Morgunblaðið - 27.04.1962, Side 24
Fréttasimar Mbl
— eftir iokun —
Erlendar fréttir: 2-24-85
Innlendat tréttir: 2-24-84
SUS-síða
Sjá bls. 8-
Hið sökkvandi skip kommúnista í Kópavogi. — Finnbogi Rútur og bæjarstjórinn forða sér í
land. (Sjá Staksteina á bls. 3 í blaðinu í dag).
Verkfræðingar segja:
Raforka til Skotlands,
heitt vatn í berggeymum,
þungt vatn, plast, rayon
o.fl. má framleiða
A RÁÐSTEFNU um orkumál,
sem sagt er frá á bls. 2, komu
fram í erindum verkfræðing-
anna ýmsar mjög athyglisverðar
upplýsingar. Jakob Gíslason seg
ir t.d. tæknilega framkvæman-
legt að flytja raforku frá fslandi
til Skotlands og dreifa henni og
hafa 1—200 millj. kr. árstekj-
ur af því. Sveinn Einarsson og
Gunnar Böðvarsson setja fram
þá hugmynd að geyma megi
heitt vatn í berggeymum, til að
grípa til í kuldaköstum á vetr-
um. Þeir telja einnig þungavatns
framleiðslu hentugasta stóriðnað
á íslandi og Baldur Líndal telur
framleiðsluaðstöðu þunga vatns
iðnaðar mjög góða. Auk þess tel
ur Baldur að framleiðsla á plasti
efnum, sem orkufrek eru í fram
leiðslu, muni borga sig hér.
Ódýrt rafmagn frá fslandi
til Bretlands
Nú orðið leikur enginn vafi
á því að tæknilega er framkvæm
anlegt að flytja raforku frá ís-
landi til Skotlands um sæstreng,
sem væri 800 km. langur og síð-
an í loftlínu áfram suður um
Skotland og England. Þetta eru
ummæli Jakobs Gíslasonar, raf-
orkumálastjóra á verkfræðinga-
ráðstefnunni. Fyrirfram er vit-
að að þetta muni ekki svara
kostnaði nema um sé að ræða
flutning á miklu orkumagni, og
tæplega gæti verð um minna að
ræða en hálfa milljón kw af afli
og kringum 4 milljarða kWst. á
ári.
Segir Jakob að ef um svo
mikið magn sé að ræða sé
vinnslukostnaður hér á landi
sennilega kringum lö aura á
kWst, flutningskostnaður ca 10
aurar eða samtals 25 aurar á
kWst. Það væri 5—10 aurum
ódýrara en framleitt í Bretlandi,
og kæmi mismunur til skipta
milli íslendinga og Breta. Af
4 milljörðum kWst á ári kæmu
200—400 milljónir til Skipta, og
hlutur íslands þá 1—200 mlljón
kr. á ári. Stofnkostnaður virkj-
ana yrði ekki undir 4 milljörð-
um ísl. kr. og stofnkostnaður
á Mið-England yrði ekki undir
3 milljörðum ísl. króna. Og
veitunnar frá orkuveri og suður
Framh. á bls. 23
„VIÐ HÖFUM aldrei lóðað á
eins mikið magn af síld og í
dag“, sagði Jón Einarsson, skip-
stjóri á sildarleitarskipinu
Fanney, þegar Mbl. átti tal við
hann á ellefta tímanum. í gær-
kvöldi.
Sagði Jón s'kipstjóri, að hér
væri um geysimikið magn að
ræða á svæðinu 10—20 sjómíl-
ur SSA frá Hellnanesi við Stapa.
Því miður væri síldin afar stygg
svo að bátarnir hefðu lítið feng-
ið, þótt þeir hefðu verið að
kasta, en það myndi e.t.v. lagast
um nóttina. Þar við bættist, að
síldin óð öfugt, sem kallað er.
Sunnangola var á, en síldar-
gangan stefndi norðvestur, svo
að bátarnir áttu erfiðara með að
kasta á þessar stóru og fallegu
torfur.
