Morgunblaðið - 21.08.1962, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 21.08.1962, Blaðsíða 24
Fréttasímar Mbl — eftir lokun — Erler.dar fréttir: 2-24-85 Innlendat fréttir: 2-24-84 ofgvmliíaiíJi/íi Fiskimálaráðstefna Sjá bls. 8. 189. tbl. — Þriðjudagur 21. ágúst 1962 Sjómaður drukkn- aði á miðunum Fór með nótinni útbyrðis NESKAUPSTAÐ, 20. ágúst. — JÞað sviplega slys varð síðari hluta dags í gær á síldarmiðun- um, 90 sjómílur fyrir austan Dala tanga, að einn skipverja af vél- skipinu Þráni tók út með nót- inni, þar sem skipið var að veið- um, og drukknaði hann. Skipverji þessi hét Þorgeir Ól- afsson, 31 árs að aldri. Var hann kvæntur og átti 2 börn. — Hann var búsettur að Egilsstöð- um á Völlum, var smiður að menntun. Hafði stundað húsa- smíðar að undanförnu, en brá sér á síldveiðar í sumar. Lík Þorgeirs heitins fannst ekki, þrátt fyrir mikla leit á slysstað. Vélskipið Þráinn kom hingað til Neskaupstaðar í morgun og hófust sjópróf út af slysinu í Neskaupstað í dag. Er frétt þessi byggð á upplýsingum, sem fengn ar eru hjá bæjarfógetanum hér, Ófeigi Eiríkssyni Skv. þeim eru nánari tildrög slyssins sem hér segir: Vélkipið Þráinn NK 70 vax í gær að veiðum 90 sjómíl- ur austur hálft af norðri af Dalatanga. Á Þráni eru 11 skip- verjar undir skipstjórn Jóns Ölverssonar. Skipið er 90 lestir að stærð, nýlega uppgert og eign Ölvers Guðmundssonar, föður skipstjórans. Það stundaði síld- veiðar með hringnót og kraft- blökk. Fastur i nótinni Skipverjar köstuðu fyrir há- degi í gær og fengu þá 500 mál. Síðari hluta dagsins eða kl. 16.30, var aftur kastað eftir lóðningu sem sézt hafði á fisksjá skipsins. Þegar verið var að enda við það kast og skipið komið að bauju, var það stöðvað eða að stöðvast. Veður var gott, SV-andvari og sléttur sjór. Skyndilega heyra skipverjar Þorgeir Ólafsson kalla að hann sé fastur í nótinni. Er fþeir líta í áttina til hans e<r hann að hverfa yfir borðstokkinn í Framhald á bls. 23. FLESTUM munu enn í fersku minni hin dapurlegu endalok þessarar dáðu kvikmynda- stjörnu, enda skammt um liðið. En marga mun fýsa að kynnast nánar aðdraganda þeirra, sem segja má að hefj- i Marilyn Monroe ist þegar við fæðingu hennar og hafi síðan þróazt, jafnt og markvisst, þar til yfir lauk. Blaðamaðurinn og rithöf- undurinn Maurice Zolotow hefur ritað ævisögu Maril.yn Monroe, eftir beztu heimild- um, sern fengizt gátu. Ævisag an kom út í bókarformi fyrir tæpur.i tveimur árum, eða í októberrnánuði 1960. Morgun- blaðið hefur nú fengið birt- ingarrétt á ævisögunni, og mun hún birtast sem fram- haldssaga í blaðinu, næstu vikur og mánuði, samhSiða hinni sögunni, sem hafin er fyrir nokkru. HÉRAÐSMÓT Sjálfstæðismanna í Borgarnesi 25. ágúst HÉRAÐSMÓT Sjálfstæðismanna í Mýrarsýslu verður hald ið í Borgarnesi nk. laugardag, 25. ágúst, kl. 8,30 e. h. Ólafur Thors, forsætisráð- | herra, og Ásgeir Pétursson, sýslumaður, flytja ræður. Þá verður sýndur gaman- leikurinn „Mótlætið göfgar“ eftir Leonard White, í þýð- ingu Vals Gíslasonar leikara. — Með hlutverk fara leik- ararnir Valur Gíslason og Helga Valtýsdóttir. Ennfremur verður til skemmtunar einsöngur og tvísöng- ur. — Flytjendur eru Kristinn Hallsson, óperusöngvari, Þórunn Ólafsdóttir, söngkona, og Skúli Halldórsson, píanó- leikari. — Dansleikur verður um kvöldið. lafur Ásgeir V - v\v • S w.»»r-' • OM Um hádegisbilið í gær var árekstur á Suður- landsbraut. Var traktor að koma inn eftir Suð- urlandsbrautinni, þegar bifreið ók hiklaust af Holtavegi inn á aðalbrautina. Varð af því mik- ið högg, er farartækin lentu