Morgunblaðið - 28.08.1962, Qupperneq 22
22
MO RGUNBL AÐlb
Þriðjudagur 28. ágúst 1962
Akureyringar höföu yfir
burði og unnu R.vík 3:0
Góð afmælisgjöf til Akureyrar 100 ára
ÍÞRÓTTAMENN á Akureyri áttu
sinn þátt á 100 ára afmælishá-
tíðahöldum á sunnudaginn. Buðu
Þeir Reykjavíkurúrvali norður
til bæjarkeppni og vel héldu Ak-
ureyringar á spöðunum, náðu ein
hverjum þeim bezta samleik er
tii þeirra hefur sézt og unnu
verðskuldaðan sigur 3 mörk
gegn engu.
Áður en leikur hófst var form-
iega tekin í notkun ný bygging
á vellinum sem er undir áhorf-
endastúku og rúmar böð, búnángs
klefa, skrifstofur o. fl.
VÍGSLUHÁTÍÐ
Hátíðin hófst með leiik Lúðra-
sveitar Akureyrar sem nú kom
í fyrsta sinn fram í skrautlegum
litklæðum. Vakti það athygli að
litklæðin eru unnin að öllu leyti
á Akureyri, efnið í klæðaverk-
smiðjunni og saumað hjá Gefjun.
Um 2000 manns fögnuðu leik
sveitarinnar.
Ármann Dalmannsson form.
ÍBA varpaði viðstadda. Hann
bauð Reykvíkinga velkomna og
skýrði frá því að byggingin á
vellinum vseri nú formlega tekin
í notkun, eftir að hafa verið í
byggingu í nokkur ár. Mann-
virkin eru teiknuð af Gísla Hall-
dórssyni og kosta fullbúin um
3 millj kr.
Sókn Reykjavíkur
Veður var ekki hagstætt til
knattspyrnukeppni, norðan kaldi
og þokusúld. Völlurinn var blaut
ur og mjög háll og áttu allir erf-
itt með að fóta sig en bar þó
meira á slíku meðal Reykvik-
inga.
Reykvíkingar sóttu í byrjun og |
áttu snemma nokkur opin tæki- j
færi. En þeim tókst aldrei að
nýta þau, voru of seinir og vörn
Akureyrar sem var nú betri en
í fyrri leikjum lét alltaf til sín
taka. ' |
FRUMKVÆÐI AKUREYRINGA
Smám saman tóku Akureyring-
ar frumkvæði í leiknum og
eftir miðjan hálfleik kom fyrsta
markið. Skúli Ágústsson skoraði
með góðu skoti eftir góðan sam-
leik á hægri kanti.
Akureyri hafði yfirleitt frum-
kvæði í leiknum, en mikill hluti I
Á LAUGARDAG fengu blaðr
menn að vera vitni að óvenju
legum og skemmtilegum at-
burði, er sýnir sannan íþrótta
anda. Þá afhentu tveir kunnir
ÍR-ingar, þeir Albert Guð-
mundsson og Jakob Hafstein
TR-ingnum Gunnari Huseby
hans var þófkenndur og fór út
undir vallarmiðju.
YFIRBURÐIR
1 síðari hálfleik héldu Akur-
eyringar áfram sókn sinni þó
leikurinn jafnaðist nokkuð. Það
varð bið á mörkum þó færi væru
allmörg á báða bóga, en þó mun
fleiri fyrir Akureyringa, sem
alltaf höfðu frumkvæðið og léku
oft laglega þó sóknin bæri ekki
árangur í mörkum. Leikurinn
var þó ekki sérlega skemmtileg-
ur. Það vantaði alla spennu í
hann.
Er 5—6 mín. voru til leiks-
loka þjörmuðu Akureyringar
mjög að marki Rvíkur. Stein-
grímur komst í færi og skor-
aði úr þvögunni. Akureyring-
ar sóttu niú án afláts og 2—3
mán. síðar skorar Skúli þriðja
markið með hörkuskoti sem
útilokað var að verja.
