Morgunblaðið - 28.08.1962, Side 2

Morgunblaðið - 28.08.1962, Side 2
2 MOTtCVNfíLAÐIÐ Þriðjudagur 28. ágúst 1962 Ungur prentari KL. hálf þrjú á sunnudagsnótt- iaa varð það slys á Grensásvegi að ungur maður, Halldór Gunnar Sigurðsson, varð fyrir bifreið og lézt á sunnudag án bess að bafa komið til meðvitundar. Bílnum, sem var 6 manna am- erísk fólksbifreið, var ekið norð- ur Grensásveg, og var 21 árs gamall piltur við stýrið. Segist hann hafa beygt sig snöggvast niður, til að slökkva á útvarps- tæki, en þegar hann leit upp aft- ur sá hann manninn í Ijósgeisl- anum og kom hann gangandi á móti bílnum. Bílstjórinn heml- bílslysi aði, en bíllinn rann áfram, og lenti maðurinn á vinstra fram- bretti innanverðu og kastaðist upp á vélarhlífina Og á vinstri framrúðuna, sem brotnaði. Slysið varð á vestari helming götunnar, úti undir miðri götu. Kom ekki til meðvitundar Halldór missti þegar meðvxt- und. Bílstjórinn ók áfram að bíla síma við Réttarholtsveg og Soga- veg, þaðan sem hann lét gera sjúkraliði og lögreglu aðvart. Sneri hann síðan við á staðinn í leigubíl, en þá var fleira flólk komið að. Var Halldór fluttur á Slysavarðstofuna og síðan á Landspítalann, þar sem hann lézt kl. 2 á sunraudag. Halldór var 26 ára gamall, prentari að iðn. Hann starfaði í prentsmiðju Morgurablaðsins á árunum 1968 og fram í janúar þ. á., en fluttist þá í prentsmiðju Vísis. Hann var sonur Sigurðar Halldórssonar, fyrrv. bæjarstjóra á ísafirði og konu hans, og lætur eftir sig eiginkorau, önnu Sigur- jónsdóttur. Ökumaður viðurkenndi að hafa neitt áfengis á laugardag, hafði verið ekið heim þá, en fór svo skyndilega út aftur og tók bílinn þarna um nóttina. Ekki taldi hann að áfengisáhrifa hefði gætt enraþá, en blóðrannsókn var látin fara fram. Flugvélin skemmdist mikið, er bún rakst á hás pennustreng og hrapaði til jarðar. Skemmdin á vængnum, sem sleit strengin, sést vel. Fiugvél sleif Káspeainustreng Hrapaði ðrskammt frá strengendanum 1 GÆRMORGUN lenti ein af j straum á jörðinni, og brotinn kennsluflugvéium Flugskólans flugvélarskrokkurinn með benz- Þyts á háspennulínunni við ínið lekandi af, í um 2 m fjar- Varmaland í Mosfellssveit, og lægð, en ekki kviknaði í og hrapaði til jarðar. Lá háspennu- mennina tvo, sem í vélinni voru, strengurinn slitinn með fullum! sakaði ekki. Helga Sigarðardóttir skólastfóri lótin Það er varla skiljanlegt hversu vel þetta fór, sagði Skafti Þór- oddsson, flugeftirlitsmaður, en hann var kominn á staðinn rúm- um hálftíma síðar. Sagði hann að jörðin hefði verið sviðin I kringum strengendann Og benz- ínið rétt hjá. Svo stutt var frá strengendanum og þar sem vélin lá, að bún hlýtur að hafa farið mjög hratt niður. ir til útlanda. Varð hún síðan kennslukona í matreiðslu og hús- mæðrafræðum, m. a. við Austur- bæjarbamaskólann í Reykjavík. Einnig hélt hún námskeið úti um land. Þegar Húsmæðrakennaraskóli íslands var stofnaður árið 1942 veuð hún skólastjóri hans og gegndi því starfi til ársins 1961, er hún lét af því sakir vanheilsu. Frk. Helga var formaður kennarafélagsins „Hússtjórn“ í Reykjavík og tók mikinn þátt í félagsmálum kvenna. Hún ritaði og gaf út margar bækur og bæklinga um mataræði og hús- mæðrafræði. Vann hún mikið og þjóðnýtt starf á þessu sviði. Mennina sakaði ekki Þetta gerðist um kl. 11.15 I gærmorgun. í flugvélinrai voru kennarinn Kári Jónsson og nemandinn Ólafur Haraldsson. Segja þeir að þeir hafi verið að æfa nauðlendingu á túninu skammt frá Varmadal, og voru á uppleið eftir það sem átti að vera næstsíðasta lendingiit, komnir í 400—500 feta hæð, þegar dró úr hreyflinum og vél- in missti flug. Voru þeir að beygja til að komast á mela til lendingar, er vængurinn snerti efsta háspennustrenginn, sem slitnaði. Flugvélin hrapaði og stór- skemmdist, en mennirnir sluppu ómeiddir, Kári hafði aðeins smá skrámu á enni. Var tilkynnt um óhappið I flugturninn og fór Skafti strax uppeftir. Síðan var staðurinn vaktaður, þangað til búið var að taka strauminn af strengnum. YFIR norðaustur Atlantshafi, frá Suður-Noregi til Labra- dor, liggur belti af grunnum lægðum skammt sunnan víð fsland. Norður undan er því austlæg átt, en vestanvindur suður í hafi. Útlit er