Morgunblaðið - 20.07.1962, Page 6
MORGUNBLAÐIÐ
Fösfudagur 20. júlí 1962
e
Of lítil fjárhagsaöstoö USA
olli falli stjórnar írans
segir Amini, forsætisraðlierra — USA
hefur þó veitt íran 1000 milljón
dala sL 10 dr
Teheran, Washingion, 18.
júlí — NTB—AP.
Fréttin um að Ali Amini,
forsætisráðherra Irans hafi
sagt af sér, hefur vakið tals-
verða athygli og umræður,
ekki sízt vestan hafs. Amini
lýsti því yfir, er hann hafði
tekið ákvörðun sína, að ein
aðalástæðan fyrir því að hann
hefði nú látið af völdum, væri
'sú, að stjórn landsins hefði
ekki fengið þá fiárhagslegu
aðstoð frá Bandaríkjunum,
sem búizt hefði verið við.
Opinberir aðilar í Washing-
ton lýstu því yfir í dag, að
ekki væri hægt að taka orð
forsætisráðherrans trúanleg,
enda hefði f járhagsaðstoð
Bandaríkjanna við íran, á
valdatíma Amini, sízt verið
minni en árin á undan.
Brezkar fréttir greina frá
því, að á undanförnum 10 ár-
um hafi Bandaríkjastjórn veitt
íran rúmlega 1.000.000.000
dala fjárhagaðstoð, en jafn-
framt er tekið fram, að ráða-
menn vestra séu ekki ánægðir
með, hvernig því fé hafi ver-
ið varið.
Er Amini tilkynnti Irans-
keisara um ákvörðun sína, bað
keisarinn hann að gegna enn
embætti um sinn, eða þar til
nýr forsætisráðherra hefði tek
ið við. Sem eftirmaður er
nefndur fortsjóri persneska
olíufélagsins, Abdullah Ente-
zam. Það er hins vegar keisar
Ali Amini, fráfarandi
forsætisráðherra Irans
ans að taka lokaákvörðun í
því máli.
Nokkrir ráðherrar Aminis
hafa láitið frá sér heyra, um
fall stjórnarinnar.
Landbúnaðarráðherran, Dr.
Hassan Arsanjani, sagði að
ekki mætti víkja frá núver-
andi stefnu í landbúnaðarmál
um.
Dómsmálaráðherrann, Ala-
mouti, sagði, að „þótt stjórnin
færi nú frá, þá geti ekki orð-
in nein breyting á starfsemi
dómsmálaráðuneytisins, sem
muni halda áfram að berjast
gegn spillingu“.
Menntamálaráðherrann, Mo
hammed Darrakhsheh, sem
sagður er hafa lent í orðskipt
um við meðráðherra sína á
síðasta fundi stjórnarinnar,
vegna lækkaðrar fjárveiting-
ar til menntamála, sagðist
muna „halda áfram að berjast
fyrir kennara landsins‘.
Stjórnin hefur sem kunnugt
er, beitt sér fyrir því, að stór-
Jörðum verði skipt upp milli
bænda, og hefur það mætt mik
illi andspyrnu víðast hvar.
Þá hefur forsætisráðherr-
ann átt í erfiðleikum undan-
farið við að afgreiða halla-
laus fjárlög, og því skorið
niður fjárveitingar. Það hefur
þó ekki nægt til þess, að hann
næði takmarki sínu. Amini
sagði það sjálfur eina af
ástæðunum fyrir ákvörðun
sinni, að það hefði ekki tekizt.
Eins og fyrr greinir, þá seg-
ir í dag í brezkum fréttum,
að Bandaríkjamenn séu ekki
ánægðir með það, hvernig fé
því, er þeir hafa veitt Iran á
undanförnum árum, hafi ver-
ið varið, en spilling hefur ver-
ið mikil í landinu, ekki sízt á
fjármálasviðinu.
Hins vegar segir í fréttum
frá Washington, að á því rúma
átri, sem stjórn Aminis hefur
setið við völd, hafi Bandaríkja
stjórn veitt Iran 67.3 milljón-
ir dala, í formi framkvæmda-
láns. Sé það hærri f járhæð en
meðaltal næstu fjögurra ára
á undan, þ.e. 59.4 milljónir
dala.
Þá benda Bandaríkjamenn
á, að á sl. áratug hafi Iran
fengið milli 600-700 milljónir
dala í efnahagsaðstoð og um
500 millJónir dala í hernaðar
aðstoð.
Fékk á sig slagsíðu
á heimleið
Álasundi, 16. júlí — NTB —
Norskur síldarbátur, „Asbjörn",
fékk á sig slagsíðu, er hann
var á leið til Noregs af íslands-
miðum með 4000 hl síldar sl.
laugardag. Báturinn tók að
hallast er hann var 135 kvart-
mílur undan ströndum Noregs.
Um tíma var talið að bátnum
myndi hvolfa, en nærstödd
skip komu honum til aðstoðar
og er hann nú á leið til lands.
Gekk allt vel er síðast fréttist.