Akureyrarliðið hefur ekki í
annan tíma leikið betur. Það
hefur náð meiri festu í sókn-
Framh. á bls. 23
Sigurður Sveinsson, Þorvaldur Jónsson og Reynir Unnsteinsson,
sigurvegarar í þristökki.
Spennandi keppni
— ffóður áranffur
Unglingameistaramót íslands
í frjálsum iþróttum fór fram að
meginhluta til á laugardag og
sunnudag. Árangur var ágætur
í ýmstam greinum og keppni af-
arhörð, jöfn og skemmtileg.
Þátttaka var og góð í ýrnsum
greinum en slök í lengri hlaup-
■Mm
Sumir Iranna fengu „Nei“
íslenzka landsliðið valið
ÍRARNIR eru ekki tiibúnir
með val sitt á landsliðinu sem
rr.æta á því íslenzka á sunnu-
daginn kemur. Samkvæmt
reklum keppninnar verða þeir
að gefa upp nöfn 22 manna
og geta síðan ekki valið nema
úr þeim hópi. írar hafa nú
‘ilkynnt KSÍ nöfn þessara 22
og samkvæmt þeim hafa þeir
ekki fengið ieyfi fyrir alla þá
sem léku gegn Íslandi í Dubl
in.
Fá ekki leyfi.
Ljjst er t.d.
að bæði
Manchester United og Ever
ton hafa neitað írska sam-
bandinu um fararleyfi fyrir
t.d. Giles (M.Utd) og Meag-
an (Everton) svo og tveim
af brezku mönnunum síðast
nefndir, Hins vegar hefur
Cantwell miðherji fengið
fararleyfi frá Manch. Utd.,
enda er hann ekki fasta-
nr.aður í hinu fræga liði
þeirra, þó góður sé.
★ íslenzka liðið eins.
íslenzka liðið hefur verið
valið. Það er eíns skipað og
síðast nema hvað Sigurþór
Jakobsson KR kemur í stöðu
v. útherja í stað Þórðar Jóns-
sonar IA sem hlaut alvarleg
hnémeiðsli í leiknum í Dubl-
in og var skorinn upp þar ytra.
Forsala aðgöngumiða hefst
í dag við Útvegsbankann. Mið
ar eru dýrir, 100 kr. stúku-
sæti, 50 kr stæði og 10 kr fyrir
börn. Forráðamenn KSÍ sögðu
að þeir yrðu að nota þennan
góða leik, sem þeir vissu að
yrði góður til að bæta fjár-
hag KSÍ, en einnig væri dýrt
að taka þátt i Evrópuibikara-
keppninni. Þeir bentu einnig
á, að jafnvel þó þetta verð
væri hátt, væri það brot af
því sem miðar kostuðu á sam
svarandi leiki erlendis.
Huseby, Albert og Jakob Hafstein
Huseby heiöraður fyrir
afrek og áhuga í 25 ár
Albert Gubmundsson og Jakob
Hafstein heiðra hann
fagran bikar til minningar um
það að Gunnar hefur nú um
25 ára skeið iðkað íþróttir. —
Á bikarnum stendur: „Gunnar
Huseby, fyrir íþróttaáhuga og
afrek í 25 áu “
Jakob Hafstein skýrði frá
því, að er þeir Albert hefðu
komið til að horfa á EOP-mót
ið í vor, hefðu þeir orðið þess
vísari að liðin voru 25 ár síð
an Gunnar Huseby fór að taka
þátt í mótum hér á landi.
Þótti þeim þá hlýða að sýna
Gunnari viðurkenningu og
vináttu fyrir þá elju og alúð,
sem hann hefur sýnt iþrótt-
um.
Þó hefðu þeir viljað bíða,
þar til að afloknu íslands-
meistaramótiniu, þar sem þeir
bjuggust við því, að Gunnar
myndi þá bæta enn einum ís-
landsmeistaratitli við bá, sem
hann hafði þegar unnið til. Sú
von brást heldur ekki, Gunn
ar sigraði þá, með miklum
yfirburðum.
