Morgunblaðið - 24.03.1962, Qupperneq 19
Laugardagur 24. marz 1962
MOJt CVNBL AÐJÐ
19
— O. A. S.
Frarmh. af bls. 1
án þess að svo miklu sem einu
skoti væri hleypt af.
„STYRJÖLD OKKAR
ER HAFIN“.
Evrópubúar kölluðu ókvæð-
isorð til hermannanna úr giugg-
um. Hópur OAS-manna, sem stóð
vörð fyrir utan eina bygginguna
í hverfinu sögðu fréttamönnum:
„Styrjöld okkar er hafin og við
Hiunum berjast þar til yfir lýk-
ur.“
Evrópumenn hófu síðan skot
hríð á frönsku hermennina, þeg-
ar 'hinir síðarnefndu voru að
vinna við að afgirða ihverfið.
Svöruðu hermennimir skothríð-
inni, en OAS-menn tóku sér
stöðu á húsibökum og byggingum
og 'héldu þaðan uppi látlausri
skothríð með vélbyssum, hand-
sprengjum og sprengjuvörpum.
Samtímis heyrðist mikil skobhríð
frá Serkjahverfinu Frais Vallon
skammt frá og brunnu þar
imörg hús Serkja.
Skömmu síðar fjaraði skot-
hríðin út. Hermenn tóku sér
stöðu allt umhverfis hverfið og
tvær þyrlur sveimuðu yfir því.
—- Um 40 hermenn höfðu fallið
eða særzt er hér var komið sögu.
GÖTUR FYLI.AST AF BRAKI
Um há'lfri k'lst. síðar hóÆst
dkothriðin á ný í Bab E1 Oued,
og var nú hálfu öflugri en áð-
ur. Brynvarðar bifreiðir geyst
ust um stræti og borg og lébu
vélbyssuidkothríðina dynja á
svöilum húsa Og gluggum, þar
eem OAS-menn höfðust við.
Leyniskyttur OAS svöruðu í
söanu mynt, og skutu á hermenn
ina af húsþökum, úr gluggum og
af svöl-um. Þykkt rýk- og reykj
arský lagðiist yfir hverfið og göt
urnar fylltuist af braki, múrstein
um og eyðilögðum bifreiðum.
ORRUSTUÞOTUR GERA
LOFTÁRÁS
Brynvörðum bifreiðum tókst
eð þrengja sér langt inn í hiverf
ið og héldu uppi l'átlausri sikot-
hríð á stöðvar OAS-manna. -—
Flestir EvTÓpumannanna báru
svarta handlleggsborða mieð áletr
uninni OAS.
Skömmu síðar gerðu átta orr-
ustuþotur frá franslka flughern
um loftárás á byggingar þær,
sem OAS-menn höfðust 'við í.
Létu flugvélamar vélbyissuskot-
hríð dynja á húsunum. en OAS-
skutu áikaft á rnóti án þess þó
að hæfa nioikikra flugvél svo vit
að sé.
Brynvarðar bifreiðir héldu jnn
reið sína er myrkur féll á og
skutu inn um glugga húsa, en
OAS-menn skutu af húsþökum
á göturnar fyrir neðan.
Siðar um kvöldið hljóðnaði
skothríðin, og allt varð rólegt í
Bab E1 Oued, en á stöku stað
mátti þó enn heyra strjál skot.
Bruna- og sjúkrabílar geystust
um götumar með sírenur í
gangi, til þess að slökkva elda
og koma særðum til aðstóðar.
— Talsvert mannfall mun hafa
orðið á báða bóga í bardögum
þessum.
Fréttir herma að enn hafi
komið til vopnaviðskipta í hverf
inu seint á föstudagskvöldið
eftir að allt hafði verið með
kyrrum kjömm í nærfellt tvær
klukkustundir.
Þá segja fréttir að útlaga-
stjórn Serkja hafi komið sam-
an til fundar í Rabat í Marokkó
á föstudag.
í Oran kom einnig til nokk-
urra átaka í dag, og réðustþai
m. a. 15 OAS-menn inn í Alsír-
bankann og höfðu á brott með
sér 21,2 millj. franka í pen-
ingum og verðbréfum.
• De Gulle harðorður
De Gaulle, Frakklandsfor-
seti, hélt ráðuneytisfund í París
í dag. Að fundinum loknum
sagði talsmaður stjómarinnar að
forsetinn hefði verið mjög harð-
yrtur í garð uppreisnarmanna
OAS í Alsír. Sagði forsetinn að
uppreisn OAS yrði að bæla nið-
ur miskunnarlaust og með öll-
um tiltækum ráðum.
Yfirlýsing forsetans virðist
benda til þess að franska her-
stjóranum í Alsír sé í sjálfs-
vald sett ‘hvaða ráðum hann
beitir til þess að vinna bug á
OAS-mönnum.
Birt var í París í dag bréf,
sem de Gaulle sendi Debré, for-
sætisráðherra. Þar segir forset-
inn m. a. að allt verði að gera
til þess að ráða niðurlögum
hryðjuverkamanna í Alsír og
refsa þeim. Segir forsetinn í
bréfinu að hann beri fullt traust
til landsstjóra og herstjóra Al-
sír í þessum efnum.
