Morgunblaðið - 21.08.1962, Qupperneq 23
f>ri8judagur 21. ágúst 1962
■* GVNBLAÐIÐ
23
JACQUOS Soustell, fyrrum
Alsírmálaráðherra Frakklands
sem handtekinn var á ítalíu á
föstudaginn, er nú aftur horf-
inn. Um helgina fylgdu ítalsk-
ir lögreglumenn honum að
landamærum ítalíu og Austur-
ríkis í Brennerskarði, að bví
er ítalska fréttastofan ANSA
hermir, en austurískir landa-
mæraverðir segjast ekki hafa
orðið hans varir.
Soustelle
SOUSTELLE
ÚFUNDINN
Uppi hefur verið Orðrómur
um, að Soustelle væri kominn
til Spánar, en því hafa spænsk
yfirvöld neitað. ítalska frétta-
stofan telur hins vegar, að
Soustella hafi ekið sem skjót-
ast gegnum Austurríki til
Vestur Þýzkalands, en aðeins
eru um 70 km frá möirkunum
í Brennerskarði til landa-
' mæra Vestur-I>ýzkalands við
Mittenwald. Um þennan veg
er gífurleg umferð og vega-
bréfaskoðun ekki ströng.
Talsmaður vestur-iþýzka
innanríkisráðuneytisins í Bonn
segir, að engar fregnir hafi
'borizt af ferðum Soustelle í
V-Þýzkalandi. Finnist hann á
hinn bóginn á v-þýzkri grund,
verður honum þegar vísað úr
landi. Segir ráðuneytið, að
dvöl hans í landinu væri til
þess eins fallin að skaða hin
vinsamlegu tengzl Frakka og
Vestur-Þjóðverja,
★
Svo sem sagt var frá á laug
airdag, var Soustelle handtek-
inn á föstudag og hafði þá
vegabréf með nafninu Jean-
Albert Seneque. Er gengið var
á Soustelle með spurningum,
lét hann uppi hið rétta nafn
sitt. Soustelle er nú fimmtug-
ur að aldri. Hann var á sínum
tíma einn mesti stuðningsmað
ur de Gaulle, en snerist gegn
honum vegna stefnu hans í
Alsir-málinu.
Soustelle er mannfræðingur
að menntun, sérfræðingur í
sögu Azteka og Maya. Hann
gekk í lið „Frjálsra Frakka“
árið 1940 og var um skeið
yfirmaður leyniþjónustu de
Gaulle hershöfðingja í Alsir.
Að heimstyrjöldinni lokinni,
varð hann upplýsingamálaráð-
herra og síðan ráðherra fyrir
nýlendur Frakka. Soustelle
fór í útlegð eftir hina mis-
heppnuðu uppreisn í apríl
1961 — gegn stefnu de Gaulle
í Alsírmálinu, og hefur síðan
dvalizt að mestu leyti í Ítalíu.
Aðeins eru nokkrir mánuðir
frá því Soústelle lýsti því yfir
í blaðagrein, að heldur myndi
hann afsala sér frönskum
borgararétti en viðurkenna
sjálfstæði Alsír. Og fyrir
skömmu kvaðst hann mundu
afsala sér tveim æðstu heið-
ursmerkjum frönskum, sem
hann var á sínum tíma sæmd
ur fyrir hetjulega frammi-
stöðu í heimstyrjöldinni, í
mótmælaskyni við stefnu nú-
verandi Frakklandsstjórnar í
Alsírmálinu.
16,4 millj. jafnað
niður á Ákranesi
AKRANESI, 20. ágúst — Á
Akranesi var alls jafnað niður
kr. 16.429.200.00 á 1184 einstakl-
inga og 42 félög, er skiptist
þannig: Útsvör einstaklinga kr.
13.362.600, útsvör félaga krónur
847.700. Aðstöðugjald kr. 2.218,-
900. Jafnað var niður eftir lög-
boðnum stiga og veittur allur
lögleyfður frádráttur. Þá var
einnig notuð heimild til að
lækka öll útsvör einstaklinga
um 800 kr. og síðan voru öll
útsvör lækkuð um 13,5%.
Hæstu útsvör einstaklinga
bera Garðar Finnsson, skipstjóri,
kr. 133.100, Ingimundur Ingi-
mundarson, skipstjóri, kr. 131.-
700, Högni Ingimundarson,
stýrimaður, 94.200, óskar Her-
varðsson, vélstjóri, kr. 91.000,
Einar Árnason, skipstjóri, 87.-
800, Jón Einarsson, vélstjóri,
82.300.
