Morgunblaðið - 25.08.1962, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 25.08.1962, Blaðsíða 19
Laugardagur 25. águst 1962 MORGUNBLAÐIÐ 19 ☆ TVEIR af kjarnorkukaf- bátum Bandaríkjamanna hafa átt „sögulegan fund‘“ á Norðurpólnum. Það var Kennedy Bandaríkjafor- seti, sem tilkynnti þetta í upphafi blaðamannafund- ar síns um miðja vikuna. — Kafbátarnir, sem hér komu við sögu, voru „Skate“ og „Seadragon" — en atburðurinn átti sér stað síðasta daginn í júlí- mánuði. Þetta er í fyrsta skipti, sem kafbátar mætast undir ísbreiðunni á pólnum. Áður hafa bandarískir kjarnorku- kafbátar hins vegar farið þangað einir síns liðs. Kaf- bátarnir „Skate“ og „Sea- dragon“ stunduðu ýmsar æf- ingar undir ísnum í þessari för sinni. Sá fyrrnefndi til- heyrir Atlantshafsflota Banda ríkjanna en hinn Kyrrahafs- flotanum. — Berlín 5Íá&!ÍS&£&í&*iz8á&tiiíð&*t&es\ Áhafnir kafbátanna skiptast á fánum. Þeir hittust á Norðurpól hringsóluðu ina. í kringum jörð- Upp um vök Eftir að kafbátarnir höfðu hitzt, komu þeir báðir upp um vök á ísnum skammt frá og þar fór fram athöfn, til þess að minnast þessa merka áfanga. Skiptzt var á kveðj- um og bandaríski þjóðsöng- urinn leikinn. Áhafnirnar heimsóttu hvor aðra — og nokkrir fengu sér „göngu umhverfis hnöttinn“ við heimsskautið. Að svo búnu var haldið á brott. Nokkrum dögum síð- ar, þegar kafbátarnir voru aftur að æfingum undir ísn- um, heyrðu þeir fregnina um að sovézku geimfararnir Nikolajev og Popovitsj væru komnir út í geiminn og "■■ ■ ... ■ ' Kagbátarnir „Skade" og „Seadragon", er þeir komu upp á yfirborðið við Norðurpól. Jóna Solveig Ein- arsdóttir - Minning Fædd 13.1. 1907. Dáin 19. 8. 1962. HÚN fæddist að Asgarði í Dala- sýslu. Foreldrar hennar voru Einar Einarsson, bóndi þar, og seinni kona hans, Helga Jónsdóttir. Þau áttu saman 2 dætur, Jónu Sólveigu og Sigríði. Mann sinn missti Helga Srið 1923, og eftir það dvöldust þær xnæðgur hjá ættingjum sínum í Dölum, unz þær fluttust til Reykjavíkur árið 1929. Héldu þær þar saman heimili og unnu systurnar ýmis störf. Samband þessara mæðgna var svo fagtirt og gott, að kunnug- um er minnisstætt. Haustið 1934 giftist Jóna Kristni Jónssyni frá Hrafntóft- um í Rangárvallasýslu, og reistu þau bú að Selalæk á Rangár- völlum. Þar bjuggu þau góðu búi næstu 5 árin, en fluttust þá oö Hellu og byggðu þar eitt af fyrstu húsum þorpsins á bakka Jftri-Rangár. Nefndu þau húsið Brúarland, þar stóð heimili þeirra síðan. Þau hjón eignuðust 3 börn, sem eru: Svavar og Einar, verzlunar- menn, og Anna Helga. Hafa synirnir báðir stofnað eigin heimili á Hellu, en dóttirin er enn heima. Helga, móðir Jónu, dvaldist hjá dóttur sinni og tengdasyni síðustu æviárin og naut þar frá- bærrar aðhlynningar. Lézt hún háöldruð árið 1949. Kynni okkar Jónu hófust fyr- ir tæpum tveim áratugum. Ein fyrsta minning mín um þau er frá dimmu skammdegiskvöldi. Ég sat með drenginn minn, | veikan. Vindurinn gnauðaði við gluggann og niðurinn í Rangá lét framandlega í eyrum. Þá var drepið létt á dyr, og inn gekk kona. Það var Jóna á Brúar- landi, létt í hreyfingum, fíngerð og háttprúð að vanda. Með fáum uppörvandi orðum hratt hún öllum kvíða á brott. Mér er þetta atvik minnisstætt. Það var heldur ekki í síðasta sinn, sem hún flutti yi og gleði inn á heimili mitt. Jóna var skemmtileg kona, glaðlynd og góðgjörn. Þess vegna var alltaf gott að hitta hana. Veit ég, að það var álit allra, sem þekktu hana vel. Með okkur tókst vin- átta, sem aldrei bar skugga á. Við skammsýnar manneskjur eigum oft erfitt með að skilja það, hve örskammt er milli hins þekkta og lifandi heims og tjaldsins, sem hylur hið óþekkta, og við getum aldrei sætt okkur við að sjá á bak vinum okkar yfir landamærin. Svo fer fyrir mér í þetta sinn. Það var bjart yfir heimilinu að Brúarlandi. Þar var hamingjan hýst ásamt gestrisni og góðvild. Jóna var góð húsmóðir, hagvirk, þrifin og reglusöm, svo af bar. Heimilið Aður á heimsskautinu Báðir bandarísku kafbát- amir, „Skate“ og „Seadrag- on“, hafa áður farið í heims- skautsferðir. — „Skate“ var fyrsti kafbáturinn, sem kom upp á yfirborðið við pólinn; 'það var hinn 17. marz 1959. „Seadragon" fór um Norður- pólinn, þegar hann var flutt- ur frá Atlantshafsflotanum yfir á Kyrrahaf í ágúst 1960. Árangursrikar æfingar Samkvæmt upplýsingum sjóhersins gengu æfingar þær, sem kafbátarnir höfðu með höndum, þegar þeir