saman, en ekki varð slys á mönnum. Tjdn af austurviðskiptunum Greinargerð byggingarefnakaupmanna sýnir að það hefur numið háum fjárhæðum GREINARGERÐ sem Fé- lag íslenzkra byggingarefna- kaupmanna hefur sent frá r sézt, að húsbyggjendur hafa orðið fyrir miklu tjóni af því að vera tilneyddir að- kaupa vörur, sem fluttar hafa verið inn frá kommún- istaríkjunum. Er þar oft um lélegri vörur að ræða og einnig allt upp í 40% dýrari en á frjálsum mörkuðum. Við aukið frjálsræði í inn- flutningsverzluninni hafa nokkrar úrbætur fengizt og auðveldara er að semja við þessi ríki, þegar þeim er Ijóst, að okkur er ekki nauð- ugur einn kostur að kaupa vörurnar þaðan. Samt telur Félag ísl. byggingarefna- kaupmanna nauðsynlegt, að allar byggingarvörur verði settar á frílista, og þar með T résmíðaverk- falli aflýst Samningar tókust eftir 20 tíma fund SAMNINGAR tókust um kaup og kjör milli Trésmiðafélags Reykjavíkur og Meistarafélags húsasmiða í Reykjavík, eftir að fulltrúar deiluaðila höfðu setið á fundi í rúma 20 tíma sam- fleytt. Voru fundir í gærkvöldi í báðum félögunum og var samningurinn samþykktur af báðum aðilum. Er því verkfalli trésmiða aflýst. Sáttasemjari boíaði fulltrúa deiluaðila á fund kl. 9 á sunnu- dagskvöld, en á miðnætti átti að hefjast boðað verkfall. Lauk fundinum ekki fyrr en kl. hálf sex síðdegis á mánudag, en þá skrifuðu fulltrúar undir kaup- og kjarasamning. Samkvæmt nýja samningnum fá trésmiðir kr. 30,50 á tímann í dagvinnu, og vélamenn kr. 32.50. Ákvæðis- vinna hækkar um 8% og verk- færapeningar verða kr. 1.45 á tímann í stað 1,20. Kaup- og kjarasamningurinn gildir til 15. maí 1964, þó þannig að ef vísitala hækkar um ákveð- inn hundraðshluta, geta samn- ingar verið uppsegjanlegir fyrr. — Málefnasamningurinn gildir hins vegar sMly 'ðislaust til 15. maí 1964. tryggð hagkvæmust innkaup bæði frá austri og vestri. Greinargerð Félags bygg- ingarefnakaupmanna, sem nefnist Austurviðskiptin frá sjónarmiði byggingarefna- kaupmanna, fer hér á eftir: „VEGNA hinna mörgu og tíðu skrifa um viðskiptin við Austur Evxópu telur Fél. ísl. Byiglgingar- efnakaupmanna rértt að skýra almenningi frá þeim þáttum við skiptanna, er snerta innflutning byggingarefnis sem hefur verið stór hluti þeirra viðskipta. Flestar bygigingarvörur hefur nú um langt árabil orðið að flytja inn frá A u s tu r -Bv rópu vegna svo nefndra jafnvirðis- kaupa, eða með öðrum orðum, útflutningur ofckar til þessara landa hefur aðeins fengizt greidld ur með því að kaupa af þeim þeirra framleiðslu í staðinn, hvort sem okkur lílkar þeirra vör ur betur eða verr. í miörgum til- fellum hafa þessi innkaup verið svo óhagstæð að segja miá að út- flutningur okkar hafi verið verð bættur með hreinum skatti á hús byggjendur. Þar sem nú standa fyrir dyr- Framih. á bls. 11 HÉRAÐSMOT Sjálfstæðismanna í Skúlagarði 25. ágúst HÉRAÐSMÓT Sjálfstæðismanna í Norður-Þingeyjarsýslu verður haldið í Skúlagarði næstkomandi laugardag, 25. ágúst, klukkan 9 e. h. Bjami Benediktsson, dóms- málaráðherra, og Bjartmar Guðmundsson, alþingismað- ur, flytja ræður. Þá verður sýndur gaman- leikurinn „Heimilisfriður“ eftir Georges Courteline, í þýðingu Árna Guðnasonar, magisters. Með hlutverk fara leikararnir Rúrik Haraldsson og Guðrún Ásmundsdóttir. Ennfremur verður til skemmtunar einsöngur og tví- söngur. Flytjendur eru óperusöngvararnir Guðmundur Jónsson og frú Sigurveig Hjaltested, o<? undúrleik aouast Fritz Weisshappel, píanóleikari. Dansleikur verður um kvöldið. Bjarni Bjartmar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.