Morgunblaðið - 20.07.1962, Qupperneq 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 20. júlí 1962
Stjórnar rannsóknum Bandaríkja-
/
manna á Noröur-lshafi
HINNI íyrstu alþ.ióðlegu ráð-
stefnu, sem haldin er á ís-
landi um raunvísindi, er nú lok-
ið. Sleit Dr. Áskell Löve ráð-
stefnunni og sátu þátttakendur
síðan boð ríkisstjórnarinnar.
Verður síðan haldið í vikuferð
um Vesturland og skoðaðir þeir
staðir, sem merkastir eru frá jarð
fræðilegu sjómrmiði og rætt hef
ur verið um á fundurn ráðstefn-
unnar.
Einn þeirra manna, er ráðstefn
una hafa setið, en getur ekki far-
ið með öðrum þátttakendum í
ferð þeirra, er Bandaríkjamaður
inn, Dr. Max Britton frá Wash-
ington. Varð Dr. Britton að hraða
sér heim á leið, að loknum síðasta
fundi ráðstefnunnar, þvl hans
bíða þar ótal verkefni, sem ekki
þola, að frá þeim sé tekið sumar-
leyfi, eins og hann komst að orði,
er fréttamaður blaðsins átti við
hann stutt viðtal að Hótel Garði.
Dr. Britton er í þjónustu rann-
sóknarstofnunar flotans (Office
of Naval Research) og hefir yfir-
umsjón með rannsóknum, sem
framkvæmdar eru í nyrsita hluta
Alaska.
— Hvert er hliutverk stöfnunar
þeirrar, sem þér starfið hjá?
— Svæði þau, sem við vinnum
að rannsóknum okkar á, eru
mjög lítið rannsökuð og aðalverk
efni okkar er að afla grundvallar
upplýsinga, sem síðan eru fengn
ar í hendur réttum aðilum, s.s.
haffræðingum, grasatræðingum,
jarðfræðingum o.s. frv. til fram-
ha Idsrannsókna.
— Er ekki erfiðaia að athafna
sig við vísindarannsónir á þess-
um norðlægu slóðum en á hlýrri
svæðum?
— Jú, miklu erfiðara og þær
aðstæður, sem taka verður til
greina, eru allt aðrar en þær,
sem ráða við rannsóknir á hlýrri
svæðum. Venjan er sú, að manni,
sem er sérfræðingur í sinni grein,
er falið að sjá um rannsóknir
varðandi hans séngrein, en mér
er hins vegar falið ákveðið svæði.
Verð 'ég síðan að sjá um allar
rannsóknir á svæðinu, skipu-
leggja hinar einstöku greinar
þeirra, eftir því sem árstími og
aðrar aðstæður leyfa.
Dr. Max Britton.
— Hver er sérgrein yðar?
— Ég er plöntulíffræðingur og
hef lengst af stundað kennslu við
Háskólann í Illinoi.s oig fram-
kvæmt eigin rannsóknir. Ég hef
aðallega stundað rannsóknir í
því, sem við gætum nefnt „Micro
climatic Relationship“, eða lofts-
lag niðri við yfirborð jarðar og
áhrif þess á plöntur. Má eiginlega
segja, að það sé hluti af veður-
fræðinni en elcki dugir þó að
taka almennar veðurspár til
greina, hvað því viðkemur, því
um ólíkar aðstæður er að ræða
niðri við jörð eða uppi í háloftun
um. Einnig hef ég unnið við jarð-
vegsrannsóknir og þá aðallega á
þeim svæðum, þar sem frost fer
aldrei úr jörðu. Er frostið í jarð-
veginum allt að 500 m á þykkt og
þiðna aðeins fáeinar tommur á
sumrin. I sambandi við það hef
ég svo framkvæmt athuganir í
,, geomorphology “, en það eru
fræði, sem fjalla um breytingar
á yfirborði jarðar, þúfnamyndun
o. þ.h. Ég hafði ekki að fullu lok-
ið við að vinna úr athugunum
mínum, er ég gekk í þjónustu
deildar þeirrar, sem ég nú vinn
hjá og geri ég ráð fyrir, að það
muni enn dragast eitthvað, því
þessi 6 ár, sem ég hef unnið hjá
rannsónarstofnun flotans, hefur
mér ekki giefizt tími til að stunda
eigin rannsónir.
