Morgunblaðið - 27.04.1962, Side 1
24 siour
19. árgangur
95. tbl. — Föstudagur 27. apríl 1962
Prentsmiðja Morgunblaðslns
Rússar boöa nú nýjar til-
raunir með kjarnorkuvopn
^ Genf, I.ondon, Washington, 26. apríl — NTB—AP.
ANNAR aðalfulltrúi Rússa á 17-ríkja ráðstefnunni í Genf, Semyon
K. Tsarapkin, tilkynnti síðdegis í dag, að Rússar myndu hefja
nýjar kjarnorkutilraunir. Ekki gat þó fulltrúinn þess, hvenær
Rússar myndu hefja þaer. Báðir aðalfulltrúarnir, Tsarapkin og
Valerian A. Zorin, réðust af mikilli heift á Bandarikin fyrir til-
raunir þær, seiíl nú hafa verið hafnar. Taldi Tsarapkin, að til-
raunir Bandaríkjamanna væri „ögrandi verknaður", framinn í
þeim tilgangi einum að herða vígbúnaðarkapphlaupið. Minnast
menn þess ekki, að Tsarapkin hafi nokkru sinni verið svo æst-
ur í málflutningi sínum, sem í dag. Ekki gerðu þó rússnesku full-
trúarnir alvöru úr þeirri hótun sinni, sem. fram kom í fyrri viku,
að hætta þátttöku í ráðstefnunni, ef Bandaríkjamenn hæfu til-
raunir á nýjan leik.
Aðalfulltrúi Bandaríkjanna,
Arthur H. Dean, og fulltrúi
Breta, lýstu þvi báðir yfir, að
þeir neituðu að líta á heiftar-
legar árásir rússnesku fuilltrú-
ann>a sem réttlætanlegar. Hefði
það komið í ljós í fyrra, er
Rúasar hófu skyndilega um-
fangsmestu tilraunir, sem um
getur, að loforðum þeirra væri
ekki að treysta. Hins vegar bað
Dean þjóðir heims afsökunar á
því, að Bandaríkjamenn hefðu
nú hafið kjamorkutilraunir. —
Þeir hefðu ekki átt annars úr-
kosti, því að auðsætt væri, að
öryggi Bandaríkjanna, og
frjálsra þjóða heims, yrði ekki
tryggt á annan hátt. Rússar
hefðu sýnt, að þeir vildu ekki
eftirlit. Hins vegar sagði Dean,
að tilraunum yrði hætt, jafn-
skjótt og Rússar fengjust til að
samþykkja eftirlit og bann við
tilraunum.
Stálfraraleiðend-
ur fyrir rétt
WASHINGTON, 26. apríl. AP.
Bandaríska dómsmálaráðuneyt-
ið lagði í dag fram stefnu á
hendur fjórum stórum stálfyr-
irtækjum, fyrir að hafa staðið
að tilraun þeirri til að hækka
etálverð, um 6 dali tonúið, sem
gerð var nýlega.
Þótt fyrirtækin féllu um síð-
ir frá þessari ákvörðun sinni,
eftir að ljóst var, að samkomu-
lag næðist ekki meðal fram-
ieiðenda um verðið, var ákveð-
in rannsókn. Leiddi hún til
þess, að forráðamönnum fyrir-
tækjanna hefur nú verið stefnt
íyrir rétt.
Fyrirtækin, sem hlut eiga að
máli, eru U.S. Steel Corpora-
tion, Betlehem Steel Company,
auk tveggja annarra.
Fulltrúar kommúnistaríkjanna
fylgdu fordæmi Tsarapkins
Fulltrúar Póllands, Tékkó-
slóvakíu, Búlgaríu og Rúmeníu
tóku allir í sama streng og
rússnesku aðalfulltrúarnir, í ^
ræðum sínum í dag. Mildo Tara
banov, fulltrúi Búlgaríu, kall-
aði tilraimir Bandaríkjamanna
„ægilegan glæp gegn friði og
mannkyni, glæp, sem aðeins
þeir, sem litu á málin með
augum hernaðarsinna,, heims-
veldissinna og kapitalista, gætu
talið réttlæt#nlegan“.
Hvers vegna hættu Rússar við
að ganga af ráðstefnunni?