Þá vék Jakob að því, hve
marga sigra Gunnar hefði tek
ið frá ÍR-ingum, en hins veg
ar hefði framkoma hans á mót
um ætíð einkennzt af drengi-
legum leik. Sú rækt, sem hann
hefði lagt við greinar sínar
Framh. á bls. 23
16, s
18,1
13,73
12.75
12,41
11,1
11,2
11,4
1.75
1.75
1.75
6,72
6,40
6,22
52,9
4.21,2
4.21,4
57.75
53,49
46,47
22,7
23,0
23,2
2.01,6
2.06,8
42.80
38.35
33,65
3,10
3,00
2,90
10,39,0
14.35
13,05
12,75
um. Margur góður íþróttamaður
inn kom þar fram, en að sinni
verðum við að láta árangurs*
skrána tala um mótið.
Úrslit íyrri dags:
110 metra grindahlaup:
I>orvaldur Jónasson,
Kristján Eyjólfsson, ÍR,
Kúluvarp:
Kjartan Guðjónsson, KR,
Jón Sigurðsson, HSS,
Magnús Sigurðsson HSK,
100 metra hlaup:
Skafti Þorgrímsson, ÍR,
Skúli Sigfússon, ÍR,
Sigurður Sveinsson, HSK,
Hástökk:
Kristján Stefánsson, FH,
Þorvaldur Jónasson, KR,
Halldór Jónasson, KR,
Langstökk:
Þorvaldur Jónasson, KR,
Skafti Þorgrímsson, ÍR,
Sigurður Sveinsson, HSK,
400 metra hlaup:
Kristján Mikaelsson, ÍR,
1500 metra hlaup:
Kristján Mikaelsson, ÍR,
Valur Guðmundsson, KR,
Spjótkast:
Kjartan Guðjónsson, KR,
Kristján Stefánsson, FH,
Jakob Hafstein, ÍR
Úrslit seinni dags:
200 metra hlaup:
Skafti Þorgrímsson, ÍR,
Ingólfur Steindórsson, USVH,
Þórhallur Sigtryggsson, KR,
800 metra hlaup:
Kristján Mikaelsson, ÍR,
Valtir Guðmundsson, KR,
Kringlukast:
Kjartan Guðjónsson, KR,
Jón Sigurðsson, HSSS,
Sigurður Sveinsson, HSK,
Stangarstökk:
Erlendur Sigurþórsson, HSK,
Hreiðar Júlíusson, ÍR,
Kjartan Guðjónsson, KR,
3000 metra hlaup:
Valur Guðmundsson, KR,
Þrístökk:
Þorvaldur Jónasson, KR,
Sigurður Sveinsson, HSK,
Reynir Unnsteinsson, UMFÖ,
400 metra grindahlaup:
Þorvaldur Jónasson, KR, 57,7
Kristján Mikaelsson, ÍR 59,8
Þróttur og
IBK jöfn
ÞRÍR leikir annarar deildar
fóru fram um helgina, og er þá
keppni annartar deildar lokið,
utan það að tvö félög, Þróttur
og IBK urðu efst og jöfn að stig
um og verða að leika til úrslita
Þróttur vann auðveldan sigur
yfir Reyni hér í Reykjavík 4
mörk gegn 1.
í Hafnarfirði unnu Hafnfirð-
ingar stórsigur yfir Víking 5—1
Loks léku Keflvíkingar og
Bréiðablik í Kópavogi hér f
Reykjavík, Keflvíkingar komust
í 3—0 en síðan skoruðu Breiða-
bliksmenn 2 mörk. Sigur Kefla-
vkur var verðskuldaður en
Breiðablik ógnaði um tíma.
Tvö heims-
met í sundi
TVÖ heimsmet í sundi vpru sett
í sundkeppni vesturríkja Banda
ríkjanna i Los Altos í gær. Murr
ay Rose, Ástralíu setti heimsmet
í 80C m, synti á 8.51.5 og Carol-
yn House USA setti heimsmet 1
800 m Skriðsundi kvenna á 9.51.6,
Gömlu metin áttu John Kon-
rads í karlasundi 8.59.6 og Ced»
erquist SvíþjóS í kvennasundinu
9.55.6 sett 1960.