Morgunblaðið - 16.05.1962, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 16.05.1962, Blaðsíða 23
Miðvikudagur 16. maí 1962 MORCUNBLAÐIÐ Bótamál Kassagerðarinn- ar gegn Dagsbrún undir almenna dómstéla Dómur Hœstaréttar S.L. MÁNUDAG var í Haesta- rétti kveðinn upp dómur í máli Kassagerðar Reykjavíkur gegn Verkamannafélaginu Dagsbrún, l>ar sem staðfestur var úrskurð nr, er fallið hafði í héraði, en honum hafði verið skotið til Hæstaréttar með kæru. í úr- skurði héraðsdóms var það við urkennt, að mál þetta heyrði undir almenna dómstóla í land- inu og þess vegna var synjað frá vísunarkröfu Verkamannafélags ins Dagsbrúnar. Mál þetta mun því ganga eðlilega leið fyrir dómstólunum. Málavextir eru í stuttu máli þessir: í maí og júní mánuði 1961 var Verkamannafélagið Dagsbrún í verkfalli við avinnurekendur. Stefnandi málsins, Kassagerð Reykjavíkur, rekur iðnfyrirtæki og eru starfsmenn þess að mestu eða öllu leyti félagsmenn í fé- lagi verk9miðjufólks, Iðju. Stefnandi hefur verksmiðjur við Skúlagötu og Kleppsveg og notaði fyrirtækið eigin vörubif- Vatnsveitan Framh. af bls. 1 geymir verður að mestu leyti grafinn í jörðu og sem slétt grasflöt að sjá, er ligg- ur í svipaðri hæð og hita- veitustokkurinn, þar sem hann liggur næst Litlu Hlíð. Þegar er að hálfu lokið lögn á 24 þumlunga aðalæð í Kringlumýrarbraut frá Sogavegi að Hamrahlíð, en þessi lögn verður fyrst um sinn eina lögnin að hinum Dýja geymi. Unnið er nú að því að leygja 32 þumlunga vatns- æð meðfram sunnanverðri Miklubraut frá hinni nýju æð frá vatnsgeyminum á Litlu Hlíð inn að Skeið- velli. Þar sameinast hún vatnsæðum úr Gvendar- brunnum og hinni væntan- legu lögn úr Bullaugum, er lögð verður meðfram hita- veitustokknum. Á næstunni verður boðin ut bygging dælustöðvar á Háaleiti, en unnið er nú að því að tengja saman Bú- Etaðahverfi og Háaleitis- hverfi, svo að hin nýja dælu- stöð geti einnig komið íbú- um Bústaðahverfis að gagni. Þessa dagana er unnið að lögn á 16 þumlunga aðalæð í Rauðarárstíg milli Háteigs vegar og Laugavegar, og mun því verki ljúka mjög bráðlega. Ennfremur er nú unnið að endurnýjun vatnslagnar í Lönguhlíð. Með öllum þessum fram- kvæmdum og þeim fram- kvæmdum, sem fyrirhugað- ar eru á næstu 2 árum, á borgarbúum að vera tryggt nægilega mikið af góðu vatni til neyzlu og iðnaðar við hóflegu verði. Jafnframt öllum þessum stórfram- kvæmdum verður svo á næstu árum haldið áfram vísindalegri leit og rann- sóknum á vatnsbólum fyrir borgina og stuðlað að sem beztri og hagkvæmastri nýt- ingu vatnsins. reiðir til flutninga á efnivörum milli verksmiðjustaða þessara. Um tírna hindruðu félagsmenn Dagsbrúnar, „verkfallsverðir“ að flutningar gætu farið fram með bifreiðum milli verksmiðja stefnda. Hinn 21. júní fékk stefn andi sett á lögbann við þessum aðgerðum og var mál þetta höfð að til staðfestingar því lög- banni svo og til greiðslu skaða- bóta að upphæð kr. 338.457,14, en það er tjón, er stefnandi taldi sig hafa orðið fyryir vegna að- gerðanna. Stefndi, Verkamannafélagið Dagsbrún, krafðist frávísunar með þeim rökum, að