— Á hvað er lögð mest áiherzla
í Alaska?
— Það er ekki gott að segja,
því raunar er þar iögð áherzla á
allar rannsóknir. Ég sagði áðan,
að svæði þessi væru lítið rannsök
uð Og miðað við hinar umfangs-
miklu rannsóknir, yem farið hafa
fram á Suðurskautslandinu, eru
hin norðlægari svæði svo til
órannsökuð. Rannsóknarstöð okk
ar á nyrsta odda Alaska, skagan-
um Point Parrow, gegnir marg-
þættu hlutverki. f>ar eru fram-
kvæmdar rannsóknir á áhrifum
norðurljósa á útvarpsbylgjur. Um
þau áhrif er tiltölulega lítið vitað
og má e.t.v. segja, að það sé einn
þýðingarmesti hluti rannsóknar-
starfsins. Gerðar eru veðurathug
anir í háloftunum, auk venju-
legra veðurathugana, segulsviðs-
rannsóknir, j arðskj áiftarannsókn
ir, jarðvegsrannsóknir, gróður-
rannsóknir, hafrannsóknir rann-
sóknir á dýralífi o.s. frv. Ég gæti
haldið áfram að telja upp, mikinn
hluta da,gs.
— Er ekki erfitt að koma við
fullkomnum hafrannsóknum í
ísnum?
— Ekki ber að neita því. Á
sumrin höfum við ísbrjóta okkur
til hjálpar, en þeir hafa ekki
reynzt koma að nógu gagni. Höf-
um við því tekið það ráð, að
senda flugvélar með menn og
lenda þeir á ísmum á þeim stað,
sem rannsóknirnar eiga að fara
fram. Dveljast þeir við störf sín,
allt frá fáeinum tímum, upp í
marga daga og slá þá venjulega
upp tjaldbúðum. Not af stöðvum
þessum eru nokkuð takmörkuð,
því ekki er hægt að slá þeim
upp nerna lítinn hluta árs. Ekki
þýðir að senda flugvélarnar út
í vetrarmyrkrið og auk þess er
erfitt að halda uppi samgöngum
við stöðvarnar, þegar fljúga þarf
allit að 500 km vegalengd til
þeirra á litlum flugvélum og leið-
in liggur yfir samfellda ísbreiðu,
þar sem ekkert er til að miða
við. Það ráð, sem við höfum tek-
ið og hefur reynzt okkur bezt,
er að slá upp varanlegum stöðv-
um á rekísnum og eru byggð þar
smáþorp, með híbýlum fyrir
menn, rannsóknastöðvum og
vistageymslum. Þessar stöðvar
rekur svo um íshafið, t eins og
fljótandi eyjar.
— Hvað eru margar slíkar rek-
stöðvar í notkun?
— Þær eru tvær og er önnur
þeirra- nú í u.þ.b. 1400 km. fjar-
lægð frá aðalstöðinni á Point
Barrow.
— Hafa rekstöðvarnar fjöl-
menna áhöfn?
— Það eru venjulega 19 menn
og af þeim eru lö vísíndamenn,
en einnig eru þar macreiðslumað
ur. loftskeytamaður og 2 véla-
menn, sem venjulega eru Eski-
móar. Eskimóarnir hafa reynzt
alveg sérstaklega vel til þeirra
starfa og mér er nær að haida,
að þeir séu heimsins beztu véla-
menn.
— Leiðist mönnum ekki að
dvelja á þessum stýrislausu far-
kostum sínum?
— Þeir dvelja á þeim um
þriggja mánaða skeið í senn, en
allt er gert til að gera þeim lífið
sem bærilegast. Þeir hafa góð
hús Og klæðnað og rnaturinn er
mjög fjölbreyttur. Séð er um, að
menn hafi nóg að starfa og þá
eru þrír mánuðir ekki lengi að
líða.
— Hvað er langt síðan rann-
sóknirnar hófust á Poirit Barrow?
— Það var árið 1946 og síðan
hefur þeim stöðugt verið haldið
áfram. Þótt enn sé mjötg mikið
ógert, hefur þekking manna á
Norðurheimskautssvæðinu auk-
izt stórum, enda var kominn tími
til, aó litið yrði við rannsóknum
á því.
— Hver er aðalmuhurinn á
starfi því, sem unnið er í aðal-
stöðvunum Og á rekstöðvunum?
