Morgunblaðið - 17.03.1962, Qupperneq 12
12
MORCTNni4ÐlÐ
Laugardagur 17. marz 1962
SELFOSS og NÁGRENNI
Sigurför sannleikans
nefnist erindið, sem Svein B.
Johansen flytur í Iðnaðar-
mannamannuhúsinu, Selfossi, sunnudaginn 18. marz
kl. 8,30.
Sýnd verður kvikmyndin Meira en söngur
Allir velkomnir.
Eiginkona mín
ÓLAVÍA SIGRÍÐUR ÁRNADÓTTIR
andaðist í St. Jósepsspítala 15. þessa mánaðar.
Vegna aðstandenda.
Þórður Oddgeirsson.
Systir okkar
ÞURÍÐUR ÁRNADÓTTIR BERGSTRÖM
frá Skútustöðum,
andaðist í Seattle, Bandarikjunum, hinn 8. þ.m.
Systkinin.
Móðir okkar
GUÐRUN ÞORSTEINSDÓTTIR
Brekkustíg 6 A,
andaðist í Bæjarspítalanum 15. marz. Jarðarförin
ákveðin síðar
Þorsteina GuSjónsdóttir,
Ingibjörg Guðjónsdóttir,
Laufey Guðjónsdóttir.
Faðir minn
BÁRÐUR ÞORSTEINSSON
Gröf, Eyrarsveit, Snæfellsnessýslu
andaóist að heimili sínu þann 16. marz síðastliðúm.
Oliver Bárðarson.
Eiginmaður minn og faðir
JCLÍUS jónsson
andaðist að heimili sínu Breiðagerði 8 15. marz 1962.
Hólnifríður Guðjónsdóttir, Magnús Júlíusson.
Faðir okkar
VALGRÍMUR SIGURWSSON
andaðist á sjúJirahúsmu í Stykkishólmi aðfaranótt
16. marz s.l.
Guðrún Valgrímsdóttir, Guðniundur Valgrímsson.
Jarðarför móður okkar
EVRÚNAR F.IRÍKSDÓTTUR
Njarðargötu 43,
sem andaðist 10. þ.m. fer fram frá Fossvogskirkju
mánud. 19. marz, kl. 1.30 e.h.
Guðrún Marelsdóttir, Eiríkur Marelsson,
Sigurhjörg Marelsdóttir, Rúnar»Mát Marelsson,
Soffía Marelsdóttir, Sigurður Marelsson.
Jarðarför móður ðkkar og tengdamóður
VALGERÐAR PÉTURSDÓTTUR
Rauðarárstíg 32,
sem andaðist þann 9. marz
mánudaginn 19. marz kl.
Sigurður P. J. Jakobsson,
Pétur H. J. Jakobsson,
Jakob J. Jakobsson,
Hallgrímur Jakobsson,
Petrína K. Jakobsson,
Áki Jakobsson,
fer fram fró Dómkirkjunni
;,30 e.h.
Marta PétursdóttKr,
Margrét Einarsdóttir,
Ásthildur Jósefsdóttir,
Margrét Árnadóttir,
Jóhann M. Hallgrímsson,
Helga Guðmundsdóttir.
Þökkum innilega öllum þeim, er auðsýndu okkur
samúð og vináttu í sambandi við andlát og útför
JÓHÚNNU PÉTURSDÓTTUR
Bolungarvík.
Vandamenn.
85 ára i dag:
Páll Þorvaldsson
EIN FYRSTA endurminning mín
er bundin við Pál Þorvaldsson.
Mun það hafa verið síðla sum
ars 1909. Bygging Vífilstaðahæl
isins stóð þá yfir, en faðir minn
stóð fyrir því verki. Vann Páll
að byggingunni, ásamt mörgum
öðrum vöskum drengjum. Eg
hafði fengið að fara í bæinn
mieð föður miinum, en það fóll
í hlut Páls að reiða mig aftur
til Vífilstaða. Er mér það enn
í barnsminni, hve traust og ör-
ugg mér fannst fylgd Páls í
þessari ,Jangtferð“. Er það Og
sagna sannast, að í langri við-
kynningu hefir þessi mynd Páls
ekki breytzt í huga minum. Eg
hygg einnig, að það sé sann-
mæli, að samferðamenn Páls í
líifinu hafi reynt hann að hinu
sama, öryggi og festu að hverju
sem hann getkk.
