Morgunblaðið - 21.08.1962, Side 12
12
MORCUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 21. ágúst 1962
Útgefandi: Hf. Arvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Áskriftargjald kr. 55.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 3.00 eintakið.
UTAN UR HEIMI
—-■-'liir 1. —*~*m?m*
ríki af 16 styðja tillöguna um
takmarkað bann viö atomvopnum
ARFUR FRAMSOKNAR
Céra Árni Þórarinsson talaði
^ um fólk sem var „alltaf
að pilla við lygina“. Það er
eins og þessi merki klerkur
hafi verið nýbúinn að lesa
pólitískt skraf Tímans, þegar
hann sagði þessi orð. Sann-
leikurinn er sá, að þetta
höfuðmálgagn Framsóknar-
manna skrifar nú orðið varla
svo setningu um stjómmál á
íslandi að þar sé ekki allt úr
lagi fært, heimildir brenglað-
ar, tölur falsaðar, einungis í
því skyni að gagna síversn-
andi málstað Framsóknar-
flokksins og metorðagimd
flokkskólfanna. Er raunar
svo komið, að það er varla
fyrir siðaða menn að standa
í karpi við þetta „bænda-
blað“. Síðasta dæmið um
málflutning Tímans er það,
þegar blaðið fullyrðir að
bændum hafi fækkað á fs-
landi, en Morgunblaðið fær
nákvæmar upplýsingar um
það hjá Pálma Einarssyni,
landnámsstjóra, að svo hafi
ekki verið. Tíminn svarar á
laugardag með því að segja
að Mbl. hafi „þótzt fá ein-
hverjar tölur“ um málið, þó
að hann vissi mæta vel að
þær voru frá þeim manni,
sem gerzt þekkir til þessara
mála. Og ekki batnar mál-
flutningur Tímans á sunnu-
dag, því þá kemst hann svo
að orði: „Blaðið (þ.e. Morg-
unblaðið) þykist hafa fengið
einhverjar tölur um það að
heimilum í sveit hafi fjölgað
um nokkuð á annað hundrað
síðan 1948. Engar heimildir
eru nefndar“! Þó veit Tím-
inn mæta vel að heimild
Mbl. var Pálmi Einarsson
landnámsstjóri. Síðan heldur
blaðið áfram: „En hvort sem
þessar heimildir eru réttar
eða ekki, getur bændum
fækkað, a.m.k. bændum, sem
framleiða vörur á markað“.
Áður hafði því þó verið
haldið fram í blaðinu að
bændum hefði fækkað. En nú
segir að bændum geti fækk-
að. Sem sagt: fullyrðingar
Tímans hefðu getað verið
sannar. Hvernig er hægt að
rökræða við menn sem
stjórna öðrum eins skrifum?
HENTISTEFNA
að er raunar eins og ósann-
indin, blekkingamar og
falsið loði við öll málgögn
Framsóknarflokksins, því ef
málið er athugað nánar kem-
ur í ljós, að aðalmálgagn
flokksins á Norðurlandi,
Dagur á Akureyri, er sízt
betri en Tíminn. Er hann
skrifaður af þvílíkri nesja-
mennsku, að fátítt mun vera.
Er ekki annað hægt að segja
en furðulegt sé, hve margir
bændur sjá enn í gegnum
fingur við þessi tvö höfuð-
málgögn hentistefnuflokks
Framsóknar.
Tíminn reynir af öllum
mætti að drepa í skörðin í
málflutningi sínum og bendir
á skýrslur Mjólkurbús Flóa-
manna til að sýna að bænd-
um hafi fækkað á íslandi.
Pálmi Einarsson sagði í sam-
tali við Mbl. að eðlilegar til-
færzlur ættu sér stað í land-
búnaði nú eins og áður; bú-
um fjölgar á einum stað,
fækkar á öðrum. Hins vegar
er það kjami málsins, að því
er framleiðslusvæði Mjólkur-
bús Flóamanna snertir, að
kúafjöldi á öllu því svæði
1961 var 11,35 að meðaltali á
framleiðanda, en árið áður
10,46, þ.e. að kúm hefur á sl.
