Morgunblaðið - 21.08.1962, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 21.08.1962, Blaðsíða 10
MORCIN RT 4ÐIÐ ÞrlSJurJagur 21. Sgðst 19ð2 - 10 — Sorg i Berhn Framh. af bls 1 Atburðurinn vakti andúð, viðbjóð og fyrirlitningu þeirra V-Berlínarbúa, er horfðu upp á þessar hryllilegu aðfarir. Gerð voru hróp að a-þýzku lögreglunni og lang- an tíma tók að sefja fólkið. Þessi atburður spurðist ekki til Moskvu, þar sem menn komu saman, geimfarar og for ingjar til að faðmast, almenn- ingur til að hrifast. Á framhíið grafhýsis Lenins í Moskvu blasti við stór mynd af Lenin, auk fána hinna 15 Sovétvelda f>á var sögusafnið, er snýr út að Rauða torginu skreytt með risastórum mynd- um af geimförunum „Vostock 111“ og „Vostock IV“. 52 metra langri eldflaug var og komið Krúsjeff, forsætisráðherra, faðmar Popovitsj, ofursta, við komuna til Vnukovo-flugvallar fyr- ir utan Moskvu, á laugardag. Xil hægri fallast þ eir í faðma, Anastas Mikoyan og Nikolayev, majór. — Karlakossar í Moskvu fyrir þar á torginu, sem lýst er upp að kvöldi, þannig að mest líkist því, sem um raun- verulegt geimflug sé að ræða. Krúsjeíf. forsætisráðherra, gerði hlé á sumarleyfi sínu til Krúsjeff stendur ásamt Nikolayev <t.v.) og Popovitsj miðju) á grafhýsi Lenins við Rauða torgið í Moskvu. að taka á móti geimförunum, er þeir komu til Moskvu. Flug vél þeirra lenti á Vnukovo- flugvellinum 12 km fyrir utan borgina, en síðan var ekið inn í Moskvu. þar sem mannfjöld- inn hafði beðið þess síðan í dögun að fá að fagna hetjun- um. Þar hélt Krúsjeff ræðu, lýsti sigri sósíalismans og bar lof á afrekið. Landvarnáráðherra Rússa, flutti ræðu í tilefni geimflugs ins, þar sem hann benti „auð valdsríkjunum" á, að veldi Rússa vær nú slíkt, að óhugs - andi væri fyrir nokkurn að efna til átaka, af því hlytist gereyðing árásaraðilans. Sjónvarpað var frá hátíð- inni í Rússlandi, og myndir voru einnig sendar til Evrópu, þar sem sjónvarpseigendur gátu séð, hvað fram fór. í lok hátíðahaldanna var til- kynnt um enn eitt afrek Rússa á sviði geimvísinda. Þeir höfðu sent á loft nýjan gervi- hnött, „Kosmos VIII“. Þótt Rússar hafi valið árs- afmæli Berlínarmúrsins til þesá að efna til mestu geim- ferðar sögunnar, þá felur það ekki tilveru múrsins. Það kom líks í ljós, að þrátt fyrir öll geimvísindaafrek kommún ista, þá hættu menn enn lífi sínu til að klifa múrinn í Ber- lín til frelsisins, eins og fram kom á föstudag. Hins vegar mun fæstum til hugar hafa komið, að villimennska komm únista væri komin á það stig, að þeir létu helsærða menn liggja óhreyfða langtímum saman, fyrir augum alheims. Hátíðahöldin á laugardag megna ekki að fela slíkan við- bjóð. Jdna Pálma- iéitir — Kveðfa Jóna Pálmadóttir forstöð r* kona Þvotta'bússins Dríi'u lézt I Landsspítalanum sl. laugardag, og' var jarðsungin í gær. Jóna Pálmadóttir stofnaði ásamt öðrum, Þvottahúsið Drífu á Baldursgötu 7 fyrir 32 árum og hefur alla tíð rekið bað með miklum myndarorag. Hún skildi gildi þjónustunnar, leysti öll sín störf af hendi á þann hátt að alla viðskiptavini og samstarfsfólíc eignaðist hún a'ð vinum. Vand- virkni var hennar