Morgunblaðið - 21.08.1962, Page 3

Morgunblaðið - 21.08.1962, Page 3
fi Þriðjudagur 21. ágúst 1962 MORGVWnT. 4Ð1Ð 1 3 1 GÆR kom Ingólfur Þórðar- son, skipstjóri á Hval 6 inn með langreið. Var það þúsund asti hvalurinn, sem hann hef- ur veitt frá því hann varð skip S^óri og skytta. í fyrra veiddi annar skipstjóri, Kristján Þor- láksson sem nú er á Hval 8, sinn þúsundasta hval, og munu þessir tveir skipstjórar vera einu mennirnir, sem hafa fengið svo mörg stórhveli í N orð urhöf um. Sem kunnugt er varð Ingólf ur í sumar fyrir því óhappi um borð, er hann var að skjóta hval, að skutull hrökk úr hvalnurn og snerti höfuð hans. Hlaut hann slæm meiðzl og Ingólfur Þórðarson, skipstjóri, með fjölskyldu sinni. Myndin var tekin í vor, er fjölskyldan var að fylgja honum til skips. Kom í gær þúsundasta varð sð flytja hann í sjúkra- unblaðið átti við Ingólf í gær, hús í Raykjavík. Var Ingólfur sagðist hann hafa náð sér þá 20 daga í landi. furðu vel og fljótt eftir meiðzl í örstuttu símtali, sem Morg in, og væri kominn í fullan með gang aftur. Ingólfur var á leið á miðin aftur, sagði að veiðin gengi mjög' vel hjá öllum bát- unum og veður hefði verið sérlega gott. Ingólfur er liðlega 41 árs, Austfirðingur að ætt og hefur stundað sjá frá blautu barns- beini. Hann var skipstjóri á síldveiðiskipum áður en hann sneri sér að hvalveiðum, en hann gerðist skipstjóri á Hval 1 árið 1953, en árið eftir varð hann skipstjóri og hvalskytta á Hval 3. Hann var méð það skip þar til skrúfan datt af og vélin brotnaði úti á rúm- sjó í fyrra, — en tók þá við Hval 1, sem hafði legið sem varaskip, f fyrra, er Hvalur 6 var keyptur til landsins, tók hann við honum. Ingólfur hef- ur undanfarna vetur verið kennari við Stýrimannaskól- ann. Glæsilegt héraðs mót oð Flúðum SÍÐASTLIÐINN laugardag efndu Sjálfstæðismenn í Árnessýslu til hins árlega héraðsmóts síns að Flúðum í Hrunamannahreppi. Sótti mótið um 500 manns víðsvegar að úr sýslunni, og var það allra mál, að mótið hefði farið mjög vet fram og verið hið ánægjulegasta. Samkomuna setti og stjórnaði Sigmundur Sigurðsson, bóndi í Syðra-Langholti. Dagskráin hófst með því að Þörunn Ólafsdóttir, söngkona, söng einsöng; undirleik annaðist Skúli Halldórsson, píanóleikari. Þá flutti Sigurður Ó. Ólafs- eon, alþingismaður, ræðu. Síðan söng Kristinn Hallsson, óperu- söngvari, einsöng. Þessu næst flutti Ólafur Thors, forsætisráðherra, ræðu. Kom ráð herrann víða við í ræðu sinni, sem var hin skörulegasta og hlaut frábærar undirtektir áheyrenda. Að ræðu forsætisráðherra lok inni lék Skúli Halldórsson ein- leik nokkur lög á píanó. Þá sungu þau Kristinn Hallsson og Þór- unn Ólafsdóttir tvísöng, við und- irleik Slcúla Halldórssonar. Síðan var fluttur gamanleikur urinn „Mótlætið göfgar“ eftir Leonard White og fóru með hlut verk leikararnir Valur Gíslason og Helga Valtýsdóttir. Var ræðumönnum og listafólk inu ágætlega fagnað. Samkomunni lauk síðan með því að stiginn var dans fram eftir nóttu. Ágætt héraðsmót á Patreksfirði SÍÐASTLIÐTNN laugardag efndu Sjálfstæðismenn í Vestur-Barða- strandarsýslu til héraðsmóts á Patreksfirði. Var það mjög vel sótt og fór hið bezta fram. Samkotnuna setti og stjórnaði Ari Kristinsson, sýslumaður. Dagskráin hófst með því að Guðmundur Jónsson, óperusöngv ari söng einsöng; undirleik ann- aðist Fritz Weisshappel, píanó- leikari. Þá flutti Ingólfur Jónsson, land búnaðarráðherra, ræðu. Síðan söng frú Sigurveig Hjaltested, óperusöngkona, einsöng. Þessu næst flutti Sigurður Ejarnason, ritstjóri, ræðu. Fluttur var gamanleikurinn „Heimilisfriður“ eftir Georges Courteline og fóru með hlutverk leikararnir Rúrik Haraldsson og Guðrún Asmundsdóttir. Að leiksýningu lokinni sungu þau Guðmundur Jónsson og Sig- urveig Hjaltested tvísöng við undirleik Fritz Weisshappel. , Var ræðumonnum og listafólk- inu ágætlega fagnað. Lauk síðan þessari samkomu með dansleik. AKRANESI, 20. ágúst. — Tveir humarbátar lönduðu hér í dag, Fram og Sæfaxi með 2 lestir hvor. Á sunnudag reri trillan Bensi einskipa