Frá því að Zorin lýsti því
yfir, í síðustu viku, að Rússar
myndu hætta þátttöku í ráð-
stefnunni, ef Bandaríkjamenn
Framhald á bls 3
F.í. krefst rannsóknar
vegna framkomu SAS
Einkaskeyti til Mbl.
Kaupmannahöfn í gærkvöld
KOMA sex íslandinga til Kaup-
mannahafnar, með flugvél Flug-
félags íslands, hefur orðið til
þess, að Flugfélagið hefur kraf-
izt rannsóknar á því, hvort SAS
flugsamsteypan beiti óheiðar-
legum aðferðum tU þess að laða
gesti til síns eigins gistihúss,
RoyaL
íslendingarnir sex höfðu beðið
Flugfélag íslands að sjá sér fyr-
ir gistiherbergjum, við komuna
til Hafnar í gærkvöldi. Hafði Flug
félagið fengið inni fyrir þá á
Imperial gistihúsinu. Einn af
starfsmiöimum SAS, í fluglhöfn-
inni, hafði hins vegar tjáð ís-
lendingunum, eftir að hafa hringt
til Imperial, að þar væru engin
herbergi þeim til handa. Vísaði
SAS-starfsmaðurinn þeim því til
Royal gistihússins.
Vegna þessa atburðar hefur
Flugfélagið krafizt þess, að fram
fari rannsókn í móli þessu, þvi
að félagið verður að greiða fyrir
þau herbsrgi, sem það lætur taka
frá, sem ekki eru notuð.
Starfsmaður F.Í., í höfn, O.
Merlung, segir, að hér kunni að
hafa verið um að ræða misskiln-
ing, þvá að áliðið hafi verið
Ikvölds. í>ó er gert ráð fyrir, að
málið kunni að verða afdrifarikt,
þar sem að Imperial telur, að
hér hafi verið um óviðeigandi
starfsaðferðir að ræða. Enn gerir
það málið alvarlegra, að fyrir
liggur kæra frá Palace gistihús-
inu, um sams konar brot. Gert
er ráð fyrir, að rannsókn verði
látin fara fram á vegum samtaka
gistihússeigenda. — Rytgaard.
• London, 26. april — NTB
Tilkynnt var í dag í London, að
forvextir hefðu verið lækkaðir í
4%%. Þetta er þriðja vaxtalækk-
unin í Bretlandi á 7 vikum.
21 Serki féllu í Algeirsborg og Oran í gæi
Serkir telja Evian samkomulagið svikið
Algeirsborg, París, 26. apríl
NTB-AP
OAS menn héldu enn áfram
hryðjuverkum og morðum í dag,
bæði í Algeirsboifg og Oran. 21
Serki, að minnsta kosti, var veg-
inn í báðum borgunum. I»á komu
OAS menn fyrir sprengju í 4ra
hreyfla flugvél á flugvellinium
við Algeirsborg, og sprakk hún
í loft upp. Enginn var í vélinni,
og manntjón varð því ekki. Hins
vegar skaddaðist önnur vél, er
stóð þar hjá. Nú virðist, sem
mjög sé tekið að ganga á þolin-
mæði Serkja, og einn af tals-
möninum útlagastjórnarinnar
lýsti iþví yfir í dag, að hann teldi
Ranger 4‘ á bak-
hlið tunglsins
2 gervihneftir á loft í gær
WASHIN GTON, 26. apríl. AP.
Það var tilkynnt í dag, að
tungleldflaug Bandaríkjamanna,
„Ranger 4.“, hefði lent á tungl-
inu í morgun. Þrátt fyrir bilun
þá, sem varð á senditækjum
eldflaugarinnar, skömmu eftir
að herrni var skotið á loft, tókst
sérfræðingum að fylgjast með
henni, þar til í morgun, að hún
hvarf bak við tunglið. Hefur
hún ekki komið í ljós aftur, og
er aðeins ein skýring talin vera
til, sú, að hún hafi lent á
þeirri hlið tungls, sem frá
jörðu snýr.
