Morgunblaðið - 16.05.1962, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 16.05.1962, Blaðsíða 2
4 2 MOnGUWBLAÐlÐ Miðvikudagur 16. maí 1962 Lóðum fyrir 300 íbúðir úthlutað A Ð nndanförnu hefur verið unnið að undirbúningi að út- hlutun lóða hér í borginni. Fyrir liggja allmargar lóða- umsóknir, en mikil vinna er við að fara í gegnum þær allar og kanna hagi um- sækjenda. Á fundi borgarráðs í gær- dag var úthlutað lóðum und- ir 8 fjögurra hæða fjölbýlis- hús við Bólstaðarhlíð, Skip- holt og Háaleitisbraut. Ný- lega var einnig úthlutað lóð- um undir 5 fjögurra hæga fjölbýlishús við Meistara- velli, vestan Kaplaskjólsveg- ar. Alls munu verða í þess- um 13 f jölbýlishúsum um 300 íbúðir. Lóðunum var úthlut- að með afhendingarfresti eft- ir ákvörðun borgarverkfræð- ings, en gert er ráð fyrir, að þær verði byggingarhæf- ar upp úr næstu mánaðamót um. — Á næstunni verður hald- ið áfram að vinna úr um- sóknum um lóðir undir ein- býlis- og tvíbýlishús. Haldið áfram að vinna á óbreyttu kaupi U Thant tíl íslands FRAMKVÆMDASTJÓRI Sameinuðu þjóðanna, U Thant, hefur þegið boð ís- lenzku ríkisstjórnarinnar um að koma í heimsókn til Is- Iands. Síðar verður ákveðið á hvaða tíma hann komi í þessa heimsókn. Utanríkisráðuneytið, Reykjavík, 15. maí 1962. Lesta á Akranesi AKRANESI, 15. maí: — Hér liggur m.s. Fjallfoss, lestar 900 tunnur af súrsuðum síldarflök- um og flytur á Þýzkalandsmark að. M.s. Raldur EA lestar hér 300 tonn af sementi og leggur af stað norður á Húnaflóahafnir í dag. — Oddur. H IN IR svokölluðu „kaup- taxtar“, sem verkamannafé- lögin á Akureyri og Húsavík auglýstu að ganga ættu í gildi í morgun, höfðu í gær- kvöldi engar undirtektir fengið á hvorugum staðnum — og var ekki útiit fyrir annað en að vinna mundi halda áfram á óbreyttu kaupi í dag. — Bæjarstjórn Akureyrar lýsti sig í gær óbundna af „töxtum“ þess- um, sömuleiðis samtök vinnu veitenda á Akureyri og kaup félögin á báðum stöðum höfðu hvorugt fallizt á að greiða hið auglýsta kaup.' — í samtali sem Mbl. átti í gær kvöldi við Björn Jónsson, aðalforsprakka kommúnista nyrðra, sagði hann að verka- mönnum hefði verið ráðlagt að halda áfram vinnu — enda þótt neitað væri að greiða kaup skv. „taxtan- um“. — Á fundi bæjarráðs Akureyrar slðdegis í gaer, þar sem „kaup- taxta-málið“ var tekið tií með- ferðar, komu fram 3 tillögur. Var fyrst borin upp og samþykkt með 3 atkvæðum Sjálfstæðis- manna og fulltrúa Alþýðu- flokksins gegn 2 (komma og framsóknar) að fela „bæjarstjóra að tilkynna Verkamannafélagi Akureyrarkaupstaðar að bæjar- ráð telji Akureyrarbæ óbundinn af settum kauptaxta félagsins." Með samþykkt þessarar tillögu voru sjálfkrafa fallnar hinar tvær tillögurnar, en þær voru frá Birni Jónssyni (K) um að „greiða eftir þessum taxta (þ. e. hinum nýja) fyrst um sinn“ og frá Jakobi Frímannssyni (F) svo hljóðandi: „í trausti þess að þeg- ar verði teknir upp samningar Samstarf þríflokk- anna í Hafnarfirði ÞAÐ VAKTI mikla athygli, þegar forseti bæjarstjómar Hafnarfjarðar, Kristinn Gunn arsson, gaf það í skyn á bæj- aTstjórnarfundi að áfram- hald mundi verða á samstarfi kommúnista og Alþýðuflokks ins að loknum kosningum, fengju þeir til þess kjör- fylgi. En nú virðist Framsókn líka vilja fá að vera með. Þríflokkunum hafði borizt það til eyrna, að Sjálfstæðis menn vildu halda framboðs- ismanna. Kommúnistar, Fram sóknarmenn og Alþýðuflokks menn héldu þá fund til að semja sín á milli um fyrir- komulag framboðsfundar, áð ur en fulltrúar allra flokka kæmu saman til að ræða mál ið. Þríflokkarnir stóðu svo fast saman um að fella tillögu Sjálfstæðismanna um opinn fund en samþykktu að hafa aðeins útvarpsumræður. Þessi atburður sýnir Ijós- lega hvert stefnir. Kommúnist fund í Bæjarbíói og útvarp- ar, Framsóknarmenn og Al- að yrði af þeim fundi. Eng- þýðuflokksmenn ætla sér að inn hinna þriggja flokka vildi sameinast að kosningum lokn halda slíkan fund, sem þó hef um, ef þeir fá aðstöðu til. En ur verið