Eftir sildveiðarnar í fyrrinótt
bárust a.m.k. 14.770 tunnur á
land. Bátar frá mörgum ver-
layonveínaði og ýmsum fleiri
líuui r'u i~i n m r i rvr*"-* • • ,
:
Harmleikur á Tjörninni
HÉR á Tjöminni hefur und-
anfarið gerzt atiburður, sem
að efni til líkist mest grízk-
uim harmileik.
í fyrrinótt, þegar blaða-
menn Mbl., fóru heiim af
kvöldvaktinni, sáu þeir hvar
þýzki svanasteggurinn húikti
vesældarlegur í Tjarnarhorn-
inu við Vonarstræti. Hann
hafði fundizt illa særður
aftir bardaga við íslenzku
svanina suður í Mýri fyTÍr
páskana, með svöðusár á baki
og lemstraður á væng og fót-
um, svo hann gat sig ebki
hrært. Þeir Hafliði Jónsson,
garðyrkljumaður, og Finnur
Guðmundsson, fluglafræðing-
ur fóru með hann heim til
Hafliða og sóttur var diýra-
læknir, sem gerði að sárum
hans. En svanurinn vildi ebki
eta og kunni illa við sig inni
í húsi, svo honum var loks
sleppt á Tjörnina.
íslenzku svanirnir voru þá
horfnir, en þýzka frúin var
þar enn og tveir aðrir svanir,
atfkvæmi þeirra hjóna. En
hinn heimlkomni húsbóndi var
svo vesæll að henni þótti
sýnilega lítið til hans koma.
Hann veslaðist upp og dó,
sennilega verið eitthvað meidd
ur innvortis. En frúin er hin
sprækasta og virðist vera að
búa sér tilrfireiður í Hótenan-
um með syni sínum, en þau
vilja ekkert hafa með þriðja
meðlim fjölskyldunnar að
gera.
Biöjast af sökunar
EFTIR öll þau ósköp, sem yfir nýtt, að sumir þessara manna
kommúnista hafa dunið á und lýsi því yfir, að þeir telji það
anförnum vikum og mánuð- allt að því ærumeiðandi að
um, þarf engan að undra, þótt vera kallaðir kommúnistar.
til séu kommúnistar, sem innst Það hefur t. d. Jónas Árnason
inni skammist sín fyrir flokk margsinnis gert, en hefur þó
sinn og stefnu. Það kom því eftir sem áður verið í framboði
ekki ölium á óvart, þegar fyrir þá í nær hverjum kosn-
kommúnistablaðið birti á for- ingum á undanförnum árum
síðu sinni í gær langan pistil og lætur nú fara vel um sig á
frá 5 frambjóðendum Moskvu- lista þeirra í Hafnarfirði. Aðr-
listanna í Reykjavik og Hafn- ir þessara manna hafa hins
arfirði, þar sem þeir biðjast vegar aldrei dregið neina dul
afsökunar á veru sinni á þess- á það, að þeir séu harðsoðnir i
um listum. kommúuistar, þó að nú sé á t
I yfirklórsyfirlýsingu sinni neyðarinnar stund reynt að í
gefa fimmmenningarnir svo- láta svo í veðri vaka, að þar sé
hljóðardi skýringu á fram- um að ræða óánægða fylgjend
ferði sínu: „Með þessum fram ur annarra vinstri flokka, ef
boðum \iljum við lýsa yfir það mætti verða til þess að
vilja okkar til samvinnu við hressa eitthvað upp á hrap-
alla þá, sem af heilum hug andi fylgi kommúnista.
vilja stuðla að auknu samstarfi Þessi sýndarmennska fimm
vinstri manna“. Og bezta ráð- menninganna er vissulega í
ið til þess að vinna að fram- skiljanleg í augum venjulegs
Itíðareiningu vinstri glundroð- fólks en það er nú samt
ans er J*ð þeirra dómi það að grunur flestra að þeim sé ekki
hlattpa flú nndir bagga með setan á Moskvulisturaum eins
þeim blnta þessa liðs, sem nú leið og þeir vilja nú vera láta
er í hvað mestum raauðum enda í fullu samræmi við hið
statt og hjálpar þurfi. fornkveðna. að hvað elskar sér
Það er svo að vísu ekkert líkt.