ári fjölgað að meðaltali um
eina á framleiðanda. Mjólk-
urmagnið á innleggjanda var
28848 kg. 1961, en 26048 kg.
árið áður. Þessi aukning ein
þýðir um 9000 kr. tekjuaukn-
ingu að meðaltali á hvern
bónda á samlagssvæðinu.
Þessar tölur tala sínu máli.
Af þeim má sjá að mikil
framleiðsluaukning á sér
stað á landbúnaðarvörum. Er
það í samræmi við fullyrð-
ingar Mbl. þess efnis, að í tíð
núverandi stjórnar hafa orð-
ið stórstígar framfarir og
mikil framleiðsluaukning í
landbúnaði. Auðvitað á Við-
reisnarstjórnin enn eftir að
koma mörgum hagsmunamál-
um bændastéttarinnar í
framkvæmd. Þegar hún tók
við af vinstri stjórninni var
efnahagslíf landsins í , rúst.
Nú hefur uppbygging átt sér
stað og mun halda áfram,
bændum jafnt og öðrum
landsmönnum til heilla og
blessunar.
HVERNIG VAR
ÁSTANDIÐ 1958?
í/’ert er að athuga hvemig
* komið var fyrir bænda-
stéttinni á hinu stutta tíma-
bili sem Vinstristjórnin hafði
völd hér á landi. Allar rekstr-
arvörur bænda höfðu stór-
kostlega hækkað, svo að eins-
dæmi er. Með. litlu dæmi má
sýna fram á, hve stórkostleg-
ar þessar hækkanir voru.
Þrír fjórðu hlutar af því
magni, sem bændur nota til
Nokku® er nú liðið á fjórða
ár frá því fyrst var farið að raeða
á alþjóðlegum vettvangi bann
við kjarnorkutilraunum. Árang-
urinn er flestum kunnur. Rússar
hófu í fyrrahaust víðtækustu til-
raunir, sem um getur. Banda-
ríkjamenn hafa gert tilraunir
að undanförnu og loks hafa Rúss
ar nú ekki séð sér annað fært
en hefja tilraunir á nýjan leik.
Bandarísku fulltrúarnir á af-
vopnunarráðstefnunni í Genf
báru fyrir skömmu fram nýjar
tillögur, er gera rálð fyrir að
fækkað verði til muna þeim eft-
irlitsstöðvum, er gert var ráð fyr
ir í fyrri tillögum þeirra.
Þessar tillögur eru byggðar á
niðurstöðum af rannsóknum á
neðanjarðarsprengingum þeim
er gerðar hafa verið á þessu
ári í Nevada-eyðimörkinni vestra
Rannsóknaráiætlun þessi hefur
almennt gengið undir nafninu
„Vela“, og hafa Bandaríkjamenn
nú varið um 75 milljónum dala
til að fullkomna mælitækni, er
gerir kleift að greina sprenging-
ar í mikilli fjarlægð.
Rússar höfnuðu enn sem fyrr.
Þeir telja ekki nóg, að stöðv-
unum sé fækkað, þeir vilja eng-
ar eftirlitsstöðvar hafa.
ftalir skipta um skoðun.
Á miðvikudag í fyrri viku
gerðist það svo, að ítalir, einir
þeirra Vesturvelda, sem sæti
eiga á ráðstefnunni gengu í lið
með hlutlausu ríkjum ráðstefn-
unnar í því, að styðja tillögu
þeirra um takmarkað bann.
Vilja þeir nú, að fyrst verði sam
ið um bann við tilraunum í and-
fóðurbætis, er maís. Þegar
Vinstristjórnin tók við 1956
kostaði maísinn 2,08 kr. hvert
kg., en í lok vinstristjórnar
tímabilsins 1958 var maís-
verðið komið upp í 3,33 kr.,
þ.e. maísinn hafði hækkað
um 60% á þessum skamma
tíma. Þannig hækkuðu einn-
ig allar vélar til landbúnaðar-
þarfa, áburður og fóðurbæt-
ir, énda muna bændur hvern
ig umhorfs var í sveitunum,
þegar Vinstristjómin hrökl-
aðist frá eftir að hún hafði,
vegna úrræðaleysis, opnað
fyrir flóðgátt óðaverðbólg-
unnar hér á landi, sem Her-
mann Jónasson talaði um.
