Morgunblaðið - 27.07.1962, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 27.07.1962, Blaðsíða 1
20 siður Gerðardómufinn í síldveiðideilunni: Lægri skiptaprdsenta á bát- um með blðkk og leitartæki — en hækkuð kauptrygging, 200 þús. kr. líftrygging, ábyrgðartrygging og 1°/o s|úkras]óðsgjald HEL.ZTU atriði gerðardónis- ins, sem í gær var kveðinxi upp um síldveiðikjörin eru þau, að skiptaprósenta er nokkru lægri en áður á þeim þátum, sem búnir eru kraft- blökk og síldarleitartækjum. Hefur dómurinn í því efni gengið nokkuð til móts við kröfur útgerðarinnar. Verð- ur skiptaprósentan á þessum skipum nú frá 34,5%—35,5% en áður var hún yfirleitt ná- lægt 40% á öllum hringnóta- veiðum og nokkru hærri á miimi bátum eftir að náð var ákveðnu aflamagni. Á hinn bóginn hefur gerðardómur- inn ákveðið hækkun kaup- tryggingar. Þannig hækkar t. d. trygging háseta úr 5,365 kr. í 6,610 kr. Þá eru þau ný- mæli, að áhafnir eru líftryggð ar fyrir 200 þús. kr., útgerð- armenn skulu kaupa ábyrgð- artryggingu og 1% af kaup- tryggingu skal greiða í sjúkrasjóð. f GÆR barst blaðinu úrskurður gerðardómsins, sem settur var skv. bráðabirgðalögum til lausn- ar á síldveiðideilunni sumarið 1962. Með úrskurði þessum eru ákveðin ráðningarkjör á skipum, sem gerð eru út til síldveiða sumarið 1962, sbr. 2. gr. bráða- birgðalaganna. Gerðadómurinn mun síðar, eftir því sem tilefni verður til, úrskurða síldveiðikjör skipstjóra, stýrimanna og vél- stjóra í stéttarfélögum innan Far- manna- og fiskimannasambands íslands. Um skiptakjör á herpinótaveiðum Á síldveiðum með herpinót skal aflahlutur skipverja vera 37.5% af heildaraflaverðmæti skipsins (brúttó), ei' skiptist í jafn marga staði og rnenn eru á skipi, þó ekki í fleiri staði en 18. Um skiptakjör á hringnótaveiðum Á skipum, sem stunda veiðar með hringnót og hafa hvorki kraftblökk (eða hliðstætt tæki) né sjálfvirkt síldarleitartæki við veiðarnar, skal aflahlutur skip- verja vera 40.5% af heildarafla- verðmæti skipsins (brúttó), er skiptist sem hér segir: a) Á skipum undir 40 rúm- lestir í 10 staði. b) Á skipum 40—70 rúmlestir í 11 staði. c) Á skipum 70 rúmlestir og yfir í 12 staði. Á skipum, sem stunda veiðar með hringnót og hafa bæði kraft- Framhald á bls. 19. í GÆRKVÖLDI um hálfníu- leytið kom togarinn Freyr hingað til Reykjavikur með 6073 mál síldar frá Seyðisfirði og mun hún fara í bræðslu í síldar- og fiskimjölsverksmiðj unni að Kletti. Fjórir togaxar lestuðu síld til flutnings á Seyðisfirði í fyrradag, og 'héldu þrír þeirra til síldarbæjanna á Norður- landi, en farmur Freys er sá fyrsti af sumarsíldinni, sem kemur hingað til Reykjavikur. Nemur hann 820 tonnum, eða 6073 málum, en reiknað vax með, að hægt yrði að landa um 400 málum á klst. og mun Freyr halda aftur austur að löndun lokinni. Síldarverk- smiðjan á Seyðistfirði mun taka til starfa á sunnudag og verður afkastageta hennar 5 þús. mál á sólarhring, en bú- ast má við áframhaldandi þönf fyrir sildarflutninga með tog- urunum etf jafnmikið berst þangað af síld Og verið hefur að undanförnu. Enn uggvænlegt ástand í Alsír Þusundir evrópskra manna þyrpast úr landi Togarinn Freyr siglir með sílðarfarminn inn á Reykjavikurhöfn Efnahagsbandalagið undirbýr mótun stefnu í fiskmálum Algeirsborg, 26. júlí. (AP-NTB) ÁSTANDIÐ í Alsír var á fimmtudag enn mjög ótryggt og hvergi nærri loku fyrir það skotið, að blóðug átök geti brotizt út