Morgunblaðið - 28.08.1962, Síða 17
Þriðjudagur 28. ágúst 1962
MORCT'VnLAMÐ
i?
CUnborg Cuðmunds-
dóttir — Minning
FRÚ Elínborg Guðmundsdóttir
er dáin. Var kvödd og lögð í
gröf sína í gær. Við þökkum
Guði fyrir lif og dauða Elín-
bongar, svo dýrmæt fyrinmynd
var hún í trú og manndyiggðum.
Enda hafði Guð gjört hana vel
úr garði. Gáfuð og góð mann-
eskja kemist nokikuð langt í þol-
gæði þótt líkamleg heilsa sé alla
æfina tæp. En það eru nú ein-
nuddlæknir, sú yndislega kona
var systir Elinborgar og var gift
Lofti Sigurðssyni trésmíðameist-
ara sem missti hana fyrir notokr-
um árum og giftist þá Elínborgu
enda hafði hún alltaf búið í
skjóli þeirra hjóna. Báðum þess-
um konum sínum reyndist Loft-
ur svo vel sem nokkur maður get
ur breytt við heimilið sitt. Það
er og víst að saga þeirra vina
mun geymd á góðum stað.
Dauðinn er alltaf alvarlegt at-
riði fyrir mannlegar tilfinningar,
og uppgjör minninganna þá furðu
greinilegt. Einkum svcrfa þær
að, ef ástæður þeirra sem eftir
standa eru bágar. En þá kemur
dýrmætasta náðargjöfin til sög-
unnar. Trúin á Guð, vissan sem
allir hafa marg reynt, að enginn
er látinn munaðarlaus eftir. Og
ekki skulum við skamimsýnir
menn, stara niður í grafir vina
vorra heldur horfa til hirnins
og muna blessuðu, eilífu orðin.
„Eg lifi og þér munuð lifa! Og
umfram allt hver sagði þau.
Kristín Sigfúsdóttir.
frá Syðri-Völlum.
mitt erfiðu skilyrðin sem oft
skila drýgstum arði. Og Elinborg
komst vel í gegn — svo sem
vænta máti af ætterni hennar
og aðstoð góðra vina:
Steinunn Gu ðmiu ndsdót ti r,
Sjötugur í dag:
Björn Ág. Björnsson
Takið eftir
Húsráðendur:
Látið okkur leigja íyrir yður íbúðarhúsnæðið, það
kostar yður ekki neitt.
LeigumiðstÖðin.
Laugavegi 33 B — Sími 10059.
Fyrirliggjandi
Tréfex Stærð: 120x270 verð kr: 90.65
Harðtex Stærð: 320x270 verð kr. 79.30
Þakpappi 40 ferm. pr. rúlla verð kr: 274/—
Ruðugler 3ja mm. Stærðir: 160x130
og 150x100. — Verð pr. ferm. kr.: 60,25.
Söluskattur innifalinn.
Mars Trading Company hf.
Klapparstíg 20, sími 1 73 73.
tfljukrunarkanur
bóndi Hríshóli
— Freysteinn
Framihald af bls. 8.
slysum að mögulegt er, hefðu
hljóðan og öruggan gang, — laus
ir við allan óþarfa hávaða. En ég
líkti honum ekki við bílasmíð,
heldur stjórnanda báts, þegar ég
sendi honum eitt sinn þessa
vísu á á jólum:
Þinn er heiður: gjalda gaum
gnoð að leiða valdataum,
þræða reiðan faldaflaum
firra neyð um kaldan straum.
Nú getur Freysteinn Gunnars-
son og kona hans frú Þorbjörg
Sigmundsdóttir, sem hefur stað-
ið við hlið manns síns ávallt
traust og örugg og annast um
heimili hans af frábærri reglu-
semi og prýði, litið yfir langt
aðaldagsverk, mikið starf unn-
ið, mörg og dugandi námsbörn,
— að ógleymdum þeirra eigin
börnum, en þau eru bæði hin
mannvænlegustu, vel menntuð
og prýðilega hlutgeng á sínum
sviðum. Ég óska þeim öllum til
hamingju með þetta afmæli, en
afmælisbarninu og konu hans
úska óg sérstaklega, að fram-
hald góðrar heilsu og vinnuþreks
megi lengi endast enn, og flyt
þeim innilegar þaltikir fyrir langa
ag góða samvist.
Að lokum má geta þess, að
Freysteinn mun verða fjarstadd
ur frá heimili sínu í dag.
Helgl Tryggvason.
Ms. HERÐUBREIÐ
austur um land í hringferð 1.
september. —. Vörumóttak* á
þriðjudag til Hornafjarðar, —
Djúpavogs, Breiðdalsvíkur, .—
Stöðvarfj arðar, Fáskrúðsfjarðar,
Mjóafjarðar, — Borgarfjarðar,
Vopnafjarðar, Bakkafjarðar, __
Þórshafnar og Kópaskers. Far-
seðlar seldir á íöstudag
Ms. ESJA
vestur um land í hringferð 3.
september. — Vörumóttaka á
miðvikudag og fimmtudag til
Patreksfjarðar, Bíldudals, Þing-
eyrar, Flateyrar, Suðureyrar,
ísafjarðar, Siglufjarðar, Dalvík-
ur, Akureyrar, Húsavíkur og
Raufarhafnar. — Farseðlar seldir
á föstudag.