fyrir að vindamörk in verði nálægt eða um ís- land næstu dægrin. Má því búast við breytilegri átt hér á landi og skúrasælu sunnan lands. Veðurhorfur kl. 10 í gærkvöldi: SV-land, Faxaflói og miðin: Hæg breytileg átt, skýjað með köflum, hætt við skúr- um síðdegis. Breiðafjörður og miðin: NA og A gola, skýjað. Vestfirðir til NA-lands, Vestfjmið og norðurmið: NA- gola og síðar austangola, skýjað í nótt en léttir til víða á morgun. Austfirðir, NA-mið Aust- fjarðamið og austurdjúp: Austan og NA gola, skýjað og víða þokuslæðingur í nótt. SA-land og miðin: Hæg- viðri, léttskýjað með köflum, skúraleiðingar. HELGA Sigurðardóttir, fyrrver- andi skólastjóri Húsmæðrakenn- araskóla íslands, lézt í Land- spítalanum sl. sunnudag, rúm- lega 58 ára að aldri. Hafði hún kennt þess sjúkdóms er dró hana til dauða, fyrir fjórum árum. Helga Sigurðardóttir var fædd á Akureyri 17. ágúst árið 1902. Foreldrar hennar voru Sig- urður Sigurðsson, búnaðarmála- stjóri, og Þóra Sigurðardóttir kona hans. Hún stundaði nám í húsmæðrafræðum í húsmæðra- skólum og lýðháskólum í Dan- mörku og fór margar námsferð- Akureyrarhátíðin hófst með list- sýningu og opnun íþróttahúss Glæsilegt héraðs- mót í Skúlagarði HÉRADSMÓT Sjálfstæðismanna í Þingeyjarsýslum var haldið að hinu vistlega félagsheimili Skúla garði í Kelduhverfi sl. laugardag. Var þetta með allra fjölmennustu mótum, sem þarna hafa verið Elzta hús á Aknreyri, Laxadals- húsið, byggt 1795 sem faktorshús haldin; sótti það fólk víðsvegar að og reyndist húsnæði tæplega rúma allan þann fjölda. Samkomuna setti og stjórnaðl Björn Þórarinsson, bóndi í Kíla- koti. Dagskráin hófst með þvf, aS Guðmundur Jónsson, óperusöngv ari, söng einsöng, undirleik ann- aðist Fritz Weisshappel, píanó- leikari. Þá flutti Bjartmar alþingismað ur Guðmundsson ræðu. Síðan söng frú Sigurveig Hjaltested, óperusöngkona, einsöng. Þessu næst ílutti formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, dómsmálaráðherra ræðu. AKUREYRI, 27. ágúst — Hin eiginlega dagskrá 100 á.ra afmæl is Akureyrarbæjar hófst í gær kL 2 í Oddeyrarskólanum með opnun Ásgrímssýningar. Þar eru sýnd 50—60 málverk og vatns- litamyndir eftir listamanninn Ásgrim Jónsson og var fjölmenni við opnunina. Jón G. Sólness, forseti bæjar stjórnar, opnaði sýninguna með ræðu. Taldi hann mikinn virð- ing-rvott, að Ásgrímssafn lánar Akureyrarbæ þessi listaverk á 100 ára afmælinu, en sagðist vona að gestir og bæjarbúar nytu þess arar merkilegu sýningar og færðu sér í nyt þetta tækifæri til að skoða þessi merku listaverk. Sýn ingin verður opin kl. 13—22 alla dagana. Kl. 14 hófst á íþróttavellinum bæjakeppni í knattspyrnu mixli Reykjavíkur og Akureyrar og jafnframt var tekið í notkun hxö nýja mannvirki á íþróttavellin- um, þar sem eru böð, búnings- klefar og skrifstofur og er nán- ar f.á skýrt á iþróttasiðunm. Veður fer batnandi. Veður var ekki sem ákjósan- legast í gær, norðan kaldi og þokusúld, en í dag fór veður batnandi og í kvöld er komið ágætisveður og fremur létt skýj að. Mikill fjöldi manna streym- ir nú til bæjarins, og eru öll hótelpláss upptekin, en ferða- fólki mun þó reynt að koma fyr ir víðsvegar um bæinn. Undanfarnar vikur hefur ver- ið unnið að margs konar skreyt- ingu í bænum, skrautlýsingum á ýmsum stoðum og flóðlýsingu við sumar opinberar byggingar. Þá hefur fjöldi íbúðarhúsa og bygginga verið málaður og snyrt til á annan hátt eftir því sem föng hafa verið á. Og fjöldi húsa er þveginn með sterkum dælum frá Slökkviliðinu. Iðnsýning opnuð í dag. Á þriðjudag kl. 18 verður opn uð Iðnsýning í Amaröbúsinu í Hafnarstræti og sýndar þar fram leiðsluvörur iðnfyrirtækja á Akureyri. Verður sýningin opin frá kl. 10—22 daglega. Fluttur var gamanleikurlnn —• „Heimilisfriður“ eftir Georgea Conrteline, og fóru með hlut- verk leikararnir Rúrik Haralds- son og Guðrún Ásmundsdóttir. Að leiksýningu lokinni sungu þau Guðmundur Jónsson og Sig urveig Hjaltested tvísöng við und irleik Fritz Weisshappel. Var ræðumönnum og listafólk inu ágætlega fagnað. Lauk síðan þessari samkomu með dansleik. Þótti héraðsmót þetta takast mjög vel og vera öllum aðilum til sóma.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.