Morgunblaðið - 21.08.1962, Blaðsíða 2
MÖHCUNRLAÐIÐ
Þriðjudagur 21. ágúst 1962 1
Fjölmenni á héraðs
móti í Reykjanesi
HÉRABSMÓT Sjálfstaeðismanna
við ísafjarðardjúp var haldið í
Reykjanesi s.l. sunnudag. Sótti
það fjölmenm víðsvegar að úr
héraðinu.
Sigurður Bjarnason ritstjóri
setti mótið með stuttu ávarpi en
ræður fluttu Ingólfur Jónsson
landbúnaðarráðherra og Þorvald
ur Garðar Kristjánsson fram-
kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokks-
ins.
Þá flutti Páll Aðalsteinsson
skólastjóri í Reykjanesi ávarp.
Minntist hann þess að á þessu
sumri eru liðin 20 ár síðan Sig-
urður Bjarnason var kjörinn þing
maður Norður-ísfirðinga. Þakk-
aði ræðumaður honum fyrir mik-
ið og fjölþætt starf í þágu héraðs
búa og forystu um mörg nytja-
mál í þágu þjóðarinnar í heild.
Tóku samkomugestir undir orð
skólastjórans með öflugu lófa-
taki.
Guðmundur Jónsson óperu-
söngvari söng einsöng við undir
I
Guðmundur
ú Móum lútinnl
GUE>MUNOlTR Guðmundsson
Skipstjóri og bóndi á Móum á
Kjalarnesi lézt á heimili sinu á
sunnudagsmorgun 78 ára að
aldri. Hann hafði átt við nokkra
vaniheilsu að striða.
Guðmundur var sonur Guð-
muaidar bónda og útgerðarmanns
Guðmundssonar á Nesi á Seltjain
arnesi og Kristínar Ólafsdóttur.
Hann var lengi skipstjóri á tog-
urum Kveldúlfs og landsiþekkt-
ur aflamaður. Árið 1932 hætti
hann Skipstjórn og keypti Móa
á Kjalarnesi. Þar bjó hann stór-
'búi til 1950, er Teitur sonur hans
tók við búi. Guðmundur var
mikill athafnamaður. Hann
gegndi ýmsum trúnaðarstcrfum
fyrir sveit sína, var í hreppsnefnd
í mörg ár og stjórn Búnaðarfél-
ags Kjaiameshrepps.
Guðmundur var kvæntur Krist
írtu Teitsdóttur sem lifir mann
sinn og eignuðust þau 4 böm,
seim öll eru á iífi.
Roíhlöðufyrir-
tæki Hellesens
75 óru
í DAG, hxnn 21. ágúst, er danska
fyrirtækið A/S HELLESENE 75
ára gamalt. Fyrirtæki þetta er
frægt um alla Evrópu og víðar
fyrir rafhlöður sínar, sem náð
hafa mikilli útbreiðslu. Frum-
kvöðull fyrirtækisins vax Daninn
Wil'hem Hellesen, sem á sínum
túna náði mjög merkum árangri
í framleiðslu á þurrum rafhlöð-
um. Hlaut sú uppfinriir.g hans
þegar mjög góðar viðtökur og
hefur A/S H°besen æ síðan ver
ið í allra fremstu róð rafhlöðu-
fnamleiðenda. Fyrirtækið, sem
Ihóf göngu sína í lítilii bifreiða-
geymslu við Vodroffsvej í Kaup
mannahöfn er nú stórt og vold-
ugt og hefur aðsetur við Alders-
rogade. — Sjálfur lézt Hellesen
árið 1892 en ekkja hans hélt þá
áfram rekstri fyrirtækisins um
skeið og upp frá því hefur það
verið í höndum ýmissa dugmik-
illa manna, svo sem vegur þess
og viðgangur ber vott um.
jONDON, 20. ágúst — NTB-AP
— Lady Churchill skýrði frá því
dag, að Sir Winston Churchill
rrði útskrifaður af Middlesex-
ijúkrahúsinu á hádegi á morgun
iþriðjudag). Sir Winston hefur
m dvalizt í sjúkrahúsinu í 54
laga.
leik Fritz Weisshappel. Einnig
söng frú Sigurveig Hjaltesed ein
söng. Fluttur var gamanleikur-
inn „Heimilisfriður" eftir Georg
es Courtline og fóru leikararnir
Rúrik Haraldsson og Guðrún Ás-
mundsdóttir með hlutverkin.
Þá sungu þau Guðmundur Jóns-
son og Sigurveig Hjaltested tví-
söng við undirleik Fritz Weiss-
happel. Ennfremur fór Rúrik Har
aldsson með þátt úr „My fair
Lady“.