venja, þegar kosn- Hafnfirðingar eru staðráðn- ingar hafa farið fram að vori ir í að vinna gegn slíkum tii. glundroða, þeirra kjörorð er: Nú þurfti viðbúnað til að sterk meirihlutastjórn Sjálf- mæta þessari kröfu Sjálfstæð stæðismanna. við verkamannafélagið, telur bæjarráð ekki ástæðu til að taka afstöðu til taxtatilkynningar fé- lagsins að svo stöddu“. Á fundi Vinnuveitendafélags Akureyrar í gær var samþykkt að lýsa yfir mótmælum við kaup taxtatilkynningu verkamanna- félagsins og þeirri aðferð, sem með henni væri beitt. Jafnframt var lýst yfir því af félagsins hálfu, að það teldi félagsmenn sína ekki bundna af tilkynning- unni á nokkum hátt. Samkvæmt þeim upplýsingum, sem Mbl. fékk að norðan í gær kvöldi, var ekki útlit fyrir ann- að en að vinna héldi áfram á óbreyttu kaupi í dag. Blaðið átti m.a. tai við þá kaupfélagsstjór- ana Jakob Frímannsson á Akur eyri og Finn Kristjánsson á Húsa vík. Sögðust þeir báðir gera ráð fyrir að verkamenn ynnu áfram, enda þótt engin ákvörðun hefði verið tekin um að fallast á „kaup taxta“ þeirra. Og í samtali við Mbl. lýsti Björn Jónsson, for- maður Verkamannafálagsins á Akureyri, yfir því, að verka- mönnum hefði verið ráðlagt að halda áfram vinnu, jafnvel þótt kaup yrði ekki greitt samkvaaErf hinum nýja „kauptaxta“. Áformaðar eru viðræður milli deiluaðilja og mun þær að öll um líkindum hefjast strax í dag. Njáll Ólafur Kjdsendafundur á Akranesi í kvðld SJÁLFSTÆÐISMENN og aðrir stuðningsmenn D-Iistans á Akranesi halda almennan kjósendafund í Bíóhöllinni I Bíóhöllinni í kvöld. Fundurinn hefst kl. 21. Ræður á fundinum flytja: Jón Árnason alþingismaður, Þorgeir Jósefsson framkvæmdastjóri, Valdimar Indriðason, verksmiðjustjóri, Páll Gíslason, sjúkrahússlæknir, Einar J. Ólafsson, verzlurnarmaður, Einar Magnússon verkamaður, Anna Finnsdóttir skrifstofustúlka, Björn Pétursson kennari, Njáll Guðmundsson skólastjóri, Ólafur I. Jónsson bókari. Fundarstjóri verður Sverre Valtýsson lyfjafræðingur. Stuðningsmenn D-listans eru hvattir til að fjölmenna á fundinn. EINS og kortið ber með sér, kaldi og sums staðar él síð- er grunn lægð yfir ísland og ari hluta nætur. Gengur í hafinu norðaustur af Langa- vestan átt á morgun. nesi. Lægðin þokast suður Vestfirðir, Norðurland og eftir og lítur út fyrir norð- miðin: Norðan stinnmgskaldi, læga átt hér á landi og kalsa sn{n; veðri með slyddu og rigningu fyrir norðan. Nú er 12 st. hiti í Khöfn. 14 í París og nálægt 20 í New York. Veðurspáin kl. 10 í gærkvöldi: SV-land til Breiðafj. og mið in: Norðan kaldi og skýjað NA-land, Austfirðir og mið in: Austan kaldi, slydduél. SA-land og miðin: Hægviðri og skúrir í kvöll, léttir til með NV stinningskalda í nótt. Horfur á fimmtudag: Norðlæg átt og éi norðan lands en breytileg átt og senni með köflum, NV stinnings- lega þurrt á Suðurlandi. Almenn fjáröflun Sjálfstæðismanna Almenn fjársöfnun í kosningasjóð D-listans við borgar- stjórnarkosningarnar er hafin. Framlögum í kosningasjóð er veitt móttaka í skrifstofum D-Iistans í Sjálfstæðishúsinu og Valhöll (símar: 17100 og 15411). Seld eru merki Sjálfstæðisflokksins, sem allt stuðnings- fólk D-listans er hvatt til að kaupa og bera. Eflið og styrkið D-listann j kosningabaráttunnt Þýzkir seðlar úr umfcrð Deutsohe Bundesbank, Frank- furt A/Main hefur tilkynnt, að frá og með 15. maí 1962 verði bankaseðlar að fjárhæð DM 50,- — fyrsta útgáfa — gefnir út af Bank deutscher Lánder, teknir úr umferð. (Á miðri framihlið seðilsins er mynd af sitjandi konu). Seðlunum má skipta fyrir nýrri seðla í Deutsche Bundes bank, Frankfurt A/Main eða úti búum bankans, fram til 15. ágúst 1962, en eftir þann tíma hætta þeir að vera löglegur gjalmiðili, lltvarpsskák Svart: Svein Johannessen, ósló abcdefgh A B CD EFGH Hvítt: Ingi R. Jóhannsson 1. I.e2-e4 e7-e5 2. Rgl-f3 Rb8-c6 3. Bfl-b5 a7-a6 4. Bb5-a4 Rg8-f6 5. 0-0 Bf8-e7 6. Hfl-el b7-b5 7. Ba4-b3 0-0 8. d2-d4 d7-d6

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.