Morgunblaðið - 27.03.1962, Side 24
Fiéttasímar Mbl
— eftir iokun —
Erlemlar fréttir: 2-24-85
Innlendar fréttir: 2-24-84
JMfftogmtÞfft&ifr
72. tbl. — Þriðjudagur 27. marz 1962
Leikhúsdagur
Sjá bis. 13
Hluti þátttakenda á borgarmálaráðstefnu Heimdaliar.
Sjálfstæðisstefn an hefur mdtað
giæsílegasta framfaraskeið Rvíkur
BORGARMÁLARÁÐSTEFNA
Heimdallar var haldin um helg-
ina. Ráðstefnuna sótti eins mikill
fjöidi ungra Sjálfstæðismanna og
húsrúm frekast leyfði. Á ráð-
stefnunni voru flutt fimm erindi
um einstaka þætti borgarmála,
viðræðufundir voru haldnir með
borgarstjórnarfulltrúum Sjálf-
stæðisflokksins, þar sem skipzt
var á skoðunum um borgarmál,
farin var kynnisferð um Reykja-
vík og að lokum sendi ráðstefnan
frá sér ávarp til reykvískrar
æsku. Á ráðstefnunni ríkti mikill
áhugi á málefnum Reykjavíkur-
borgar.
Kl. 14 á laugardag setti formað
ur Heimdallar, Birgir ísl. Gunn-
arsson ráðstefnuna með stuttu á-
varpi, en því næst flutti borgar-
stjórinn £ Reykjavík, Geir Hall-
grímsson, fyrsta erindi ráðstefn-
unnar og fjallaði það um fram-
tíðarverkefhi og fjármál borgar-
innar. Þá flutti Jóhannes Zoega,
verkfræðingur, erindi um hita-
veituna og skýrði m. a. þær stór-
huga áætlanir, sem gerðar hafa
verið um hitaveituframkvæmdir
og miða að þvi, að hitaveita verði
lögð í öll hverfi borgarinnar á
næstu 4 árum.
Að loknu stuttu kaffihléi eða
kL 17.00 hófust viðræðufund-
ir með borgarstjórnarfulitrúum
Sjálfstæðisflokksins. Ráðstefnan
skipti sér upp í fjóra hópa og
voru 2—3 borgarstjómarfulltrú-
ar með hverjum hópi. Þar fóru
fram óformlegar viðræður um
borgarmál. Borgarstjómarfull-
trúar skýrðu frá gangi mála í
borgarstjórn, en ungu mennirnir
lýstu skoðunum sínum á einstök-
um málum.
Kl. ló flutti Jónas B. Jóns-
son, fræðslustjóri, erindi um
fræðslu, íþrótta- og æskulýðsmál.
Kl. 14.00 á sunnudag var ráð-
stefnunni ófram haldið og flutti
þá Gústaf E. Pálsson, borgar-
verkfræðingur, stutt erindi um
verklegar framkvæmdir í Reykja
vik og svaraði fyrirspurnum þátt
takenda.
Kl. 16 var farin kynnisferð um
borgina undir leiðsögn Gísla Guð
mundssonar. Var bæði ekið um
eldri hverfin og sögð saga þeirra
og farið um hin nýju og glæsi-
legu hverfi, sem eru nýrisin af
grunni.
Kl. 18.00 flutti frú Auður Auð-
uns, forseti borgarstjórnar síð-
asta erindi ráðstefnunnar og fjall
aði það um félagsmál.
Kl. 10 bauð borgarstjórinn í
Reykjavík, Geir Hallgrímsson,
þátttakendum til kvöldverðar í
Sjálfstæðishúsinu og þar var ráð
stefnunni slitið.
Á ráðstefnunni ríkti mikill á-
hugi um borgarmál, en ráðstefn-
an var hin glæsilegasta og bar
glöggan vott um þann baráttu-
hug, sem ríkir meðal ungra Sjálf
stæðismanna.
Seldi amphetamin á
dansleik á Akranesi
SL. LAUGARDAGSKVÖLD var
haldinn dansleikur í Hótel Akra-
nesi. Mun lögreglan hafa fengið
veður af því að ungur maður
sem þar væri hefði eiturlyf á
boðstólum og skömmu áður en
dansleiknum lauk, kom fulltrúi
bæjarfógeta Haraldur Jónasson,
ásamt lögregiuþjónum. Tó<ku þeir
manninn, og fluttu hann til yfir-
heyrslu, ásamt stúlku einni.
Um morguninn var maðurinn svo
handtokinn og fluttur í lögreglu-
fylgd til Reykjavíkur og afhent-
ur rannsóiknarlögreglunni þar.
Pi'lturinn mun vera úr Reykja-
vík, kallaði sig heildsala á Akra-
nesi. Hann hafði koimið í Volks-
vagni til Akraness á laugardag
og fengið herbergi á hótelinu.
Lyfið sem hann hafði undir
höndum er amphetamín en það er
eiturlyf sé það notað í óhófi og
verða menn því gjarnan háðir,
þegar svo er.
Mun pilturinn hafa fengið lyf
ið erlendis frá, og sjómaður sá
er talið er að hann hafi fengið
það hjá, er ekki í landi.
Ávarp borgarmálaráð-
stefnu Heimdallar til
reykvískrar æsku
Á FÁUM áratugum hefur Reykjavík vaxið úr litlu og fá-
mennu sjávarþorpi í stóra, fjölmenna og fagra borg. Skýr-
inganna á þessari öru þróun er ekki langt að leita. Hér hafa
haldizt í hendur frarhtak og dugnaður borgarbúa og farsæl
og örugg stjórn á málefnum borgarinnar.
