryggi, sem
raun ber vitni og þar að auki á
ötrúlega stuttum tíma. Vitanlega
er hann leiknum þaulkunnugur,
þar eð hann hefur sett leikinn
svo oft og víða á svið áður, og
hefur það létt hönum starfið, en
sviðsetning hans skeikar heldur
ekki í neinu að því er séð verð-
ur. Þá á Frik Bidsted sinn veiga
mikla þátt í því hversu heill-
andi sýningin er, þvi dansar hans
eru afburða skemmtilegir, hug-
xnyndaríkir, fjörugir og fallegir
og ágætlega æfðir og vel stignir
af ungu og glæsilegu fólki.
Tónlistin. sem Frederick Loewe
hefur samið er létt og notaleg
og fellur vel að efni leiksins.
Sinfóníuhljómsveit fslands und
ir stjórn Jindrich Rohan annast
tónlistarflutninginn og tekst yf-
irleitt vel. Carl Billich hefur æft
kórinn, sem leysir sitt hlutverk
vel af hendi.
Eins og áður segir, erú tjöld
Og búningar gerð eftir teikning-
um þeirra Oliver Smith ög Cecil
Beaton. Er hvörttveggja afburða-
vel gert Og glæsilegra miklu, en
hér hefur áður sést á leiksviði.
Þýðingu leiksins hafa gert þeir
Epill Bjarnason og Ragnar Jó-
hannesson, en ljóðin hefur Egill
þýtt. Það er mikið vandaverk að
þýða þennan leik á íslenzku, því
að við eigum ekki til neina mál-
lýzku, er svari til hins enska
oockney-máls. Sjálfsagt munu
skiptar skoðanir um það hversu
þýðendunum hefur tekizt. Eg fyr-
ir mitt leyti, er ekki ánægður
með þýðinguna en játa jafnframt
að ég efast nm að hægt hafi verið
að leysa þá þraut öllu betur.
Að leikslokum voru leikstjóri,
ballettmeistarinn, hljómsveitar-
stjórinn Og leikendur ákaft hyllt-
ir, en mest þó aðalleikendurnir,
Rúrik Haraldsson og Vala Krist-
jánsson.
Eg sagði hér að framan að ég
hefði aldrei notið leiksýningar í
afn ríkum mæli og sýningarinn-
ar á „My Fair Lady“ í Löndon
haustið 1960. Eg vil bæta því við
hér, að ég hef aldrei séð á ís-
lenzku leiksviði jafn glæsilega ög
skemmtilega leiksýningu og sýn-
inguna í Þjóðleikhúsinu nú á
„May Fair Lady“. Á Þjóðleikhús-
ið vissulega þakkir skilið fyrir það
mikla framtak og þann stórhug
að taka þetta mikla Og heillandi
leikhúsverk til sýningar. Vonandi
kunna Reykvíkingar að meta það
að verðleikum.
Sigurður Grímsson
Samkomuv
Samkoma í Breiðfirðingabúð
í kvöld kl 8.30.
Stefán Runólfsson.
KFUK ad.
Saumafundur í kvöld kl. 8.30.
Kaffi o. fl. Allt kvenfólk vel-
komið. Munið aðalfundin 20.
marz.
Fíladelfía
Almenn samkoma kl. 8.30 að
Hátúni 2. Tage Söberg talar.
Allir velkomnir.
hein&unum.
/uýi</2i.r¥ur& #
ÍBR TBR
reykjavíkurmót íbadminton
verður haldið í íþróttahúsi Vals dagana 24. og
25. marz. — Þátttaka tilkynnist til Halldóru
Thoroddsen sími 16947 fyrir 20. þ.m.
MÓTANEFND.
Laugavegi 33.
Plisseruð terelyne pils
á telpur allar stærðir
Punkt suðuvél
Af sérstökum ástæðum er til sölu 8 kw tímastillt
punktsuðuvél. Vélin er ensk og alveg ný.
Nánari upplýsingar í síma 36562.
Stúlkur óskast
Tvær stúlkur óskast til saumaskapar.
Upplýsingar gefnar á saumastofu Lífstykkjabúðar-
innar Skólavórðustíg 3.
Lifstykkjabúðin h.f.
Þekktur prédikari
TAGE SJÖBERG
talar í kvöld, fitnmtudagskvöld og laugar-
dagskvöld kl. 8.30
í FÍLADELFÍU, HÁTÚNI 2.
Ædansleikur kl.21/% #
pÓJiscafe,
^ Hljómsveit Andresar Ingólfssonar
★ Söngvari Ilaraíd G. Haralds
Rtöðull
Sigríður
Geirsdóttir
(Sirry Steffen)
Fyrsta íslenzka KVIK-
MYNDA. OG SJÓN-
VARPSMÆRIN
í Hollywood
Syngur sem GESTUR
í kvöld með HLJÓM.
SVEIT ÁRNA ELFAR
ásamt
HARVEY ÁRNASON.
'0 000000000 0 0 * 0 0 0'0 0 0 0 0 0 0 0 0 0*
Hið viusæla KALDA BORÐ á hverju kvöldi
frá kl. 7—9. — Borðpantanir í síma 15327
10 00
Arshátíð
félagsins verður haldin í Silfurtunglinu laugar—
daginn 17. marz. — Hefst með borðhaldi kl. 19.
Skemmtiatriði ????
(nokkuð sem enginn félagi má missa af).
Vegna mikillra eftirspurna er félögum bent á a8
tryggja sér miða i tíma.
Miðar verða dfh. hjá Carli Bergman og í LúHabúð.
Félag framleiðslumanna
Framhaldsaðalfundur Félags framreiðslumanna
manna verður haldinn 14. marz kl. 5 e.h. í Naust.
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Lagabreytingar.
STJÓRNIN,
OPÍÐ í KVÖLD
Haukur Morthens
og hljómsveit
NEO-tríóið
og
Margit Calva
KLOBBURÍNN
Indverska dansmærin YASMIN
skemmtir í kvöld.
kl. 8,30
KJÖRBIGÓ ☆' AÐ ☆
Stjórnandi:
Kristján Fjeldsteð
Ókejpis aðgangur
100 kjörvinningar
á 4 borðum
Úrvals vinningar
I
BINGÓ - BINGO - BINGÓ
☆ HÓTEL BORG ☆
Borðpantanir kl. 8,30
í sima 11440 þriðjudaginn 13. marz