eir.kenni og hoðorð. Árið 1948 mynduðu öll þvotta húsin í Rey'kjavík „Félag þvotta húseigenda". Jóna var kjörin fyrsti formaður þess og gegndi því starfi til h'.nztu stundar. Jóna vnnn ötullega að sam- eiginiegem áhugamálum þvotta- húsa og reyndist í því starfi s‘oð og styíta sinna eigin keppmauta. Eg átti því láni að fagna að kynnast Jónu íyrir nokkvum ár um og þau kynni voru traustvekj andi. Hún valdi rínar eigin ieið ir en vegur hennar var bjaitur og traustur. Eg þakka fyrir þau kynni. Félag þvottahúseigenda þakk- ar henni ómetanlegt starf i þagu samtakanna. Blessuð sé minning hennar. Sigurjón Þórðarson. Jarðariör Sigmund- ar Sveinssonar drólegt á Spáni Námum lokað — Plasfsprengingar í aðsetrum blaoa ÞAÐ var ánægjulegt að kjósa í Miðbæjarbarnaskólanum árið 1944 um lýðveldisstjórnarskrána. Allir brostu vinsamlega hver til annars, likt og ferðafélagar í óbyggðaferð. 97% af þjóðinni var "*einu sinni sammála. Einn af fyrrverandi starfsmönn um Miðbæjarbarnaskólans, Sig- mundur Sveinsson, 92 ára var jarðsettur um helgina. Hann var einn af þeim fáu útvöldu, sem átti vini og kunningja á öllum aldri og öllum stjórnmálaflokk- um, og sem allstaðar kom fram til góðs. Lýðveldisárið missti hann konu sína eftir margra ára fársæla sam búð. Hþn var ættuð úr Land- eyjum og fermd að Voðmúlastöð um. Unni hún þeim stað mikið. Hún og sum fermingarsystkini hennar söknuðu þess, þegar kirkj an þar var lögð niður um 1910, og töluðu oft um það, að gaman r-væri að endurreisa kirkjuna. En í dagsins önn varð ekki af fram- kvæmdum. En Sigmundur mundi eftir þess arri óslr konu sinnar og eftir lát hennar vann hann að þvi með vinum sínum í nágrenni Voðmúla staða og fjölskyldu, að kirkjan yrði byggð. Nú stendur þarna vinaleg hvítmáluð kirkja. Eins og íslendingar voru sam- mála um lýðveldi sitt 1944 voru vinir og kunningjar Sigmundar heitins á einu máli, um að sýna honum lotningu sína í verki. Sl. föstudag fór fram virðuleg minningarathöfn í Dómkirkjunni. Síðar um daginn var kistan flutt að Voðmúlastöðum. Þegar þang- að kom var þar fyrir presturinn sr. Sigurður á Bergþórshvoli og fólk af næstu bæjum, spariklætt. Það hafði lagt niður vinnu um heyskapartímann til þess að heiðra minningu vinar síns Sig- mundar, sem kom í sína síðustu heimsókn til þeirra. Presturinn flutti bæn og bauð hann velkom- inn. Aðstendendur, sem þarna voru viðstaddir, hafa sagt mér, að þessarri samúð og hlýju gleymi þeir aldrei. Jarðarförin fór fram daginn eftir. Margt fólk úr Reykjavík langaði til að vera við jarðar- förina á Voðmúlastöðum. Þá var það sem Ólafur KetilssOn frá Laugarvatni, bauð endurgjalds- laust, fallegasta bilinn sinn til fararinnar. Þarna stóð svo Ólafur á B.S.