og fiskaði á lín- una 740 kg. Vélbáturinn Sveinn Guðmunds.son kom heim af síld- inni á laugardagskvöld. — Oddur. Asgeir Einarsson, dýralæknir, saumar saman rifu á flipa hestsins, er varð fyrir bíl. Bergur Magnússon, fararstjóri í skemmtiferð Fáks, heldur í hestinn. Hesturinn rak flipann inn um bílglugga SÍÐDEGIS á sunnudag, er hóp- ur hestamanna var að koma úr vel heppnaðri og fjölmennri hópferð að Kolviðarhóli og kom út á veginn hjá Lögbergi, en þar þurfa reiðmenn að ríða eft- ir akveginum á kafla, vildi það óhapp til, að einn reiðmanna mætti bifreið á blindri brekku- brúninni. Reyndi bílstjórinn að víkja, en rétt í því mun reið- maðurinn hafa séð bílinn og vék einnig. Lenti hesturinn til hlið- ar framan á bílnum og rak flip- ann í framrúðuna, sem brotnaði. Hesturinn skarst nokkuð í andliti. Kom dýralæknir, Ásgeir Einarsson, á vettvang og saum- aði sárið. Hesturinn stóð hinn rólegasti, en honum hafði blætt nokkuð, og var hann síðan teymdur í bæinn. Manninn sakaði ekki. SÍ\KSTEI\AIÍ Spottinn til Moskvu íslendiugar eru löngu hættir að láta sér blöskra þau hræsnisfullu skrif, sem „Þjóðviljinn“ fyllir dálka sína með ár og síð. En eitt af því, sem blaðið ver löngu rúmi undir, eru margendurteknar stað hæfingar um, að „Þjóðviljinn" sé allra blaða sjálfstæðast. Enda þótt „Þjóðviljinn“ sé í augum al- þjóðar engu líkari en sprellikarli, sem spottinn úr liggur til Moskvu, eru fullyrðingarnar um sjálfstæði „Þjóðviljans" og „ís- lenzkra“ kommúnista endurtekn- ar í Moskvu-málgagninu dag eftir dag, mánuð eftir mánuð og ár eftir ár. Hafa skipt um 6 sinnum „AIþýðublaðið“ gerir af- stöðu „Þjóðviljans“ og kommún- ista á fslandi til utanríkismála að umtalsefni í ritstjórnargrein sl. sunnudag. Undir fyrirsögninni „Reikulir kommar“ er þar kom- izt svo að orði: „Þjóðviljinn segir stundum, að kommúnistar einir reki sjálf- stæða íslenzka utanríkisstefnu. Ekkert gæti verði meira öfug- mæli en þetta því þeir hafa sex sinnum skipt um utanríkisstefnu, ekki eftir íslenzkum sjónarmið- um, heldui' rússneskum. ★ Um 1930 gerðu Sovétríkin marga hlutleysissamninga við grannríki sín. Þá töldu kommún- istar hér, að ísland ætti að vera hlutlaust. ★ Um lp37 vóru Sovétríkin á móti hlutleysi og vildu bandalag gegn Hitler. Þá snerust íslenzkir kommúnistar á móti hlutleysi og vildu semja við Breta, Banda- ríkjamenn og auðvitað Rússa um varnir landsins. ★ Árið 1939 gerðu Rússar griðasamning við Hitler og urðu aftur hlutlausir. Þá urðu okkar kommar líka hlutlausir á einni nóttu. ★ Þegar Hitler réðist á So- vétríkin lauk hlutleysi þeirra. Þá snerust kommar ggen hlutleysi og vildu láta skjóta frá íslandi. ★ í stríðslokin tóku Rússar að daðra við hlutleysi vissra þjóða, og okkar kommar tóku að boða hlutleysi á ný. ★ í ungversku byltingunni snerust kommar gegn hlutleysi og hengdu Nagy fyrir að vilja gera Ungverjaland hlutlaust. Þá þögðu okkar kommar um hlut- leysi. ★ Nú síðustu árin mæla Rússar aftur með hlutleysi fyrir þjóðir, sem þeir ekki ráða yfir. Og okkar kommar boða hlutleysi íslands af kappi. Finnst mönnum þetta sjálf- stæð utanrikisstefna?" Það, sem „Þjóðviljinn“ kallar íslenzkt Þó að ferill „íslenzkra" komm- únista sé eins ljótur og að fram- an er rakið, mun blað þeirra, „Þjóðviljinn“, seint þreytast á að syngja þeim lof. En æði falskt mun, sá söngur hljóma _____ og áfram fækka þeim aumu sál- um, sem viðlagið kyrja með Moskvu-málgagninu. í nýjustu útgáfu, sem áreiðanlega verður ekki sú síðasta, hljóðar lofsöng- ur „Þjóðviljans“ um eigin ágæti j á sviði utanríkismála þannig, sbr. ritstjórnargrein blaðsins um helgina: „Andstætt þessari erlendu stefnu í utanríkismálum og efna- hagsmálum („Þjóðviljinn“ brigsl ar nefnilega andstæðingunum um sínar eigin syndir) hefur Sósial- istaflokkurinn og Alþýðubanda- Iagið haldið fram íslenzkri stefnu, islenzkum sjómarmiðum, stefnu sem byggir á raunsæi, stórhug og bjartsýni á mátt og megin tslenzkrar hugsunar og vinnandi islenzkra handa.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.