Morgunblaðið - 24.03.1962, Blaðsíða 8
8
MORGTr\BT/AÐf»
Löugardagur 24. marz 1962
Flesfar þjóðir Vestur-Evrópu hafa
svipaö skránip*arfyrir-
komulag gengisins.
Á FUNDI neðri deildar Alþing-
is í gær urðu töluverðar umræð
um frumvarp ríkisstjóranarinnar
til staðfestingar um frumvarp
ríkisstjómarinnar til staðfesting-
ar á bráðabirgðalögum um Seðla-
banka íslands. Ekki tókst að
ljúka umræðimum á venjulegum
fundartíma deildarinnar, svo að
fundi var fram haldið síðdegis.
— Atkvæðagreiðslu var frestað.
Tæknileg skráning gengisins.
Birgir Kjaran (S), framsögum.
meirihl. fjárhagsnefndar, kvað
meirihlutann samþykkan frum-
Varpinu og telja þá tilskipan að
færa gengisskráninguna í hend-
ur Seðlabankans, að fengnu
samþykki rikisstjórnarinnar, eðli
lega og til bóta.
Við fyrstu umræðu frumvarps-
ins virtist sumpart hafa gætt mis-
skilnings varðandi efni þess og
eðli, en öðrum þræði blandað
inn í óskyldum efnum, þar sem
frumvarpið fjallar einungis um
tæknilega skráningu íslenzks
gengis, í höndum hvaða aðilja
sú skráning skuli vera, en alls
ekki um það, hvert gengið skuli
vera og hvort ástæða hafi verið
til að breyta því og þá hve
mikið
Áður en menn taka því afstöðu
til þessa frumvarps, þurfa þeir að
hafa gert sér nokkra grein fyrir
eftirfarandi:
1) Hvað er gengi?
2) Hvernig myndast gengi?
KJÖRSKRÁ (stofn)
til borgarstjórnarkosninga í Reykjavík, 27. maí 1962
liggur frammi almenningi til sýnis í skrifstofu borg_
arstjóra, Austurstræti 16, alla virka daga frá 27. þ.m
til 24. apríl n.k., kl. 9 f.h. til kl. 6 e.h.
Kærur yfir kjörskránni skulu komnar til borgar-
stjóra eigi síöar en 6. maí n.k.
Borgarstjórinn í Reykjavík, 22. marz 1962
Geir Hallgrímsson
Verkfræðingur
til hagræðingarstarfa
( RAS J ON ALISERIN GS ARBEID )
Við viljum ráða verkfræðing, til að vinna að vinnu-
hagræðingarfræðslu hér á landi.
Menntun í reksturstækni er ekki nauðsynleg, þar
sem við munum veita kefinslu og æfingu á aðal-
skrifstofu okkar í Noregi, en umsækjandi þarf að
hafa minnst 2 ára starfsreynslu ásamt vilja og
áhuga fyrir verkefninu.
Full laun verða greidd á námskeiðstímanum.
Sá sem verður ráðinn mun verða búsettur í Reykja-
vík og staðan mun veita réttum manni hagstæð
skilyrði.
Umsóknir, gjarnan á íslenzku, með upplýsingum
um menntun, starfsreynslu og öðrum persónulegum
upplýsingum sendist fyrir 2. apríl til
INDUSTRIKONSULENT A. S.
Kvisthaga 25 — Reykjavík
3) Hvernig hefur íslenzka geng
ið verið skráð frá þeim tímá,
er til þess var stofnað?
4) Hvernig er gengisskráningu
nágrannaþjóða okkar tæknilega
háttað?
Varðandi 1. spurninguna, kvað
alþingismaðurinn íþvi til að svara,
að gengi væri verð innlendrar
myndar í erlendri mynt.
Varðandi 2. spurninguna kvað
hann þau öfl, sem að verki eru
og ráða stöðu gengismyntar til
lengdar, vera:
Innlent peningamagn, innlendi
kaupmátturinn og viðskiptakjör-
in út á við, en með viðskipta-
kjörunum er átt við verðlag er-
lendra vara og verðlag innlendra
sem ákvarðast af innlendu kaup-
gjaldi, útlánum bankanna og fjár
lögum rikisins en einnig snerta
viðskiptakjörin magn innlendr-
ar framleiðslu og sölumöguleikar
hennar á erlendum mörkuðum.
