Morgunblaðið - 20.07.1962, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 20.07.1962, Qupperneq 18
18 MORGVNBLAÐIÐ FðsUiiSagur 99. Jfl!! 1982 Er landsliðið þegar valið? Danska blaðið „Politiken" segir frá því sl. miðvikudag undir feitri fyrirsögn, að KR- ingar séu hættir við fyrirhug aða heimsókn til knattspyrnu sambands Sjálands. Blaðið skýrir svo frá að leikir KR- inga í Holbæk, Roskilde og Haslev hafi verið næsti stór- viðburðir á 60 ára afmælis- dagskrá Sjáiandssambandsins en leikirnir verði nú niður að falla því ekki sé hægt að fá góð lið til að hlaupa í skarðið með svo stuttum fresti. Blaðið skýrir svo frá því að ísland eigi að leika landsleik í írlandi á sama tíma og heim- sóknin hafi verið ráðgerð og gefur í skyn að 7 KR-ingar hafi verið valdir I landsliðið sem í írlandi eigi að leika. Þegar þar við bætist að tveir aðrir leikmenn KR tilkynntu að þeir gætu ekki farið utan til Danmerkur, þá hafi KR orðið að hætta við förina. Vegna þessarar fréttar er sjálfsagt að biðja landsliðs- nefnd að upplýsa hvort þeg- ar sé búið að velja landslið- ið tii írlandsfararinnar. Vart getur verið að KR-ing ar segi Dönum að 7 þeirra leik manna fari til írlands, ef þeir hafa ekki fengið tilefni til slíks frá landsliðsnefndinni. Hver peningur á 1000 kr. danskar Rúmenar urðu heimsmeistarar í handknattleik kvenna utanhúss en heimsmeistaramótinu er ný- lokið i Rúmeníu. Aðeins éitt lið frá Vesturlönd- um tok þátt i mótinu og var það landsHð Dana. Dönsku stúlkurn- ar stóðu sig með afbrigðum vel. Þær iéku úrslitaleikinn við Rúm eníui;jen töpuðu með 5:8 Danir eru himinlifandi yfir þessum árangri og í fyrrakvöld átti að halda mikla og góða mót- tókuhátíð fyrir dönsku stúlkurn- ar i Tívolí. Danir hafa nú reiknað út, að silfurpeningarnir sem stúlkurn ar fengu fyrir afrek sitt, alls 15 hafi kostað rúmlega 1000 d. kr. hver, því kosnaðurinn við undir búning fararinnar og förin sjálf hafi numið 18000 kr. dönskum. B-liðið hafði allmikla yfir-, burði yfir A-Iiðið er þessi lið leiddu saman hesta sína í gær- • kvöld. Hér sýnir Sveinn Þor- móðssou okkur hvernig fyrra i mark B-liðsins kom. Högni, sem skoraði er á bak við mark stöngina cn hinir verða að. horfa á knöttinn fara í netið. Bjarni Felixson er vel á verði ' á réttum stað á marklínunni, en fær ekki að gert. Það var mikið deilt um það áður, hvort verja ætti svo miklu fé til slíkrar farar. Nú heyrist engin óánægjurödd. Allir eru himinlifandi yfir góðum árangri og finnst hann alls ekki dýru verði keyptur. Svona er hekniur- inn. Eftir á getur verið gaman. Það þekkjum við fslendingar bara svo sjaldan. En við erum líka oft seinni til að sjá og viðurkenna góðan ár- angur okkar íþróttafólks. Þetta danska lið var mikið til eins Skipað og þegar Danmörk varð Norðurlandameistari í hand- knattleik 1960. Þann Norður- landatitil unnu ísl. stúlkurnar eiginlega fyrir Svía. Danir og Svíar gerðu jafntefli í mótinu, en þær dönsku unnu þær ís- lenaku. íslenzka liðið gerði sér ■hins vegar lítið fyrir og unnu hið sænska. Þar með voru Dan- ir efstir. Þetta lið Dana er nú með silfurverðlaun í heimsmeist arakeppni — og Danir fagna í Tívoli. ■ Þessi mynd er tekin í fyrsta meistaraflokksleik mótsins sl. sunnudag milli FH og Víkings. FH stúlkurnar unnu þann leik með 7 mörkum gegn 4 og tryggðu sigur sinn með góðri byrjun. Hér er