mólshöfðun in væri eingöngu byggð á refsi verðum aðgerðum verkfallsvarð anna, en kæra um það atriði hefði farið fyrir lögregluyfirvöld, en saksóknari ríkisins ekki fyr- irskipað frekari aðgerðir af hálfu ákæruvaldsins. Þessi úr- lausn saksóknara ríkisins væri því bindandi fyrir þennan dóm- stól. Til úrlausnar stæði því einung is eftir það atriði, hvOrt aðgerð- irnar væru lögmætar í verkfalli, en það atriði ætti að lúta úr- skurði félagsdóms. Eins Og fyrr segir féllst héraðs dómur ekki á þessa röksemd og tók því ekki til greina frávísun arkröfu Dagsbrúnar og staðfesti Hæstiréttur þá niðurstöðu í dómi sínum. í forsendum héraðsdómsins segir m.a.: „Deiluefni aðila í máli þessu takmarkast við það, hvort að- gerðir þær, sem hér að framan hefur verið lýst, hafi verið lög- mæt eða ólögmæt réttarvarzla af hálfu „verkfallsvarðanna“ og um hugsanlega skaðabótaskyldu vegna tjóns, er af þeim kann að bafa orðið. Eigi verður talið, að ágreiningsefni þetta falli undir verkefni félagsdóms, heldur verð ur það talið eiga undir úrskurð arvaldi hinna almennu dóm- stóla“. — Thailand Framh. af bls. 1 HERFLUGVÉLAR Seinna í kvöld var tilkynnt í Washington að um 40 orustu og sprengjuflugvélar af gerðunum A4D (Skyhawk) og F-100 (Super Sabre) væru væntanlegar frá Fillipseyjum til Thailands í kvöld. Þeir Dsan Rusk utanríkisráð- herra og Anatoly Dobrynin sendiherra Sovétríkjanna rædd- ust við í Washingtön i kvöld um ástandið í Laos. Að viðræðunum loknum iýstu báðir því yfir að nauðsynlegt væri að koma á vopnarléi hið fyrst Er þetta fyrsti árangur af tilraunum Vest urveldanna til að fá Sovétríkin til að koma aftur á vopnahléi í Laos. Eu sendiherrar Bretlands og Bandaríkjanna í Moskvu hafa allt frá því kommúnistar rufu sopnahléið í Laos, gert ítrekaðar tilraunir til að ná samvinnu við stjórn Sovétríkjanna í þessu máli. Allar viðræður sendiherr- anna við Kuznetov aðstoðar utanríkisráðherra hafa þó verið árangurslausar. í frétt frá Vientiane segir að Pathet Lao sveitirnar, sem tóku landamæraborgina Housei Sai á fimmtudagskvöld hafi hörfað þaðan aftur og að borgin sé nú í höndura hers stjórnarinnar i Laos. £3 Haraldur Jónsson. Tvelr drengir urðu undir legsteini Slösubust báðir illa Á SJÖUNDA tímanum í gær- kvöldi gerðist sá atburður í <s>- Haraldur Jónasson bæj- arstjóraefni á Akranesí Sjálfstæðismenn á Akranesi | Haraldur Jónsson er ungur hafa farið þess á leit við Harald maður, fæddur í Flatey á Skjálf Jónasson fulltrúa bæjarfógetans anda hinn 1. desember 1930. þar, að hann taki að sér að Hann varð stúdent frá Mennta- gegna embætti bæjarstjóra jskólanum á Akureyri 1952 og lögfræðingur frá Háskóla ís- lands 1958. Hefur hann síðan starfað sem dómarafulltrúi í Stykkishólmi og á Akranesi og hvarvetna getið sér hið bezta orð fyrir reglusemi og dugnað í störfum sínum. Kvæntur er Haraldur Bryndísi Jónsdóttur og eiga þau fjögur börn. næsta kjörtímabil, ef Sjálfstæð- isflokkurinn fær aðstöðu til að ráða skipan bæjarstjóra. Hefur Haraldur fallizt á að taka kjöri sem bæjarstjóri að afloknum kosningum svo framarlega sem Sjálfstæðisflokkurinn fái hrein- an meirihluta innan bæjarstjórn arinnar. Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélag- anna á Akranesi samþykkti að fara þess á leit við Harald á fundi sínuyi fyrir skömmu, og kom fram á fundinum, að menn voru á einu máli ura, að staða bæjarstjóra væri í traustum höndum, ef takast mætti að fá hann kjörinn bæjarstjóra á Akranesl Snlon fyiir heriétt París, 15. mai (NTB). í DAG hófust í París réttarhöld í máli Raouls Salans hershöfð- ingja, leiðtoga OAS manna í Alsír. Talið er sennilegt að rétt- arhöldunum verði lokið eftir fjóra daga til fimm daga og að Salan verði dæir.iur til dauða. Var hann áður dæmdur til dauða að honum fjarverandi fyrir að- ild að byltingartilrauninni í AI- sír í apríl í fyrra. Verjendur Salans hafa krafizt þess að leidd verði alls 133 vitni í málinu, þeirra á meðal de Gaulle forseti, Miehel Debre fyrrverandi forsætisráðherra, Rene Coty fyrrverandi forseti og allir þeir hershöfðingjar, sem þjónað hafa í Alsír frá 1954. Réttarhöldin í dag stóðu í rúm- ar þrjár klukkustundir. Reyndu verjendur að vefengja rétt dóms ins til að fjalla um málið og að fá afgreiðslu þess frestað, en árangurslaust. — Borgin okkar Framh. af bls. 3. rmig fram sjálfur hefur mér fundizt ég geta gert kröfur til annarra. Vinnutíminn hef- ur líka stundum verið langur einkum þegar ég var yngri og vann að því að byggja fyrir tækið upp. En starfið hefur verið mér gleði. Ég hef unnið sigra — en beðið ósigra líka, eins og gengur. Á öllum niður rifsöflum hef ég alltaf haft mestu andúð og reynt að koma í veg yrir að þau yrðu á mínum vegi. Samkomulag milli mín og starfsfólksins hefur alltaf verið mjög gott — og það tel ég mikils virði. Sú vinsemd, sem ég hef orðið aðnjótandi af þess hálfu á hátíðarstundum hefur verið mér mikið ánægjuefni, þó að stundum þætti mér jafnvel keyra úr hófi fram. Áð skilnaði sagði Andrés: — Mér hefur líkað vel að lifa og starfa hér í Reykja- vik. Ef það er eins gott hin- um megin, þá er ég ánægður. — Ó. — Loftleiðir Framhald af bls. 24. lofti yfir þessu svæði, en ef það reyndist ekki nógu ábatasamt, þ: gætum við farið að dæmi verstu einangrunarsinnanna í Ameríku og uppástaðið að fá að flytja vissan hundraðshluta af öllum, sem leiðir vildu leggja yfir þetta svæði jarðarinnar, en af þessu m.a. er það auðsætt hve mikils virði það er fyrir fram- tíð flugsins yfirleitt að hinir framsýnni menn í Bandaríkjun- um beri sigurorð af þeim, sem skammsýnni eru. Loftleiðir hafa fylgzt vel með þessum málum að undanförnu, og það er ljóst, að ef til þess ráðs verður horfið í Bandaríkj- unum að þrengja nú kosti hinna erlendu flugfélaga þar í landi, þá muni það líka bitna á Loftleið um, enda þótt mörk rök og sterk hnigi að því, að við fáum þar nokkra sérstöðu. Loftleiðir dreymir enga stór- ve'ídadrauma, og þess vegna er alveg þarflaust að þrengja um of að okkur til -samkeppni, en við teljum eðlilegt, m.a. vegna landfræðilegrar sérstöðu fslands, að við fáum i ökkar hluta bróð- urlegan part af flutningunum yf ir Atlantshafið. Okkur hefir tek- izt, m.a. vegna vinsamlegrar