Kvað hann um stundarsakir hægt
að stríða gegn eðlilegri verkan
þessara afla með lagasetningu,
höftum og hömlum, en þó hljóti
verulegar breytingar á innbyrðis
afstöðu þessara verðmyndunar-
iþátta fyrr eða síðar að koma fram
sem gengisbreytingar, Og sé
gengið bundið með lögum í
trássi við veigamikla atfstöðu-
breytingu þessarar verðmyndun-
arþátta, myndast skekkja í bygg-
ingu þjóðarbúskaparins, sem fyrr
eða síðar hlýtur að koma niður
á framleiðslunni og torvelda eða
stöðva eðlilegan vöxt þjóðarbú-
skapar og þjóðartekna.
Gengisskráningin í höndum
kunnáttumanna.
bá rakti Birgir Kjaran þróunar
sögu gengisskráningarinnar hér
á landi og komst að þeirri niður-
stöðu, að íslendingar virtust á
því 40 ára tímabili, sem hægt er
að tala um sjálfstætt gengi krón-
unnar, hafa reynt flestar þær
tæknilegar tilraimir, sem aðrar
þjóðir höfðu áður reynt ekki
skapað sér neina hefð, en von-
andi orðið reynslunni rikari. Með
al nágrannaþjóðanna sé það svo,
að ef ellefu löndum, sem þing-
maðurinn kvaðst meira og minna
hafa getað aflað sér upplýsinga
um, þurfi í Belgíu einni sérstök
lög til gengisbreytingar.
Meirihlutinn teldi, að merg-
urinn málsins væri, að frum-
varp þetta ákvaðaði einungis,
hver skrá skuli gengið. Sá hring-
landaháttur, sem hér hefur verið
á þessum málum síðustu fjóra
áratugina, er síður en svo æski-
legur. Þessi tæknilega fram-
kvæmd á að vera í höndum kunn
áttumanna, sem alhliða yfirsýn
hafa yfir þjóðarbúskapinn og sú
staðreynd, að flestar þjóðir Vest
ur-Evrópu hafa tekið upp svipað
skráningarfyrirkomulag, og hér
er lagt til, byggt á víðtækari
reynslu en við höfum fengið,
styðji tillögu þessa verulegum
rökum.
Skúli Guðmundsson (F) kvaðst
ekki geta fallizt á, að nauðsyn-
legt hafi verið að breyta gengis-
skráningunni s.l. sumar. En úr
því að stjórnin taldj það nauð-
synlegt, hefði hún átt að kveðja
þingið saman til að fjalla um
það mál. í>etta hafi hún ekki
gert, en í þess stað gefið út þau
bráðabirgðalög, sem hér um
ræðir, en þau taldi þingmaðurinn
stjórnarskrárbrot. Það væri því
tillaga hans, að frumvarpið yrði
fellt.
Lúðvík Jósefsson (K) kvað
tvímælalaust eiga að fella þetta
frumvarp, þcir sem það væri flutt
til staðfestingar bráðabirgðalög-
um, sem tvímælalaust hefðu ver-
ið sett án heimildar í stjórnar
skrá landsins. Þar að auki kvaðst
hann andvígur sjálfu efni frum-
varpsins, því að færa gengis-
skráningarvaldið úr höndum Al-
þingis til Seðlabankans.
Forseti vítir
Lúðvík tvívegisj
EINS og fyrr greinir, hafði
Lúðvík fullyrt í ræðu sinni,
að ríkisstjórnin hefði framið
stjórnarskrárbrot með setn-
ingu laganna. Forseti, Ragn
hildur Helgadóttir bað hann
þá gæta þingskapa. Litlu
síðar komst Lúðvík þó svo
að orði, að ríkisstjórnin
hefði valið þessa leið, þótt
hún vissi að um stjórnar-
skrárbrot væri að ræða. For
seti áminnti þingmanninn í
annað sinn. Kvað talsverð-
an mun á þvi, hvort þing-
maður teldi eitthvað stjórn
arskrárbrot eða fullyrti í
þingræðu, að ríkisstjórnin
hefði vísvitandi brotið
stjórnarskrá landsins. Þar
væri um alvarlegri ásökun
að ræða en svo, að unnt sé
að láta það óátalið og kvaðst
forseti vænta þess, að slík
ummæli yrðu ekki endur-
tekin.
Húsnæðismálastjórn hefur veitt
350 millj. til 5 þús. íbúða
VIÐ umræður um frumvarp rík-
isstjórnarinnar um húsnæðis-
málastofnun á fimmtudag skýrði
Eggert Þorsteinsson nokkuð frá
störfum húsnæðismálastjórnar.
Verður hér getið nokkurra
atriða úr ræðu hans.