Bæði ræðumönnum og lista-
fólkinu var ágætlega fagnað.
Baldur Bjarnason bóndi í Vigur
stjórnaði mótinu. Að lokum var
dansað og lék hljómsveit frá ísa-
firði fyrir dansinum. Fór þetta
héraðsmót Sjálfstæðismanna við
Djúp hið bezta fram.
Enn átök við Ber-
linarmúrinn
Sefuliðsstjóri Russa hafnar
viðræðum
Berlin 20. ágúst.
— NTB — REUTER
• í DAG kom enn til átaka
við múrinn í Berlín, en þar
hefur mikil sorgarreiði verið ríkj
andi vegna þess atburðar er
austur-þýzkir verðir skuiu til
bana átján ára piit, er reyndi að
flýja til V-Beriín — og létu hann
liggja meira en klukkustund í
blóði sinu, án þess að gefa þvi
gaum, hvort hanm væri lífs eða
liðinn.
• Hundruð manna hafa safn-
azt að múmum í dag og
austur- og vestur þýzkir iögreglu
verðir skipzt á táragassprengj-
um.
• Setuliðsstjórar Vesturveld-
anna í Berlín óskuðu í dag
eftir því við setuliðsstjóra Rússa,
að haldinn yrði fundur um málið,
en hamn hefur meitað að tala við
þá. — Sendi hann fundarbeiðni
þeirra um hæi með þehn orðum
að hann óskaði ekki að ræða
efni hennar.
Setuliðsstjórarnir og borgar-
stjóm V-Berlinar sátu lengi á
fumdum í dag, vegna þessa, og
yfirborgarstjórinn Willy Brandt
hefur hvatt borgarbúa til þess að
sýna ró og stillingu. Segir hann
lögreglu hafa fengið fyrirmæli
um að gripa með hörku í taum-
ana, ef bessum tilmælum hans
verði ekiki sinnt.
Ráðist var í dag með grjót-
kasti á áætlunarbíl, sem flutti
rússneska hermenn til sovézka
minnismerkisins í V-Berlín. —
Allar rúður voru brotnar í bif-
reiðinni og talið, að einhver hafi
meiðzt, en þegar hún kom að
Friedrichstrasse, bægðu banda-
rískir hermenn fólkinu frá og
fylgdu Rússunum að minnismerk
inu. íbúar Vestur-Berlínar hafa
marg sýnt bandarískum hermönn
um andúð síðan ungi maðurinn
var skotinn, því að mörgum
/^NA IShnitor
5V50hnútor
H Snjúti
» 05/
7 Skúrir
E Þrumur
^ . KuUoM
Zs4 HiUih/t
H Hm$ |
L Lmt* I
LÆGÐIN fyrir sunnan land
varð kyrrstæð í gær, teygði
sig jafnvel til norðausturs. —
Lægðin SV af Grænlandi
hreyfðist hins vegar aust-
norðaustur, og virtist svo
sem þessar tvær lægðir
mundu sameinast í eina.
Austan lands var þokuloft
og rigning, en við Faxaflóa
og Breiðafjörð var þurrt og
víða bjart veður. — Hitinn
komst í 15° í Reykjavík kl.
15. —
Veðurspáin kl. 10 í gær-
kvöldi:
SV land og miðin: Breytileg
átt, skúrir.
Faxaflói, Breiðafjörður og '
miðin: Austan eða NA kaldi,
þurrt vc-ður.
Vestfirðir og miðin: NA
kaldi, þekuloft og rigning
norðan til.
Norðurland til Austfjarða
og miðin og austurdjúp: Aust-
an kaldi eða stinningskaldi,
þokuloft og rigning öðru
hverju.
SA-land og miðin: Austan
kaldi, skúrii-.
Horfur á miðvikudag:
Austan og NA átt, dálítil
rigning á Suðurlandi og Aust
fjörðum en þurrt að mestu
norðan- og vestanlands.
finnst, sem þeir hefðu átt að
taka í taumana og jaínvel að-
stoða hann á flóttanum. Vestur-
Þýzka blaðið Allgemeine Zeitung
í Essen sem er óháð, skrifar í
dag, að þessi afstaða Þjóðverj-
anna sé heimskuleg. Eðlilegt sé,
að tilfinningum manna verði Of-
böðið, þegar slíkir atlburðir
hendi, en að veita þeim útrás í
andúð á Bandaríkjamönnum, sem
hafi verið V-Berlínarbúum til
traust og halds öllum öðrum
fremur, sé marklaus heimska.