í dag verður Páll 85 ára. Hann
er fæddur 17. marz 1877 í Sikaft
holti í Árnessýslu. Faðir hans
Þorvaldur, bjó a* an sinn bú-
skap í Skaftholti í Eystrihreppi.
Hann var sonur séra Jóns á Stóra
Núpi, Eiríkissonar, dlbrm., að Ási
í Holtum, Sveinssonar, en kona
Eiriíks var Guðrún Jónsdóttir
prests í Holti undir Eyjafjóll
um, Jónssonar, systur Steingríms
biskiups.
Móðir Páls var Guðrún Gísla-
dóttir bónda í Ásum, Rögnvailds
sonar.
Er þetta allt kjamafólk, þekkt
að dugnaði og atorku. Páll hef
ur því ekki þurft langt að sækja
suma þá eiginleiíka, sem áber-
andi hafa verið í fail hans og
hann hafa prýtt.
Páll ólst upp með foreidrum
sínum, ásarnt stórum systkina-
hópi, en fluttist hingað til oæj
arins um síðustu aldamót. Stuna
aði hann í fyrstu alla algenga
vinnu, bæði í landi og á sjó, en
Félagslíf
Ármenningar, yngri og eldri.
Gamalmennahátíðin verður í
Jósepsdal laugardaginn 24. marz.
Nánar auglýst síðar.
er frá leið tók hann að fást við
steinsmíði og síðar múrverk.
Það eru því ekki fá handitökin,
sem eftir Pál liggja i því að
byggja upp okkar unga höfuð
stað. Hann sómir sér og vel i
sveit þeirra iðnaðarmanna Okk-
ar, sem með réttu geta talizt
eiga góðan hlut að hinu nýja
landnámi Reykjavikur.
Um eitt skeið sevinnar hvarf
Páll af landj burt með fjöl-
skyldu sína. Hólt hann tii
Kanada og dvaldi þar í 3—4 ár.
Ekki festi hann yndi þar í Jandi,
því f,römm er sú taug, er rekka
dregur föðurtúna til.“ Eru mér
enn í minni bréf þau, er hann
skrifaði foreldrum mínum úr „út
legðinni", eins og hann komst
að orði.
Var engu líkara en að hann
sæi ekki sólina í hinu frjósama
landi, Kanada, fyrir hugsuninni
um að komast aftur tid „gamla
landsins". Var og duglega tekið
til starfa hér, eftir heimkom-
una.
Á yngri árum var Páll talinn
glæsimenni hið mesta. Hann var
mikill að vallarsýn og hinn karl
mannlegasti, nokkuð stórskor-
inn í andliiti en svipmikill og
minnti á norræna víkinga, eins
cg menn gjama hugsa sér þá.
Enn í dag er hann hinn kempu
legasti.
Árið 1999 gekk Páll að eiga
heitmey sína Ágústu Hjörleifs
dóttur frá Seli í Grímsnesi, Stein
dórssonar. Hefir hjónaband
þeirra reynzt farsælt og eiga
þau tvö börn, Sigurjón, múrara
meistara í Reykjavík kvæntan
Magnúsínu Ólafsdóttur og Krist.
ínu gift Edward Pensil, Banda-
ríkjamanni.
Eg vil ljúka þessum orðunn
með því að þakka Páli langa og
góða viðkynningu og hefi þá
einnig í huga staðfasta vináttu
hans við foreldra mína. Megi
ævikvöld hans verða bjart og
milt.
Oddur Guðjónsson.
Mjólkurbíll fór
i Héra&svöfnin
Sauðárkróki, 14. marz
í FYRRADAG rann mjólkurbíll-
inn úr Akrahreppi niður af
tveggja m. háum bakka og lenti
í Héraðsvötnum. Stóð aðeins lít-
ið af bílpaliinum upp úr. Enginn
var í bílnum, er þetta gerðist.
Bílstjórinn, Sæmundur Sigur-
björnsson frá Grófargili, var að
ganga frá farangri aftur á palli
og stökk af bílnum, er hann rann
af stað.
Þetta gerðist hjá Þorleifsstöð-
um í Blöndublíð. ís var á Vötn-
unum og fór bíllinn í gegnum ís«
inn. Búið er að ná bílnum upp.
Ekið yfir
Laxárdalsheiði
Skíðafólk!
Ferðir í Jósepsdal í dag kl. 2
og kl. 6 og í fyrramálið kl. 9 frá
B.S.R Takið þátt í skíðalands-
göngunni.