— Á rekstöðvunum fara fram,
eins og ég hef þegar jninnzt á,
hafrannsóknir og er t.d. nú í
dag lögð mikil áherzia á rann-
sóknir á hæfni sjávarins til að
flytja útvarpsbylgj úr, athuganir
eru framkvæmdar á ísreki, en
um það vita menn litið, jarðeðlis
fræðirannsóknir eru gerðar o,s.
frv.
— Hverjir eru það svo, sem
njóta góðs af starfi ykkir?
— Stöðvarnar eru reknar á veg
(ðnfineníal
Hinir eftirsóttu þýzku hjólbarðar.
Sterkir — Endingagoðir
'Ávallt til í Öllum stærðum, nÝjar
sendingar koma með hverri skipsferð
CONTiNENTAL hjóibarðar fást aðeins
hjá okkur.
Önnumst allar hjólbarðaviðgerðir með
fullkomnum tækjum.
Sendum um allt land. ,
Gúmmívinnustofan
Skipholti 35 — Reykjavik. — Sími 18955.
um sjóhersins, sem auðvitað fær-
ir sér í nyt árangurinn, er af
þeim fæst, en eins og ég sagði,
þé fá þeir vísindamenn, sem þess
æskja, upplýsingar í hendur. Auk
þess hefur mörgum ' idamönn-
um, bæði bandarísku,.. ;g crlend
um verið boðið að dvelja í stöðv-
unum og gera sínar eigin athugan
ir að vild. Veitum vð þeim alla
þá aðstoð, sem við getum. Rann-
sóknarstofnun flotans hefur t.d."
gefið út eina bók um ferð sem
farin var á vegum nennar til ís-
lands. Var það landafræðingur-
inn, V.H. Malmström, sem fór
þessa ferð og nefnist bók hans
,,A regional geography of Iœ-
land“.
— Hafið þér Oft komið til ís-
lands?
— Nei, þetta er í fyrsta sinn.
Ég hef alloft komið til Græn-
lands, en aldrei áður haft tæki-
færi til að heimsækja ísland og
þótt ég verði að flýta mér heim
núna, þá gríp ég fyrsta tækifæri,
sem gefst til að koma aftur. Ég
á sannaírlega mikið ólært um
landið ykkar og fyrir mann í
rnínu starfi er landið gullnáma.
Um höfuðborgina ykkar, Reykia-
vík, get ég sagt það eitt, að hún
er ein sú snyrtilegasta og hrein-
legasta borg, sem ég hef komið
til og hef ég þó ‘ferðazt víða. Ég
ætla nú ekki að ræða um það,
að þetta er einn af þem fáu stöð-
um utan Bandaríkjan/na, þar serr»
hægt er að fá blandaðan sannan
ameriskan Martini, eins og hann
gerist beztur.
— Hvað vílduð þér segja um
ráðstefnu þá, sem haldin hefur
verið undanfarna daga í Háskól-
anum?
— Þetta hefur verð aíar merk
ráðstefna og hefði ég ekkl fyrir
nokkurn mun viljað missa af
henni. Umræður allar og erindi
hafa verið mjög fróðleg og mér
þykir sannarlega leitt að geta
ekki farið með hinum þátttakend
unum í ferð þá, sem fyrirhuguð
er. Ráðstefna þessi hefur það
fram yfir margar aðrar ráðstefn-
ur, sem ég hef setið, að aðeina
var tekinn til umræðu afmarkað-
ur hluti náttúrufræðinnar. Það
hefur oft viljað brenna vð, að á
hinum stóru ráðstefnum hafi allt
of margir talað um of margt, svo
að ekki var möguleiki á að köm-
ast að neinni niðurstöðu. Ég álít
ráðstcfnu þessa hafa verið mjög
til fyrirmyndar og eiga Háskóli
íslands, Náttúrugripasafnið og
undirbúningsnefndin hinar mestu
þakkr skilið fyrir frábæran und-
irbúning.
GG.
Skothurðarjárn
Skothurðargrip.
Pottar
Pönnur
Ávalt í miklu úrvall.
Sölumenn
Sími 13252
EGGERT CLAESSEN og
GUSTAV A. SVEINSSON
hæstaréttarlögmen
Þórshamri. — Simi 11171,
óskast til afleysirga 1 hálfs
mánaðar tíima.