Þremur eldflaugum var skot-
ið á loft í dag. Rússar skutu
einni á loft, og bar hún gervi-
tungl, „Cosmos 4“, sem komið
er á braut umhverfis jörðu. —
Bretar og Bandaríkjamenn
skutu einnig á loft gervitungli
frá Canaveral-höfða í dag, og
er það fyrsta alþjóðlega gervi-
tunglið. — Loks var skotið á
loft eldflaug frá stað einum í
Virginíufylki, í Bandaríkjun-
um. Voru í henni tæki, sem
Japanir og Bandaríkjamenn
höfðu lagt til. Féll flaugin í
haf, eftir vel heppnað skot.
Ehts og Morgunblaðið hefur áður skýrt frá, er nú verið að út-
búa bv. Hallveigu Fróðadóttur á síldveiðar. Myndin sýnir
kraftblökkina, og hvernig bátadekkið hefur verið framlengt.
— Ljósm. MbL: Ól.K.M,
Salan
krefst að
DeGaulle
beri vitni
PARÍS, 26. apríl. — NTB-
Reuter. — Raoul Salan,
fyrrum hershöfðingi og yf-
irmaður OAS-samtakanna í
Alsir, neitaði í kvcftd að,,
veita rannsóknardómurum
þeim, sem ætluðu að yfir-
heyra hann, svör við spum-
ingum þeirra.
Gerði Salan það að skil-
yrði fyrir því, að hann
leysti frá skjóunni, að við-
staddir yrðu sem vitni, De-
Gaull'e, forseti, Miohél De-
bré, fyrrverandi forsætis-
ráðherra, og ýmsir hers-
höfðingjar sem hann netfndi.
Þegar dómararnir neit-
uðu að verða við beiðiú
hans, sagði Salan: „Ég er
hér aðeinis vegna þess að ég
er tilneyddur". Salan er
sagður koma kurteislega
fram, að öðru leyti, en neit
ar að svara þeim spuming-
um sem fyrir hann eru
lagðar.
samikomulagið í Evian hafa verið
rofið, vegna framkomu franska
hersins fyrr í niánuðinum. — Þá
gerðu OAS menm harða árás á
stöðvar franska hersins í Oran
í kvöld, eins og sagt er frá hér á
eftir.
Telja vopnahléið hafa verið
rofið 17. og 18. þ.m.
Talsmaðurinn sagði, að fransk-
ir hermenn hefðu skotið á Serki
í þjónustu stjórnarinnar, dagana
17. og 18. marz sl. Hefði eklkert
verið að hafzt, af Serkja hálfu,
en raunar þýddi þetta, að sam-
komulagið sem franska stjórnin
gerði hefði verið rofið.
Það kom greinilega fram í gær,
er Serkir hugðust grípa til vopna,
að þeir eru óánægðir með frammi
stöðu franska hersins. Þá varð
aðeins komið í veg fyrir frek-
ari blóðsúthellingar, með því að
beita serknesiku löigregluliði til
að stilla til friðar.
Pompidou biður Evrópumenn
í Alsír vera þolinmóða
Pompidou. forsætisráðherra
Frakka, KO.m í dag í fyrsta skipti
með ráðuneyti sitt á þingfund.
Hélt hann ræðu í því tilefni, og
hvatti m. a Evrópumenn í Alsír
til þess að örvænta ekki. Það
væri ætlun stjórnarinnar að
Framh. á bls. 3
• London, 26. apríl (AP)
Fró því var skýrt • i London i
dag, að Sterling Moss, kappakst-
urshetjan fræga, væri nú á bata-
vegi eftir slys það, er hann lenti
í nú um páskahelgina. Hann
komst til meðvitundar í dag og
gat rætt við móður sína. Enn
mun þó gæta nokkurrar lömun-
ar í vinstri hluta líkamans.
V iðskiptamálaráð-
herra farinn til
Rómaborgar
Einkaskeyti ti'l Mbl.
London í gænkvöldi
GYLFI Þ. Gíslason, viðskipta-
málaráðherra íslands, og Jónas
Haralz, ráðuneytisstjóri fóru i
kvöld flugleiðis frá París til Róm
ar, þar sem þeir munu eiga við-
ræður við ítalska ráðamenn um
Efnahagsbandalag Evrópu.
Gert er ráð fyrir að viðræður
hefjist þegar á morgun, og mun
ráðherrann þá gera grein fyrir
sjónarmiðum íslendinga varðandi
markaðsbandalagið.