hitt- ust, mjög að óskum. Voru þær m.a. fólgnar í könnun á fjarskiptaskilyrðum neðan- sjávar og ýmsu öðru, sem á kynni að reyna í styrjöld. Með kafbátunum voru ýmsir vísindamenn utan hersins, sem fylgdust með tækjum og söfnuðu margvíslegum upp- lýsingum. Báðir kafbátarnir eru nú á leið heim. — Geta má þess að lokum, að kjarnorkukafbát- arnir eru báðir 2,600 smálesta — og lengd þeirra 268 fet. skreytti hún með fallegum blómum og högu handbragði. Þaðan eiga vandamenn og vinir margar góðar minningar, því oft hefur verið gestkvæmt í vist- legu stofunum á Brúarlandi. Jóna var trygg, vinföst og í ríkum mæli gædd því ágæta einkenni að hafa jafnan fyrir satt það, sem réttara reyndist. Óhult og einlæg gekk hún götu sína, hófsöm og prúð í öllu dagfari. Hún naut þeirrar gæfu að sjá börnin sín vaxa og verða gott fólk og mannvænlegt. Hún var góð móðir og eigin- kona. Sínar beztu stundir átti hún með börnum sínum og eig- inmanni. Við hlið mannsins síns gekk hún hinztu sporin hér á jörð. Hún var gæfukona. Með þessum fátæklegu orðum vildi ég mega binda lítinn sveig til minningar um góða vinkonu og votta ástvinum hennar ein- læga samúð. Hún er horfin sjónum okkar um sinn — þessi dóttir breið- firzkra byggða — Kölluð héðan óvænt á hásumri til nýrra starfa. Jóna Einarsdóttir var mæt kona. Með þakklæti og sárum söknuði er húsmóðirin að Brúar- landi kvödd í dag hinzta sinni. K. E. Framhald af bls. 1. að undanförnu, kom í dag til Berlínar. Urðu hermennirnir ekki fyrir neinum óþægindum á leiðinni gegnum A-Þýzkaland. Tveimur tókst að flýja Tveimur mönnum tókst að flýja frá A-Berlín til V-Berlínar sl. sólarhring, var tilkynnt i Berlín í dag. Annar þeirra komst yfir borgarmörkin nokkr- um klukkustundum eftir að her- maðurinn, sem reyndi að flýja í gærkvöldi, var skotinn. Nokkrir unglingar reistu í dag kross nálægt staðnum þar sem hinn ungi hermaður var skotinn. Getum verið án slíkra ráða Willy Brandt, borgarstjóri í V- Berlín, hélt fund með frétta- mönnum í dag, sagði hann, að morðið á hermanninum í gær- kvöldi myndi eflaust fá ein- hverja til að segja, að Berlínar- búar yrðu að sýna stillingu, en þeir geta verið án slíkra ráða, sem gefin eru úr hanaséls- samkvæmum. Hann sagði, að Berlín yrði að krefjast þess, að ástandið í borginni batnaði, og kvað það skyldu sína, sem borg- arstjóra, að biðja um alla þá að- stoð, er hægt væri að fá, því að hugleysi og tregðu andspænis ó- réttlætinu, þekkjum við frá tím- um nazismans, sagði borgar- stjórinn. Brandt var spurður hvað hann meinti er hann talaði um ráð, sem gefin væru úr hanastéls- samkvæmum. Hann sagði, að það væri auðvelt að sitja í fjar- lægð og gefa ráð í góðri mein- ingu, en þeir, sem byggju í Berlín stæðu andspænis raun- veruleikanum. Brandt sagði, að Vesturveldin yrðu að vera viðbúin því, að á eftir herstjóraskiptin í A-Berlín í gær, gæti komið, að Sovétríkin fælu austur-þýzkum yfirmanni í hendur æðstu herstjórn í Aust- ur-Þýzkalandi. Brandt sagði ennfremur, að Berlínarbúar gætu treyst Vest- urveldunum í Berlín. — Leytin Framh. af bls. 1 einnig tveggja manna, sem taí ið er að séu meðal forsprakka OAS í Frakklandi, Rene Ser- gent, fyrrv. höfuðsmanns o,g Jean Curutdhet, fyrrv. fall- hlífahermanns í útlendinga- hersveitinni. Lögreglan telur sennilegt, að þessir menn hafi skipulagt tilræðið við de GauIIe, þó að fullvíst þyki, að þeir hafi ekki tekið þátt í því. Talið er að tilræðismenn- innir hafi komið á staðinn, þar sem árásin varð í þremur bif- reiðum, skildu þeir þar eftir sendiferðabifreið og í henni fann lögreglan skotvopn og sprengjur. Bifreiðin er nú í vörzlu lögreglunnar. Lögreglan hefur sýnt fólki, sem vinnur á bifreiðastöð, þar sem tilræðismennirnir fengu sendiferðabifreiðina lánaða myndir af Sergent og Curu- tohes, en ekkert af starfsfólk- inu kannaðist við andlifin. ★ Danksa blaðið B.T. skýrir frá því í gær, að Argoud of- ursti, sem talinn er einn af forsprökkum OAS í Frakk- landi hafi í sumar skrifað blöð um og fréttastofum í París bréf, þar sem hann sagðist ætla að ráða de Gaulle af dög- um. Segir blaðið, að hann hafi staðið bak við banatilræðið s.l. miðvikudag. Barngóð stúlka óskast í vist í nágrenni Kaup mannahafnar á heimili systui minnar. Kaup 300 danskar kr á mánuði og frítt far til Dan- merkur. Sigríður Haraldsdóttir. Sími 36028.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.