Skíðadeild Ármanns.
T. B. R.
Barnatími kl. 3.30—4.20.
Meistara- og 1. fl. kl. 4.20—6.50.
Skíðaferðir um helgina:
Laugardaginn kl. 2 og 6 e. h.
Sunnudaginn kl. 9 og 10 f. h.
og 1 e. h.
Afgreiðsla hjá BSR.
Reykjavíkurmótið í bruni
verður haldið í Skálafelli laug-
ardaginn kl 4.
Stefánsmótið hefst á sunnu-
daginn f. h. nafnakall kl. 11 í KR
skálanum. Það eru eindregin til-
mæli mótsstjórnar að allir kepp-
endur séu mættir við nafnakall.
Skíðadeiid KR sér um þessi 2
mót. KR-ingar fjölmennið til
starfa um helgina.
Skíðafólk munið Skíðalands-
gönguna.
Skíðaráð Reykjavíkur.
Hrin^num bárust
góðar gjafir
HAFNARFIRÐI — Svo sem
skýrt hefir verið frá í blaðinu,
átti Kvenfélagið Hringurinn hér
í bænum 50 ára starfsafmæli,
og var þess minnzt í Sjálistæðis-
húsinu 7. marz. s.l. Þar rakti frú
Guðrún Eiríksdóttir sögu félags-
ins og aðrir, sem til rnáls tóku
voru Sigurveig Guðmundisdóttir
og Bjarni Snæbjörnsson læknir.
í tilefni af afmælinu bárust
Hringnum tvær stórhöfðinglegar
gjafir. önnur, 10 þúsund krónur
í peningum, var frá hjónunum
Halldóru og Benedikt Gröndai
verkfræðingi. Hin var einnig 10
þús. kr. gjöf frá Helgu Níelsdótt-
ur. Þá gáfu systurnar Maria og
Guðrún Eiríksdætur veglegan
fundarhamar. Fjöldi Skeyta
barst. — Var þetta afmælishóf
Hringsins hið ánægjulegasta. —
G.E.
BÚÐARDAL, 12. marz 1962.
S.l. laugardag, hinn 10. þ.m., fóru
3 bílar héðan úr Laxárdal, tveir
Stationbílar og einn Landrover-
bíll, yfir Laxárdalsiheiði að Reykj
um í Hrútafirði. Þar var haldin
árshátíð nemenda Reykj'askóla,
en í áðurnefndum bifreiðum
var frændlið og venzlafólk nem-
enda úr Dölum, sem stunda nám
Við héraðsskólann að Reykjum í
vetur. Ferðin gekk greiðlega. Veg
urinn yfir heiðina reyndist snjó-
laus, ár ísilagðar. Aðeins á ein-
um stað þurfti að aka út af veg-
inum til að sneiða fyrir smá-
skafl. Ekið var sömu leið til baka
á sunnudag.
Végurinn yfir Laxárdalsheiði
mun hafa verið gerður á árunum
1900—1906. Hann er nú að vqrium
orðinn nokkuð gamaldags og
slitinn. S.J. sumar var mælt fyr-
ir nýjum vegi yfir heiðina, sem
hefja mun hina fornu samgöngu
leið til vegs og virðingar á ný.
— F. Þ.
uifiiiiiiiiiiiaiiiiiaiiiiiiiiaiiiiiaiiiiiiiiaiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiaiiaiiiiiaiiiiiiiiaiiitiiiiiiiiiiaiiaiifiiaiiiiiiiiiiiaiiiiiiiiiiiaiiain
mánaðar
RITIÐ
Heil saga í hverju hcfti I
NÝTT HEFTI j
MÁNAÐARLEGAI
HllltailllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllilllllllSIIIIIIIIIIIIIIIIIIUIIIIllllllllBlllllllllllllllllltllllllllllllllllBIIIMIIIIIIIIII
Bomistjórnin
kanpir skulda-
bréf S.Þ.
BONN, 15. marz. — AP — Tals-
maður utanrikisráðuneytisins í
Bonn upplýsti í dag að Vestur-
Þjóðverjar myndu kaupa skulda
bréf Sameinuðu þjóðanna fyrir
10 milljónir dollara, þrátt fyrir
að landið væri ekki í samtökun-
um. Sagði talsmaðurinn að v-
þýzka stjórnin keypti bréfin
þar sem landið styddi SÞ og
sáttmála þeirra.