Morgunblaðið - 20.07.1962, Síða 13
1 Föstudagur 20. júlí 1962
MORGVTSBLAÐIÐ
13
Nigeríumenn vilja aukin
viðskipti við íslendinga
V '\ , >
Nigeríumenn flytja árlega
inn nálægt 30 þúsund smá-
lestir af skreið.
— Rætt við A. Kujore, skreiðar-
kaupmann frá Lagos
I»KJÁ daga þessarar viku
hefur dvalizt hér á landi
fulltrúi skreiðarinnflytj-
enda í Nígeríu, A. Kujore,
sem hingað kom til við-
ræðna um aukin bein við
skipti milli Nigeríu og ís-
lands.
[ Vilja aukin viðskipti
Tíðindamaður Mbl. hitti
Kujore að máli stundarkorn
í fyrradag. Hann gegnir um
þessar mundir formennsku í
samtökum skreiðarinnflytj-
enda í Nigeríu, en þau telja
innan sinna vébanda yfir 20
innflytjendur, ýmist í höfuð-
borginni Lagos eða austur-
héruðum landsins. Sjálfur
hefur Kujore aðsetur í Lag-
os; þar býr nokkuð innan
við V2 milljón þeirra 40
milljóna manna, sem landið
byggja, en Nigería er fjöl-
mennasta ríki Afríku, sem
kunnugt er.
Möguleikar á auknum
skreiðarkaupum
— Skreiðina kaupum við
frá Noregi og íslandi, sagði
Kujore.
— Hvað er að segja um
möguleika á auknum skreið-
arkaupum frá íslandi?
— Þeir möguleikar eru fyr
ir hendi, því að í Nigeríu er
þörf fyrir meiri skreið en
nú er flutt inn þangað og
íslenzkra skreiðin er ágæt.
Að vísu er það ókostur, að
sumir skreiðarframleiðendur
eru mótfallnir flokkun skreið
arinnar; það spillir fyrir. Við
mundum kjósa að hafa hana
flokkaða í • fyrsta, annan og
þriðja flokk.
— Er hugsanlegt, að
Nigeríumenn kaupi héðan
fleiri sjávarafurðir en skreið?
— Það kemur til greina,
því að sjálfir veiðum við lít-
ið af fiski. En það sem í
svipinn kemur í veg fyrir
kaup á t. d. frystum fiski
héðan er ekki hvað sízt vönt
un á frystigeymslum heima
fyrir. Innflytjendur í Niger-
íu hafa enn sem komið er
ekki slíkar geymslur.
Ég er annars hingað
kominn til þess að full-
vissa islenzka aðila um,
að Nigeríumenn vilja
mjög gjarnan eiga við þá
frekari viðskipti og verzla
við þá beint. Nigerískir
kaupmenn hafa nú orðið
bæði fjárhagslegt bol-
magn og reynslu til að
annast slík viðskipti án
nokkurrar milligöngu og
kjósa því að komast í
beint samband við sem
flesta aðila.
Að sjálfsögðu er það um
A. Kujore,
skreiðarkaupmaður.
leið von okkar, að íslenzk
stjórnarvöld og innflytjend-
ur sjái sér fært að kaupa
í staðinn einhverjar þær vör
ur, sem við flytjum út, svo
sem t. d. timbur, gúmmí,
kókó, kaffi o.s.frv., þannig að
um traust gagnkvæm við-
skipti geti verið að ræða.
Vörusýning í Lagos í haust
í þessu sambandi vil ég
geta þess, að í októbermán-
uði næstk. verður haldin í
Lagos vörusýning, þar sem
m. a. verða sýndar margs
konar framleiðsluvörur lands
manna. Iðnaði í landinu hef-
ur stöðugt fleygt fram síð-
ustu árin; t. d. má nefna
skógerð, húsgögn o. m. f 1.,
auk sements.
Nánari samskipti æskileg
— Hvað viljið þér segja
frekar um samskipti land-
anna?
— Ég vona, að bráðlega
geti orðið úr því, að íslend-
ingar skipi viðskiptafulltrúa
í Nigeríu, til þess að gæta
hagsmuna sinna í auknum
verzlunarviðskiptum milli
ríkjanna. Það væri mjög á-
nægjulegt, ef nánari tengsl
gætu komizt á með íslend-
ingum og Nigeríumönnum.
— Það er fremur fátítt
enn, að Afríkumenn leggi
leið sína til íslands og ís-
lendingar suður þangað.
— Já. Þetta þyrfti vissu-
lega að breytast. Og alveg
sérstaklega vonast ég til, að
íslendingar og Nigeríumenn
bindist traustari vináttu-
böndum og að persónuleg
kynni stofnist þeirr« í milli.
— • —
Héðan hugðist Kujore
halda í morgun' flugleíðis til
London, þar sem hann mun
dveljast fram í miðjan ágúst.
Þetta er í fyrsta skipti, aem
hann kemur til íslands, og
lét hann í ljós von um, að
fá sem fyrst aftur tækifært
til að heimsækja landið.
— 61. Eg.
Pyrex
Búsáhöld úr
skreyttu, marglitu,
eldföstu opalgleri.
Tjöld
margar stærðir úr hvftum og
mislitum dúk með vönduð-
um rennilás.
SÓLSKÝU
SVEFNPOKAR
BAKPOKAR, Alpa
VINDSÆNGUR
margar gerðir
SÓLSTÓLAR
margar gerðir
GARÐSTÓLAR
GASSUÐUÁHOLD
(propangas)
FERÐAPRÍMUSAR
SPRITTÖFLUR
POTTASETT
TJALDBORÐ
TÖSKUR
meS matarílátum
(picnáctöskur) \
TJALDSÚLUR
úr tré og málmi
TJALDHÆLAR
VEIÐISTÍGVÉL
VEIÐIKÁPUR
ný tegund
FERÐA- og SPORT-
FATNAÐUR
alls konar.
GEYSIR H.F,
Vesturgötu 1.
Ódýrar
Banlon-peysur
Laugaveg 20.
Sími 14578.
Skrúbgarbavinna
Þórarinn Ingi Jonsson
Sími 36870.
LÓÐARBYGGING
TYRFING
HELLULÖGN
SÁNING
Smurt braud
og snitlur
Opið frá kl. 9—11,30 e.b-
Sendum heim.
Brauðborg
Frakkastíg 14. — Símj 18680.
Svefnsófar
Nýir gullfallegir svefnsófar
selast með 1.500,00 kr.
afslætti. Úrvals svampur. —
Tízkuáklæði. — Sófaverkst.
Grettisg. 69. Opið kl. 2—9.
Óilfru prjónavörurnar
seldar i dag eftir kL L
Ullarvörubúðin
Þingholtsstrætí 3.
þjonustan
Hjóla- og stýrisstillingar
Jafnvægisstillingar hjóla
Bremsuviðgerðir
Rafmagnsviðgerðir
Gang- og kveikjustillingar
Pantið tíma — Skoðanir eru
byrjaðar.
FORD UMBOÐIÐ
SVEINN EGILSSON HF.
Laugavegi 105. — Sími 22468.
RYÐEYÐIR
A SKIP & BÍLA
ER MÁLNING
SEM EYÐIR RYÐL
SPARAR TÍMA
OG FYRIRHÖFN.
ER AUÐVELD í
MEÐFÖRUM.
SANDBLÁSTUR OG
RYDHREINSUN ÓÞÖRF.