Morgunblaðið - 28.08.1962, Síða 15
Þriðjudagur 28. ágúst 1962
MORGVISBLAÐIÐ
15
Mynðin sýnir þá Ben Bella (t.v.) og Mohammed Khider, er
sæti á í stjórnarnefnd hans, á blaðamannafundi, sem haldinn
var í Algeirsborg fyrir þremur ðögum. Þar vöruðu Ben Bella'
og Khider við „einræðisbrölti“ herstjóranna á „Wilaya 4“-
svæðinu.
Málin skýrast í Alsír
Andstö&u v/ð Ben Bella gætir nú
aðeins frá herstjórum á einu svæði
’ Algeirsborg, 27. ágúst — AP.
ÁSTANDIÐ í Alsír virðist nú
> nokkuð vera að skýrast. Ljóst
er, að deila herstjóranna og
stjórnarnefndar Ben Bella er
nú að nokkru leyti úr sög-
unni. Herstjórar allra her-
' stjórnarsvæða í V-Alsír hafa
nú lýst fullum stuðningi við
Ben Bella og stjórnarnefnd-
ina. Hins vegar eru herstjór-
; ar þess svæðis, sem almennt
er nefnt „Wilaya 4“, enn á
öndverðum meiði við nefnd-
■ ina. óttast þeir, að missa
völdin yfir sveitum sínum,
l þar eð stjórnarnefndin kunni
að beita sér fyrir því, að þær
verði leystar upp og liðarnir
skráðir í hinn almenna her.
Það varð ljóst í dag, í fyrsta
skipti, að hersveitir þær, er
voru undir stjórn herstjór-
anna á „Wilaya 5“-svæðinu
hafa verið leystar upp og
völdin þar með tekin af her-
stjórunum.
Andstaða áðurnefndu her-
stjóranna, á „Wilaya 4“-svæð-
inu, hefur m.a. leitt til þess,
að stjórnarnefndin hefur
ekki haft aðgang að útvarps-
stöðinni í Algeirsborg, þar eð
þeir hafa hana í höndum sín-
um. Þá hafa þeir einnig stað-
ið fyrir ritskoðun dagblaða.
Herstjórarnir á vestur-
svæðinu, sem nú hafa lýst
stuðningi sínum við Ben
Bella og menn hans, telja af-
stöðu þeirra, sem enn vilja
ekki viðurkenna stjórnar-
nefndina, mjög hættulega
framtíð landsins, og hafa for-
dæmt þá í yfirlýsingu.
Þá hafa þessir herstjórar,
sem nú hyggjast styðja Ben
Bella, tekið fram, að þeir
heiti aðeins stuðningi sínum
fram að kosningum.
Hve langt þeirra er að bíða,
er ekki hægt að segja, þar eð
kosningunum hefur nú enn
verið frestað og framboðslist-
ar dregnir til baka. Kosning-
arnar áttu sem kunnugt er að
fara fram 2. sept. nk.
Enn iíkir mikið vandræða-
ástand í Alsír, og atvinnu-
leysi er mikið, og kjör manna
almennt bág.
Þá var tilkynnt í Alsír í J
kvöld, að Mohammed Boudi- ■
af, er haft hefur með höndum ,
utanríkismál landsins, hafi
látið af störfum í stjórnar- ,
nefndinni. Boudiaf hefur ver-
ið á öndverðum meiði við Ben
Bella, og sótti um að vera <
leystur frá störfum fyrir síð- •
ustu helgi.
Molmmmed Khider tekur
við ufanríkismálunum. f bréfi
sem hann birti segist hann
ekki geta litið það réttu
auga, að menn yfirgefi stöður
sínar, er nú standi svo alvar-
lega á í Alsír. ,
Khider las ekki bréfið
sjálfur. Hann er í sjúkrahúsi,
og sagður þjást af ofþreytu
— hann hafi verið svo störf-
um hlaðinn að undanförnu. <
Si Hassah, einn af herstjór-
um „Wilaya 4“, lýsti því yfir
í kvöld, að hann myndi ,
halda áfram baráttunni gegn
Ben Bella.