Þorp við Miðjarðarhafið eftir Kennedy Bandaríkjaforseta. 1
Kennedy málar betur
en Eisenhower
ÝMSIR FRÆGIR stjórnmá'la-
mienn hafa í frístundum sín-
um fengizt við að mála og
nú á dlögum eru þeir einna
þekkbastir sir Winsiton
Ohurohil'l og Dwight D. Eisen
hower fyrrv. Bandaríikjafor-
seti. Nú er kunnugt orðið að
Kennedy forseti Bandarílkj-
anna hefur einnig miálað í
frístundum sínum. Þeim, sem
séð hafa myndir þessara
þriggja manna þykir Kenne
diy taka Eisenhower fram, en
telja hann ekki eins góðan
málara og Chaurohill.
Kennedy byrjaði að mála
1955, þegar hann var að ná
sér eftir skurðaðgerð. Það var
kona hans Jacqueline, sem
hefur sjálif máilað í fríistund
um sínum frá því að hún var
barn, sem hvatti mann sinn
til þess að reyna hæfileika
sína á þessu sviði.
Þegar Kennedy hafði náð
sér eftir veikindin, hætti hann
að mála og hefur ekkj gert
það síðan.
Ekki eru til eftir hann
nema 10 fullgerðar mynidir og
hanga flestar þeirra á bekn-
ili Kennedy fjölslkylidunnar í
Massaohusetts og í einkaiibúð
forsetahjónanna í Hvíta hús-
inu.
Ástæðan tiíl þess að Kenne
dy hætti að mála er sú, að
hann taldi sig eíkki hafa haefi
leika tiil þess. Myndin, sem
við birtum hér eftir hann sýn
ir sjávarþorp við Miðjarðar-
hafið í sólskini. Þeir litir, sem
mest ber á í henni eru gult,
grænt, bleikt og blátt.
Kennedy þýkir sýna meira
hugmyndaflug í myndum sín
um en Eisenhower, en mynd
ir hins síðarnefnda eru, eins
og hánn segir sjálfur, flestar
málaðar eftir pósitkortum.
Birgir
orgarmátar áðsteín a HeSmdailar
í dag og morgun
Laugardagur 24. marz
Kl. 14:00 Ráð’stefnan sett: Birgir ísl. Gunnarsson,
formaður Heimdallar.
Erindi: Framtíðarverkefni og fjármál borg-
arinnar. — Geir Hallgrimsson
borgarstjóri.
Erindi: Hitaveitan. — Jóhannes Zoega,
verkfræðingur.
Kl. 17:00 Viðræðufundir með borgarstjómarfuUtrú-
um. Ráðstefnan skiptir sér í hópa.
Kl. 18:00 Erindi: Fræðsla, íþrótta- og æskulýðsmál.
Jónas B. Jónsson, fræðslustjóri.
Sunnudagur 25. marz
Kl. 14:00 Verklegar framkvæmdir í Reykjavík. —
Gústaf E. Pálsson, borgarverkfræðingur,
svarar fyrirspurnnm þátttakenda.
Kl. 16:00 Kynnisferð um Reykjavík. — Leiðsögumað
ur: Gísli Guðmundsson.
KI. 17:30 Erindi: Félagsmál. — Auður Auðuns, for-
seti borgarstjórnar.
KI. 19:00 Kvöldverður í Sjálfstæðishúsinu í boði
borgarstjóra. — Ráðstefnunni slitið.
Jónas B.
illÍl
Geir
Gústaf
Jóhannes
Umræður og fyrirspumir á eftir hverju
erindi.
Auður
Spenna á
landamærum Sýr-
lands og Israels
Tel Aviv, 23. miarz. —
NTB — AFP —
Mikíl spenna rífcti á landaimær
uim ísraels Og Sýrlainds í dag
þrátt fyrir að Samainuðiu þjóð
irnar hafi aukið gæzlulið sitt
þar. Samikvæmit fregnum í Tel
Aviiv hafa sýrlenzkir hermenn
hreiðrað um sig aftur við Genes
aretvatnið, en þar sló í harð-
bakka með þeim og ísraelsmönn
um fyrir tæpri viku. Talið
er að ísraelsstjóm muni kreifj-
ast þess að vopnahlésnefndin
gefi Sýrlendingum fyrirmæli um
að þeir verði þegiar á brott af
þessu svæði.
Öryggisráð SÞ kemur saman
á máðvikudag í næstu viku til
þess að ræða kærur Sýrlendinga
og ísraelsmanna varðandi bar-
dagana, sem urðu á landmærun
um s.l. lauigiardagsmorgiun.
— Andsiaða
Framih. af bls. 1.
Valerian Zorin, aðstoðar-utan-
ríkisráðherra Rússa, sagði á
blaðamannafundi í Genf í dag að
ráðstefnan hefði komið sér saman
um starfstilhögun og yrði tillög-
lögur Bandaríkjamanna og
Rússa í afvopnunarmálunum nú
teknar til meðferðar.
Þá sagði Dean Rusk í útvarpi
frá Genf í dag að Bandaríkin
neyddust til þess að hefja fyrir-
hugaðar kjarnorkuvopnatilraun-
ir sínar í apríl ef samkomulag
um bann við slíkum tilraunum
hefði ekki náðst fyrir þann tíma.
Kvað Rusk það einlæga von sína
að Sovétríkin geri það kleift að
slíkt samkomulag næðist.
Gísli Einarsson
hæs éttarlögmaður
Málflutningsskrifstofa
Laugavegi 20B. — Sími 19631
Sigurg^ir Sigurjónsson
hæstaréttarlögmaður
Málflutningsskrifsofa.
Austurstræti 10A. Sími 11043.
Sviffligfélag Kjlands
Félagsfundur verður haldinn í Breiðfirðingabúð
í dag, laugardag, klukkan 3 e.h.
STJÓRNIN.