Teikningar við hóflegu verði
Kvað hann mjög víðtæka
heimild í gildandi lögum til
hvers konar tæknistarfa í hús-
næðismálum ,til hvers konar
nýjungar, er telj» mætti að
leiddi til lækkun^y byggingar-
kostriaðar. Samkvæmt heimild-
BIFREIÐAEIGENDUR ATHUGIÐ
Hefi opnað nýja hjólbarðavinnustofu undir nafninu
t *■
HJOLBARÐAVIÐOER9
VESTIJRBÆJAR
Opið alla daga vikunnar, helga sem virka
frá kl. 8 f.h. — 11,00 e.h.
Stórt og rúmgott bílastæði
HJOLBARÐAVIÐGERÐ VESTLRBÆJAR
Við hliðina á benzínafgreiðslu ESSO við Nesveg
Sími 23120
um þessum var
á sl. ári samþ.
fjárhagsleg að-
stoð við bygg-
ingu fimm íbúð
arhúsa í til-
raunaskyni. En
ýmist er verið
að undirbúa
byggingu þeirra
eða unnið að
byggingunni og er eitt þeirra
orðið fokhelt. í upphafi olli
miklum erfiðleikum í öllu lána
starfi, hve víða bárust að lé-
legar teikningar með lánsum-
sóknum, sérstaklega þó utan af
landi. Var það ein af höfuð-
ástæðum þess, að ákveðið var
að setja á stofn teiknistofu til
þess að gefa væntanlegum hús-
byggendum kost á viðunandi
teikningum við hóflegu verði.
Stórfelld breyting hefði nú orð-
ið í þessum efnum og heyrði
til undantekninga, ef léleg teikn
ing bærist. Frá því teiknistofan
tók til starfa hefur hún selt
teikningar af 520 íbúðum, þar
af 117 íbúðum ásamt sérteikn-
ingum á sl. ári, er nærri ein-
göngu hafa verið notaðar utan
Reykjavíkur. Teikningar ásamt
sérteikningum kosta nú kr. tvö
þús., sem verður að teljast mjög
vægt verð, en til skammt tíma
kostuðu þær aðeins 15 hundruð
krónur.
Þá hefur húsnæðismálastjórn
talið sér skylt að vera í sem
nánustu samstarfi við sams kon-
ar stofnanir á Norðurlöndum,
og fengið hingað sérfræðinga í
þessum málum. Þá hafa einnig
komið hingað fyrir milligöngu
Sam. þjóðanna ýmsir sérfræðing
ar um byggingarmál. Loks er
væntanlegur hingað á næsta
sumri norskur bankastjóri til
að gera tillögur um bætta skip-
an þessara mála. En hjá Norð-
mönnum eru þessi mál talin til
sérstakrar fyrirmyndar.
Yfir fimm þúsund
fengið lán
Þá skýrði hann frá því, að
fyrsta afgreiðsla lánveitinga
stofnunarinnar hófst 2. nóv.
1955, en fram til áramóta þesa
árs voru afgreiddar 26,4 millj,
— Næstu ár voru lánin sem hér
segir:
1956 63,6 millj.
1957 45,7 —
1958 48,8 —
1959 34,5 —
1960 52,2 —
1961 78 —
Samtals hafa því verið veittar
350 millj. 212 þús. frá upphafi
veðlánakerfisins til síðustu ára.
15. ágúst 1961 fór fram athug-
im á því, hve margar íbúðir
hefðu þó notið þessara lána og
reyndust þær 4739. Varlega
virðist því að áætla, að nú í
dag hafi yfir 5 þús. íbúðir feng-
ið ná hjá stofnuninni.
Síðast er talning fyrlcliggj-
andi lánsumsókna fór fram hjá
stofnuninni, þ. e. 1. jan. sl.,
reyndust þær 1579, en skiptust
svo: Þær sem enga fyrirgreiðslu
höfðu notið 722, en 857 höfðu
enga úrlausn hlotið. Umsóknir
þessar hljóðuðu upp á rúmar
98 millj. kr. í sambandi við
umsóknafjöldann væri þó rétt
að taka fram, að nokkur hlutt
væri nú orðinn óraunverulegur,
þar sem umsóknir hafa ekki
verið endurnýjaðar frá 1957. —
Þar á móti kemur aftur óvenju-
legur fjöldi lánsumsókna, sem
borizt hefur, það sem af er
þessu ári, og kvað þingmaður-
inn það stangast nokkuð á við
þær fullyrðingar, að íbúðahúsa-
byggingar væru að leggjast
niður.