Ný smásöluverzlun
á Húsavík
HÚSAVÍK, 20. ágúst. — Askja,
ný smásöluverzlun, var opuð í
Húsavík sl. laugardag. Þar er
verzlað með búsáhöld, tilbúinn
fatnað, byggingarvörur, húsgögn
og teppi. Verzlunin er þar sem
áður var verzlun St. Guðjohn-
sen, en á húsinu hafa verið gerð-
ar gagngerðar breytingar til sam
ræmis við fyllstu kröfur nútím-
ans, teikningar af þeim breyting-
um hefur gert Jósef Reynis, arki
tekt, en Tésmiðjan Fjalar h.f.
hefur séð um smíði. Verzlunin er
eign samnefnds hlutafélags og er
formaður stjórnar Stefán Pét-
ursson, útgerðarmaður, en fram-
kvæmdastjóri er Páll Þór Krist-
insson, viðskiptafræðingur.
Sportvörur og leikföng
frá Tékkóslóvakíu
Hr. Jaroslav Kioupa, fulltrúi PRAGOEXPORT. er staddur í
Reykjavík. Óskar hann eftir tækitæri til að tala við verzlunarmenn
um tékkneskar sportvörur og leíkfönf, og getur tekið pantanir
til afgreiðslu tímanlega á þessu ári. Auk sýnishorna af sportvör-
um hefir hann meðferðis yfir 200 leikfanga sýnishorn, sem verða
sýnd dagana 28. og 29. ágúst í sýnishornastofum undirritaðra
umboðsmanna fyrir ofangreindar vörur, sem gefa líka allar upp-
lýsingar.
I»eir sem selja sportvörur og leikföng eru vinsamlega beðnir að
líta inn í Ingólfsstræti 12 þessa daga.
KRISTJÁNSSON HF.
Ingólfsstræti 12, Reykjavík sími 12800.
bor - hamar
Aðeins SKIL bor-hamar hefur 3 vinnsl 'aðferðir.
1. Hamrar og borar.
2. Hamrar án snúnings
3. Snýst án hömrunar.
Tvær stærðir af þessum þekktu bor-hömrum eru
fyrirliggjandi. Bora göt í harða steinsteypu frá
%" tn 3y2”.
Byggingaiueistarar og aðrir iðnaðarmenn, lækkið
byggingakostnaðinn með því að nota fljótvirk og
örugg verkiæri.
Allar nánari upplýsingar fúslega veittar.
verkfœri & járnvörur h.f.
Ægisgöíu 7. — Sími 15815.
a
— Vilhjálmur
Framhald af bls. 10
unnar ,spyr ég Vilhjálm.
— Eg fékk nú slag fyrir átta
árum og siðan er hægri fótur-
inn máttlítill og mér er hægri
höndin slæm. Eg á bágt með
að skrifa, en gengur bara vel
að vélrita. Að öðru leyti er
heilsan góð.
Og nú stendur Vilhjálmur
upp og segir: Á ég ekki að
— Flugkeppnin
Framhald af. bls. 3.
módel, önnur vélknúin og
sum þeirra jafnvel fjarstýrð.
Nokkuð hvasst var á flug-
vellinum fyrir módelin,
þannig, að ákveðið var að
flytja þá sýningu upp á Vals-
völl, rétt fyrir ofan.
Þar voru m. a. sýnd fjar-
stýrð módel, og vakti eitt
þeirra mikla hrifningu áhorf-
enda. Sýndi það alls konar
listir í lofti, en eigandinn
stóð með senditæki og „gaf
fyrirskipanir“. Mikill fjöldi
manna fylgdist með, og lá
jafnvel við umferðartruflun
á Hringbrautinni við Mikla-
torg, er sú sýning stóð yfir.
Keppnin fór yfirleitt vel
fram, þótt nokkuð vildi við
brenna, að áhorfendur gengju
út á flugbrautirnar.
Úrslit tilkynnt um kvölðið
Allan veg og vanda af
undirbúningi höfðu Leifur
Magnússon, verkfræðingur
hjá flugmálastjórninni, Skafti
Þóroddsson, flugeftirlitsmað-
ur, og Bárður Daníelsson,
verkfræðingur.