Segja má með sanni að það
sé eins og að berja höfðinu
við steininn að leggja fram
sannar upplýsingar í rökræð-
um við Framsóknarmenn.
Þeir hrista bara höfuðið og
sitja fast við sinn keip. Þeir
híma í myrkri þess ábyrgðar-
lausa málflutnings, sem þeir
hafa tekið að arfi frá fyrri
tímum, en það virðist vera
sá eini arfur sem þeir vilja
auka og margfalda. í mál-
flutningi þeirra sér hvergi
glætu. Þar er fyrsta og síð-
asta boðorðið eitt, þ.e. að
halda áfram að „pilla við lyg-
ina“.
rúmsloftinu og neðansjávar, en
síðar verði svo samið um bann
neðanjarðar, en mestur ágrein-
ingur hefur orðið um það mál.
Vonbrigði koma m.a. fram
í afstöðu ítala nú.
Talið er, að breytt afstaða f-
tala stafi fyrst og fremist af því,
að þeir hafi bundið vonir við
bandarísku tillögurnar nýju, en
telji þær vonir nú brostnar.
Vitað er, að hin Vesturveldin,
sem þátt taka í ráðstefnunni,
bundu einnig miklar vonir við
þessar tillögur (Þau ríki eru
Bretland, Bandaríkin og Kan-
ada — Frakkar eiga að sitja ráð-
stefnuna, en DeGaulle sendir eng
an fulltrúa, þar eð hann telur
umræður um rnálið þýðingar-
lausar.)
Friðrika Grikklandsdrottning
hefur mikinu hug á að gifta
börn sín, eins og mæðrum er títt.
Elzta dóttir hennar Soffía hefur
þegar getigið að eiga Juan Carlos,
prins frá Spáni, en enn eru tvö
ógift í föðurgarði, ríkisarfinn
Konstantín og yngri dóttirin, ír-
ena.
Friðrika drottning hefur mik-
inn hug á að blanda blóði við
kóngafólk Norðurlandanna. Um
tíma leit út fyrir að Soffía yrði
drottning í Noregi, en hún venti
sínu kvæði í kross og giftist
prinsi án ríkis, og Haraldur fór
að gera sér títt um norska blóma
Að vísu hefur það marg oft
komið fram af ummælum full-
trúa Rússa á ráðstefnunni, að
þeir telji sig ekki geta fallizt á
neinar eftirlitsstöðvar. Tilgang-
ur eftirlitsstöðvanna er að rann-
saka grunsamleg tilfelli, sem ekki
er h-æigt að greina með mæling-
um, hvort eru kjarnorkutilraunir
eða aðrar hræringar.
Hins vegar munu Vesturveldin
hafa talið, að Rússar kynnu að
slaka á kröfum sínumi, þegar af
hinna hálfu hefur komið fram
tilboð um að fæikka eftirlitsstöðv
unum.
Bæði Rússar og Bandaríkjamenu
vilja algert bann.
Afstaða Rússa og Bandaríkja
manna fram til þessa hefur ver-
Framh. á bls 23
rós, Sonju Haraldsen að nafni. 1
En vegir ógifta kóngafólksins í
Evrópu liggja oft saman. Ekki
alls fyrir löngu bauð norska kon
ungsfjöldskyldan í skemmtisigl-
ingu í Hankö í Noregi og mætti
þar Friðrika með bæði börn sín,
og lét Haraldur sér mjög umhug-
að um írenu. Einnig var næst
elztu prinsessu Danmerkur, Önnu
Maríu, boðið, en sagnir herma að
Konstantín og Anna María beri
heitar tilfinningar hvort til ann-
ars.
Meðfylgjandi mynd var tekin í
Hankö af grísku systkinunum,
Konstantín og írenu.