Hæstu útsvör félaga: Sements-
verksmiðja ríkisins 259.400 kr.,
Haraldur Böðvarsson & Co. 183.-
900, Sigurður Hallbjörnsson hf.
123.200. — Hæstu aðstöðugjöld
bera: Haraldur Böðvarsson
677.900, Fiskiver hf. 243.600,
Síldar- & fiskimjölsverksmiðja
Akraness 216.800, Sigurður Hall-
björnsson hf. 151.900, Heima-
skagi hf. 123.800. — Þetta er
fréttatilkynning frá bæjarstjór-
anum á Akranesi, Björgvin Sæ-
mundssyni. — Oddur.
Bræla á öllum miðum
BRÆLA var á síldarmiðunum
fyrir austan og norðan í gær og
engin veiði. Sólarhringinn á und
an var mjög góð veiði á Héraðs-
flóa og fengu 72 skip 52.600 mál
og tunnur, en engin veiði var
fyrir norðan. Biðu því mörg
skip með síld inni á Austf jarða-
höfnum. Ægir var þó að leita í
gærkvöldi og hafði fundið nokkr
ar góðar torfur ANA af Raufar-
höfn.
Síldarflutningaskipið Baldur
var á leið til Siglufjarðar í gær-
kvöldi og Freyr á leið til Reykja
víkur með síldarfarm. Aska og
Una eru þegar hætt síldarflutn-
ingum, og munu togararnir Þor-
steinn Ingólfsson, Sigurður og
Geir, sem hafa verið í flutning-
— /jbró/f/r
Frahald af bls. 22
þakkað Geir að ekki tapaðist stig
x þessum leik.
* Liðin
Framliðið var heldur sundur-
laust í þessum leik einkum er
á leið. Hrannar var langbezti
maður liðsins ásamt Geir mark-
verði. Framlínan var sundurlaus
einkum er á leið og án endur-
skipulagningar verður hún aldrei
það beitt að dugi. Vörnin var
sömuleiðis tvískipt, hægra megin
nokkuð þétt en vinstra megin
opin. Birgir hefði illa farið án
aðstoðar Hrannars.
Það var kraftur og fjör í Skaga
mönnum, en æfingaleysi Þórðar
og Sveins aftraði þeim á örlaga-
stundum frá að skora og tryggja
sigur. Ríkharður vann afar vel,
en mætti þó sterkastri mótstöðu.
Og það munaði illa um Þórð í
þessum leik.
EFTIR leiki helgarinnar er stað-
an í íslandsmótinu þessi:
L U J T M
Fram ........... 9 4 4 1 12
Akranes ........ 8 4 3 1 11
Valur .......... 9 4 3 2 11
KR ..............9 3 4 2 10
Akureyri .... 9 4 1 4 9
ísafjörður .... 10 0 1 9 1
um til Reykjavíkur, einnig vera
að hætta.
Á Seyðisfirði biðu í gær-
kvöldi 35 skip með 18.500 mál,
en þrjú flutningaskip voru á
leið þangað, Lúðvík, Stockvik
og Pétur Halldórsson. Á Raufar-
höfn biðu 25 skip með 15—17
þús. mál.
Norðfirði
Gengur illa að bræða
smásíldina
Fréttaritarínn á
símaði:
Flest síldveiðiskipin eru nú í
höfn eða landvari, því nú er
bræla og allmikill sjór. Hér. eru
allmörg skip og bíða löndunar
um 6000 mál. Mjög illa gengur
að bræða smásíldina og hefur
verksmiðjan unnið með hálfum
afköstum sl. dægur. Er því
löndunarstopp eins og er og
ekki vitað hvenær úr rætist.
Lítið var saltað um helgina.
Skipakomur hafa verið hér
alltíðar. Lagarfoss tók 400 tonn
af síldarmjöli og 2500 tonn af
freðfiski. Síldarverksmiðjan hef-
ur afskipað 1400 tonnum af síld-
arlýsi og 1800 tonnum af síldar-
mjöli. Tunnuskip landaði hér
4500 tómum tunnum.
Afli smábáta hefur verið góð-
ur að undanförnu. — Jakob.
Bílslys
f
Á SUNNUDAGSKVÖLDIÐ valt
bifreið út af brú skammt frá Mið
sandi í Hvalfirði. Mun bifreiðin
hafa bilað. Voru fjórar manneskj
ur, Reykvíkingar í bifreiðinni, og
voru þrjár fluttar á sjúkrahúsið
á Akranesi. Meiðsli þeirra
reyndust lítil og fóru þær heim,
er gert hafði verið að sárum
þeirra.