Keppendum voru reiknuð
stig fyrir frammistöðuna, og
var notaður sérstakur frá-
dráttar-„skali“, þannig, að
þeir, sem fæst höfðu stig,
báru sigur úr býtum. Sá út-
reikingur var framkvæmdur
af dómnefnd, er í voru Björn
Jónsson, framkvæmdastjóri
flugöryggisþjónustunnar, Þor-
steinn Jónsson, flugstjóri, og
Hilmar Leósson, flugstjóri.
Störf dómnefndar voru tíma
frek, og var því ekki hægt að
tilkynna úrslit fyrr en í gær-
kvöldi. Var það gert í hófi,
sem haldið var í Lídó.
Shell-bikarinn, sem veittur
er sigurvegurunum, verður
afhentur síðar, eins og ffam-
an greinir.
Kynnir sýningarinnar var
Arnór Hjálmarsson, flugum-
ferðarstjóri, og veitti hann
áhorfendum margvíslegar
upplýsingar un keppendur
og þær gerðir flugvéla, sem
notaðar voru.
sýna þér. hvernig ég vinn? Eg
vinn hérna í kjallaranum, ég
hef látið hljóðeinangra hann.
Það er mjög' gott að vinna þar.
Algjör friður. Hann gengur al
stað og fer að leita að gler-
augunum sínum.
<— Eg á svo mörg gleraugu
og dreifi þeim svo um allt hús
ið. Það borgar sig ekki að
eiga nema ein gleraugu, í
mesta lagi tvenn. Og svo göng
um við niður í kjallarann.
— Hérna vinn ég, segir Vil-
hjálmur, og þetta er einka-
bókasafnið mitt, ég hef raðað
því í stafrófsröð, svo að ég er
mjög fljótur að finna þær bæk
ur, sem ég þarf á að halda.
— Að hverju ert þú að vinna
núna fyrir utan ævisöguna?
— Eg á eftir að ganga frá
fyrsta bindi ævisögunnar, en
ég er ekki enn búinn að á-
kveða, hvort ég rita annað
bindi. Annars er ég með mörg
verksfni i takinu, en ég vinn
aðeins að einu í einu. Eg er
með nokkrar hálfkláraðar
bækur, sumar % kláraðar, og
ég ætla að ganga í það að
ljúka einhverjum þeirra, þeg
ar ævisagan er frá.
AF fSLENZKU BERGI
BROTINN
Við göngum aftur upp og
Vilhjálmur segir mér að ég
megi til með að skoða safnið
hans, sem varðveitt sé í Baker
Library, The Stefánsson Coll-
ection, en konan hans er einn
af fimm starfsmönnum Ste-
fánsson safnsins.
— Það sagði mér einhver
hér í Hanover, Vilhjálmur, að
þú lítir alitaf á þig sem íslend
ing?
— Eg er af íslenzku bergi
brotinn, segir Vilhjálmur, ég
er bandariskur þegn, fæddur
í Kanada. Samkvæmt lögum
þá fá börn sama ríkisborgara-
rétt og faðir þeirra. Þannig
varð ég ekki íslen'zkur þegn,
vegna þess, að faðir minn var
ekki íslenzkuf þegn.
— Viltu segja nokkuð að lok
um, Vilhjálmur?
— Já, ég vil biðja þig fyrir
beztu kveðjur til fslands. Það-
an á ég góðar minningar og
þar er nánasti ættingi minn,
Stefán Stefánsson á Svalbarði.
Þegar ég spyr Vilhjálm,
hvernig ég rati á safnið, þá
segir hann, eins og ekkert sé
sjálfsagðara.
— Eg get ekki komið með
þér, en það er leigubíll hérna
fyrir utan, ég er búinn að
segja bílstjóranum hvert hann
eigi að fara með þig. Og þeg-
ar ég spyr bílstjórann á leið-
arenda, hvað bíllinn kosti, seg-
ir bílstjórinn:
— Herra Stefánsson er bú-
inn að sjá fyrir því.
Jón E. Ragnarsson.