KLUKKAN um hálf sjö í gær-
kvöldi vildi það óhapp til á í-
þróttaæfingu á Melavellinum að
15 ára gamall piltur, Halldór
Einarsson, fékk spjót gegnum
ristina. Var hann fluttur í
Slysavarðstofuna.
GAMLA húsið I Suðurgötu 2,’
sem einu sinni var vinsæll
veitingastaður maddömu Sírí
Ottesen, gegnir nú aftur sínu
gamla hlutverki eftir flutn-|
inginn í Árbæjarsafn. Þar var,
setinn bekkurinn um helgina,'
á 176. afmælisdegi borgarinn-
ar. Yfir húsinu blaktir merki
Reykjavíkur, en Norðurlanda
fánarnir, að hinum færeyska;
meðtöldum, framan við kaffi-
pallinn, þar sem eru sæti fyr-
ir um 40 manns. Gamli „píu-
ball“-salur Reykjavíkur frá
tíð maddömu Ottesen er nú
kaffistofa og rúmast 40
manns við kaffidrykkju í
sjálfu húsinu, en þar er auk
þess mikið skarsúðarloft, þar
sem setið er á gömlum fata-
kistum með dýrindis söðul-
áklæðum gömlum. Um helg-
ina komu í Árbæjarsafn um
1200 manns, en þar var til
skemmtunar, að tilefni af-
mælisins, hornablástur lúðra-
sveitarinnar Svan, glímu-
sýning og þjóðdansar á palli
Áströlsk stúlka sigr-
aði á Langasandi
Fegurðarsamkeppninni á Langa
sandi er nú lokið og varð sigur-
Stofnað Fulltrúa-
ráð Vestur-Isa-
fjarðarsýslu
ÞANN 2. ágúst s.l. var haldinn
stofnfundur Fulltrúaráðs Sjálf-
stæðisfélaganna í Vestur-ísafjarð
arsýslu. Fur.durinn var haldinn
á Flateyri. Fundarstjóri var Arn
grimur Jónsson, skólastjóri, Núpi
og fundarritarj Jón Kristjánsson,
skólastjóri, Suðureyri.
Þorvaldur Garðar Kristjánsson,
framkvæmdastjóri Sjálfstæðis-
flokksins ræddi um skipulagsmál
flokksins og lagði fram frumvarp
að lögum fyrir Fulltrúaráðið og
gat helztu verkefna þess.
Stjórn Fulltrúaráðsins skipa:
Arngrímur Jónsson, skólastjóri,
Núpi, formaður, Jónas Ólafsson,
Þingeyri, Óskar Kristjánsson,
Suðureyri, Rafn A. Pétursson,
Flateyri, Jón Kristinsson, Suður-
eyri, Jón Stefánsson, Flateyri og
Sturla Ebenezer, Flateyri.
Funduiím kaus fulltrúa í kjör-
dæmisráð Sjálfstæðisflokksins í
Vestfj arðakjördæmi.
Axel Jónsson, fulltrúi, ávarp-
aði fundinn og árnaði hinu ný-
stofnaða fuUtrúap'ði heilla í
störfum.
vegari áströlsk stúlka, Tania
Verstak.
Fulltrúi íslands María Guð-
mundsdóttir, varð sem kunniugt
er ein af þeim fimmtán, sem
kepptu til úrslita, en hún komst
ekki í hóp hinna fimm efstu.
Eftir því sem blaðið veit bezt,
mun María dveljast í Kaliforníu
í vikutíma, þar sem íslendinga-
félagið ætlaði m.a. að halda
henni veizlu. Síðan fer hún til
New York og verður þar í viku
hjá tízkufyrirtæki, sem hún kem
ur til með að starfa fyrir eftir
áramóL
Fékk málmflísar
í kYÍðarholið
VESTMANNAEYJUM, 20. ágús
- Andrés Guðmundsson, bílstjó:
var sl. laugardag að taka til hj
sér og hlóð vörubíl fullan me
dóti. Ók hann með það vestur
hamar og ætlaði að henda þ'
og kveikja í því þar. Með eir
hverjum hætti varð sprenging ser
þeytti málmögnum inn í kviðai
holið á honum. Var hann fluttt
á sjúkrahúsið hér. Um nóttir
var líðan hans þannig, að sjúkr:
húslæknirinn fékk sjúkrafluí
vél og var hann sendur suði
þar sem hann var skorinn up]
Læknirinn veitti þær upplýsinj
ar síðdegis í dag að líðan manni
ins hefði verið eftir atvikum. -