Jiðdegis í fyrrad. sigldr Trolla'
foss inn í höfnina í Reykjavík
og lagðist að Grandagarði. .—
Á þilfarinu blasti við röð af
nýjum bifreiðum, fólksbílum
og vörubílum, en skipið var'
að koma með um 200 bíla, 60
traktora og 900 lestir af
stykkjavorafr^n|landi^
London, 18. júlí — AP —
Hæstiréttur Bretlands neit
aði í dag að verða við beiðni
Dr. Soblens njósnarans banda
ríska, þess efnis að hann verði
látinn laus úr fangelsi því, er
(hann nú dvelur í. — Lögfræð
ingur Soblens sagðist myndi
áfrýjadómnum og bað um að
Soblen yrði áfram í fangels-
inu, þar til áfrýjunin hefði ver-
ið tekin til athugunar.
Trilluafli á
Akranesi
AKRANESI, 18. júlí — Trillu-
báturinn Sævar kom að í nótt
imeð 20 lúður, sem hann hafði
fengið á skötulóðirnar. Allar
lúðurnar vógu samtals 1.030 kg.
og því að meðaltali 51.5 kg. —
Ásmundur landaði hér í dag
3Æ tonnum af humar og 4
tonnum af öðrum fiski, lang-
lúru, karfa, skötusel og eilitlu
af þorski og ýsu. Tvær drag-
nótatrillur hafa þegar landað í
dag, Flosi með 1.1 tonn af kola
Og 450 kg. af þorski, og Sigur-
sæll (einn á) með 200 kg. af
kola og 200 kg. af þorski.
— Oddur.
^ Ölið hefði hætt úr
Kona ein hringdi til Vel-
vakanda vegna ólátanna, sem
urðu við Skógarhóla á Þing-
völlum í sambandi við dans-
leik hestamannamótsins um
síðustu helgi. Þar veltust ungl
ingar um dauðadrukknir,
flugust á o.s.frv. Segir konan
það skoðun sína, að. fyrst
æskufólkið vilji nú endilega
bragða eitthvert áfengi, þegar
það ætli að skemmta sér, þá
sé sjálfsagt að reyna að hafa
það af vægustu tegund. Það
sé: sterkt öl.
ölið fari eins og kunnugt
sé miklu betur með neytend-
ur en brennivín; bæði drekki
þeir minna magn og áhrifin séu
önnur og geðslegri. Það þýði
ekki að neita þeirri staðreynd,
hversu leiðinleg sem mönnum
kann að virðast hún, að ungl-
ingar, sem komnir eru að
hálfu leyti eða rúmlega það
til vits og þroska, og hafa e.t.
v. tekjur á við fullorðið fólk,
þótt ábyrgðartilfinningin sé
enn þá ekki eins mikil, vilji
skemmta sér á sama hátt og
hinir eldri og hafa einhver
kynni af Bakkusi. Fram hjá
því verði ekki gengið, og því
sé sjálfsagt að gefa þeim kost
á venjulegu öli, eins og það
tíðkist erlendis, og við köllum
af einhverri ástæðu sterkt öl.
Konan segist hafa verið á
alls konar hópskemmtunum
ungs fólks í Danmörku, t. d.
skógarskröllum, og þar neyti
unglingarnir áfengs öls átölu-
laust og hindrunarlaust, án
þess að það valdi nokkrum
spjöllum á fagnaðinum, enda
gæti flestir hófs í neyzlu þess,
sem auðvelt sé að fá.
Vel heppnuð orlofs-
ferð húsmæðra
E,S. skrifar Velvakanda:
„Fyrir nokkru voru sett á
Alþingi lög um orlof hús-
mæðra. Kosin var orlofsnefnd
innan Kvenfélagasambands
Borgarfjarðar, er sjá skyldi
um framkvæmdir á því svæði,
Fenginn var barnaskólinn að
Varmalandi fyrir húsmæður á
Akranesi, í Borgarnesi og nær
liggjandi sveitum. Við vorum
27 alls, er fengum að njóta
hressingar og hvíldar, góðrar
fæðu og ýmislegrar umönnun-
ar í átta daga. Farið var í
gönguferðir um nágrennið og
gengið upp í holtin, til að sjá
hið fallega útsýni yfir Borg-
arfjarðarbyggðir. Margar átt-
um við erfitt með að sækja
á brattann, en alls staðar var
hvíld að fá og glaðvær hóp-
urinn. Á hverju kvöldi var
eitthvað til skemmtunar, sýnd
ar litskuggamyndir og út-
skýrðar um leið, lesin upp
ljóð, sungið og leikið á hljóð-
færi, hafður spurningaþáttur,
spiluð félagsvist og margt,
margt fleira, sem heimafólk
og oriofsnefnd gerði til að
okkur yrði dvölin ógleyman-
leg. Þegar farið var frá
Varmalandi, var ekið um
Hvítársíðu upp í Húsafells-
skóg, síðan farið að Barna-
fossum og skoðað hið sér-
kennilega vatnsfall, þar sem
vatnið kemur undan hraun-
inu; síðan farið sem leið ligg-
ur niður Reykholtsdal að
Hvítárvallaskála og þar snædd
ur kvöldverður. Þar skildu
leiðir okkar, og hver fór til
síns heima eftir viðburðaríka
viku, og vorum við allar mjög
ánægðar. Vel sé þeim, er
unnu að því að veita okkur
þennan hvíldar- og skemmti-
tíma, þar sem óskir margra
okkar i.afa orðið að veruleika.
Megið þið lengi lifa við hag-
sæld og heilbrigði!