BRAGI BJÖNSSON
Málilutningur — Fasteignasala.
Sími 878.
V'es tman naey jum.
í DAG er sjötugur heiðursmað-
urinn Björn á Hríshóli og gæti ég
tfúað, að einhver þurfi að láta
segja sér það tvisvar, að tugirn-
ir séu orðnir svo margir sem
raun ber vitni um, því svo er
Björn ungur í anda og léttur
í spori ennþá að við sem teljum
okkur yngri að árum megum full
komlega vara okkur.
Björn er járnsmiður að mennt-
un og hefur smíðað mikið úr
járni um sína ævi og eru smíðar
hans traustar og af hagleik gerð
ar og eru smíðisgripir hans á
flestum bæjum hér um slóóir og
líka vel.
Þó Björn hafi smíðað mikið
um dagana, þá er það ekki nema
brot af ævistarfi hans, því að
hann hefur búið snyrtilegu búi
á eignarjörð sinni Hríshóli og
fyrir örfáum árum byggði Björn
vandað og íallegt íbúðarhús á
jörðinni, sem gerir staðinn vist-
legan heim að líta.
Björn bjó lengst af með systur
sinni Ingibjörgu, en hún er látin
fyrir nokkrum árum og má
segja að Björn hafi gengið í föð-
urstað þriggja barna hennar og
komið þeim til manns, þau eru:
Garðar Halldórsson bóndi Hrís-
hóli, Reynir Halldórsson, bóndi
s.st. og Guðrún Magnea Halldórs
dóttir hreppstjórafrú austur á
Norðfirði og er hún búin að koma
upp nafni fóstra síns.
Björn ei nú hættur búskap og
eins og má sjá hér að framan þá
búa þeir bræðurnir á jörðinni.
Garðar á nýbýli og Reynir tók
við búsforráðum í vor. Björn
valdist til mapnforráða í Reyk-
hólahreppi og var hann hrepps-
nefndarmaður um skeið og efast
ég ekki um að sörf hans þar sem
annarsstaðar hafi verið unnin af
sérstakri alúð og natni og af full
kominni samviz'kusemi, því að
þannig er manngerðin öll að
segja má að lcforð hans séu betri,
en handsöl annara manna.
Þar sem það er ekki ætlun mín
að skrifa hér æviskrá, enda ekki
hægt um vik þar sem ekki er
nema 6 til 7 ár síðan við sáumst
fyrst og fyrir þann tíma vissi
hvoruguv mjög lítið um annan,
en mér er þó kunntigt um að
fleiri opinber störf hefur hann
leyst af hendi með þeirri alúð
sem honum er í blóð borin. Eins
og hverjurn þeim sem unna og
bera virðingu fyrir lýðræðis þjóð
skipulagi hefur Björn tekið þjóð
lega og lýðræðislega pólitíska af
stöðu og hefur hann fylgt Sjálf-
stæðisflokknum að málum í því
uppbyggingarstarfi, sem flokkur-
inn hefur unnið að frá upphafi
göngu sinnar, því að Björn er
þannig maður að hann mun allt-
af láta málefni ráða afstöðu sinni.
í öllum gleðskap er Björn hrók
ur alls fagtiaðar og er að jafnaði
kátína mikil þar sem Björn er og
eitt af uppáhalds lögum Björns
sem hann syngur oft er „Kvöldið
er fagurt" og þar sem liðið er
nokkuð á dag ævinnar, þá verð-
ur það afmælisósk okkar hjóna
til þín Björn, að kvöldið verði
fagurt og því fylgi margar gleði
og ánægjustundir.
Sv. G.
Stúlka óskast
Aflressingarskálmn
Prentarar - Prentsmiðjur
Til sölu er prentvél, rafknúinn pappírsskurðarhníf-
ur, heftari o.fl. — Þeir sem' óska frekari upplýsinga
sendi nöfn og heimilisfang, me: kt: „Prent — 7765“
til Mbl. fyrir 1. sept. ’62.
Stöður yfirhjúkrunarkonu og aðstoðarhjúkrunar-
konu við Sjúkrahús Akraness eru lausar nú þegar.
Upplýsingar gefur yfirlæknir eöa ráðsmaður sjúkra-
hússins.
Stjórn Sjúkrahúss Akraness.
Viðskiptafræðingur
óskar eftir vel launuðu starfi. Tilboð sendist af-
greiðslu blaðsins fyrir 4. sept. merkt: „X—999 —■
7762“.
Nýtt
frá
VOLVO
AMAZON
station
Sýningarbíll á staðnum.
V
Gunnar Asgeirsson hf.
Suðuriandsbraut 16. — Simi 35200.