RÉTT fyrir kl. 5 á sunnudag
var lítil telpa að koma úr Hafn-
arfjarðarbíói. Hljóp hún yfir
götuna á móts við húsið nr. 33
við Strandgötu. í því kom bíll
sunnan götuna og lenti telpan á
framljóskeri hans. Skarst hún á
augabrún og enni, en meiddist
ekki að öðru leyti.
Dr. Broddi skóla-
stjóri Kenn-
araskólans
DR. Broddi Jóhannesson hefur
verið skipaður skólastjóri Kenn-
araskóla fslands frá 1. septem-
ber að telja.
Dr. Broddi er stúdent frá
MenntaskólanUm á Akureyri
1935 og stundaði nám í sálar-
fræði, uppeldisfræði og heim-
speki í Þýzkalandi og Dan-
mörku, þar sem hann lauk prófi
1940. Dr. Broddi hefur verið
kennari við Kennaraskólann frá
1941.
Forseti Hæsta-
réttar
ÁRNI Tryggvason hæstaréttar-
dómari hefur verið kjörinn for-
seti Hæstaréttar tímabilið 1. sept-
ember 1962 — 1. september 1963.
Varaforseti sama tímabils hefur síld er kastað var
verið kjörinn Lárus Jóhannesson
hæstaréttardómari.
Ok á símastaur
í FYRRINÓTT var ekið á stór-
um rútubíl á ljósastaur í Laugar
neshverfi og lagði hann staurinn
niður. Bílstjórinn fór af staðn-
um, en lögreglan fékk nasasjón
af því hvaða bíll þetta hefði ver-
ið og elti manninn heim. Kom
þá í ljós að hann hafði verið
undir Ahrifum áfengis.
— Geislabelti
Framhald af bls. 1.
sér aukna hættu varðandi geim-
ferðir en ekki væri unnt að
staðhæfa hver áhrifin væru, fyrr
en nákvæmar rannsóknir hefðu
farið fram. Hann kvaðst ekki
vilja tilgreina tíma, en hugsan-
legt væri að hið nýja belti ylli
töfum á geimferða áætlun Banda-
ríkjamanna — hinni svonefndu
Mercury áætlun. Hugsanlegt festi einnig fót í lykkju af hana
væri þá einnig, sagði Van Allen, fæti, er verið var að ljúka kasti.
að beltið ylli sams konar töfum M)b. Hafihór er einnig frá Norð-
á geimferðum Rússa. 1 firði.
— Drukknun
Framhald af bls. 24.
sjóinn. Að sögn skipverja var
lykkja í hanafæti brugðin um
fót Þorgeirs.
Þorgeir hafði þann starfa, er
nótinni var kastað, að gæta
hringanna, er þeiir fóm út, og
iþað var einmitt síðasti hringur-
inn sem var að fará fyrir borð
þegar slysið varð. Nokkra stund
var Þörgeir í sjónum rétt við
skipshliðina, en skipverjar
brugðu skjótt við og gripu um
steinsteininn og reyndu að
sporna gegn því að meira rynni
út af nótinni.
Skipstjóriim fyrir borð
Skipstjórinn hrá sér út að
borðstokknum og hafði í höndum
hníf, og reyndi hann að skera
Þorgeir lausan. Tókst honum að
skera eitthvað af böndum af
honum, en féll við það í sjóinn.
Skipverjar gátu ekki haldið nót-
inni, enda þarf meira en mann-
legt aifl til þess, þegar hún er að
renna út Skipstjórinn náðist
strax og var honum bjargað um
borð aftur, en í sama mund
hvarf Þorgeir sjónum skipverja.
Kraftblökkin bilaði.
Meðan Jón var að skera bönd-
in af Þorgeiri, var hafizt handa
um að reyna að draga nótina til
baka með kraftblökkinni, en
vegna þess hve nótin er þung og
ekki búið að snurpa hana saman,
varð átakið á blökkina of mikið,
svo að hún bilaði. Viðgerð var
þó tiltölulega auðveld, og var
hafin samstundis. Á meðan unnið
var að henni, reyndu skipverjar
að draga nótina inn með handafli
og mimu þannig hafa náð 10—15
föðmum. Þá var blökkin komin
í lag og 1/3 nótarinnar vair dreg-
inn inn með henni.