Í. kl. 9,30 f.h. á laugardag, í hvítri skyrtu við hliðina á ,,fáknum“ sínum og við stigum upp í bílinn. Nokkrar konur höfðu köku- kassa með til erfidrykkjunnar. Jón ísleifsson organleikari hafði boðizt til að spila. Þegar við kom um að Voðmúla, var kirkjan full- setin, og margt manna stóð fyrir utan. Var okkur boðið inn i heim ilið á Voðmúlastöðum og sátum við og hlustuðum þar á athöfnina frá hátalara. Við útgöngulagið gengum við í kirkjugarð og sáum þegar kist- an var borin út. Það voru hraust legir bændur, sem báru kistuna. Kórinn, aðallega konur, sungu yfir kistunni við gröfina, Sig- mundur Sveinsson var kominn til konu sinnar. Sveitungar henn- ar báru hann síðasta spölinn hér á jörð, og sungu yfir honum að lokum. í Gunnarshólma, félagsheimili sveitarinnar, þáðu á annað hundrað manns veitingar hjá börnum Sigmundar. Þarna voru börn hans, tengdabörn og barna- börn. Sigmundur hafðí verið hraustur og lífsglaður alla ævi. Hann hafði gefið lýðveldinu okk ar myndarleg börn og farsæla þjóðfélagsþegna. Auður Jónasdóttir. Stöndum enn framar — segir Seaborg Washington, 20. ágúst — NTB Reuter. DR. Glenn Seaborg, formaður bandarísku kjarnorkumálanefnd- arinnar segir í viðtalt, sem birt- izt í nýútkomnu hefti af banda- riska tímaritinu U. S. News & World Report, að hann sé þeirrar skoðunar, að Bandaríkjamenn standi enn framar Rússum um framleiðslu kjarnorkuvopna — þrátt fyrir þann árangur, sem Rússar hafi náð með síðustu til- raimniM ^íntitn. Madrid, 20. ágúst — NTB-AP — H A F T er eftir áreiðanlegum heimildum, að héraðsstjórinn í Asturias-héraðinu á Spáni hafi látið loka fjórum kolanámum vegna óhlýðni námaverkamanna. Meðal þeirra náma er sögð nám- an La Nicolasa, en þar átti upp- haf sitt verkfallsaldan, sem gekk yfir landið í vor. Fréttir, sem bárust til Madrid síðdegis í dag, hermdu, að óeirð- ir hefðu nú byrjað við Ventura- námuna, en verkamenn þar höfðu tekið til sinna ráða til stuðnings einum úr þeirra hópi, er hafði verið hótað uppsögn. Manninum var ekki sagt upp, en námunni lokað. í La Nicolasa-námunni í Mieres-héraðinu, San Jose-nám- unni í Turren-héraði og í þriðju námunni, sem er ónafngreind, en sögð lítil, kröfðust náma- verkamenn sama vikulega vinnu tíma og tíðkast í brezkum nám- um. Vinnuveitendur höfnuðu kröfunni þegar í stað og verka- menn gerðu þá verkfall. Þessu svöruðu yfirvöldin í héruðunum með verkbanni. í Madrid er bent á, að þótt enn sé órói þessi á takmörkuðu svæði, sýni hann að námaverka- menn hafi ekki misst moðinn fra , . s tu ftoAe i vor. 1 Barcelona og Madrid hafa allmargar smáar sprengjur sprungið síðustu daga og valdið nokkrum skemmdum. Síðast í dag særðust tveir blaðamenn alvarlega þegar plastsprengja sprakk fyrir framan skrifstofur blaðsins La Vanguardia í Barce- lona. Var það þriðja sprenging- in, sem verður við aðsetur spænskra blaða á tólf klukku- stundum. Hinar sprengjurnar sprungu i Madrid, önnur í prentsmiðju blaðsins „J Y Ya“, sem er málgagn kaþólskra og hin í skrifstofu blaðsins „Pu- eblo“, sem styður falangista. f- báðum tilfellum urðu skemmdir litlar og engin meiðsl á mönn- um. f gær sprakk allstór sprengja tæpa þrjú hundruð metra frá sumarhúsi Franco hershöfðingja í San Sebastian, en hann var væntanlegur þangað í orlof í dag. Fjölskylda hans var þegar komin þangað, en ekki er vitað um skemmdir. Haft er eftir tals- manni stjórnarinnar, að fyrir sprengingunni í San Sebastian hafi ugglaust staðið Baskar, en þeir grípi til sTíkra aðgerða á hverju ári.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.