Halfræðingaiáðstefna ani
rannsóknir í Grænlandshafi
f GÆR hófst í Reykjavík ráð-
stefna haffræðinga frá fimm
löndum, fslandi, Noregi, Þýzka-
landi, Bretlandi og Kanada. Ráð
stefnan er haldin að tilhlutan
Atlantshafsbandalagsins, og sitja
hana átta haffræðingar. Fjallað
er um hafrannsóknir í Græn-
landshafi.
Á vegum NATO starfar nefnd,
sem stuðlar að eflingu hafrann
sókna. Fulltrúi íslands í nefnd-
Kveikt 1 heyi
AÐFARANÓTT fimmitudags var
kveiikt í heyi, sem var á vörubíls
palli fyrir framan húsið nr. 12
við Grundarstíg. Slökkviliðið
kom þegar á vettvang, steypti
heyinu af bílnum og slökteti í þvi.
Heyið skíðlogaði og varð af þe^su
miteið báil um tíma, svo að ýmsir
héldu, að um stórbruna væri að
ræða.
en stygg
stöðvum stunda nú síldveiðar.
frá Ólafsvík, Akranesi, Reykja-
vík, Keflavík og Vestmannaeyj-
um.
AKRANESI, 2«. apríl. — Hring-
nótabátarnir fimm, sem héðan
eru gerðir út, veiddu 4.675 tunn
ur af síld í nótt 18 sjómílur NV
af Akranesi. Hæstur var Harald-
ur með 1891 tunnu (tvílandaði),
þá Höfrungur II. með 1162,
Skírnir 870, Höfrungur I. 625 og
Heimaskagi 125. Megnið af síld-
inni fer í bræðslu. — Oddur.
ÓLAFSVÍK, 26. apríl. — Hér
hefur verið tregur afli undan-
farið. Tveir bátar eru byrjaðir
á síldveiðum og þrír eru að und
irbúa sig á síld. Vb. Halldór
Jónsson og Steinunn fengu í
gær fullfermi af síld. Síldin
hefur farið í frystingu og
bræðslu. Síldin reynist núna lé-
leg og verður sennilega ekki
fryst meira. — H.G.
inni er Unnsteinn Stetónsson,
haffræðingur. Á síðasta fundi
hennar, sem haldinn var í París,
lagði Unnsteinn til, að næsti
fundur yrði haldinn hér, þar
sem fjallað yrði um fyrrgreint
efni og möguleika NATO á að
aðstoða rannsóknir í Grænlands
‘hafi, annað hvort með aðstoð til
einstakra landa eða til vísinda-
legrar samvinnu nokkurra ríkja.
Rástefnan hér er haldin á veg-
um Fiskideildar atvinnudeildar
Háskóla íslands. — Henni lýk-
ur í kvöld.
Kosið í Síldarút-
vegsnefní?
ÞEIR- aðiljar, sem kjósa eiga
menn í Síldarútvegsnefnd, hafa
verið að ganga frá vali sínu f
gær og fyrradag, en áður hafði
Sameimað Alþingi kosið þrjá
menn í nefndina. Það eru þeir
Jón L. Þórðarson, Erlendur Þör-
steinsson og Jón Skaftason (tii
vara Guðtfinnur Einansson, Birgir
Finnsison ög Eysteinn Jónsson),
Félag síldarsaltenda á Norður-
og Austurlandi heíur trlnetfnt
Svein Benediktsson (til vara Ólaf
Ragnars), Landssamband íis-
lenzkra útvegamanna hefur til-
nefnt Valtý Þorsteinsson (tH vara
Margeir Jónsson), og Félag síld-
arsaltenda sunnanlands og vest-
an hefur tilnefnt Ólaf Jónsson
(til vara Ellert Ásmundisson). Al-
þýðusamiband íslands hafði enn
ekki gengið frá útnefningu sinna
manna í gær, en fulltrúi þeirra
hefur verið Hannibal Valdimars-
son (itil vara Gunnar Jöhannis-
son).
Vísitalan óbreytt
KAUPLAGSNEFND hetfir reikn
að vísitölu framfærslukostnað-
ar í byrjun aprílmánaðar 1962
og reyndist hún vera 116 stig
eða óbreytt frá vísitölunni f
marzbyrjun 1962. Ýmis vara og
þjónusta hefir hækikað lítið
eitt, en aðrir liðir eru óbreytU
ir. —-