Svo óheppilega vildi til, að
á þessu sinni
reyndist vera smásíld. Ánetjað-
ist hún þegar í nótina og varð
því ekki unnt að draga 2/3 henn-
ar inn með blökkinni. Var hún
því stroffuð um borð, en það er
gert með bómu skipsins og spili.
Ekki kom Þorgeir inn með nót-
inni. og var hans leitað af þrem-
ur skipum. Pétur Thorsteinsson,
eitt af síldarleitarskipunum, var
þarna nærstaddur og kom fljótt
á vettvang. Ennfremur Ófeigur
II frá Eskifirði Leituðu skipin
fram í rökkur, en án árangurs.
Þráinn hætti leit kl. 10 um kvöld
ið og hélt áleiðis til heimahafn-
ar á Norðfirði og kom hingað í
morgun. Sem fyrr segir stóðu
sjópróf í málinu í dag, og verður
haldið áfram á morgun.
Tvö svipuð slys
Þetta er annað slysið sem
verður með svipuðum hætti á
þessari síldarvertíð. Hitt slysið
gerðist 28. júní, er stýrimann af
vélskipinu Haíþóri tók út, er
verið var að kasta nótinni. Stýri
maðurinn, Hilmar Tómasson.
— Sigurður
Björnsson
Framhald af bls. 1S
— Hvað dveljizt þér lengi hér
heima að þessu sinni?
— Þrjár vikur alls.
— Er það rétt, að þér hafiS
stundað æfingar þann tíma?
— Já, ég fékk boð frá Þýzka-
landi um að ferðast um landið
ásamt Guðrúnu Kristinsdóttur
og halda hljómleika. Við Guð-
rún höfum því verið að æfa
saman undanfarið. Ennþá er þó
ekki afráðið, hvenær af ferðinni
getur orðið. en vonir standa jafn
vel til, að það verði næsta vet-
ur.
ÍC Hugurinn alltaf heima
— Hvernig hugsið þér til
hins nýja starfs?
— Ég bæði hlakka til og kvíði
fyrir. Það verður erfitt að
standa með jafn stóru fólki á
leiksviðinu og þarna er saman-
komið, en við skulum vona, að
allt gangi vel.
— Og að næsta leikári loknu?
— Þá er ómögulegt að segja
hvað verður. Annars vildi ég
helzt setjast að hér heima, því
að hugurinn er jafnan bundinn
við ísland. Og í raun og veru er
það mín heitasta ósk að koma
heim sem allra fyrst aftur,
sagði Sigurður.
Að lokum óskum við Sigurði
gæfu og góðs gengis í hinu nýja
starfi.
— Utan úr heimi
Framh. af bls. 12.
ið sú að koma á algeru banni.
Hvorugur aðilinn hefur frarn til
þess látið í ljós neinn áhuga á
tafamörfkuðu banni, eins og
gert er ráð fyrir í tillöguim hlut-
lausu rífajanna.
Það voru Brasilíuimenn, sem
fyrst faomu fram með tillögu um
takmarkað bann. Hin hlutlausu
ríkin sjö, Arabalýðveldið, Burma
Indland, Nigeria, Eþíópa, Mexí-
kó og Svíþjóð hafa öll stutt þá
tillögu.
Aðhyllast fleiri
takmarkað bann?
Ítalía hefur bætzt í hóp þeirra
8 hlutlausu ríkja, þannig, að níu
ríki styðja nú hugmyndina um
takmarkað bann.
Kommúnistaríkin, Búlgaría
Tékfaóslóvakía, Pólland og Rúm-
enía hafa aldrei tekið beina af-
stöðu til þessarar tillögu. Vafa-
samt er hvort þau styðja hana,
nema til komi hvatning frá Rúss-
um, en fulltrúar þessara landa
hafa fram til þessa skipzt á því
að styðja Rússa í málflutninigi
þeirra á ráðstefnunni.
Hins vegar heyrðist nú fyrir
hetgina óstaðfestur orðrómur,
sem greindi, að Bretar kynnu að
styðja ítali og hin hlutlausu rífa-
in í því, að faoma á takmörk-
uðu banni. Þótt ekkert verði full
yrt um það, hvort sá orðrómur
er réttur, þá er víst, að ótti
manna við frekari tilraunir veld-
ur því nú, að fleiri vilja beita
öllum tiltækum ráðum til að
stöðva áframhald þeirra. Tafa-
markað bann kann að verða upp
haf samkamulags.