milli landsmanna sjálfra vegna stjórnmálaklofn ings leiðtoganna. Af þeim sökum hafa þúsundir manna af evrópskum uppruna þyrpzt úr landi yfir til Frakklands. Aðalmótspyrnan gegn Ben Bella og stuðningsmönnum hans kemur nú frá Kabýla- héruðunum austur af Algeirs borg, þar sem Belkacem Krim hefur eflt Berba til andstöðu við stefnu og baráttuaðferð- ir Ben Bella. — Þó að illa horfi, þykir útlitið þó ekki alveg eins slæmt og á miðviku dag. Einn helzti leiðtoginn í hópi stuðningsmanna Ben Bella, Ahra ed Boumendjel, lýsti því yfir á blaðamannafundi í Oran, að hin nýstofnaða stjórnarnefnd, sem Ben Bella og fylgismenn hans hafa tögl og hagldir í, hefði nú tekið stjórn landsins í sínar hendur. Liðsflutningar hannaðir Hefirr nefndin m. a. bannað hersveitunum í þeim þrem lands hlutum, sem Ben Bella hefur náð fótfestu í, að flytja nokkurt lið til annarra svæða. Sagði Boumendjel, að fyrirskipun þessi hefði verið gefin út, til þess að forðast vopnuð átök milli herflokka, sem væru á öndverðum meiði í stjórnmála- átökunum. Stuðningsmenn Ben Bella hjuggu sig í dag undir að ná algjörum yfirráðum í Ai- geirsborg sjálfri, en þar voru fyrir sveitir hermanna, sem tryggð halda við Ben Khedda. Er enn ekki útséð, Framhald á bls. 19. Ýmis fundarhöld SAMKVÆMT frétt frá NTB fréttastofunni hefur verið á- kveðið að halda í haust ráð stefnu aðildarríkja Efnahags handalags Evrópu um fisk- veiðamál. í tilefni fréttar þessarar sneri Mbl. sér í gær til Jónas ar Haralz, ráðunautar ríkis- stjórnarinnar í málefnum efnahagsbandalagsins og innti hann nánari fregna af fundar höldum þessum. Slkýrði Jónas Haralz M!bl. svo frá, að viðskiptamálaráðherra, dr. Gylfi Þ. Gíslasyni, hefði verið skýrt frá þessum áformum, þegar hann var í Briissel fyrir skemmsbu og væru þau í stuttu máli sem hiér gxeinir: Aðeins fulltrúar landa sex, fyrirhuguð i haust sem nú þegar eru aðilar að Efna- hagsbandalagi Evrópu, munu taka þátt í umræðunum. Er fyrst áformað að halda ráðstefnu, þar sem mættir verða fulltrúar ríkis- stjórna landanna; síðan aðra, sem sækja munu fulltrúar hagsmuna- samtaka í sjávarútvegi innan 6-veldanna, og verður hún haldin seinna í haust. Eftir báðar þessar ráðstefnur er svo ætlunin að starfslið efna- hagsbandalagsins hefji undirbún- ing að umræðum, sem síðgn munu fara fram innan bandalags ins, um sameiginlega stefnu að- ildarríkjanna í þeim málum, er fiskveiðar og viðskipti með sjáv- arafurðir snerta. Tækifæri til að fylgjast með Enda þótt engin þjóð, sem ekki er orðin aðili að bandalaginu, muni eiga þess kost að taka þátt í framangreindum íundarhöldum og viðræðum, er gert ráð fyrir að þeim rikjum, sem áhuga hafa á mál-um þessum, verði gefið tæki- færi til að fylgjast á einhvern hátt með því markverðasta, sem ■þar gerist. Ennifremur munu riki utan bandalagsins fá möguleika á að koma á framfæri sjónarmiðum sínum, varðandi atriði, er hags- munir þeirra snerta. Að sjálf- sögðu eru þó aðildarríki banda- lagsins alls óbundin af þeim við mótun stefnu sinnar, áður en þau ganga til samninga við önnur ríki. Sjónarmið Norðmanna Þess má að lofcum geta, að í norskum fréttum er greint frá iþeim ummælum fiskimálaráð- herrans, Nils Lysö, í viðtali við „SunnmörsFK>sten‘‘, að Norðmenn telji mjög miklu skipta, að fá sem allra fyrst aðlid að umræð- um um mörkun stefnunnar í fiskimálum innan Efnahagsbanda lagsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.