ein FH-stúlkn anna að undirbúa skot. Lengst t.h. sést „faðir“ handknattleika ins í Hafnarfirði Hallsteinn Ilinriksson. sem þjálfað hefur hina sigursælu flokka Hafn- firðinga. Það er ekki Iaust við að Hallsteinn taki þátt í leikn um með sinu fólki — svona utan við línuna. Frá falli til aöstoðarráðherrastcls ! ' ÞAÐ ER ekkert einsdæmi að íþróttamenn komizt til mikilla valda á stjórnmálasviðinu, en það er heldur ekki daglegur viðburður. Þegar Mcmillan „yngdi“ upp stjórn Bretlands á dögun- um, -varð einn heimsfrægur hlaupári fyrir vali í stjórnar- stöðu./Og sá er „hinn yngsti meðaí hinna ungu“ í nýju stjórninni. Þetta er hlauparinn Christofer Chataway, heims- frægur fyrir hlaupaafrek. — Hann verður aðstoðamaður menntamálaráðherra. Chris, eins og hann var allt af nefndur, er aðeins 31 árs, en hefur verið þingmaður North Lewsham frá síðustu kosningam Daily Express sendi frétta- mann-4il Chataway í tilefni nýju stöðup 'ar og hann sagði m.a.: — Ef ég hefði mátt sjálfur velja hvaða stöðu ég vildi i lífinu nú, þá hugsa ég að þessi staða sem ég nú hefi fengið yrði efst á blaði — og síðan ber hann mikið lofsorð á yfir- mann sinn, menntamálaráð- herrann. Hann var svo á hlaupum upp og niður stiga til að taka við símskeytum og símahring- ingum, hamingjuóskum alls staðar fr á. í einni stigaferðinni missté hann sig, en það jafn- ðist. „Eg sé að ég er ekki í góðri þjálfun" ’sagði hann við fréttamanninn. Kona hans var að undirbúa veizlumat — „buff strongan- off“ og var taugaóstyrk vegna þess að slíkan mat hafði hún aldrei lagað fyrr. Eitt frægasta hlaup sem Chataway nljóp var 5000 m hlaunið á Olympíuleikunum í Chattaway Helsingfors 1952. Hann bland aði sér þar öllum á óvart í stríð hinna stóru, Zatopeks, Mimoun. Schade tók mikinn er síðasti hringur — 400 m — þess hlaups. Zatopek hafi for ystuna, en í hnapp á eftir hon um voru Chataway, Schade og Mimoun. Schade tók mkinn rykk rétt eftir að klukkan hringdi og tók forystu er 300 m voru eftir. En það var að- eins augnabíik, Chataway fór fram úr honum og hafði for- ystuna. Á síðustu beygju tók Zatopek aftur forystu og Mim- oun fylgdi honum eftr. En þeg ar úr beygjunni kom vildi Chataway það óhapp til að stíga á „sargið“ og við það féll hann kylliflatur á brautina. • Hann stóð þó fljótt upp og kom 5. í mark. Hann missti landa sinn Pirie fram fyrir sig meðan hann lá. Framganga Chataways þótti með miklum ágætum. Hann kom óþekktur á þessari vegalengd til hlaups ins en ógnaði stærstu stjörnun um þar til óhappið gerðist. Frá þessu fræga falli á hlaupabrautinni, er nú Chata- way kominn sem aðstoðar- menntamálaráðherra Bret- lands. ■ Kvenfólkið h«lrtnr áfram baráttunni ÍSLANDSMÓT í handknatt- leik kvenna utanhúss veröur fram haldið í kvöld. Það er Breiðablik í Kópavogi, sem um mótið sér og leikirnir fara fram við barnaskólann á Digraneshálsi. I kvöld verða þarna þrír leikir, allir í meist araflokki. Mætast fyrst FH og KR, síðan Ármann og Vestri frá ísafirði og loks Breiðablik og Víkingur. Verður þarna án efa um tvísýna keppni að ræða og keppni mótsins gæti vel orð ið svo jöfn að ekkert lið þolir að gefa eftir í neinum leik. Á þriðjudagskvöldiö fóru fram 3 leikir í 2. aldursflokki. Úrslit urðu þá þessi: FH — KR 1Æ. Breiðablik — Fram 7:2. Víkingur — Valur 5:2.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.