af- stöðu bandarískra framámanna, að komast vel á veg með það, og fyrir það erurn við þakk- látir. Við vonum að þeir fái enn að marka stefnu bandarískra stjórnvalda, en ef óheillaöfl þar í landi taka forystuna, þá getur það eflaust orðið óþægilegt fyr- ir okkur. En það verður áreiðan- lega, þegar til lengdar lætur, engu síður vont fyrir Banda- ríkjamenn“. Gamla kirkjugarðinum í Reykja vík að legsteinn féll á tvo smá- drengi og slasaði báða, einkum annan þeirra. Ekki er fyllilega kunnugt um hvernig slys þetta hefur borið að höndum, en talið er að samskeyti í steininum hafi bilað og hann síðan fallið ofan á drengina. Steinn þessi nær með- almanni í brjóst. Er lögreglan kom á staðinn tjáði vegfarandi henni að hann hefði séð annan drengin skríða þangað sem hann fannst, um 30 m vegalengd, skammt frá norður vegg garðsins. Er betur var að gáð kom í ljós að legsteinn hafðd fallið skammt frá og voru á hon- um blóðblettir svo og á jörðinni umhverfis hann. Drengur sá, sem fluttur var úr kirkjugarðinum, heitir Þor- kell Steinsson, Hagamel 43, 6 ára gamall. Drengurinn, sem með honum var Kristján Bjarnason mun einnig hafa hlotið meiðsli er steinninn féll, og bljóp hann heim til sín á Sólvallagötu 17. Var hann fluttur á slysavaxð- stofuna. Þorkell var fluttur á Lands- spítalann tiil rannsóknar. — Er hann fótbrotinn, og einnig illa brotinn á hendi. Kristján litli er 7 ára að aldri og er mikið meiddur á hægri hendi. Drengirnir voru á heimleið frá hornsílaveiðum niður við Tjöm. Þorbjörn fór í signrróðnr- inn í gær TVEIR þátar, sem réru frá Grinidavík í vetur, börðust um að vera aflahæstir nú síðustu dagana, þeir Þorbjörn, frá Grindavík og Áskell frá Grenivík í Eyjafirði. | í fyrrakvöld stóðu metin þannig að Áskell var tveimur tonnum hærri og hætti þá, en í gær fór Þorbjörn í róður og komst þá upp fyrir. Áskell kom hingað til Rcykjavíkur á leið sinni norður. Endaitilegar tölur eru því að Þorbjörn aflaði 946, 540 tonn. en Áskell 945,410 tonn. Formaður á Þorbirni er Þór arinn Ólafsson en á Áskatli Adolf Oddgeirsson. Ágætur fundur Sjálf- st.manna í Hafnarfirði SJALFSTÆÐISMENN í Hafnar firði efndu til bæjarmálafundar í Hafnarfjarðarbíói í gærkvöldi. Var fundurinn mjög vel sótt- ur. — Ræður og ávörp fluttu á fund inum: Stefán Jónsson bæjarfull- trúi, Árni G. Finnsson lögfræð- ingur, Eggert ísaksson bæjar- fulltrúi, Hafsteinn Baldvinsson hdl., bæjarstjóraefni D-listans, Elín Jósefgdóttir bæjarfulltrúi, Þorgeir Ibsen skólastjóri, Sig- urður Kristinsson málarameist- ari og Páll V. Daníelsson bæj- arfulltrúi. Ræðumenn fjölluðu um hin ýmsu málefni bæjarfélagsins, sem nú eru til úrlausnar, og var góður rómur gerður að máli þeirra. í upphafi fundarins lék Lúðrasveit Hafnarfjarðar undir stjórn Jóns Ásgeirssonar. Osló, 15. mai — (NTB) Á ÞJÓÐHÁTÍÐARDEGI Norð manna 17. þ. m. efna kristi- legu æskulýðssamtökin (KF UM og KFUK) til allherjar fjársöfnunar til hjálpar bág- stöddum í Alsír. Söfnunin fer fram um allt land og taka um 50.000 meðlimir KFUM og KFUK þátt í henni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.