Á þessu glæsilegasta framfaraskeiði í sögu Reykjavíkur
hefur sjálfstæðisstefnan ráðið hér ríkjum, enda ber borgin
glöggt svipmót hennar og sýnir ljóslega, hverju framkvæmd
hennar getur til leiðar komið. Hér er hlúð að aflvaka fram-
faranna — framtaki einstaklingsins — enda atvinnulíf fjöl-
breyttara en í nokkru öðru byggðarlagi landsins. Fjárhag-
ur borgarinnar eflist stöðugt, framkvæmdir aukast ár frá
ári, og rík áherzla er lögð á allt það, sem til vaxandi velmeg-
unar og menningar borgarbúa horfir. Reykjavík er því
hvort tveggja í senn: sómi lands og þjóðar — og sómi sjálf-
stæðisstefnunnar.
Fraimíh. á bls. 15.
Banaslys
á PatreksfirðL
Maður varð undir
löndunarkrana
Patraksfirði, 26. marz.
Á LAUGARDAG varð hér bana-
slys. Davíð Þórðarson, stýrimað-
ur á Jónasi Jónassyni ó Patreks-
firði varð undir löndunarflcassa
með þeim afleiðingum að hann
beið samstundis bana.
Var verið að landa fiski upp
úr Jónasi. Eftir að löndunarkass-
inn, sem er úr járni og tekur
ca. 500 kg. af fiski, hafði verið
hífður upp fyrir lúgukarminn,
þá slitnaði vírinn og kassinn féll
aftur í lestina og varð Davíð und
or kassanum. Beið hann bana
samstundis.
Davíð var 21 áns gamall og
ókvæntur, en á foreldra á lífi.
Hann var frá Þingeyri. — Trausti
Bjarni Benedikts-
son kominn heim
EINS og kunnugt er af fréttum,
sat Bjarni Benediktsson, dóms-
málaráðherra, 10. þing Norður-
landaráðsins, sem haldið var f
Hslsingfórs í síðustu viku. Ráð-
herrann kom heim af fundum
Norðurlandaráðsins sl. laugar-
dag.
Tvö börn fyrir bíl
á Norðfirði
NESKAUPSTAÐ, 26. marz. —
Það bar til í dag um hádiegið að
tvö böm, dlrenguir og stúlka,
renndu sér saman á sleða niður
að aðalgötu bæjarins, við eitt
mesta umferðarihornið, og lentu
þar á vöruibíl. Drengurinn, 4 ára,
fótbrotnaði, og meiddist á hand-
legg, en stúlkan meiddiist lítið.
Gert var að meiðslum barnanna
á Sjúkrahúsinu og fék stúfllkan að
fara heim að því löknu.
Slyis sem þessi eru áikaflega fá-
tíð og má þar þakka gætni bíl- '
stjóranna fremur en öðru. — J.H,
fnflúenzan lierjar
í Vestmannaeyjum
IViargt veriíðar fólk sjúkt. Bátar
róa með ruman hálfan mannskap
Inflúenzufaraldurinn hefur
nú hertekið Vestmannaeyjar
og liggur þar nú mikill fjöldi
manns í veikinni. Þetta hef-
ur komið sér einkar illa, því
þrjá síðustu daga hefur afli
verið mjög góður. — Þetta
hefur þó ,slampast‘ til þessa,
sögðu nokkrir af forsvars-
mönnum stærstu fiskvinnslu-
stöðvanna, sem blaðið átti
tal við í gær.
Héraðslæknirinn i Eyjum,
Henrik Linnet, sagði að veikin
væri nú á hámarki og mætti því
búast við bata úr þessu. Hún
virtist ganga yfir í þremur bylgj-
um. Fyrsta bylgjan væri um garð
gengin og nú stæði miðbylgjan
yfir og þá væri veikin útbreidd-
ust. Síðan mætti búast við að
hún stingi sér niður hér og hvar
en ekki í stórum stíl.
Skæðust í verbúðunum
Skæðust hefir veikin verið í
hinum fjölmennu verbúðum og
þar má heita að sumsstaðaT hafi
fólkið legið í kös. Búið er nú að
loka gagnfræðaskólanum og mun
hann verða lokaður í viku. í
barnaskólanum hefir aftur á
móti borið mun minna á veikinni
og hefir ekki þurft að loka hon-
um enn sem komið er.
Ekki hefir borið teljandi á fylgi
kvillum með veikinni. Þó eru
dæmi þess að sjómenn, sem veik-
ir voru af kvefi áður en þeir
fengu flenzuna, hafi fengið
lungnakvef eða lungnabólgu.
Róa meðan þeir standa
Þá sagði héraðslæknir og að
sjómennirnir reru meðan þelr
gætu staðið og hefðu allmargir
farið á sjóinn, þótt lasnir væru.
Til var og að menn fóru oí
snemma á fætur þrátt fyrir að-
varanir en þeim mun niú ljóst
orðið að það borgar sig ekki og
fara þeir mun ver út úr veikinni,
sem slær niður aftur.
Framih. á bls. 15.
Leitað að
sykursýki
á IMorðfirði
NOREFIRÐI, 26. marz. — Hér
fer fram um þessar mundir að til-
hlutan Eggerts Brekkan yfirlæki*
is sjúikrahússins, allsherjairrann-
sóikn á útbreiðislu sykursýlki með-
ail bæjarbúa.. Þáttaka mun vera
góð og virðist fólik haifa áhuga
á að rannsóko* þessi taikist sem
bezt. — J.H.