Morgunblaðið - 27.03.1962, Side 16
16
MORGllSBLAÐéÐ
Þriðjudagur 27. marz 1962
Málíundaklúbbur
Fundur verður kl. 8.30 í kvöld. Umræðuefni og
framsögur verða: Sambúð svartra og hvítra: Karl F.
Garðarsson og Ásgeir Thoroddsen. íslenzkur her:
Árni Johnsen og Kornelíus Sigmundsson.. Glæpur
og refsing: Júlíus S. Ólafsson og Kristinn Ragnarsson.
Fjölmennið par að eð brátt lfður áð lokum
þessa klúbbs.
STJÓRNIN.
Harðviðasalan Svanfoss
Masonit þilplötur á lager. — Sími 13776.
Aðalfundur
Styrktarfélags vangefina
verður haldinn föstudaginn 30. marz kl. 8,30 s.d.
í Breiðfirðingabúð niðri.
Dagskrá fundarins:
1. Skýrsla stjórnarinnar
2. Reikningar félagsins 1961
3. Kosning eins manns í stjórn félagsins
til 3 ára og eins manns í varastjórn.
4. Önnur mál, ef vera kynnu.
STJÓRNIN.
- 0R9SEMG Tll liÍLEIGílM -
Þar sem óðuim styttist til hinnar míklu sumarkeyrslu, viljum
við benda bíleigenduim á, að ætli þeir að fá skoðun og still- .
ingiu fyrir sumarið ættu þeir ekki að láta það dragast, að i
tryggja sér pláss hjá okkur sem fyrst.
Kynnist ástandi bílsins og aukið á öryggi ykkar og far-
þega ykkf"
Bílaskoðun hf.
Skúlagötu 32. — Sími 13100.
orb jör ns.'na Helga
Ámadcttir
í DAG 27. marz verður jarðsett
frá Fossvogskirkju frú Þor-
1 rnsína Helga Árnadóttir Bolla
-tu 8. Helga eins og við kölluð-
m hana scm þekktum hana var
rædd í Hafnarfirði 3. oiktóber
1893. Hún andaðist 17. þessa mán-
aðar á Landsspítalanum og var
68 ára er hún lézt. Foreldrar
hennar voru merkishjónin Árni
Friðfinnsson og kona hans Sig-
ríður Þorbjarnardóttir sem
bjuggu þá í Hafnarfirði en fluttu
austur 1896, og búa fyrst í Helgu-
staðahreppi Og síðan á Eskifirði,
á þessum stöðum ólst Helga upp
að mestu með foreldrum sínum,
að undanskildum einurn vetri,
sem hún var við hússtjórnarnám
í Reykjavík. Hún giftist 5. júní
1922 Þorvaldi Jónssyni verzlunar
manni frá Mjóafirði, og fóru þau
að búa á Eskifirði, og voru þar
þangað til að þau fluttu til
Reykjavíikur 1926 og hafa búið
þar síðan.
Tvö börn tóku þau að sér og
ólu þau upp sem sín börn. Geir
sem giftur er Gunnhildi Viktors-
dóttur og eru búsett í Reykjavík
og Höllu sem gift er Þórði Har-
aldssyni og eru búsett í Reykja-
vík og voru þau Helgu ákaflega
góð og henni miJkill styrkur í
veikindum hennar.
Helga bjó manni sínum Og
börnum gott og hlýlegt heknili,
Þangað var gott að koma, þar
leið öllum vei í návist hennar,
— Kveðja
enda bar þar allt vott um smekk
hennar og myndarskap. Ég og
kona mín þökkum þér og manni
þínum inargar ógleymanlegar
stundir á hermili ykkar, og vin-
áttu frá fvrstu kynnum, það er
gott að eiga samleið með góðu
fólki.
Helga var búinn að líða mikið,
það er erfitt að liggja marga
langa mánuði á sjúkrahúsi, en
sálarró hennar var mikil og bar
hún þrautir sínar með stillingu.
Læknar og hjúkrunarteonur
gerðu það sem mannlegur máttur
megnar tii að létta henni þraut-
irnar.
Trúin á mátt þess góða fleytir
mörgum yfir erfiðustu stundir í
lífinu og trúin gaf henni styrk
til síðustu stundar.
Maður hennap og fjölskylda
gerðu allt sem hægt var, til að
létta henni þjáningarnar.
Nú er hún horfin sjónum otek-
ar yfir móðuna miklu, en minn-
ingin um hana lifir.
Að heiisast og kveðja það er
lífsins saga. Á erfiðum stundum
finnum við hvað Við getum lítið
og erum hjálparvana.
Innilegar samúðarkveðjur til
hennar nánustu.
Guð blessi minningu hennar.
Reykjavík, 27. marz 1962
Jón I. Jónsson.
Jorð til leigu
Jörðin Miðkríki í Hvolshreppi er laus til ábúðar í næstu
fardögum. Heyskapur er allur á ræktuðu landi og aukin
ræktunarskilyrði hin beztu. Byggingar allar á jörðinni
mjög góðar, rafmagn frá ríkisrafveitu og önnur nútíma
þægindi. Jörðin er örskammt frá Hvolsvelli. Kaup á
jörðinni koma til greina. Nánari upplýsingar gefa
ábúandi jarðarinnar Þorkell Jóhannsson og Ragnheiður
Jónsdóttir, Hringbraut 28, Reykjavík.
Þér njótið vaxandi álits ...
þegar þér notið
BEá Gillette Extra rakblöð
Þér getið verið vissir um óaðfinnanlegt útlit yðar, þegar þér notið Blá Gillette
Extra blöð, undrablöðin, sem þér finnið ekki fyrir. Bó skeggrótin sé hörð eða
húðin viðkvæm, |)á finnið þér ekki fyrir blaðinu ef notuð eru Blá Gillette Extra.
5 blöð aðeins Kr. 20.50.
Gillette
er eina leiðin
til sómasamlegs
raksturs
® Gitlette er skrásett vörumerkl.